Vísir - 11.07.1970, Side 9
VÍSIR . Laugardagur 11. júlí 1970.
risiRsw
— Hafið þér setið hest?
Arnar Halldórsson, prentari. —
Nei... eöa ég tel .mig að
minnsta kosti ekki geta sagt
það, þó að ég hafi komið einu
sinni á vagnhest smá stund.
Albert Pálmason, sölumaöur —
Já, mjög oft. Sérstaklega á þeim
átta árum sem ég átti heima í
Húnavatnssýslunni.
Ólafur Sigurðsson. — Ojá, það
hef ég reyndar gert nokkrum
sinnum....
Ragnheiður Mósesd. bankastarfs
mær: — Já, en það var þegar ég
var bara pínulítil í sveit.
Jóhanna Gunnlaugsd. afgrst.: —
Nei, ég hef aldrei komið á hest
bak og hef aldrei haft löngun
til þess heldur.
Aldrei fleiri hross á laadsmóti
Karl Knútsson, 12 ára. — Já,
já, þó nokkuð oft, þegar ég var
i sveit í Skagafirðinum.
— stórkostlegt úrval gæðinga
■ Hestamennska er, ef að líkum lætur, einhver hin vinsæl-
ast tómstundaiðja, sem stunduð er hér á landi. Hrossa
eign íslendinga er mikil, og æ fleiri fá áhuga á hestum og
útreiðum. Það kemst maður bezt að raun um, þegar maður
horfir yfir mótssvæði hestamann a áÞingvölIum, en í dag
verður þar sett Landsmót hestamanna með pomp og pragt.
\Tið Vísismenn brugðum okkur
austur í Skógarhóla í gær
og skoðuðum mótssvæðið, rædd
um við nokkra hestamenn og lit
um af lftilli þekkingu á eitthvað
af þeim stólpagripum sem þarna
gaf að líta.
Það var norðan strekkingur
viö Skógarhóla, en gamalreyndir
hestamenn og áhugasamir nýlið
ar létu slíkt ekkert á sig fá held
ur sátu jafnvel enn keikari í
hnakknum en áður, enda ástæða
til: Aðstaða öll til mótshalds við
Skógarhóla er að verða hin
bezta. Reistur hefur verið traust
legúr og snyrtiiegur dómnefndar
turn. Turn þessi á að rúma á
fyrsta palli sínum tímaverði og
annað starfsfóik mótsins, en
á efra palli verða hinir vísu
dómarar og vega og meta frammi
stöðu einstakra gæöinga. Efst á
tumi þessum hefur svo verið
hugsað fyrir aðstöðu fyrir ljós
myndara og fréttamenn, er með
atburðum vilja fylgjast.
Mótssvæðið grasi gróið
Allt mótssvæðið er grasigróið
jafnvel sjálf hlaupabrautin sem
er hringlaga — hin eina sinnar
tegundar hérlendis. Þrátt fyrir
norðangairann töldu hestamenn
að þeir væru tiitöluiega heppnir
meö veður, því þurrt hefur ver
ið undanfarna daga og brautir
því þurrar. Ýmsir hafa spáð þvi
að hinar grasi grónu brautir
yröu hreinlega að flagi er hross
unum yrði hleypt etftir þeim, en
svo reyndist ekki vera — núna
hafa menn fenaið að hleyna hest
um sínum á brautumun lát'aust
í þrjá daga, ög enn er bað mik
ið gras eftir á þeim, að ekki er
sjáanlegt að brautirnar versni
meira en orðið er.
Góðar aðstæður
Greinilegt er að mikil undir-
búningsvinna hefur verið unnin
fyrir þetta landsmót. Móts-
svæðnu er skipt niður í svæði,
hvert svæði ætlað fyrir sína sér-
stöku starfsemi, og afmarkað
með hvítmáluðum staurum, en
kaðlar strengdir á milli.
