Vísir - 01.02.1971, Qupperneq 6
Nú byrja allir að trimma!
Starf Trimm-nefndanna um allt land er hafið
eftir fyrstu Trimm-ráðstefnuna i gærdag
Þa5 voru vinnubrögö í fullu
samræmi viö Trimmið, sem út-
varpið okkar kaliar svo var-
færnislega „íþróttir fyrir alla“,
þegar ráösteftiufulltrúar risu úr
sætum sínum eftir 9 tíma setu,
og gertiu nokkrar Iéttar æfingar
til að örva blóöráisina, sungu
síðan tvö ættjaröarlög fullum
háisi, en héldu síöan í Sundlaug
Vesturbæjar og trimmuðu þar
dágóða stund áður en þeir héidu
tii kvöldverðar, endumærðir.
Á ráðstefnunni var oddvitum
trimmsins um allt land kynnt
■SAAAAAAAAAAAAAAAAAAA/S
Naumur sigur
Hafnfirðinga
Eftir að leik Ferencvaros og
Fram var lokið, fór fram bæja-
keppni í handbolta milli Hafnar-
fjarðar og Reykjavíkur. Leikurinn
var mjög jafn og skemmtiiegur,
liðin skiptust á um forystuna, en
Hafnfirðingar voru þó öiiu ákveðn-
ari í sóknarlotum sinum framan af.
Byrjun leiksins var mjög jöfn,
á markatöflunni mátti sjá tölur
eins og 1—1, 4—i og 5—5, en
Hafnfirðingar náðu góðum leikkafla
og er 6 mín. voru eftir af fyrri
hálfleik var staðan 9—6. Fram að
hálfleik hélzt svipaður munur, oft-
ast 2 eða 3 mörk og í hálfleik höfðu
Hafnfirðingar yfir, 11—9.
í seinni hálifleik byrjuðu Reyk-
vfkingar mjög vel og jöfnuðu eftir
aðeins 3 mín., 12—12. Úr því hélzt
svo leikurinn jafn, eiginlega mátti
ekki á milli sjá, hvort liðið myndi
sigra, og það var ekki fyrr en 12
mínútur voru eftir, aö einhver
munur var sjáanlegur aftur, en þá
skoruðu Hafnfirðingar þrívegis, án
þess að Reykvfkingar gætu svarað
fyrir sig og staðan var 21—18.
Seinustu mínútumar vom hörku-
spennandi, Rvfkingar hertu mjög
sóknina, og virtist þeim ætla að
takast að jafna, og minnkuðu mun-
inn úr 4 mörkum niður í 1, en
jafnað fengu þeir ekki, og sigmðu
Hafnfirðingar naumlega, með 25:24..
verkefniö endanlega, áður en
þeir halda til starfa, hver í
sinni heimabyggð.
Ráðstefnan um trimmið, eða
íþróttir fyrir alla, eða hvað
menn viija nú kaila það, var
fjörleg, þátttaka góð og greini-
legur áhugi manna á málefninu.
Trimm hefur þegar verið iðk-
að af fjölda íslendinga um all-
langt árabil. Það þykir engum
sérvizkuiegt lengur að sjá mann
skokka um fbúöahverfi, eða
gera æfingar við sundiaug. Það
er tízka að vera með í trimm-
inu góð tízka og nytsamleg. Nú
á að fá fleiri með f þann hóp,
sem þegar er fyrir.
Trimm-nefndin hefur nú gefið
út ýmsa bæklinga, Trimm-minn-
isbókina, bækling um sund-
trimm, skokk, vetrar-trimm,
fimieikatrimm og loks Trimm af
sjónarhóli læknis, eftir Úlfar
Þórðarson, formann ÍBR. Þá er
komin út vegleg bók sem heitir
Skokk fyrir alla eftir William
J. Bowerman og W. E. Harris.
Næstu daga verður trimm á
dagskrá hér á síðunni, og á-
reiðanlega verður trimm um-
ræöuefni manna á meðal nsestu
vikumar og mánuðina, — og
vonandi meira en það, Trimm
ætti að eignast fjöldann allan
af aðdáendum, því má reyndar
silá föstu. íþróttir ættu héðan í
frá að vera fyrir allan almenn-
ing, ekki aðeins útvalinn
stjömuhóp. — JBP
Aðaltrimmari landsins, Gunnlaugur Þórðarson, liggur hér í snjónum við Vesturbæjarlaugina I
gærkvöldi eftir ráöstefnu ÍSÍ um Trimmið.
