Vísir - 29.04.1970, Page 7

Vísir - 29.04.1970, Page 7
7 V^IS&'R . Miövikudagur 29. apríl 1970. cyflenningarmál Gylfi Gröndal skrifar um sjónvarpið: Hollywood og HimmeHond JJoðuð hefur veriö styttíng sjónvarpsdagskrár frá og með 15. maí næstkomandi, og á hún að gilda í sumar. Efniö verður að sögn léttara og ódýr- ara, og innlend framleiðsla hverfur að mestu eða öllu leyti. Þá verður væntanlega lokað í einn mánuð vegna sumarleyfa eins og undanfarin ár. Ef til viíl er ekki ástæða til aö áfellast þá stefnu aö leggja höfuö- áherzlu á gæði dagskrárinnar á vetrum, meðan ekki eru tök á aö sjónvarpa samfellt allt árið vegna fjárskorts og fámennis. Átta mánuöi ársins dveljumst við meira innandyra en flestar aðrar þjóöir og höfum því mest gagn af sjónvarpi þann tíma. En óneitanlega þynnist súpan meira en lítið, þegar innlenda efnið er tekið úr. íslenzkt sjón- • varp hlýtur að byggjast á ís- lenzku efni fyrst og fremst og því mest um vert, að hlutur þess sé sem stærstur. jpróðlegt er að velta fyrir sér, hvort sjónvarpinu hefur farið fram, hvort það hefur staö ið í stað eða' hvort því hefur hrakað, siðan það tók til starfa fjfldr þremur og hálfu ári. Ein- hver riiinningaljómi eða blekk- ing fjarlægðarinnar kann að koma' í veg fyrir hlutlaust mat f þessum efnum. Öllum var Ijóst í upphafi, að nýjabrumið færi af eftir skamman tíma. En þrátt fvrir þetta er sú skoðun áleitin, að sjónvarpið hafi verið lff- legra og skemmtilegra og öll vinnubrögð þess vandaðri fyrstu tvö árin en nú. Áreiöanlega er enn ekki lögð nægileg áherzla á ýmis grundvallaratriöi í gerð íslenzka efnisins. Allt of margir innlendu þættirnir eru eins kon ar fyrirlestrar með skuggamynd um, þar sem orðið ríkir yfir myndinni, en ekki öfugt eins og vera ber. Umræðuþættirnir eru til dæmis um of staönaöir i föstu formi. Það er þreytandi til lengdar aö horfa á tvo eða þrjá menn sitja við borð og karpa um efni, sem á að vera efst á baugi. Slikum þáttum mætti fækka, en reyna i staðinn að taka deilumál til rækilegrar meðferðar og gera þeim skil á myndrænni og fjölbreytilegri hátt. Líklega var helzt nýja- bragð á liónum vetri að nokkr- um íslenzkum leikritum, sem samin voru sérstaklega fyrir sjónvarp, og þáttum af einstök- um stöóum úti á landi, sem sjón varpsmenn tóku í fyrrasumar. |þn nóg um það að sinni. Vetr- ardagskráin er enn við Iýði þrátt fvrir sumarkomuna og sitt hvaö umræðuvert úr síðustu viku. Af framhaldsþáttum eru Rósastríöin sem fyrr girnileg- ust. Margir óttuðust, þegar þessu vandaða efni var hleypt af stokkunum, að það mundi aðeins vinna sér hylli fámenns hóps. En skyldi ekki áhorfend- um hafa fjölgað jafnt og þétt, síðan spenna þáttanna tók að aukast? Afhending Oscarsverðlauna stóð í tvær klukkustundir og er með lengstu dagskrárliðum, sem fluttir hafa verið. Það var því ekki árennilegt að setjast við tækið og eiga slíkt í vændum. En þetta revndist hið prýðileg- asta efni og Öágóð skemmtun, þegar allt kom til alls. Þarna birtist hver kvikmyndastjarnan á fætur annarri í eigin persónu, bæöi ungar og gamlar. Áuk þess var skotið inn á milli viðtölum við nokkra af frægustu leikstjór um heims og lagðar fyrir þá spurningar um stöðu kvikmynda gerðar nú á dögum. Þetta jók Sigurður Jakobsson skrifar um kvikmyndir: á hálum ís The Fictíon Makers Dýrlingurinn á hálum ís. Aöathtutverk Rogór Moore. Hafnarbió jprægur glæpasagnarithöfund- ur verður fyrir þeirri rauna legu reynslu að pensónur i bók um hans gæðast tífi_ taka hann höndum og skipa honum að skrifa um sig glæpasögur, Fyrir misskilning álíta vondu mennirn ir að Dýrlingurinn sé fyrrgreind ur ritihöfundur. En þar eð Dýr- lingurinn lætur ekki að sér hæða fer auðvitað að lokum ilia fyrir glæpamönnunum. Þaö er sannarlega frágangs- sök að ætla sér að fjalla um mynd þessa á einhverjum á- kveðnum forsendum þvi það liggur hreint ekki Ijóst fyrir, hvers konar mynd þetta á að vera. Helzt mætti þá álita þetta vera einhvers konar afþreyingar mynd i svipuðum stíl og Dýr- Iings-myndimar sem sýndar voru hér í sjónvarpinu fyrir skemmstu við almenna hrifn- ingu. En sem afþreyingarmynd er þessi mynd gersamlega mis heppnuð og