Vísir - 01.02.1971, Side 4
4
V 1 S I R . Mánudagur 1. febrúar 1971,
John Toshack, Liverpool.
þverslá. Knötturinn hrökk fyrir
fætur Aston, sem sendi hann í
netið. Eina mark heimaliðsins
skoraði Frank Worthington úr
vítaspyrnu.
Derek Dougan, formaður sam
taka ensku knattspyrnumann-
anna, skoraði bæði mörk Úlf-
anna gegn Crystal Paíace — en
hann hafði ekki hugmynd um,
þegar hann skoraði fyrra mark-
ið. Þar fylgdi honum hin írska
heppni. Ken Hibbitt spymti
knettinum inn í vítateig og
hann lenti í Dougan og hrökk i
markið. Þá var hálftími af leik.
Alan Birchenall jafnaði fyrir
CP tíu mínútum síðar — en
Dougan skoraði sigurmarkið i
síðari hálfleik. Aðstæöur voru
þá orðnar mjög erfiðar og
slvddustormur á vellinum.
Ekki virtist Chelsea sakna
Peter Osgood gegn WBA og
skoraði tvívegis í fyrri hálfleik.
Fyrst .Tohn Hollins og síðan Ian
Hutchinson, en Jeff Astle lagaði
stöðuna í 2—1 fyrir WBA rétt
fyrir h!é. t síðari hálfleiknum
skorað' Hollins annað mark sitt
f leiknum. en Smerhurst. hinn
unqi leikmaður frá Suður-Afrfku
fjðrða mark liðsins. Hann lék
f stað Charlie C.ooke sem nú
var aðeins varamaður. þðtt hann
eigi að leika í skozka landslið
inu gegn Belgíu á miðvikudag.
m-> bls. 5
Tveir leikir skám sig úr hvað
þýðingu snerti, því efstu liðin
Leeds og Arsenal, léku við mjög
hættulega mótherja. Leeds hlaut
bæði stigin gegn Manch. City á
Maine Road í Manchester, en
Arsenal tapaði báðum í Anifield
í Liverpool.
Leikmenn Leeds komu mót-
herjum sínum mjög á óvænt
með algjörum sóknarleik frá
byrjun og þaö gaf fljótt upp-
skeru. Þegar á 14. mín. tókst
Alan Clarke að skora fyrir
Leeds og tólf minútum síðar
skoraði Jackie Charlton annað
mark liðsins. Hann fór inn á
marklínu, þegar Johnny Giles
tók hornspymu, og tókst að
koma knettinum í mark. En Joe
Corrigan, markvörður City, sem
stóð sig svo frábærlega vel gegn
Chelsea í bikarleiknum fyrra
laugardag, átti sök á báðum
þessum mörkum — og gæfa
Manch. City var ekki mikil í
leiknum, því jöfnunarmark, sem
Francis Lee skoraði og ekkert
virtist athugavert við, var dæmt
af og eins tók dómarinn ekki
til greina ákafa kröfu City-leik
mannanna um vítaspyrnu stuttu
síöar. Fleiri mörk voru ekki
skoruð í leiknum, en hann var
mjög harður og til lítjUar á-
nægju fyrir Sir Alf Ramsey. —
Fjórir af þeim leikmönnum, sem
hann hafði valið til að leika
gegn Möltu á miðvikudaginn i
Evrópukeppni landsliða, meidd-
ust og geta ekki tekið í lands-
leiknum, þeir Lee og Colin Bell
hjá City, og Terry Cooper og
Clarke hjá Leeds — auk þess,
sem Jackie Charlton nefbrotnaði
í leiknum.
Harka var hins vegar ekki
mikil í leiknum á Anfield, en
Liverpool hafði talsverða yfir-
burði. Hin einhæfa leikaðferð
Arsenal — langspyma fram til
hinna stóru leikmanna John
Radford og Ray Kennedv — var
létt fyrir risana i Liverpool-
vörninni, Larry Lloyd óg Ron' ’
Yeats, en þeir eru báðir rétt
innan við 1.90 m, og þar með
var broddurinn úr Arsenal-sókn
inni. Liverpool-liðið • ]ék mjög
vel með fyrirliðann Tommy
Smith og John Toshaok, ásamt
háskólastúdentunum Brian Hal'
og Steve Heighway, sem hættu-
legustu menn i sóknarleiknum.
Toshack skoraði strax á fjórðu
min. og þessi 21 árs piltur, sem.
Liverpool keypti nýlega frá
Cardiff fyrir 110 þúsund pund,
sýnir framför i hverjum léik. —
Fyrst í sfðari hálfleik skoraði
Smith siðara mark Liverpool úr
aukaspymu upp við vítateig og
eftir það var sigur Liverpoo!
aldrei í hættu. Þess má geta, að
Ian Crllaghan komst ekki i lið
Liverpoo! — í fyrsta skipti í 11
ár.
En áður en lengra er haldið
skulum við lita á úrslit í leikj-
unum, sem voru á íslenzka get-
raunaseðlinum.
