Vísir - 11.07.1970, Síða 5
VÍSIR . Laugardagur 11. júlí 1970.
á nótunum
Pop i algleymingi hjá SG-hljómplötum:
Flosi á markaðinn í dag,
Óðmenn með tvö lög úr
,Öla' á stereo-plötu í ágúst
— tveggja laga plata með Tóturum i lok ágúst
J dag kom í hljómplötuverzlan
ir hin mjög svo umtalaða
plata með leikaranum og háð-
fuglínum Fiosa Ólafssyni. Und-
irleikurinn er ekki aldeilis af
verra taginu því það eru hinir
dágóðu Pops, sem vinna þann
hluta plötunnar, en sá undir-
leikur var einmitt tekinn upp
er hljómsveitin var hvað sam-
æfðust og á hraöri uppleið —
bæöi hvað snertir gæði og vin-
sældir.
Sían hafa átt sér stað breyt-
ingar innan hljómsveitarinnar,
en ég hef ekki haft tækifæri
til að hlusta á Pops eins og
þeir eru skipaðir í dag.
Það er reyndar sér kapituli,
sem ég mun víkja að hér síðar
í þættinum.
Lögin sem Flosi syngur eru
,,Ljúfa líf“ og „Það er svo geggj
að að geta hneggjaó." Þaö
kannast sennilega margir við
þessi lög úr áramótaþáttum
Flosa í sjónvarpinu. Útsetning-
arnar eru algerlega verk pilt-
anna í Pops.
Umrædd plata verður kynnt
í dag í útvarpsþættinum „Á nót
um æskunnar", og ef mér berzt
platan tímanlega, verður hún
„tekin fyrir“ í næsta þætti af
„Með á nótunum“ n.k. laugar-
dag.
Þaö eru SG-hljómplötur sem ■
standa- aö þessari framleiðslu.
Næstu tvær plötur frá þeirri
útgáfu eru einnig ætlaðar pop-
markaðnum og eru hvoru
tveggja tveggja laga plötur. Sú
fyrri kemur út í byrjun ágúst,
en þar eru Tatarar á ferð og
það sem þeir hafa þar fram að
færa er algerlega eftir þá sjálfa,
bæði lög og textar. Fyrra lagið
ber heitið: „Gljúfurbarn" og síð
ara lagið „Fimmta boðorðiö", og
er þaö bassaleikari hljömsveitar
innar, Jón Ólafsson, sem annast
sönginn.
Flosi Olafsson syngur af innlifun.
J^æsta SG-plata verður á boö
stólum seinni partinn í
ágúst, þar eru Óömenn á ferð.
Titillagið er eftir Jóhann G. Jó-
hannsson og textinn einnig, og
nefnir hann það „Bróðir". Síö-
ara lagið og textinn er eftir hinn
fingralipra gítarista, Finn Stef-
ánsson, og hefur lag hans hlotið
nafniö „Friður.“
Það má telja öruggt aö plata
þessi muni vekja mikla athygli,
. og ekki sízt fvrir þaö, að bæði
lögin eru úr pop-leiknum Óla,
sem vakið hefur mikla athygli
og hlotið hliöholla dóma gagn-
rýnenda, en sem kunnugt er,
er öll tónlistin í leiknum eftir
Óðmenn. Plata þessi var hljóð-
rituö í Bretlandi og er í stereo.
Þá má geta þess, að lögð hafa
verið drog.aö útgáfu L.P.-plötu
með Óðmönnum, þar sem þeir
munu að öllum líkindum leika
öll helztu lögin úr Óla. — í
næsta þætti veröur skýrt frá
því, hvaö Fálkinn hefur fram að
færa af íslenzkum plötum á
næstunni.
íJóiws hefur
tíl 3ja ára
Tjað er kunnara en frá þurfi
1 að segja að Jónas Jóns-
son hefur yfirgefið sviðsljósið,
— að sinni, en mun í þess staö
taka sér stöðu við búðarboröið
i nánustu framtíð, í herrafata-
verzlun hér i borg.
