Vísir - 29.04.1970, Síða 4
4
VISIR . Miðvikudagur 29. apríl 1970.
Stríðsdans á Highhury, er
Arsenal varð Evrópumeistarí
Umsjðn Hallur Símonarson
— sigraði Anderlechf 3-0 i gærkvöldi
LOKSINS, eftir 17 ár í skugganum án sigurs í nokkurri keppni,
varð Arsenal aftur nafn f enskri og evrðpskri knattspyrnu og
sigraði Anderlecht frá Belgíu í síðari úrslitaleik félaganna í Borga-
keppni Evröpu 3—0, samanlagt 4:3, í gærkvöldi á leikvelli fé-
lagsins í Highbury-hverfinu í Lundúnum. Loksins fengu aðdáend-
ur Arsenal (vopnabúr) á ný tækifæri til að fagna sigri í keppni.
60 þúsimd þeirra höfðu hvatt leikmenn allan leikinn, og þegar
hinn austur-þýzki dómari flautaði leikslok, streymdu þúsundir
niður á völlinn og dönsuðu stríðsdans ásamt leikmönnum Lund-
únaliðsins. 1 fyrstu reyndu nokkur hundruð lögreglumenn að
hindra mannfjöldann, en sáu að slíkt var tilgangslaust, og tóku
þá bara sjálfir þátt í gleðinni, sem fór fram án þess til nokkurra
átaka kæmi. Já, tákn félagsins, fallbyssan, hafði verið dregin
fram úr vopnabúrinu í Háu-Gröf í gærkvöldi — gljáfægð og skín-
andi — og nú voru það ekki púðurskot sfðasta áratugsins, sem
hljómuðu á leikvanginum, heldur þrumuskot millistríðsáranna,
sem minntu á foma frægð, þegar Arsenal var voldugasta og bezta
knattspymufélag heims.
Það voru fáir, sem hölfðu gefið
ArsenaJ nokkra von til sigurs í
keppninni eftir fyrri lei'k liðanna í
Belgíu í vikunni á undan. Ander-
ledht sigraði þá með 3 —1 og sýndi
mikla yfirburði í leik, en með fé-
laginu leika knattspyrnumenn frá
mörgum löndum. En framkvæmda-
stjóri Arsenal Bertie Mee hafði trú
á leikmönnum sinum og stillti upp
sama liði aftur. Peter Marinello,
100 þús. punda maðurinn, var því
aftur meðal áhorfenda, en George
Armstrong hélt stöðu sinni. Þetta
var rétt ráðstöfun_ því Armstrong
var hér og þar og alls staðar á
veliinum í gærkvöldi, sá leikmaður-
inn, sem vann bezt í leiknum.
Arsenal sótti mjög í fyrri hálf-
leik en vörn Anderleoht var sterk
og vel skipuiögð með Sviann
Thomas Nordahi (son Gunnars,
sem frægur var með AC Milan)
sem bezta mann. Þó gat hún ekki
komið í veg fyrir mark Eddie Kelly,
framvarðar, sem skoraði á 25. mín.
með þrumuskoti utan vítateigs og
lenti knötturinn innan á stöng og
í markiö. Staðan í hálf'leik var 1—0,
þrátt fyrir mikla pressu Arsenal.
Framan af siðari hálfleiknum
var Ansenal einnig mikið í sókn,
en þegar líða tók á hálfleikinn virt-
ist leikur liðsins vera að staðna,
og belgfska liðið náði hvað eftir
annað hættulegum upphlaupum.
Aðeins 18 mínútur voru eifitir —
og sigurmöguleikar Anderlecbt í
keppninni virtust miklir.
En þá skeði það. George Graham
náði knettinum og gaf til Bob
McNab, bakvarðar, sem brunaði
upp kantinn, lék á kollega sinn í
belgíska liðinu, og gaf mjög vel
fyrir marklð til John Radford, sem
skallaði í mark. Leikurinn hófst að,
nýju — Arsenal náði strax knett-
inum og Jon Sammels fékk hann
út á hægri kant, renndi sér gegnum
vömina og skoraði. Tvö mörk á
sömu mínútunni og önnur eins
fagnaðarhróp og þá hljómuðu á
Highbury hefur undirritaður aldrei
heyrt í gegnum BBC fyrr.
