Vísir - 01.02.1971, Page 9
V f S I R . Mánudagur 1. febrúar 1971,
Frá umræðufundi Stúdentafélags Háskólans um kvikmyndina „Táknmál ástarinnar“ í Hafnarbíó.
65. skoöanakönnun VISIS: Teljið þér að herða eigi eða létta eftirlit með efni, sem fjallar um kynl'if?
„Aukna kynferðisfræðslu,
minni kynlífssýnikennslu“
□ „Mér finnst það algjört svínarí að við í dreifbýl
inu skulum ekki fá að sjá t.d. Táknmál ástar-
innar, þegar Reykvíkingar hafa fengið að sjá hana
og m.a. skólabörn. Varla erum við viðkvæmari
fyrir „sexinu“. — „Það fer nú svolítið eftir hvað er
átt við með spurningunni. Ég er hlynnt aukinni kyn
ferðisfræðslu en minni kynlífssýnikennslu“. „Það
er víst nóg, sem flæðir yfir okkur, þó að þeir fari
nú ekki að létta á eftirlitinu. Hvar er annars þetta
eftirlit?“
□ „Þetta er nú ósköp saklaust og hóflegt, sem
komið er. Heilbrigðu fólki getuf váHa brúgðíð'
f brún, þó að eitt og eitt berrassað par sjáist andar-
tak á tjaldi eða mynd“. — „Það voru engar höml-
ur á þessu þegar ég var að alast upp. Þá klæmdust
menn löglega, ef þeir nenntu og allt gekk þetta ein-
hvern veginn sjálfkrafa og átakalaust. Svo komu
þessar hömlur og allir urðu vitlausir í klám“.
□ „Þetta er ágætt eins og er og ástæðulaust að
létta á eftirlitinu. Ég vil ekki fá klámbylgjuna
yfir mig eins og þeir á Norðurlöndum, vil ekki láta
nudda þessu framan í mig“. — „Það þarf að skiljá
betur á milli kláms og kynferðisfræðslu. Þar á eft-
irlitið að koma til. Kannski mætti þó leyfa einhverj-
um að komast í klám, ef þörfin er mikil og þá eftir
eins konar „resepti", — „Aukið frjálsræði, sem
unga fólkið er að reyna að leiða yfir okkur, er væg-
ast sagt siðspillandi“.
□ „Óþarfi er að flytja klámbókmenntir inn í land
ið. Við íslendingar eigum nógar bókmenntir,
sem eru hollari lesning”. — „Herðum eftirlitið, en
þó þannig að heilbrigt kynlíf og kynferðisfræðsla
í skólum bíði ekki hnekki. Þetta má ekki verða
feimnismál. Enginn getur umflúið kynlífið í ein-
hverri mynd“. — Ég er satt að segja orðinn hund-
leiður á öllu þessu klámsnakki og kynferðisfræðslu
umræðum í það óendanlega. Það ætti helzt að
herða eftirlit með öllu þessu gegndarlausa mál-
æði um þessi mál“.
Kynlífið hefur verið meðal
vinsælasta umræðuefnis þjóðar-
innar á undanfömum mánuðum,
iafnvel svo mjög að mörgum
pykir meira en nóg um. Enda-
lausar umræður hafa verið um
klám og kynferðisfræðslu og
hefur þar sitt sýnzt hverjum
eins og gengur. Skömmu fyrir
jól kannaði Vísir afstöðu al-
mennings til kynferðisfræðslu í
skólum. I ljós kom, að yfirgnæf-
Niöurstööur úr skoðanakönnuninni urðu pessar.
Herða.... 100 eða 50%
Létta.........52 eðo 26%
öákveðnir • • 48 eða 24%
Ef aðeins eru taldir peir, sem afstöðu tóku,
lítur taflan pannig út: "
rt'Tt ftríAimim'. í tftrrH Trjlvfr ‘~iUO±v iO± ( Owq uíj ,i
Herða................66%
Létta...........34%
andi meiri hluti fólks var fylgj-
andi kynferðisfræðslu f skólum
eða 95%. — Vísi þótti því for-
vitnilegt, hvort íslendingar eru
almennt „frjálslyndir gagnvart
öllu efni, sem fjallar um kyniíf
og lagði því eftirfarandi spum-
ingu fyrir í 65. skoðanakönnun
sinni: Teljið þér, að herða eigi
eða létta eftirlit með efni, sem
fjallar um kynlif?
