Vísir - 01.02.1971, Page 3
V 1 S I R . Mánudagur 1. febrúar 1971.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND I MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖNDh
Umsjón: Haukur Helgason:
Verður hætt við lendingu á tungli?
— Fimm tilraunir v/ð tengingu mistókust / nótt
— Tveggja stunda taugaspenna — Hætt v/ð
skemmdum
Gelmfaramir í Apollo 14
áttu erfiðar stundir í nótt.
í tvær klukkustundir mis-
tókst hver tilraunin af ann
arri til að tengja stjórnfar
og tunglferju. Klukkan tvö
í nótt tókst þeim loks í
sjöttu tilraun að tengja
þessa hluta geimfarsins,
sem var 40 þúsund kíló-
metra úti í geimnum á leið
til tungls með meira en tólf
þúsund kílómetra hraða á
klukkustund.
Verður ekki Ijóst, fyrr en eftir
nákvæma rannsókn á tengingunni,
hvort 'lent verður á tungli eða snú-
ið við. Ferðinni var í bili haldið
áfram samkvæmt áætlun, meðan
geimfararnir og starfsmenn á jörðu
niðri reyna að finna, hvað bilaði á
fyrsta hluta ferðarinnar.
Þessi fjórða tunglferð mannkyns-
sögunnar hóf'st 40 mínútum eftir
áætlun. Tafðist hún vegna mikillar
rigningar og ótta við þrumuveður
yfir Kennedyhöfða. Geimförunum
er ætlað aö vinna upp þennan tíma
með því að auka ferðina meö
stefnubreytingu, sem á að verða
seinna í dag. Ferðin hafði gengið
vel, þar til vandamálið við teng-
inguna kom á daginn.
Vandamáíiö minnti á ferð Apol'lo
13 í fyrra, en þá byrjaði vandinn
skömmu eftir aö stjómfarið hafði
verið iosaö frá og því snúið 180
gráður, svo aö unnt væri að tengja
það tunglfarinu á þeirri stöðu, sem
vera átti á leið til tunglsins. Sams
konar breyting var gerð nú. Geim-
farinn Roosa tilkynnti skömmu eft-
ir miðnættiö, aö tengingin hefði tek
izt vel. Nokkrum sekúndum síðar
leiðrétti hann þetta. Þá hófst tauga
spennan.
Þegar fimm tilraunir höfðu mis-
tekizt var rætt um að láta geim-
farana fara í geimferðabúninga sfna
og fara út fvrir farið til að kanna,
hvað væri í óTag.i. Þetta reyndist
ónauðsynlegt. Geimfararnir til-
kynntu eftir sjöttu tilraun, að hún
hefði heppnazt. Varð þá miki'M fögn
uður 1 geimferðastöðinni í Houst-
on.
í tengslunum eru tólf lásar, og
nægir að þrir þeirra lokist. Geim-
farinn Shepard segiist álíta, að
miklu fleiri lásar hafi lokazt. Því
var ferðinni snemma í morgun 'hald
ið áfram, eins og ráðgert hafði ver-
ið.
Vandræðin hafa ekfci haft nein
áhrif á tímann. Hins vegar er í
vafa, hvort lent verður samkvæmt
áætlun, þar ti'l endanlegri athug-
un er lokið.
Ti'l þess að geimfararnir Shep-
ard og MitcheM geti lent á tung'li,
verður fyrst að vera unnt að skilja
hluta geimfarsins, stjómfarið og
tunglfarið, að. Meðan þeir tveir
lenda á tunglli, mun Roosa svifa
um'hverfis tungl í stjómfarinu. Síð-
an verður að vera unnt að tengja
tunglfarið stjómfarinu aftur, þegar
þeir félagar koma upp frá tungli.
Sé eitthvað í ólagi með tenginguna,
mun Roosa verða sá eini, sem
kemst aftur ti'l jarðar.
Þegar geimfaramir tilkynntu, að
þeim hefði ekki tekizt tengingin,
sögðu þeir frá því, að rákir væru
f lásum vegna nuddsins. Engin skýr
ing fékkst á þessu. Sérfræðingamir
í Houston athuguðu þetta á ,,mód-
elum“ og stóö sú athugun yfir í
morgun.
Reynist hafa orðiö tjón, sem
skapi hættu við tenginguna eftir
tungMendinguna, er óvíst, að lent
verði á tungli. Hættan verður þá
enn meiri en nú, ef eitthvað mis-
tekst. Þá verða þeir Shepard og
MitcheM þreyttir eftir ferð sína á
tungli.
