Vísir - 01.02.1971, Qupperneq 16
Rskurím okkar mmheUur kviku-
'WVWAAAAAAAAAAAAAA/^
I íslendingar og áfengið
á síðasta ári:
Við drukkiiitt
inteiro en itiilljón
lítru dfengis
Islenzkt brennivm efst
á vinsældalistanum
sem fyrr
| Áfengissala ÁTVR nam ári
1970 alls kr. 856.156.294,10
| (átta hundruð fimmtíu og sex
i milljónum, eitt hundrað fimm
| tíu og sex þúsundum, tvö
i hundruð m'utíu og f jórum
krónum og tíu aurum). 1969
i nam salan kr. 736.432.814,60.
' Aukningin var 119 milljónir
723.979,50, eða rúmlega 16%.
Þessi aukning mun að mestu
leyti stafa af verðhækkunum.
Vísir fékk þær upplýsingar
frá ÁTVR, að sem fyrr, hefði
mest salan verið f íslenzku
brennivíni, vodka, rommi og
genever en einnig væri ævirilega
mikið seit af viskfi og koníaki.
Af sterkum vínum drukkum
vér Islendingar 1 milljón 91
þúsund 335 lítra. Þegar talað er
um sterk vín, er átt við drykki
sem innihalda meira en 30%
alkóhólmagn. Af þessum sterku
drykkjum, munum við hafa sett
í okkur 453.606 lítra af hreinum
vínanda.
Af heitum vánum, svokölluð-
um, þ.e. sérrí, portvíni, madeira
o.s.frv. drukkum við 177.621
lítra, eða tæplega 40.000 lítra
af hreinum vínanda.
Af borðvínum drukkum við
178.974 lítra og inniheldur það
magn 21.000 lftra af hreinum
vínanda.
Samtals höfum við því drukk-
ið 1.447.930 lftra af víni 1970.
AIls inniheldur þetta magn
508.536 l ítra af hreinum vín-
anda.
* Ef miðað er við fólksfjölda á
íslandi 1. des. 1969, þ.e. 203.442
; menn, þá verður neyzla hreins
' vínanda á hvern einstakling
; næstum 2y2 lítri, eða 2,499 lítr-
) ar.
' Tóbakssala ÁTVR nam 703.
•' 199.094.65 'kr. árið 1970, en 1969
nam tóbakssalan 632.642.279,15
krónum. Aukningin er rúmlega
10,5 milljónir, eða rúmlega
11%. “GGJ
silfur lungt uadir hættumarki
— segir i niðurst'óðum
Opinberar rannsóknir í
Bandaríkjunum sýna, að
í freðfiski frá íslandi og
öðrum löndum er magn-
ið aðeins einn tíundi
þess, sem það má vera.
Kvikasilfursinnihald íslenzka
freðfisksins á Bandarrkjamark-
bandariskra rannsókna
aöi er aðeins einn tíundi hluti
þess, sem það má verða, án
þess að neytendum geti stafað
hætta af. Þetta er niðurstaða
rannsókna, sem opinberir aöilar
í Bandaríkjunum hafa gert á
freðfiski frá Noregi, íslandi,
Kanada, Danmörku, Grænlandi
og Póllandi. Að meðaltali var
kvikasilfursinnihaldið mjög lít-
ið í þessum fiski.
Athyglin hefur beinzt að
kvikasilfri í fiski, eftir að magn
þess í túnfiski reyndist hættu-
legt. Um ein milljón túnfisk-
dósa voru teknar af markaöi
í Bandaríkjunum í desember,
þar sem kvikasilfursmagnið í
túnfiskinum reyndist hættulegt
mönnum. Þá var talið að 23%
af öllum túnfiski á Bandaríkja
markaði hefði of mikið af kvika
silfri. Eftir frekari rannsóknir er
nú álitið að um 2% af túnfisk
inum hafi of mikið kvikasilfur
til þess að óhætt sé að neyta
hans.
1 Japan höfðu margir látið líf-
ið, sem neytt höfðu túnfisks
með hættulegu kvikasilfurs-
magni.
Eftir þetta beindist athyglin
að öðrum fisktegundum, og
gengust opinberir aöilar i Banda
ríkjunum fyrir víötækum rann
sóknum á kvikasilfursinnihaldi.
Eftirlitið með matvælum og lyfj
um hefur þar rannsakaö 80 freð
fisksblokkir frá ýmsum lönd-
um. Bendir ekkert til þess, að
hins minnsta hætta sé af neyzlu
þessa fisks. — HH
Spennir úr sam-
bandi í Elliðaárstöð
Rafmagnslaust i Reykja-
vik á tima i morgun
Rafmagnslaust varð á nokkrum
stöðum í Reykjavík í morgun, þeg
ar spenni leysti út í Eliiðaárstöð.
Rafmagnið fór sumstaöar af í fá-
einar mínútur, annars staðar í 15
til 20 mínútur. Starfsmenn Lands-
virkjunar í Elliðaárstöð höfðu snör
handtök og skiptu um spenni svo
fljótt, sem verða mátti, þannig að
enginn þurfti að una rökkrinu lengi.