Eyleifur kom í veg
fyrir sigur Akraness
— Lék með landsliðinu gegn félögum sinum
og skoraði mín. fyrir leikslok 3:3
Eyleifur Hafsteinsson varð til
þess mínútu fyrir leikslok í leik
fslandsmeistaranna og landsliðsins
í knattspyrnu £ gærdag á Akranesl,
'að ræna félaga sína sigri, sem virt-
ist blasa viö beim. Eyleifur var
elni Skagamaðurinn, sem lék með
landsliöinu að þessu sinni, gegn
Skagaliði, sem salcnaöi m. a. Matt-
híasar Hallgrimssonar, Teits Þórð-
arsonar, Einars Guðleifssonar og
Guðjóns Guðmundssonar, sem enn
hefur ekki peft með liðinu í vetur.
Með marki Eyleifs á 44. mín. i
seinni hálfleik, varð staðan 3:3, en
aðilinn i þessum vetrarleik, en þeg-
ar á leið náöi landsliðið betri tökum
Akumesingar höfðu til þess tíma
áyallt haft forystuna í leiknum.
Framan af voru Skagamenn betri
á leiknum, svo segja má aö úrslitin
hafi verið nokkuð sanngjörn.
f háifleik var aðeins eitt mark,
Bjöm Lámsson, sem var nú aftur
með, komst í gegn með góða send-
ingu og hreinlega stakk vömina af
á góðum spretti.
Ungur nýliði, Hörður Jóhannes-
son, 16 ára gamall, skoraði mark
þegar f þessari eldraun sinni með
Skagamönnum. Hann skoraði með
óvæntu og glæsilegu skoti á 7.
minútu i seinni hálfleik. Landsliðið
skoraði fyrst á 15. mín. Jón Ólafur
var þar að verki úr þvögu.
Andrés Ólafsson, h. úthverji
Skagamanna, skoraði 3:1 á 18. min-
útu, með góðu skoti, en Guðm.
Þórðarson skoraði 3:2 á 24. mín-
útu eftir að hann fékk góða send-
ingu frá Eyleifi Skallaði hann inn
eins og reyndar Jón Ólafur hafði
gert.
Þriðja skallamarkið kom svo frá
Eyleifi, 3:3, eftir þvögu við mark
Akraness.
YALSSIGUR
Valsmenn urðu Reykjavíkur-
meistarar t innanhússknatt-
spyrnu hlutu 6 stig eins og KR,
en unnu KR í aukaúrslitum með
6:3 Bæði liðin Valur oe KR.
töpuðu ieik f mótlnu, KR f'trir
Víkir>" o<> Vaiur fyrir KR 5:3
Voru liöin því iöfn, þegar bau
höfðu leikið alla sina leiki. Vík-
ingur og Ármann höfðu 4 stlg
hvort, en Þróttur hafði ekkert
stig hlotið. Fram hætti við þátt-
töku á sfðustu stundu, hvers
vegna var ekki vitað. A mynd-
inni er Her~''vin Gunnarsson
að taka við si'nirlaununum af
félaga sínum, Elnsri Biórnssyni,
form. KRR.
Birgir Jakobsson neytir hér
hæðarmunar í viöureigninni
við Ármenninga í gærlcvöldi,
— ÍR vann með 10 stiga mun
og virðist líklegt til að keppa
um sigur í 1. deildinni í körfu
lcnattleik.
Fjórir leikir
í 7. deild
Um helgina fóru fram fjórir
leikir í 1. deildinni í körfuknatt-
leik. Þór vann Val 75:71, IR
vann Ármann 73:G3, KA vann
Þór 73:64 og HSK (Skarphéðinn)
vann Ungmennafélag Njarðvikur
með 76:66.
Nánar um leikinn í blaðinu á
morgun.