Þúsundir fórust
í flóðunum í
Mósambík
Ekki var fullvíst í morgun,
hversu margir höfðu farizt
í flóðunum miklu í Mos-
ambfk. Mörg lfk hafa fund-
izt í húsum, sem hrunið
hafa og í leðjunni.
wwwwwwwwwvwwwwwwwwwwv
Á slóð morðingja
tveggja milljóna
Hinn kunni „nasistaveiöari"
Simon Wiesenthal sagði i gær-
kvöldi. að hinn alræmdi yfir-
læknir í Auschwitzfangabúðun-
um, dr. Joseph Mengele, væri í
felum í Suður-Ameríkuríkinu
Paraguay.
Wiesentha! er maðurinn, sem
hafði hendur í hári Eichmanns
á sínum tíma og fleiri nasistum
síðar, til dæmis Stengl, sem ný-
lega var dæmdur í Vestur-
Þýzkalandi. Wiesentha! starfar
við stofnun Gyðinga í Vínar-
borg. Hann er nú í heimsókn í
Tel Aviv f ísrael.
Menegele hefur veriö leitað
í meira en 20 ár, en hann hvarf
f stríðslok.
„Ég veit, að hann er í bæn-
um Puerto í Paraguay á hern-
aðarlegu svæði, sem óviðkom-
andi fá ekki aðgang að,“ segir
Wiesenthal.
Mengele er 59 ára og er hon-
um gefið að sök að bera ábyrgð
á dauða tveggja mi'lljóna Gyð-
inga f gasklefunum f Auschwitz.
Meiri h'luti þessa fólks voru kon
ur og börn.
Fyrir hálfum mánuði hét
stofnun í Haífa um fimm millj-
ónum króna hverjum þeim, sem
hefur hendur í hári Mengele.
Segjast Gyðingar vilja ná hon-
um lifandi. Þeir hafi ekki á'huga
á að drepa hann, og hefðu þeir
el'la getað gert það fvrir löngu.
Opinberir aðilar segja, að fjöldi
látinna geti verið mörg hundruö
eða mörg þúsund. Óstaðfestar fregn
ir herma, að mörg hundruð manna
'hafi án efa farizt f Zambesihéraði,
'sem verst varð úti, norðan 'hafnar-
borgarinnar Beira.
Óttazt er, að hól'f mi'Mjón manna
séu einangraðir f morgun. Miklar
skemmdir hafa orðið á uppskeru.
Beiðni hefur borizt víða að um
mat og vatn.
Portúgalski ílugherinn hefur sent
f'lugvélar til flutninganna. Mosam-
bfk er portúgölsk nýlenda í Af-
rfku.
BYRJAÐI ILLA
Þetta er eldflaugin, sem Apollo 14 var skotið
upp með í gærkvöldi eftir 40 minútna töf.
Töfin veldur því, að geimfararnir verða að flýta för sinni. Frekari
óhöpp eltu þá félaga í alla nótt eftir þessa slæmu byrjun.
MISTÖK í SIGLINGU OLLU
STRANDINU
— „Ég skil þetta ekki," segir skipstjórinn á
„Margréti prinsessu"
Danska ferjan „Margrét í gærmorgun strandað
prinsessa“ kom til Kaup- norðan Helsingjaborgar í
, „ * blíðskaparveðri.
mannahafnar í nott með v
„Eg ski'l ekki, hvað hefur getað
tíu metra breiða dæld í valdið strandinu,“ sagði Jörgen
. ~ , o*.. Kertz skip'stjóri skömmu eftir kom-
stefni, eftir að skipið hafði una UJ Hafnar. ..Veðriö var gott,
og útsýni yfir alla strandlengjuna.“
Fimmtíu bifreiðar, sem voru með
skipinu, munu verða settar á land,
og síðan fer skipið til Friðrikshafn-
ar, þar sem viögerð fer fram. Talið
er, að ekki verði unnt að nota skip-
iö á leiðinni Osló—Kaupmanna-
höfn fyrr en eftir mánuð.
Sjópróf verða á miðvikudag í
fyrsta. lagi.
Þaö virðast hafa verið mistök í
siglingu, sem ollu strandinu. 453
farþega og 125 manna áhöfn skips-
ins sakaði ekki. Farþegarnir fóru f
Evrarsundsferju og síðan með sér-
stakri lest, og komu þeir til Kaup-
mannahafnar sjö klukkustundum
eftir áætlun.