Mörgum aðdáenda Jónasar
kann að þykja það heldur súrt
í brotí að heyra ekki meira frá
honum, en það er með öliu ó-
þarfi að óttast það að kappinn
sé þagnaður fyrir fullt og allt,
þvi hann hefur gert þriggja ára
samning við Tónaútgáfuna.
— „Þessj samningur kom til
tals áður en mér bauðst það
■ starf, sem varð til þess að ég
ákvaö aö hætta öllum hljóm-
sveitar„bissnes“, sagði Jónas.
Þar eð þetta tiiboð var mið
að við mig einan með brezkum
undirleik, en ekki Náttúru, taldi
ég ekki koma til greina að taka
því. En þegar málin þróuðust
á þá leið að ég ákvað að hætta
í Náttúru, þótti mér vissulega
ástæöa til að endurskoöa af-
Frá upptöku Náttúru-plötunnar, sem aldrei verður sett á
markaöinn.
stöðu mína. Reyndar voru til-
boðin tvö, en ég ákvað að taka
boði Tónaútgáfunnar, og hef
undirritað þriggja ára samning
við þá útgáfu.
Þetta er ákaflega frjáls samn-
ingur, sem gerir ekki ráð fyrir
neinum vissum fjölda af hljóm-
. plöturp, það fer fyrst og fremst
eftir því hvernig sú fyrsta
gengur
— Er nú þegar farið að vinna
að henni?
„Eins og áður hefur komið
fram er hér um að ræða til-
búinn undirleik frá Bretlandi,
þegar ég kom að utan frá Lon-
don var strax farið ofan í út-
varp, þar sem ég átti að syngja
inn á segúlband bæði lögin.
Þegar á reyndi þótti mér annaö
lagið ekki falla nægilega vel fyr
ir mína rödd; svo að ég sleppti
því þannig að í dag standa málin
þannig, að eitt lag er fullunnið á
þessa væntanlegu tveggja laga
plötu. Það lag, sem ég var ekki
ánægður með, fékk svo annar
söngvari til afnota, en ég fékk
að velja mér lag sem ég vona aö
henti mér betur, en undirleikur
þess lags er rétt ókominn til
landsins.
Mér þótti ákaflega ánægjulegt
að gera þennan samning því það
va^r aldrei meiningin að segja al-
gjörlega. skilið við poppið, þó
svo að ég vildi ekki binda mig
við einhverja ákveðna hljóm-
sveit, en þessi hljómplötusamn
ingur gerir mér kleift að fara
milliveginn.
' — Þú syngur lag með Nátt-
úru á Festival-plötunni marg
umtöluðu.
Jónas er ekki aldeilis horfinn af sjónarsviðinu.
— Það var upphaflega ætl-
unin að Náttúra yröi með lag á
þessarj plötu, en við vorum væg
ast sagt mjög óánægðir meö
það, sem kom út úr þeirri upp-
töku, og vildum ekki undir nein
um kringumstæðum láta það á
plötu, svo það var gripið til þess
ráðs að fá brezkan undirleik,
sem ég síðan söng inn á.
En þá var þegar búið aö
prenta nafn Náttúru á plötuum
slagið, svo því var ekki breytt,
en það verður allavega það
fyrsta, sem heyrist frá mér á
hljómplötu eftir að ég hætti með
Flowers sælla minninga" ...
— Hafa málin eitthvað skýrstst
i sambandi við tveggja laga plöt
una með Náttúru, sem byrjað
var aö taka upp áður en þú
hættir?
— „Ég held að þaö sé nokkurn
veginn á hreinu, aó.sú plata
kemur ekkj á markaðinn. En
það er ekki mitt að ákveða það,
heldur strákanna í Náttúru.
Hins vegar þykir mér það mjög
miöur farið að ekki skyldi tak
ast að láta upptökuna ganga
hratt og eðlilega fyrir sig. Ef
svo heföi verið, væri platan
Iöngu komin á markaðinn, og
maður búinn að sjá einhvem
árangur af þeirri vinnu, sem
við' lögðum í upptökuna á þess
um tveim lögum.