Mosfellsblaðið - 01.01.2001, Qupperneq 6
Föstudaginn 4. jan. s.l. var vígt
nýtt og fullkomið þjálfunarhús
að Reykjalundi. Björn Astmunds-
son forstjóri flutti ávarp og bauð
gesti velkomna. Aðrir sem tóku til
máls voru Jón Kristjánsson, heil-
brigðis-og tryggingamálaráðherra,
HaukurÞórðarson form. SÍBS, Vil-
hjálmur B. Vilhjálmsson form.
stjórnar Reykjalundar, Jón M.
Benediktsson framkvstj. og form.
bygginganefndar, Hjördís Jóns-
dóttir lækningaforstjóri Reykja-
lundar og Sigríður Anna Þórðar-
dóttir alþm. f.h. alþingismanna.
Reykjalundarkórinn söng og
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar lék
undirstjórn Birgis D. Sveinssonar.
Pétur Bjamason, framkv.stj. SIBS
las upp kveðju frá forseta Islands, hr.
Ólafi Ragnari Grímssyni, en vegna
annarra skyldustarfa komst hann ekki
til hátíðarinnar. Niðurlag í bréfi for-
setans hljóðaði svo:
„Eg færi forráðamönnum SIBS og
Reykjalundar einlægar þakkir ís-
lenskrar þjóðar fyrir ötult starf og for-
ystu í umsköpun íslenskra heilbrigðis-
mála og bið þess að gæfa fylgi öllum
þeim sem starfa munu á þessum nýja
og glæsilega vettvangi, að áfram muni
þúsundir landsmanna ganga heilsu-
betri og vonglaðari til síns heima að
lokinni góðri dvöl á Reykjalundi".
Forsetinn tók fyrstu skóflustunguna
að þjálfunarhúsinu þann 21. október
1999.
Byggingarferill
Ákvörðun um byggingu þjálfunar-
hússins var tekin á hátíðarfundi í
tengslum við 50 ára afmæli Reykja-
lundar I. febrúar 1995. Hönnun hófst
haustið 1998 með aðkomu arkitekt-
anna Finns Björgvinssonar, Hilmars
Þórs Björnssonar, Vífils Oddssonar
verkfræðings, Bjöms Ástmundssonar
forstjóra og Jóns M. Benediktssonar,
frkv.stj. sjúkrahússviðs og síðan form.
bygginganefndar, en í nefndinni með
honum vom Unnsteinn Eggertsson,
frkv.stj. Kraftvaka, Gústaf Vífilsson,
Finnur Björgvinsson og Páll Poulsen,
sem var byggingastjóri. Þeir héldu
um 80 fundi meðan byggingin stóð
yfir.
Jarðvinna var boðin út og samið við
lægstbjóðanda, Suðurverk h/f þann
17. apríl 2000, sem annaðist gmnn,
bflastæði og lagnir. Alls vom fleygað-
ir 8000 rúmmetrar af klöpp, hún ljar-
lægð og mulin niður af stórvirkum
vélum í bflastæðið sem rúmar 170
bfla. Blessuð klöppin gegnir því sínu
hlutverki ágætlega áfram, en nú sem
bflastæði. Þama var um mjög erfiðan
gmnn að ræða, en húsið er fellt að
verulegu leyti inn í klettabelti.
Aðkoman að húsinu er sérstaklega
falleg, einstaklega fallega útfærð, en
Reynir Vilhjálmsson landslagsarki-
tekt var hönnuður að þeim þætti. -
Þessu næst var boðið út fullgert hús
og samið við lægstbjóðanda, Kraft-
vaka e.h.f. þann 31. ágúst 2000, sem
hefur unnið að byggingunni ásamt
fjölmörgum undirverktökum. Húsið
er í dag glæsileg að hluta til 3. hæða
bygging, sem fellur vel að öðmm
Vígslusundið í nýju sundlauginni tók ungt afreksfólk í sundi fatlaðra, þau Bjarki Birgisson, heimsmet árið 2001, Kristín Rós Hákonar-
dóttir, heimsmet árið 2001, Pálmar Guðmundsson heimsmet 1998, hætti keppni 2000 og Sigrún Huld Hrafnsdóttir, fjöldi heimsmeta og
hætti keppni 1996. Það var vel til fundið að þetta glæsilega afreksfólk tæki sundið í hinni nýju sundlaug í einni fullkomnustu þjálfunar-
stöð Norðurlanda.
Skégræktarsvæðið
undir byggingar?
Stjórn Skógræktarfélagsins hef-
u r borist sú frétt, að íslenskir
Aðalverktakar, eigendur Blika-
staðalandsins hafi lagt frant drög
að íbúðabyggð og vegagerð inn á
svæði Skógræktarinnar, sem hef-
urþinglýstan leigusamning til árs-
ins 2065. Svæði þetta nærað borg-
armörkum Reykjavíkur. Stjórn
Skógræktarfélagsins hefur sent
formleg mótmæli við þessum hug-
myndum og bíður svars. Ef slíkt
gerist er verið að eyðileggja mar-
gra ára ötult og óeigingjarnt starf
fólks hjá félaginu.
- hafðu samband -
Einar Páll Kjærnested • Löggiltur fasteignasali
Fasteignasafa
Mosfellsbæjar
Sími: 586 8080
www.fastmos.is
Þverholti 2 • Mosfellsbæ
Eigendaskipti á Framköllun
Amyndinni eru nýir eigendur að Framköllun í Þverholti, f.v. Þóroddur Gunn-
arsson og Kristín Pétursdóttir, Ingibjörg Þorbjörnsdóttir sem starfað hefur á
stofunni verður þeim áfram til halds og trausts. - Kristín sagði starfsemina verða
þá sömu með góðri þjónustu við bæjarbúa, en einhverjar breytingar yrðu á útliti
stofunnar. Blaðið býður nýja eigendur velkomna og þakkar Jóhanni Gunnars-
syni afar góða þjónustu, en hann m.a. hefur framkallað nánast allar myndir fyr-
ir Mosfellsblaðið um tíðina.
MOSFELLS 6 BLAÐIÐ