Aðstaöa er orðin mjög góð
fyrir hestamenn og gripi þeirra
til dæmis hefur verið reist sér-
stakt hús fvrir stóðhesta (í sama
húsi eru skrifstofur mótsstjórn
ar) og öðrum hrossum er skipt
niður á girðingar eftir því sem
við á um hverja.
Á fyrri mótum hefur stundum
viljað brenna við að ekki væri
nægilega vel fyrir öllum séð en
núna hafa a-Ilar slíkar vanrækslu
syndir verið strikaðar út —
nægt vatn er að hafa é móts-
svæðinu, airðinear eiaa að hafa
næga hagabeit fyrir hross móts
gesta. oa hev er fvrir hendi ef
beit þrýtur.
Aðstaða fyrir mannskepnuna
er varla lakari en fvrir hrossin.
Salerni em dreifð vfða um.svæð
!ð. tia'dstæð* afmörkuð og ein
hveriar veitinva- verðnr hæat
að verða rór út.i um í veitinga
-kálanum.
Er okkur Vísismenn har að
°.arði- hittum við fvrir Svein-
hiöm Davfinnsson löafræðinv.
formann hestamannafélaesins
váks. Á hessu, landsmóti er
Sveinhiörn formaður fram-
kvæmdanefndar mótsins en Agn
ar Guðnason er framkvæmdastj.
Sveinbjörn tjáði okkur að þeir
héstamenn bindu nokkrar von-
ir við mót þetta, þar eð tekizt
hefði að byggja upp svo góða
aðstöðu. Hann sagði að þeir
væru við því búnir að taka við
mörgum helgargestum, „einhver
hefur nefnt 12.000 manns“,
sagði Sveinbjörn og brosti, „en
ég held við getum vel við unað
ef hér verða á milli 8 og 9 þús-
und.‘‘
Sveinbjörn sagði að þeir
starfsmenn mótsins, svo og lög
gæzlumenn úr Reykjavík
myndu gera sitt ýtrasta til að
vernda mótsgesti fyrir friðar-
spillum og núna yrði þarna eng
inn dansleikur á laugardags-
kvöldið, heldur „kvöldvaka í
mjög þjóðlegum stíl.“
Kvöldvaka á laugardag
Sveinbjörn sagði þá starfs-
menn mótsins vera ærið stolta
af dagskrá kvöldvökunnar. en
hún hefst á laugardag klukkan
21 og meöal dagskráratriða
verða kórsöngur fSkagtfirðinear
sjá um hann að sjálfsögðu)
kvatettsöngur og Þorsteinn á
Vatnsleysu stjórnar fjöldasöng.
Þá mun sá landskunni bóndi og
fræðimaður, Helgi á Hrafnkels
stöðum, segja gestum mótsins
mergjaðar hestasögur og fyrir-
hugað var að þeir hestamenn og
leikarar Gunnar Eyjólfsson og
Bessi Bjarnason riðu til mótsins
og hefðu í frammi sitthvað
spaugilegt á kvöldvökunni.
Svo sem fyrr segir hófst mót-
ið i gær, föstudag klukkan 10
árdegis. Voru þá sýndir góð-
hestar og kynbótahross en sjálf
mótsetning átti aö fara fram
klukkari 14.
Mótinu slitið á
sunnudagskvöld
Vegna hinna hörmulegu tíð-
inda sem urðu á Þingvöllum,
' voru dagskrárliðið þeir er fara
áttu fram síðdegis á föstudag
felldir niður og sömuleiðis kvöld
vakan er vera átti £ gærkvöldi.
