Vísir - 01.09.1970, Qupperneq 5
TÍSÍR * Þriðgudagur L september 1970.
b
Undanfarið höfum við verið
skömmðttir um dómara, — þ.e.
þá knattspymudómara, sem vilja
mæta til leiks, þegar þeim hent-
ar. íþróttadeild blaðsins var á
tíma mfög upptekin að ræða við
ýmsa, sem hringdu vegna dóm-
aramálana og sýnist sitt hverj-
urn.
ÓþaaS ætti að vera fyrir
þann etóra meirihluta dómara,
sem sýna starfinu alúð að fyrt-
ast viegna þessara skrifa. Allir
Mj'óta að sjá, að hér er aðeins
um Qtinn minni'hluta að ræða,
sam seibur blett á alla stétt-
ina. AITir Mjóta þó að vera sam-
mála um að aftná beri slí'ka
Metti sem fyrst.
En það er ekkj bara dómur-
um að kenna að leikjum er
frestaö. Eins og sagt var frá,
var leik frestað á Þróttarvelli
um fyrri heigi. Dómarinn, sem
dæma áltti lei'kinn, hringdi í
íþrótitasíðuna. Hann sagði aö
hann hefði farið í góðri trú úr
borginni á föstudagskvöld en á
sunnudagskvöW, þegar hann
kom heim ásamt fjöflskyldu
sinni, var komið bréf þar sem
hann var beðinn að dæma um-
ræddan leik. Póststimplunin á
bréfinu var 21. ágúst, þ. e. á
föstudag. Bréfið hefur því kom-
ið að morgni sama dags og hann
átt; að dæma. Slík vinnubrögð
launaðra embættismanna eru
vftaverð, og ekki er á nokkurn
hátt 'hægt að álasa dómaranum
fyrir að fara úr borginni, eins
og ástatt var. „Ég skal koma
hvenær sem er og flauta á
strákana“ sagði þessi ungi
dómari, ,,það verður bara að
láta mig vita með betrj fyrir-
vara“.
Fjölmargt mætti ræða og rita
um dómaramálin, en vonandi
verður það til þess að eitthvað
gerist í þessum má'lum. Úr því
farið var að rita og ræða um
þessi vandamái, t.d. mætti benda
á að stundum mæta dómarar,
en ekki liðin. Þetta gerðist nú
fyrir nokkru. Leik var frestað,
— en að nokkrum dytti í hug að
benda dömaranum á það nei,
það hvarflaöi víst ekki að nein-
um. — JBP —
■ Þrátt fyrir að sum dagblöð-
in hafi fyrir nær mánuði
slegið upp þeirri „frétt“ að
Breiðablik væri komið í 1. deild,
þá er það því miður fyrir Kópa-
vogsbúa, ekki enn orðið stað-
reynd. Ármenningar áttu þegar
þessi tíðindi voru á þrykk sett
möguieika, svo og Selfoss og
jafnvel Þróttur og Haukar.
Nú er svo komið í 2. deildar-
keppninin I knattspyrnu, að Breiða-
blik stendur langbezt að vígi, hef-
ur tapað aðeins 2 stigum, engum
leik tapað, gert tvö jafntefli. Ár-
mann hefur tapað 5 stigum tapað
tveim leikjum og gert eitt jafntefli.
Hins vegar hefur Ármann sótt
mjög í sig veðrið og unnið 4 síð-
ustu leikj sína, nú síðast unnu þeir
ísfirðinga 1:0. Norður á Húsavík
unnu Breiðabliksmenn einnig um
helgina sinn leik. Ríkharður Jóns-
son (kunnuglegt nafn úr knatt-
spyrunni), skoraði öil þrjú mörkin
í leiknum fyrir Kópavogsmenn.
Breiðablik hefur þvi 20 stig eftir
11 leiki, en Ármann hefur 15 stig
eftir 10 leiki. Breiðablik á þvá eftir
að leika 3 leiki í deildinni og þarf
að fá úr þeim 4 stig til að komast
í 1. deild.