— JH
„Ekki farnir að
ótta okkur"
— Skattframtölin komin
i einn haug
Starfsliö Skattstofunnar stóð í
morgun með fangið fullt af skatta
skýrslum. 1 gærkvöldi var stöðug
ur straumur fólks að bréfalúgunni
í Ingólfsstræti. Lögregluþjónar
liðkuðu fyrir umferðinni að vanda
meðal annars með því að taka við
skýrslum út um bílglugga.
Mest varð ösin undir miðnættið.
Það vafðist fyrir mörgutn að tí-
unda laun sín og sumir staðfestu
drengskaparloforö sitt á síðustu
stundu, með skýrsluna á hnjám sér
inni f bíl.
Að sögn Ragnars Ólafssonar,
deildarstjóra á Skattstofunni voru
skýrslurnar að berast jafnt og þétt
alla síðustu viku. Sagði hann að
menn væru jafnvel heldur fyrri til
að skila nú en áður, þótt þetta
dragist fram á síðustu stund hjá
æðimörgum. Um 40 þúsund skýrsl
ur voru sendar út til framteljenda
og sagði Ragnar að starfslið Skatt
stofunnar væri tæplega farið að
átta sig á heimtunum enn sem
komið væri. — Þetta lægi þar allt j
í einum haug. — JH ;i:
Jeppabifreið valt út af SSuöurlandsvegi skammt ofan við Lögberg snemma í morgun. Iíafnaöi bfll-
inn á þakinu rúma 10 metra utan við veginn, en ökumanninn sakaði ekki. — Fljúgandi hflt
var á olíumalarborna kaflanum í morgun, en akstur á þessum slóöum viðsjárverður. Tafiö er, að
bíllinn hafi oltið, vegna þess að framhjólbarði hafði sprungið og bíllinn lent út af veginum. —
Jeppinn var fluttur á brott af kranabíl. —GP
Yar að missa rænuna
þegar hjálpin komu
— segir stúlkan, sem varð fyrir likamsárás i
Vesturbænum
„Ég hugsa, að ég eigi þessari
konu, sem kom mér til hjálpar,
líf mitt að Iauna,“ sagði tvítug
stúlka, sem varð fyrir nauðgun-
arárás á föstudagskvöld vestur
á Reynimel.
„Ég fann að ég var aö missa
rænuna undan barsmíðum manns-
ins, þegan kona, sem haföi heyrt
i mér hrópin, kom þarna aö. Þá
varö maðurinn hræddur og kallaði
að allt væri í lagi, en hljóp síðan
á brott“, sagði stúlkan við blaða-
mann Vísis.
Blá og bólgin í andliti undan
barsmíðum árásarmannsins var
stúlkan flutt á slysavarðstofuna,
þar sem gert var að meiðslum henn
ar og reyndust áverkarnir ekki
j hættulegir.
„Ég hafði verið í bíó, misst af
' strætó og gekk heim til mín vestur
I í bæ, en hjá gatnamótum Hofs-
vallagötu og Reynimels sá ég mann
j á vappi, sem sneri sér að mér og
bað mig um að koma heim með
sér.
Fyrst ætlaði ég að halda mína
leið niður Hofsvallagötu, en þegar
hann elti mig, þá tók ég til fót-
anna og hljóp vestur Revnimelinn.
En hann kom aftan að mér og
skellti mér í götuna.
Höggin dundu á mér og hann
tætti utan af mér jakkann og pils-
ið, en þá kom konan mér til hjálp-
ar.“
Maöurinn hljóp burt, en það sást
í hvaða hús hann fór. Lögreglu-
menn, sem fengu lýsingu á mann-
inum, höfðu uppi á honum.
Þrætti hann í fyrstu, en játaði
árásina eftir frekari yfirheyrslur.
Þó taldi hann sig muna einstök
atvik illa, vegna þess hve ölvaður
hann hafði verið. —GP
Frysfa loðnan
I - seld á 13-17 bús.
kr. tonnið
j 9 Eins og Vísir hefur áður skýrt
frá hefur Söluiniðstöð hrað-
frystihúsanna og SÍS gert samning
við Japan um sölu á 2.000 tonnum
af frystri loðnu, sem er um helm-
ings aukning frá í fyrra.
Verðið á loðnunni hefur hækkað
verulega og fást nú 13—17.000 kr.
I fyrir hvert tonn eða 25—35 millj-
ónir fyrir magnið, sem samið hefur
! verið um. Þriðji aðilinn er nú einn-
ig að gera samninga við Japani um
' sölu á frystri loðnu, en talið er að
| markaðurinn í Japan fyrir frysta
| loðnu sé hvergi nærri tæmdur með
sölu SH og SÍS. Það má því vera
Ijóst, að loðnan hafi nú sívaxandi
mikilvægi að gegna í útflutnings-
tekjum landsins og má í þvi sar>-
j bandi einnig minnast á niðursuðu
á loðnu, sem nú er mjög vaxandi
hjá Norðurstjörnunni í Hafnar-
jfirði. — VJ
/