En leiknum var ekki lokið og
Anderlecht þurfti aðeins eitt mark
til að jafna. Belgísku leikmennimir
vissu hvað í húfi var og voru sbund-
um allir — nema markvörðurinn —
í sókninni. En ailt kom fyrir ekki,
þeim tókst ekki að skora. Þriðja
árið í röð hafði enskt félag sigrað
í þessari keppni, sem svo mjög er
farin að setja svip sinn á evrópska
knattspymu, Newcastile sigraði í
fyrra, Leeds 1968.
Lið Arsenal í leiknum í gærkvöldi
var þannig skipað. Wilson Storey,
McLintock, Simpson, McNab —
Kelly, Sammels, Graham — Arm-
strong, Radford og George.
Anderlecht náðj mjög athyglis-
verðum árangri í keppninni og sló
meðal annars út bæði Newcastle og
Inter Mdian.
— hsím.
íslandsmót / fímleikum
veriur háð um helaina
Fimleikasamband íslands var
stofnað í maímánuði 1968 að til-
hlutan Í.S.Í., og voru þrettán fé-
Iagasamtök stofnaðilar. Á þessum
tæpum tveim ámm, sem liðin eru
frá því að sambandið var stofnað,
hefur það leitazt við að efla fim-
leika í landinu. Fyrsta islands-
meistaramót í fimleikum á vegum
F.S.Í. fór fram 30. marz 1969 í
íþróttahúsinu á Seltjamamesi.
Geta má þess að þá voni liðin
30 ár síðan íslandsmeistaramót í
fimleikum var haldið hér á landi.
Mótið í fyrra fór hið bezta fram
og var aðsókn svo mikil, að fjöldi
manns varð frá að hverfa. Ýmsir
örðugleikar voru við að halda þetta
fyrsta mót, þar sem Mtið var unnt
að styðjast við fyrri reglur og
reyndir dómarar ekki til hér á
landi. Reynt var að sníða keppnina
við alþjóðakeppnisreglur, en miöa
æfingaval við getu fimleikafólks
okkar og haga þannig til, að sem
flestir gætu tekið þátt í mótinu.
Formaður fimleikasambandsins
Valdimar Örnólfsson hafði sam-
band við hjónin Kurt og Else
Trangbæk, sem eru meöal bezta
fimleikafóíks Dana og fékk hann
þau til að koma hingað.
Þau hjónin áttu stærstan þátt í
því hversu mótið tókst vel í aMa
staði.
Keppendur i mótinu voru alls
31, frá þrem félögum, Ármanni, K.
R. og fþróttabandalagi Siglufjarðar.
Úrslifaleikur ensku bikar-
keppninnar er í dag
Úrslitaleikurinn i ensku bik-
arkeppninni veröur háöur í
kvöld á Old Trafford i Man-
chester og leika þá Leeds og
Chelsea öðru sinni. Líklegt er,
að liðsskipan beggja liða verði
hin sama og í fyrri leiknum á
Wembley. Alan Hudson hjá
Chelsea hefur enn ekki náð sér
eftir melðslin og getur ekki leik-
ið — en hjá Leeds var nokkur
vafi í gær um markvörðinn
Gary Sprake og fyrirliðann
Billy Bremner, en þó meiri lík-
ur taldar á, að þeir leiki. Mikill
áhugi er á þessum leik og verð-
ur honum sjónvarpað til flestra
landa Evrópu. Þá er mikill und-
irbúningur hjá útvarpsstöð BBC
í sambandi við hann og verða
allar endurvarpsstöðvar BBC í
notkun og mun lýsing á leiknum
því heyrast í öllum heimshorn-
um.
Leikurinn hefst kl. 18.30 eftir
íslenzkum tíma og veröur lýst
öllum og bezt hér er að ná
þeirri lýsingu á 31 metra. BBC
sýnir leiknum svo mikla virð-
ingu að heimsfréttimar kl. 19
falla niður.