X Burnley — Newcastle 1—1
1 Chelsea - W.B.A. 4—1
2 Coventry — West Ham fr.
2 Derby — Nottm. For. fr.
2 Huddersf. — Man Utd. 1—2
1 Ipswich — Blackpool 2 — 1
1 Liverpool — Arsenal 2 — 0
2 Man. City — Leeds 0—2
1 Southampton — Stoke 2—1
1 Tottenham — Everton 2—1
1 Wolves — C. Palace 2—1
X . Luton — Cardiff fr.
Brian Labone hjá Everton,
sem var öruggur með sæti i
landsliði Ramseys á miðvikudag
inn, var mjög óheppinn gegn
Tottenham, því eftir aðeins 10
mín. leik var hann borinn af leik
velli og farið með hann beint
á sjúkrahús. Langur opinn skurð
ur var á öðmm fæti hans eftir
viðureign við Martin Chevers.
Það var lán í óláni hjá Everton,
ur, en hann náði miðvarðarstöð-
unni frá Labone á tímabili sl.
haust. En Kenyon réð þó lítið
við Chivers í leiknum og eftir
20 mín. skoraði Chivers fyrsta
mark Tottenham eftir auka-
spymu Martin Peters. Joe Royle
tókst að jafna fyrir Everton rétt
fyrir hlé, en strax f byrjun síð-
ari hálfleiks skoraði Alan Gilz-
ean og það reyndist sigurmark
Tottenham. Chivers var áber-
andi bezti rrmðurinn á vellinum
-— mun fre«fe ©ia&Mullery og
Peters hjá Tottenham, og Ball,
Harwáy og fto$d#«hjá Everton,
sem.Rámsey hafði valiö í lands
líð sitt, enda fór svo, þegar
landsliðseinvaldurinn frétti af
hinum miklu meiðslum á Maine
Road, að hann bætti Chivers
og Ray McFarland hjá Derby
við í landsliðshópinn.
Það fór eins og við sögðum
hér í Vísi. að George Best
mundi leika fyrir lið sitt, en
ekki sjálfan sig, þegar hann
komst úr straffi Sir Ma’tt Busby.
Já, Best var góður hjá Manch.
Utd. og átti mikinn þátt í sigri
1 liðsins í Huddersfield. Áhorf-
endur voru mjög margir — flest
" ir komnir til að sjá Denis
Law, en það var einmitt á Leeds
Road í Huddersfield, sem hann
vakti fyrst verulega athygli, —
þe'gar hatin sem: 16 ára strák-
polli byrjaði að leika í aðal-
liði Húddérsfield. En hann var
þar í örfá ár — 1960 keypti
Manch. City hann fyrir 55 þús
uhd pund, sem þá var metupp-
hæð fyrir brezkan leikmann. -
City hélt honum aðeins nokkra
mánuði, o,g éftir dvöl á Ítalíu,
var hann keyptur til Manch.
Utd. sumarið 1962 — áftur met
sipphæð, 116 þúsund pund. En
það á ekki af þessum frábærn
léfkmanni að ganga, Hann byri-
. áði. rnjög glæsilega gegn Hudd-
érsfield nc á 20. mín. lék hann
ásamt Best i gesn og skoraði
fyrsta markið í leiknum. Fimm
mfnútum síðar var hann borinn
af leikvelli - og burfti sjö spor
til að sauma skurð. sem hann
fékk. Johnnv Aston kom í stað
hans ofr skoraðí sicurmark Unit-
ed f leiknum rétt fvrir hlé, eftir
að Best hafði snlnndrað vöm
Huddersfield og átt hörkuskot i
Ron Davies skoraöi sigurmarkið í Southampton og er al-
mennt taiið bezti miðherji í enskri knattspyrnu. Hann lék
hér á laugardalsvelli fyrir nokkrum árum með Norwich —
og hver man ekki skallana hans þá?
— Arsenal tapaði / Liverpool og er 5 stigum
á eftir Leeds
□ Hinar miklu og sífelldu lægðir suð-vestan úr
Atlantshafi, sem herjuðu Bretlandseyjar á
föstudag og laugardag, höfðu það í för með sér,
að vatnselgur var víða mjög mikill á knattspyrnu-
völlum og þrettán þeirra óleikhæfir af þeim sökum.
Þrettán leikjum var því frestað og af þeim voru
þrír á íslenzka getraunaseðlinum. Varð því að grípa
til þess ráðs að draga um úrslit í þessum þremur
leikjum. Ekki var mikið um óvænt úrslit í leikjun-
um níu, sem háðir voru, en úrslit ekki alveg sam-
kvæmt „bókinni“, þegar dregið var, svo búast má
við, að einhver fái góðan vinning, þegar seðlarnir
hafa verið yfirfarnir hjá getraununum. Allir þýð-
ingarmestu leikirnir í 1. deild fóru fram og sigur-
líkur Leeds jukust talsvert, því liðið hefur nú orð-
ið fimm stiga forustu á Arsenal í deildinni — en
hefur að vísu leikið einum leik meira.