Vísir - 11.07.1970, Síða 16
*
>
Leugardagur 11. júlí 1970.
Mótið styttist um einn dag
Vonzkuveður olll heilmiklum
usla á hestamannamótinu á Þinfi-
völlum. Á föstudagsnóttina rauk
veðurhæóin upp rétt um miðnætt
ið og varð' ekki við neitt ráðið.
Mikill kuldj var og gránaði jörð.
Nokkur tjöld fuku og eitthvað af
fólki gafst upp við að dveija þama
yfir helgina og hélt til Reykjavikur.
Setningu mótsins vgr frestað til
dagsins í dag laugardag vegna hins
válega slyss er varð á Þingvöllum.
Reynt verður að ljúka mótinu á
sunnudag og því nóg að gera bæði
i dag og á morgun. — GG
Söknuður minn verður djúpur
//
//
— sagði forsætisráðherra Dana — mikill fjölcfi samúbarskeyta barst i gær
íslenzku þjóðinni barst í gær
mikill fjöldi samúðar skeyta
frá þjóðhöfðingjum, ríkis-
stjórnum og einstaklingum
um víða veröld vegna hins
hörmulega fráfalls forsætis-
ráðherrahjónanna og dóttur-
sonar þeirra. Skeytin hafa
borizt til forseta íslands, til
forsætisráðuneytisins, dóms-
málaráðuneytisins, utanríkis
ráðuneytisins og eflaust á
ýms aðra staði. Ekki voru
tök á því að taka saman all
an fjöldann i gær, enda má
búast við mörgum skeytum
yfir helgina.
Hið sviplega fráfall forsætis-
ráðherrans hefur vakið mikla
athygli eriendis. I viðtali við
danska fjölmiðla sagði Hilmar
Baunsgaard' ,forsætisráðherra
Dana m. a. eftirfarandi um sinn
látna starfsbróður:
„I Danmörku höfum við tekið
við fregninni um dauða Bjarna
Benediktssonar, forsætisráö-
herra, konu hans og barnabarns
með mikilli sorg. Með þessu
slysi hefur Island ekki aðeins
misst mikinn mann, heldur einn
ig óvenjulega reyndan og mikils
metinn stjórnmáiamann." —
„Fráfail hans mun skilja eftir
sig mikinn söknuö á íslandi.
Bjarna Benediktssonar mun
einnig verða saknað hér i D?n-
mörku. Við höfum kynnzt hon-
um sem tryggum og jákvæðum
vini. Hin jákvæðu viðhorf, sem
Bjarni Benediktsson haföi í sam
skiptum landa okkar beggja,
komu einnig ljóslega fram, þeg
ar hann kom fram fyrir b£' id
lands síns í norrænni samvinnu.
í viðræðum undanfarinna ára
um auknari og styrkari sam-
vinnu kynntist ég Bjarna Bene-
diktssyni og lærði að meta hann
sem stjórnmálamann og mann.
Söknuður minn veröur djúp-
ur.“
Forsætisráðherrar hinna Norð-
urlandanna gáfu frá sér svipað-
ar yfirlýsingar. Sérstaklega tók
Per Borten sterkt til orða, hafði
hann mikil samskipti við Bjarna
Benediktsson. — VJ
Á annað hundrað hljóðfæra-
leikarar á sumarhátíðinni i
Húsafellsskógi
— sem haldin verður um Verzlunarmannahelgina
Nú þegar er hafinn undirbún-
ingur að sumarhátíðinni sem
haldinn verður í Húsafellsskógi
um næstu verzlunarmannahelgi,
en hátíðina í fyrra sóttu rúm-
lega tuttugu þúsund manns.
Verður hátíðarsvæðið opnað
klukkan 14, föstudaginn 31.
júlí, en hátíðarslit fara fram á
sunnudagsnóttinni. Heiðursgest
Áfengissalci hefisr
nukizt um 17,7%
Áfengissalan í april, maí og júní
jókst um 17,71% í krónutölu miö-
að við sama tíma i fyrra. Samtals
var á tímabilinu selt áfengi fyrir
202 milljónir 962.484,50 kr. en á
sama tíma í fyrra fyrir 172.421.
604,00 kr .
Mest var salan í Reykjavík, eða
152.106.179,50 kr. Á Akureyri var
selt fyrir rúmar 17 milljónir króna,
; en tæpar 12 milijónir í Keflavík
, og tæpar 10 milljónir i Vestmanna-
; eyjum. Salan jókst mjög á öllum
þessum stöðum. Isfirðingar keyptu
‘ vín fyrir tæpar 5 milljónir, Seyð-
1 firðingar fyrir 4,2 milljónir og
■ Siglfirðingar fyrir 2,8 milljónir
• króna.
ur hátíðarinnar verður að þessu
sinni Ásgeir Ásgeirsson, fyrr-
um forseti fslands.
Hefst dagskrá mótsins strax á
föstudagskvöldinu, en þá verður
dansað á tveim pöllum og tvær j
vinsælustu hljómsveitir landsins
um þessar mundir, Trúbrot og Nátt
úra leika þar fyrir dansi.