Þessi spuming er nokkuð rúm
og almenns eölis og því nokkuð
undir hælinn lagt, hvaða skiln-
ing fólk leggur f hana. Hins veg-
ar er hún orðuð þannig, að forð-
azt er að nota ,,ljótt“ orð eins
og t.d. klám, sem gæti haft á-
hrif á svör manna. Spumingin
er orðuð eins hlutlaust og kost-
ur er á.
Niðurstöðumar úr þessarri
könnun fara heldur betur f aðra
átt, en úr könnuninni um kyn-
ferðisfræðslu f skólum. Máfcti
raunar búast við þvf. Ef aðeins
era taldir þeir, sem haía mynd-
að sár skoðun var ófcvfræður
meirihlut.i því fylgjandi, að eft-
irlit með efni, sem fjallar um
kynlíf væri hert, eða um 66%.
Aðeins 34% vildu létta eftirlit-
inu. Hins vegar voru 24%, sem
annað hvort töldu ástandið vera
gott eins og það er eða höfðu
ekki myndað sér skoðun. Þess
ber þó að geta, að allmargir
sem vildu láta herða eftirlitið
hafa ef til vill verið ánægðir
með ástandið eins og það er, en
sögðust vilja herða það til að
undirstrika það, að ekW mætti
slaka á hömlunum, setn þegar
era fyrir hendi.
Ekki varð vart við neinn
meiriháttar skoðanamun eftir
búsetu fólks á hinum einstöku
landssvæðum. Höfuðborgarbúar
virtust þó heldur „frjálslyndari“
en fólk í dreifbýli. Þá virtust
konur vera heldur harðari gagn-
vart þessarri spurningu, þ.e.
mun fleiri konur en karlar vildu
láta herða eftirlit með efni, sem
fjallar um kynlífið, og karlar
voru í meirihluta þeirra, sem
vildu létta eftirlitinu.
Athyglisvert hefði verið í
þessarri skoðanakönnun eins og
svo mörgrnn að kanna bvort
veralegur afstöðumunur er eftir
aldri ekki síður en kyni. SMkt
hefur þð ekki reynzt unnt, þar
sem að úrtakið sem Vísir notar
viö skoðanakannanir nær ekki
að greina fólk nægjanlega 4
aldursstig og því tilgangslaust
að reyna að gera sér grein fyrir
aldursskiptingu þeirra, sem vilja
létta eða herða eftirlitið.
Endalaust hefur verið deilt um
það, hvort aukið „frjálsræði“ 4
efni, sem fjallar um kynlíf, sé
skaðlegt eða ekki. Meðan ekk-
ert hefur sannazt i þvf efni, virð
ist vera skynsamlegasta stefnan,
að halda óbreyttu ástandi hér á
landi og bíða frekar eftir reynslu
annarra landa, a.m.k. áður en
hömlum er létt af. Þó að Danir
þykist hafa haft góða reynslu
af sínu „frjálsræði" er ekki vist
að svo reynist þegar til lengdar
lætur. Þeir, sem hafa brennandi
þörf finna hvort sem er alltaf
einhverjar leiðir til að fá þörf-
um sínum fullnægt, þrátt fyrir
öll boð og bönn. — VJ
TjSBSm:
Teljið þér að létta eigi
eða herða eftirlit með
efni sem fjallar ua kyn-
Iíf?
Ólafur Hjartarson, innkaupa-
stjóri: — Mér finnst að tvf-
mælalaust eigi að létta þær
hömlur.
«-« ......MllnawiHWII'.TWB^
Valgeir Sighvatsson, bílstjóri:
— Ég hugsa, að fólk eigi bara
að vera frjálst með að velja og
hafna á því sviöi sem öðru.
Jón Eldon, llffræðinemi við
Háskólann: — Mér finnst nauð-
synlegt, að skilin á milli kyn-
ferðisfræðslu og porno séu
mörkuð skýram línum. Kyn-
feröisfræðsilu finnst mér svo
nauðsynlegt að auka til muna,
en hins vegar herða hömlurnar
á pornoframleiðslunni.
Guðjón Friðbjömsson, skip-
stjóri: — Ég held það mætti nú
slaka aðeins á eftirlitinu að
skaðlausu.
Jónína Guðmundsdóttir, skrif-
stofustúlka: — Það hefur það
lítið reynt á eftirlitið með þeim
hlutum, að erfitt er að segja til
um hvers megnugt það er ef til
þess kæmi, að verulega færi að
hellast yfir íslendinga efni um
kynlíf, sem biessunarlega hetur
ekki gerzt ennþá.