Leikur Breiðabliks og Ármanns
annað kvöld á heimavellj Breiða-
bliks í Kópavogi verður þvi úrslita-
leikur mótsins. Sigri Breiðabli'k, —
er liðið þar með í 1. dei'ld, hvorki
Ármenningar né önnur lið geta
náð að jafna metin. Hins vegar verð
ur orðið mjótt á mununum, fari
svo að Ármenningar sigri. Áreiðan-
lega verður margt áhorfenda bæði
Ármenningar úr Reykjavík og
eins heimamenn, sem hvetja liðin
til dáða enda um mikið að tefla.
- J'BP —
Samkeppni um
merki fyrir
Seltjarnarneshrepp
Seltjarnarneshreppur boðar hér með til samkeppni
um merki fyrir hreppinn. Keppninni er hagað eftir
samkeppnisreglum Félags íslenzkra teiknara. Merkið
skal vera hentugt til almennra nota og útfærast í
skaldarformi. ' N
Tillögum sé skilað í stærð 10—15 cm í þvermál á
pappírsstærð Din A4 (21x29,7 cm).
Tillögum skal skilað merktum sérstöku kjörorði og
nafn höfundar og heimilisfang skal fylgja með í
lokuðu ógagnsæju umslagi merktu eins og tillögur.
Tillögum sé skilað í pósti eða á skrifstofu Seltjarnar-
neshrepps fyrir kl. 17 mánudaginn 5. október 1970.
Rétt til þátttöku hafa allir íslenzkir ríkisborgarar,
Dómnefnd mun skila úrskuröi innan eins mánaðar frá
skiladegi og verður þá efnt til sýningar á þeim og
þær síðan endursendar.
Veitt verða þrenn verðlaun, samtals kr. 40.000.00.
I. verðlaun kr. 25.000.00
II. verðlaun kr. 10.000.00
m. verðlaun kr. 5.000.00
Verðlaunaupphæðihni verður allri úthlutað og er
hún ekki hluti af þóknun teiknara.
' Seltjarnarneshreppi er áskilinn réttur til að kaupa
hvaða tillögu sem er skv. verðskrá F. í. T.
Dómnefnd skipa:
Frá Seltjarnarneshreppi: Karl B. Guðmundss.
Auður Sigurðardóttir
Frá Félagi íslenzkra teiknara: Ágústa Snæland
Snorri Sveinn Friðrikss.
Oddamaður: • Pálína Oddsdóttir
Ritari (trúnaðannaöur) nefndarinnar er Stefán Ágústs
son.
Læknafélag Reykjavíkur,
Læknafélag Islands
Frá og með 1. september verður afgreiðslu-
tími á skrifstofu læknafélaganna sem hér
segir:
Mánudaga — föstudaga frá kl. 14.30—16.30.
Miðvikudaga einnig frá kl. 10.30—11.30.
Laugardaga október—maí kl. 10.30—11.30.
Stjórnir félaganna.
Námskeið í
lúðrasveitastjórn
Áður auglýst námskeið í lúðrasveitastjórn
á vegum Sambands íslenzkra lúðrasveita,
hefst í gagnfræðaskólanum við Laugalæk
hinn 7. sept. n.k. kl. 16. Aðalkennari verður
Páll P. Pálsson, og mun kennslan fara fram
eftir kl. 16 daglega til 16. sept.
Enn er hægt að bæta við þátttakendum og eru
þeir beðnir að snúa sér til formanns S. í. L.
Reynis Guðnasonar í síma 52550, eða Páls P.
Pálssonar í síma 10357.
Stjóm S. í. L.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
LAUSAR STÖÐUR
1. Starf forstöðukonu nýstofnaðs mæðra-
heimilis.
2. Starf fulltrúa til þess að fara með mál af-
brota-barna og unglinga.
3. Starfsmaður, karl eða kona, til þess að
vinna að málum er lúta að fjölskyldumeð-
ferð.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntan
og fyrri störf berist til Félagsmálastofnnnar
Reykjavíkurborgar, Vonarstræti 4, fyrir M.
september n.k.
Nánari upplýsingar gefar yFirmatkir fjj®-
skyldudeildar.
Fékk bréfið sama
dag og hann átti
að dæma leikinn
ARMENNINGAR VINNA
FJÓRA LEIKI í RÖÐ
aðalátökin i 2. deild verða annað kvöld milli
Breiðabliks og Armanns / Kópavogi