Mosfellsblaðið - 01.01.2001, Blaðsíða 8

Mosfellsblaðið - 01.01.2001, Blaðsíða 8
Hinn þekkti dugnaðarforkurSkarphéð- inn Össurarson hætti störfum í Kola- portinu á Þorláksmessu, en hann var mörgum kunnur sem skemmtilegur kaup- maðurog átti allsstaðar vini. Hann fæddist 30. júlí 1916 í Bolungarvík, en ólst upp að Skálará í Keldudal í Dýrafirði. Kona hans er Valgerður Magnúsdóttir fædd í Reykja- vík, en af Götuhúsaætt á Stokkseyri. Þau eiga fimm börn. Skarphéðinn fór í Bændaskólann að Hvanneyri 1936-1938, lærði síðan kjötiðn og fór til Danmerkur til náms. Hann vann að verslunarstörfum og var lengi hjá Silla og Valda. Bjó ásamt fjölskyldu sinni um 14 ára skeið í Mosfellsbæ, fyrst á Blikastöðum þar sem hann rak hænsnabú, einnig bjó fjölskyld- an í Bugðutanga. Eftir það bjó hann á Hvann- eyri, þar sem hann rak hænsnabú með útung- unarstöð. 1988-89 kom hann að fiskeldi í Gufunesi, sem Össur sonur hans stóð að. Hann setti þá á fót ijölskyldufyrirtækið Deplu, sem verkaði lax og silung með reykingu og fleiri aðferðum. 1991 kom hann upp sölubás í gamla Kolaportinu við Kalkofnsveg og flut- ti síðan í nýja Kolaportið þegar það var flutt í Tollhúsið líklega 1996. Þar varð hann kunnur fyrir góða söluvöru og gott viðmót við alla sem til hans leituðu. Skarphéðinn sendir góðar kveðjur til allra sinna góðu vina fyrir tryggð og trygglyndi. Skarphéðinn er hér í bás sínum í Kolaportinu að afgreiða vörur sínar skömmu fyrir Þorláksmessu og að sjálfsögðu ber hæst laxinn og silunginn. —^ns200l Hlín Blómahús með verðlaun Orkuveita Reykjavíkur verðlaunaði nokkra aðila á höfuðborgarsvæðinu fyr- ir sérstaklega fallegar jólaskreytingar fyrir þessi jól. Hérí Mosfellsbæ varþað Hlín Blómahús sem fékk verðlaunin, en þeint Hlín og Sigþóri erfleira til lista lagt en blómaskreyting- arog geta bæjarbúar verið stoltiraf sinni ágætu blómabúð. (aSKreyt'ng ........... abúðtn Hlí" B,Ó«ÍKolt. 2* 0nnin9u . ðln Hlín hl*tU’ "ér mSð Vl° . w ,/ rf Menningarmálanefnd Mosfells- bæjar auglýsir eftir umsóknum um fjárframlög til lista- og menningarstarfsemi 2002 Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsa eftir aðilum sem óska eftir fjárframlögum frá menn- ingarmálanefnd vegna listviðburða og menningarmála árið 2002. Hér undir falla áður árviss fjár- framlög til margvíslegrar menningarstarfsemi í bænum, auk nýrra. Reglur um úthlutun. 1. 2. 3. 5. 6. Rétt til að sækja um framlög til nefndarinnar hafa listamenn, samtök listamanna og félaga- samtök, sem vinna að listum og menningarmálum í Mosfellsbæ. Fjárframlög til lista og menningarmála eru af tvennum toga: a) Verkefnastyrkir til einstakra verkefna. b) Starfstyrkir til félagasamtaka á sviði lista og menningarmála í Mosfellsbæ. Nauðsynlegt er að umsækjendur tilgreini nákvæmlega til hvaða verka ætlað er að verja framlögunum. Umsóknum skal skilað í síðasta lagi þann 1. mars 2002 á skrifstofu fræðslu- og menn- ingarsviðs Mosfellsbæjar. Þeim ber að skila á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem hægt er að fá á skrifstofu Mosfellsbæjar