I morgun hófst svo mótið kl.
níu með sölusýningu
en klúkkan 10 var gengið til
annarra dagskrárliða svo sem
sýningu kynbótagripa og gæð-
inga, og stendur sú sýning allan
daginn og er dómum lýst jafn-
harðan. Þá eru sýndir klárhest
Hinn glæsilegi turn er byggður var fyrir mótið. Turninn er
steyptur og þrílyftur innan. Efst er aðstaða fyrlr ljósmýndara
og fréttamenn. Framan við turninn er sá þekkti hestamaður,
Skúli frá Svignaskarði ásamt tveimur gæðinga sinna (Skúli
stertdur aftari'Við hrossin).
iMföS} „“aibíflýðWiióv" >
ar með tölti klukkan 18 eru
kappreiðar.
Á morgun, sunnudag, verður
gengið til dagskrár klukkan 10,
og þá sýnt úrval kynbótahrossa
Klukkan 14 er hópreið félaga úr
hestamannafélögunum, og stjórn
ar henni Bergur Magnússon,
framkvæmdastjóri Fáks. Að
henni lokinni er helgistund og
síðan flytur Landbúnaðarráð-
herra Ingólfur Jónsson ávarp.
Úrslit kappreiða verða klukk
an 17.30 og mótinu síðan slitið
klukkan 19 en það gerir Svein-
björn Dagfinnsson.
50 kynbótahestar
Sem fyrr segir er við Skóg-
arhóla sérstakt hesthús, ætlað
fyrir kynbótahesta. Rúmar hest
húsið liölega 30 hross, en í ár
eru svo margir stóðhestar sýnd
ir á mótinu að byggja varð við-
bótarhúsnæði, þannig að nú
standa þar 50 stóöhross við
stall.
Við brugðum okkur inn í stóð
hestahúsið og litum yfir hinn
Marinó Jakobsson frá Skáney með Blesa sinn. Blesi var
dæmdur bezti stóðhesturinn á landsmótinu 1966.
fríða hóp. Þarna inni stóðu þeir
hver öðrum föngulegri, mýldir
við stall og hestamenn gengu
um milli þeirra og veltu þvt
fyrir sér, hver yrði að líkindum
hlutskarpastur í verðlaunasam-
keppnj stóðhesta. Þarna var sá
hestur er hvað frægastur er, þ.e.
Blesi, 12 vetra hestur frá Skán-
ey í Reykholtsdal, sá hlaut Faxa
bikarinn á landsmótinu að Hól-
um í Hjaltadal árið 1966. Eig-
andi Blesa er Marinó Jakobs-
son frá Skáney. Marinó sagðist
ekki geta gert sér neinar hug
myndir um það hver hlyti Faxa
bikarinn núna, því margt væri
þarna föngulegra stóðhesta.
Fleiri höfðu áhuga á stóðhest-
unum en eigendur þeirra, t.a.m.
var þarna eitthvað af hryssueig
endum sem höfðu áhuga á að
fá merar sínar fyljaðar.
Grá hryssa af Eyrarbakka
varð skyndilega ástfangin af
Svörtum fola, Sörla, Sveins Guð-
mundssonar frá Sauðárkróki og
ekki stóð á Sörla að elska hryss
una á móti, þó ekki fyrr en
hann sá að Sveinn hafði tekið
við 800 krónum úr hendi hryssu
eigandans.
Hestamenn voru greinilega
eftirvæntingarfullir að bíða eftir
úrslitum úr einstökum keppnis-
greinum, og gengu margir um og
virtu fyrir sér unga fola, hlaupa
lega, sem þeir héldu að gætu
hugsanlega veHt kunnum
hlaupahestum harða keppni. —
Skúli i Svignaskarði, sá þekkti
hestamaður, þanrSi brúnan, há-
™engan fola fram og aftur fyrir
íónvarpsmenn og í útjaðri
'væðisins gaf að líta Pétur
bónda frá Egilsstöðum ríðandi
4 gráu. Pétur kom ríðandi til
nótsink . að austan. Lagði stór
hópur hrossa og manna upp
nokkru fyrir mánaðamót og var
riðið sunnan jökla til Þingvalla.
Hersingin kom að Skógarhólum
á miðvikudaginn var. —GG