Vísir - 11.07.1970, Page 13
SUMARLEYFIÐ:
VÍSIR . Laugardagur 11. júlí 1970.
• •
Onnur farar-
tæki til en
einkabíllinn
— fargjald til ýmissa staba með flugvélum,
áætlunarbilum og skipi
Útlendingarnir nota sér áætlunarbílana mikið —
einnig en þá meira í hópferðir.
TTm ýmis farartæki er að ræöa
þegar farið er í sumarfriið.
í gær var fjallað um einkabíl-
inn en önnur farartæki sem
mest eru notuð eru flugvélar og
áætlunarbflar. Nú verður ferð-
mn með þeim farartækjum gerð
dáiítil skil.
AHir vita hvaða kosti það hef
«r { för með sér að ferðast með
flugvél. Fyrst og fremst fylgir
sá kostur flugferðum, að hægt
er að komast fljótt á ákvörðun-
arstað. Margir munu taka sér
far með flugvél í sumarleyfi,
þegar þeir aetla að dvelja á á-
kveðnum staö í einhvem tíma,
einnig þeir, sem em tímabundn
ir og hafa ekkj nema fáa daga
til umráða.
Fjölskyidusiðan hringdi f Flug
félag fslands og fékk upplýsing
ar um fargjöld á helztu staði
innanlands.
Fyrst skal bent á fjölskylduaf
siáttinn, sem flugfélagið veitir.
Þennan afslátt fá hjón með böm
eða án barna og foreldri með
börn. Skilyrðin eru, að fjölskyld
an leggi samtímfs af stað í ferða
lagið en hins vegar er það ekki
bundið skilyrðum. að allir komi
til baka á sama tíma. Fjölskyldu
afslátturinn gildir fyrir þriggja
vikna tímabil í einu. Börn í fjöl
skyldunni þurfa að vera innan
við 18 ára aldur og á framfæri
foreldra til að fá afsláttinn.
Afsláttur fyrir unglinga
og eldra fólk
Afslátturinn er þannig, að for
svarsmaður fjölskyldunnar
greiðir fullt fargjald (þegar um
hjón er að ræða greiðir eigin-
maðurinn fullt fargjald, eigin-
konan hálft fargjald) fyrir ungl
inga nemur afslátturinn helm-
ingi af heilu fargjaldi og hið
sama er að segja fyrir börn á
aldrinum 2 — 12 ára.
Flugfar til ísafjarðar báðar
leiðir kostar 2660 kr. án afslátt
ar fyrir fullorðna, fyrir 2—12
ára 1330 kr. báðar leiðir og fyrir
12—18 ára 2000 krónur báöar
leiðir. Þetta er sérstakt unglinga
fargjald og sama afslátt fá einn
ig þeir, sem eru 67 ára og eldri
sem á öðrum flugleiðum.
Fargjaldið til Akureyrar er
2860 krónur báðar leiðir, fyrir
unglinga og eldra fólk 2150
krónur og fyrir börn 1430 krón-
ur.
Til. Egiisstaða 3900 kr. báðar
leiðir 2920 fyrir unglinga og
eldra fólk og 1950 fyrir böm.
Til Hafnar í Hornafirði 3440
kr,. 2580 fyrir unglinga og eldra
fólk og 1720 fyrir börn.
Til Fagurhólsmýrar er far-
gjaldið 2940 kr. fýrir fullorðna
báðar leiðir.
Flogið er daglega til Akureyr
ar, Isafjarðar og Egilsstaða. Til
Hafnar í Hornafirði þriðjudaga
laugardaga og sunnudaga. Til
Fagurhólsmýrar fimmtudaga og
’sunnudaga.
Á öllum þessum stöðum getur
ferðafólkið fengið far með áætl
unarbíl, ef það heldur ferðinni
áfram.
íslendingar geta eins
ferðazt með áætlunar-
bílunum og útlendingar
Áætlunarbilamir hafa minna
verið notaðir af íslendingum eft
ir að bílaeign landsmanna jókst
en með þeim er hægt að fara
á flesta staða og hafa útlending
ar notfært sér það. Þeir eru ó-
dýrari en flugið en það tekur
lengri tíma að ferðast með þeim.
Hjá umferðarmiðstöðinni feng-
um við þær upplýsingar, að þéss
sé óskað að farmiðar séu pantað
ir degi áður en farið er af stað
í síðasta lagi.
Norðurleið fer til Akureyrar
og kostar farið 835 krónur aðra
ieiðina en 1400 fram og tii baka.
Böm innan 12 ára aldurs borga
hálft fargjald. Ferðin tekur um
10 kist. og farið er frá Um-
ferðarmiðstöðinni alla daga
klukkan átta að morgni. Einn
ig eru næturferöir kiukkan tíu
að kvöldi frá Reykjavík, og eru
þær mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga. Ef ferðafólkið ætlar
lengra austur á bóginn frá Akur
eyri tekur það annan áætlimar
bíl þaðan.
Með Norðurleið er einnig
hægt að fara styttri ferðir og
kostar td. fargjaldið til Bifrast
ar í Borgarfirði 280 krónur aðra
leiðina.
Til Isafjarðar er farið frá lím-
ferðarmiðstöðinni á mánudögum
og fimmtudögum klukkan átta
að morgni og kostar farið aðra
ieiðina 1000 knónur. Austurleið
sér um ferðir á Suðurlandsundir
lendinu og er farið til fjölmargra
srtaða. Lengst er farið austur að
Fossi á Síðu en þangað er um
hálftima akstur frá Kirkjubæjar
klaustri. Farið til Kirkjubæjar-
kiausturs kostar 525 krónur
aðra leiðina en 925 krónur báð
ar leiðir.
Austurleið veitir afslátt á ferð
um. sem fárnar em fram og til
baká, ferðir era ókeypið fyrir
böm innan 4 áca aldurs, 4—7
ára börn borga þrjá fjórðu úr
fargjaldi en 8—11 ára böm
helmings fargjald.
Með því að kynna sér vel ferð
ir og 'hvemig þær tengjast ætti
að vera hægt að ferðast tiltölu
lega ódýrt um byggðir með áætl
unarbílum ef enginn einkabfll-
inn er.
Ef einhver vill fara bluta af
ferðinni sjóleiðis er nærtækast
að taka Akraborgina, en far-
gjald með henni er 180 kr. aðta
leiðina, 335 kr. báðar leiðir fyr-
ir fullorðna en helmings aflslátt
ur er veittur fyrir böm innan
12 ára aldurs. Ef bfllinn er tek-
inn með kostar fyrir bann 150
kr. aðra leiðina. Á Akranesi sér
Bifreiðastöðin um ferðir í veg
fyrir áætlunarbfla td. á leið upp
f Borgarfjörð. Akraborgin fer
þrisvar á dág tfl Akaness.
—SB
Flugvélar eru fijótastar í ferðum af farartækjunum.
SJÚKRASAMLAG
REYKJAVÍKUR
verfcur lokað mánudaginn 13. júlí 1970 vegna
sumarleyfisferðar starfsfólksins.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
STIMPLAGERD
FÉLAGSPRENTSMIDJUNNAR
Spariskírteini
ríkissjóðs
Fjármálaráðuneytið hefur ákveðið viðhótar-
útgáfu spariskírteinaláns ríkissjóðs í 1. fl.
1970. Hefst sala skírteinanna n.k. miðviku-
dag 15. þ.m.
Nýir útboðs- og söluskilmálar liggja frammi
hjá venjulegum söluaðilöm.
Reykjavik, W. jGS 1970.
SEÐLABANKI ÍSLANDS.