eða á heimasíðu bæjarins. Nefndin áskilur sér rétt til að hafna umsókn umsækjanda að hluta eða alfarið. Niðurstöður menningarmálanefndar Mosfellsbæjar munu liggja fyrir eigi síðar en 20. mars 2001 og eru háðar samþykki bæjarstjórnar. Fræðslu- og menningarsvið Mosfellsbæjar Þverholti 2, 270 Mosfellsbær Nýlega er liðið eins árs afmæli lóðahneykslisins, sem bæjarstjórn- armeirihlutinn stóð fyrir á sínum tíma. har sem stór hluti umsækj- enda er enn hundóánægður þrátt fyrir peningagjafir meirihlutans, hefur verið ákveðið að setja upp mikla afmælishátíð við Súluhöfða með virkilega stórum potti. Umsækjendur taka hringdans kring um pottinn með meirihlutanum í von um að ekki sé búið að ausa öllu úr honum. Aðalgrínið verður þegar forseti bæjarstjórnar lýs- ir yfir á Stöð 2 hvaða árgangar húsasmíðameistara megi hræra í næsta lóðapotti. cM&U&liHXjÆ/l í VOA, Púkinn bíður í ofvæni eftir vorinu, þegar heræfingar hefjast hjá Nato. Varmárskóli með stærð sinni og stærsta skólamötuneyti landsins er orðinn eitt ákjósanlegsta víghreiður hér á landi til að taka á móti hermönnum Nato í gistingu. Púkinn styður heils hug- ar fyrri tillögu formanns bæjarráðs að skólinn hýsi herinn, því sýna þarf fram á betri nýtingu mötuneytisins, sem gæti dugað fyrir alls kyns hernað, jafnvel Talibana, ef þeir sækja um skólavist. Sktyi. a Púkinn er mjög stoltur af hinum heitu réttum sem börnin fá nú í Gagnfræðaskólanum í hádeginu, en fæðið samanstendur af góm- sætu þurru brauði og dós sem á stendur: Skyr.is. Þetta gæðafæði mun vera flutt til skólans með tölvupósti og kemur hlýtt og nota- legt beint undir stigann í skólanum, þar sem börnin neyta þess. JícunLciíimí Gífurleg ánægja ríkir nú meðal verslunareigenda í Mosfellsbæ og Grafarvogi með þá stefnu bæjaryfirvalda í Mosfellsbæ að fá nýtt moll á svæðaskipulaginu við Lambhaga, ■ lögsögu Reykjavíkur rétt ofan við Blikastaðina. Þarna mun rísa upp gífurleg verslunarmið- stöð með stórum Ijósmyndum af meirihlutanum á áberandi stöð- um, því Lambalind keppir við Smáralind en eins og allir vita hefur verið örtröð út úr dyrum í Smáralind frá opnun. Öllum þessum kompum í Mosfellsbæ og Grafarvogi verður lokað og þá verður gaman í Lambalind. Masnús ldippir Hér er Magnús Már Ólafsson að klippa og saga fallegt birki sitt að Asparteigi 1 í vorblíðunni þann 20. janúar, það er norðaustan gola og 7 stiga hiti. Blaðið hafði samband við Davíð B. Sigurðsson í golfi á Flórída, þar var bara 18 stigum hlýrra. I viðtali við blaðið sagði Oddgeir Ámason garðyrkjustjóri Mosfellsbæj- ar, að rétti tíminn til að klippa birki væri janúar og febrúar. Þrátt fyrir veð- urblíðuna og hitann má fólk ekki hreinsa beð, en klippa má limgerði, en allt í lagi að láta það bíða fram í mars/apríl. Þrátt fyrir gott veður er stuttur birtutími svo gróður lætur ekki plata sig svo glatt, nema einhverjir kvistir. Hins vegar er stórhættulegt að fá svona veður í mars og síðan frost, sagði garðyrkjustjóri að lokuin. MOSFELLS 8 BLAÐIÐ

x

Mosfellsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.