á köflum hreint og beint Ieiðinleg. En varla verður nokkrum einum kennt um þessi leiðinlegu mistök, allir hafa lagzt á eitt með að gera mynd- ina sem hrapallegast úr garði, og er þar fremstur í flokki Rog- er Moore snoppufriður súkku- laðidrengur blessunarlega laus við minnsta snefil af leikhæfi- leikum, en þó af til vill mestur leifeari þeirra sem sjást í mynd inni. Það er í raun mesta ráðgáta, hvernig unnt er að safna saman svo stórum hópi hæfileika- snauðs fólks á einn stað og þó er hitt ef til vill enn stærri ráð- gáta hvernig hægt hefur verið að telja þessú fólki trú um að það gæti búið tiil kvikmynd. En stórþjóðirnar láta sér vissulega ekki allt fyrir brjósti brenna þegar kvikmyndagerð er annars . vegar. Danger Route Hættuleg leið Leikstjórh Seth Holt Aöalhlutv. Richard Johnson Tónabíó. Tónas Wilde er starfsmaður " brezku leyniþjónustunnar með manndráp sem sérsvið. — Hann kemst að því eftir þó nokkurt þóf að eitthvað er ekki eins og það á að vera því 6 af 31 drápi hafa verið skipulögð sem aðgerðir gegn brezka heimsveld inu og þá sennilega af vondu kommúnistunum. Því er það sem Jónas tekur til eigin ráða og fer að athuga yfirmenn sína nánar. Eins og ailir sjá sem kannast við myndir af þessu tagi er sögu þráöurinn gamalkunnur og marg dagskrárinnar að efnisgildi mun. Á eftir HoIIywood kom gjör- ólíkt efni: þáttur frá'danska sjón varpinu um Jóhannes V. Jensen. Ekki var gerð tilraun til að sýna heildarmynd af lífi og list Nó- belsskáldsins, heldur fjallað ít- arlega um örfá atriði: ljóð höf- undar, sem munu hafa haft á- hrif á danska nútímaljóöagerö, umhverfi Himmerlands, þar sem nokkrar kunnustu sögur Jen- sens gerast og loks trúarskoðan- ir hans. Viðtöl voru við son skáldsins, Klaus Rifbjerg og Tom Kristensen. Þessi smekk- legi og athyglisverði þáttur minnti óþvrmilega á, hversu lít- ið hefur verið framleitt af sam- bærilegum bókmenntaþáttum ís- • lenzkum. Þær tilraunir, sem geröar hafa verið til aö túlka bókmenntir okkar, hafa flestar veriö vanmáttugar og misheppn aðar. Væri nú ekki ráð að læra af Dönum og byrja á næsta vetri að gera þætti um einhver af eldri skáldunum, til dæmis Ein- ar Benediktsson? Enn eru á lífi menn, sem þekktu Einar per- sónulega, og mætti ræða við þá samhliða því sem einhverjum atriðum úr lífi hans og skáld- skap væru gerö skil — ekki í fyrirlestrarformi, heldur á mynd rænan hátt. Dagskrárefni úr Hollywood: John Wayne í verðlaunahlut- verki sínu. þvældur því þær eru ófáar myndirnar sem gerðar hafa ver ið úr þessu efríi. Raunar er eng in ástæöa til aðfjölyrða um myndir af þessari gerð, þær eiga sér sinn trygga áhortfendahóp, er sér sérhverja þeirra, — hvaö sem hver segir — yfir sig hrif- inn, étandi poppkorn, uggandi um örlög söguhetjunnar fram á síðustu stund og slefandi af á- . nægju í hvert sinn sem einhverj um vondum manni er misþyrmt. Fólk sem sækir þessar myndir að staðaldri er langtum áhuga- verðara rannsóknarefnj en þeir sem gera slíkar myndir því fyrir þeim vakir efeki annað en pen- ingagræðgi. Það er auðvitað lúx us fyrir unglinga aö fá dag- drauma sina i Cinemascope og Pathe-litum fyrir einar 100 krón ur, en virðulegir forstjórar stór fyrirtækja og undirkontóristar hjá bænum ættu að hafa gert sér grein fyrir því að nokkurn veginn er útséð um að CIA eða brezká leyniþjónustan fari að bjóða þeim stórfé og falleg ar konur fyrír að berja á tröll- um í austurvegi. En nóg um það. Hættuleg leið er á margan hátt betur gerð en gerist og gengur um slíkar myndir. Aðstandendur myndar- innar eru ekki jafngjörsneyddir hæfileikum og venjan er, og þvi verður efeki annað sagt en mynd in sé allt að þvi sæmilegur iðn- varningur. Aðalfundur Aðalfundur Loftleiða hf. verður haldinn föstu dagi.nn 29. maí n.k., kí. 2 e.h. í Hótel Loftleiðir (Leifsbúð). Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. Önnur mál. Hluthafar fá atkvæðaseðla í aðalskrifstofu Loftleiða á Reykjavíkurflugvelli, fimmtudag- inn 28. maí. Stjórn Loftleiða hf. WFTLEIDIR. ®Z,r •Vf,; MGMéahvili HUUUlleg hvili með gleraugumfiú ÍW|i w Austurstræti 20. Siml 14566, í "

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.