Keppt verður í fþróttum og hljóð
færaleik, kynnisferðir verða farn
ar um Borgarfjöfðih, sérstakar
skemmtidagskrár fluttar af mörg
um okkar þekktustu grínistum
þjóðlagaflytjendum, dönsurum og
táningahljómsveitum, en þeir síðast
nefndu munu einnig sjá til þess,
að iáta dansinn duna langt fram
ytfir miðnætti, en kvölddagskrán-
um mun svo ljúka bæði kvöldin
með varðelda og flugeldasýningum
Hvorki meira né minna en átta
hljómsveitir munu sjá um fram-
leiðslu danshljómlistarinnar eða
alls á annað hundrað spilarar. j
Eru hljómsveitirnar Trú'brot, Nátt- I
úra Úðmenn, Trix, Ævintýri, Gaut j
ar og hljómsveit Ingimars Eydals, j
sem sjá munu til þess. Þá mun og j
fara fram á hátíðinni keppni meöál j
yngrj hljómsveita í hljómlistarheim
inum um titilinn „Táningahljóm-
sveit ársins 1970“, og fær sú hljóm '
sveit sem kosningu hlýtur 20000
krónur að launum. — ÞJM
Guðmundur Jónsson ásamt Graham Page-bíl sínum, — konan elskar hann meira en mig,
sagði Guðmundur.
Liðlega fertug bifreið
— Graham Page, ekinn 836 þús. km.
0 Bílainnflutningur er gífur-
legur þessa dagana. Hver
sem betur getur reynir að fá sér
nýjan bíl og mikiö fjör er í
verzlun með notaða bila. Þó er
einn maður sem ekki hrífst með
i þessari aimennu biladellu, það
er maðurinn sem átt hefur
sama bílinn í 37 ár og allan
þann tíma hefur honum ekki
fundizt. nýju árgerðirnar svo
merkilegar, að það tækí því að
selja þann gamla og fara að
aka nýrri árgerð.
Einn elzti bíll á landinu er liðl
ega fertugur orðinn, eöa 41 árs.
Hann er af geröinn; Grahapn
Page og var fluttur til landsins
árið 1929. Núverandi eigandi
er Guðmundur Jónsson, bifvéla
virki, og keypti hann bílinn ár-
ið 1933. Þá var bíllinn aðeins
4 ára, en ekinn um 80 þús, km.
Hann var þá í fremur bágbornu
ástandi a.m.k. miðað við það
sem hann er núna, og smíðaði
Guðmundur þá á hann nýjar aur
hlífar og dyttaði sitthvað fleira
að honum.
Núna hefur bílnum verið ekið
836 þús. km og er í honum
1953 árg. af Dodge vél.
„Vélin er ekki nema um 115
hestöfl“, segir Guðmundur,
„mér finnst hann heldur afllít-
ill og hef hug á að skipta og
fá mér stærr; vél.“
Hvað geturðu keyrt hann
hratt? spyrjum við eins og gæj
arnir.
„Hef þanið hann í 150 km og
þá gaf ég honum heldur betur
en þá priónaði hann að framan"
segir .. Guðmundur, „það er
örugglega hægt að aka honum í
160 eða meira.“
Guðmundur er ferðalangur
mikill og fer allt á- Graham
gamla, „ég kemst á honum allt
það sem jeppar fara“, segir hann
og strýkur rykkorn af aurhlff
inni. „Núna er ég nýbúinn að
mála hann. Hann er núna í sín
um upphaflegu litum, dökk-
brúnn og ijðsbrúnn." Að svo
mæltu sezt Guðmundur undir
stýri og gefur þeim gamla
hraustlega inn, og við horfum
andaktugir á „tryllitækið“ hans
Guðmundar, sem þeir hafa boð
ifi honum hálfa milljón í. Grah-
am Page er ekki til sölu fyrir
svo fvrirlitlesa upphæð. —-GG
Millilandaflug aldar-
fjórðungsgamalt
• Réttur aldarfjórðungur er i
dag frá fyrsta flugi íslend-
inga með póst og farþega milli
landa. Var það Katalína flugbát
ur Flugfélags fslands sem flaug
þessa fyrstu ferð héðan úr
Skerjafirðinum og til Skotlands.
Var þetta eina flugvél lands-
manna, sem hafðí nægilegt flug
þol til flugs milli landa.
Tók undirbúningur ferðarinn-
ar langan tíma. enda st.yrjaldar
ástand og leyfi þurfti til flugs
ins frá mörgum aðilum. Fékkst
leyfið aö lokum og fjór»M- farþeg
ar voru skráðir í þessa fyrstu
ferð en áhöfnin var fjórir meiw,
auk tveggja Breta. Flusstjðrí
var Jóhannes R Snorrason. Lent
var í Glasgow eftir 6 klst. og 4
mínútna flug, en sem kunnugt
er er þessi flugleið í dag flogin
á 1V2 tíma. —ÞS
i Flugbátur Flugfélags Islands, TF-ISP var ein fyrsta farþegaflugvél erlend, sem lenti I Kaup-
mannahöfn eftir stríð. Þýzkir starfsmenn flugbátahafnarinnar voru ennþá við störf undir eft-
i irliti og stjórn Bandamanna. Hér ferja tveir Þjóðverjanna þá Jóhannes R. Snorrason flugstjóra
og Jóhann Gíslason loftskeytamann út í flugbát inn.