Þetta var í fyrsta skipti, sem konur
tóku þátt í ísilandsmeistaramóti í
fimleikum hér á landi. fslandsmeist-
ari í fimleikum kvenna varð Guð-
rún Erlendsdóttir Á, og karla Krist-
ján Ástráðsson Á. Flokkakeppnina
unnu Ármenningar.
Ársþing F.S.Í. 1969 var haldið 22.
nóv. s.l. Stjórnin var endurkjörin,
Valdimar Örnólfsson, formaður,
Jens Guðbjörnsson, Þorgeröur
Gísladóttir, Grétar Franklínsson og
Sigurður R. Guðmundsson. Á þing-
inu ríkti mikill áhugi á eflingu
fimleikafþróttarinnar, bæði sem
keppnisfþróttar og íþróttar, sem
allir geta iðkað sér til heilsubótar
og ánægju. Íslandsmeistaramót í
fimleikum 1970, verður haldið 2.
og 3. maí í íþróttahúsinu á Sel-
tjarnamesi.
Fyrri daginn verður keppt í
skylduæfingum, en síðari daginn
frjálsum æfingum.
■ r
Sundmót Armunns
er í kvöld
í kvöld miðvikudag heldúr Ár-
mann siít árlega sundmót í Sund-
höll Reykjavíkur og hefst það kl.
8,30 e.h. Keppnisgreinar eru:
200 m. fjórsund karla
200 m baksund kvenna
200 m. bringusund karla (bikar-
sund)
100 m. bringusund kvenna
100 m. skriðsund telpna. f. 1956
og síðar
100 m. skriðsund karla (bikar-
sund)
50 m. skriðsund drengja (bikar-
sund)
200 m. fjórsund kvenna (bikar-
sund)
50 m. bringusund telpna, f. 1956
og síðar
4x100 m. bringusund karla
AMt bezta sundfölk landsins
keppir á mótinu og má búast viö
spennandi keppn; í mörgum grein-
um, en framundan eru m. a. tvær
landskeppnir hér heima og sund-
fólkið komið í góða æfingu.
Bob McNab — sending hans lagði
grundvöllinn að sigri ArsenaL —
Hann er eini leikmaður Arsenal,
sem fer með enska landsliðinu á
HM í Mexíkó á mánudaginn.
Leikið til
úrslitiB í Vín
í kvöld fer fram £ Vínarborg úr-
slitaleikurinn £ Evrópukeppni bik
arhafa £ knattspyrnu og leik.
Manch. City og Gornik frá Pó!
landi tiil úrslita. Reiknað er me
mjög tvísýnum leik, en bæði lið
halfa öllum sínum beztu mönnui
á að skipa. Lýsing á leiknum ver.’
ur £ BBC og héfst kl. 21.15 að í.
lenzkum tíma.
Hvort felhir, KR
eða Víkingur?
í kvöld verður mikil barátta
i Laugardalshöllinnj — barátta
um fallsætið í 1. deild — og
leika KR og Vikingur þennan
mikilvæga leik, sem sker úr um
hvort félagið heldur sæti sínu í
deildinni næsta keppnistímabil.
Bæði félögin hlutu fjögur stig i
1. deildar-keppninni, KR öll sín
gegn Víking, en hins vegar vann
Vikingur bæöi Hauka og Val.
Eftir þessu að dæma, ætti
lið KR aö vera sigurstranglegra
í kvöld, þar sem það virðist
hafa tak á Víkingum. En sá mun-
ur er frá leikjunum fyrrímótinu
að Jón Hjaltalín Magnússon leik-
ur nú með Víking. Jón kom
gagngert heim til að leika meö
Víking síðustu leiki mótsins, en
hann stundar verkfræðinám i
Svíþjóð. Og nú er að vita hver
áhrif hann hefur á Ieik félags
síns til hins betra í kvöld.
Þá Ieika einnig í kvöld Breiöa-
blik og Grótta í 2. deild. en sá
leikur hefur ekki nein áhrif á
gang mála í deildinni. Þar leika
ÍR og KA til úrslita um keppnls-
rétt í 1. deild næsta ár-