Vísir - 05.02.1971, Blaðsíða 1
Fá LaxárdalsE
135 miEiiónir að utan?
Það hefur komið til tals hj
okkur að leita til erlendra nátt-|
úruverndarsamtaka til að afla 1351
mi'lljóna krónanna, sem undirréttur
úrskurðaði, að við yrðum að leggja
fram, ef' setja á lögbann á fram-
kvæmdir Laxárvirkjunar við Gljúf-
urversvirkjun, sagði Eysteinn Sig-
urðsson, bóndi á Arnarvatni í við-
tali við Vísi í morgun. Eysteinn
er einn aðal forvígismaður Laxdael-
inga í aðgerðum gegn virkjunar-^
framkvæmdum Laxárvirkjunar. |
Ég hef raunar alls ekki reiknað ■?
með, að hæstarétti sé stætt á að
staðfesta úrskurð undirréttar, sagði
Eysteinn. Ef svo ótrúlega kynni þó r
að fara, að hæstiréttur úrskurðii
skilyrðislausan rétt fjármagnsins, I
bá neyðumst við út í það, að leitaþ
aðstoðar erlendis. Við höfum þeg-J
ar haft samband við þýzk náttúru-|
verndarsamtök, sagði Evsteinn.
i . — VJ
r
Bsfunga S mílur
út uf Struuannesi
Is hefur nálgazt land á Vest-
fjörðum með vestanáttinni. Varð-
skipið Óðinn kom í morgun að ís-
tungu sem lá næst'8,5 sjómílur frá
Straunmesi. Þ.etta var rekís, ískurl
að sögn Landhelgisgæzlumanna.
Landhelgisgæzlan mun senda
flugyél vestur í dag til þess að
Irjmno ící-nn —TiR
Geimfaramir. Roosa,
eheli (iengst til hægrs>
vinstri, sveimar umhverfis tungl, meðan Shepard og Mit-
g unáir gönguferð um tunglið.
• ®
baði geimfarana
— Taugaspenna víð iendíngu á tungfí
© Geimfararair Alan
Shepard og Edgar Mit-
chell lentu heilu og
höldnu á tungli klukkan
9.18 í morgun, eftir
mikla taugaspennu, sem
stafaði af villandi upp-
lýsingum tölvu í tungl-
ferjunni. — Samkvæmt**
tölvunni var tunglferjan
á leið frá tungli og aftur
á braut, þegar hún í raun
og veru var að lenda.
L'íklega höfðu óhreinindi kom
izt í tölvuna. Mitchell iamdi í
hana, og þá var hún rétt um
stund, en skömmu síðar gaf inin
aftur rangar upplýsingar. Menn
nrAn crrvaríT-i+ír* Goimeifní’kin í
Houston gaf geimförunum fyrir
mæli um að reikna allt á nýj-
an leik, og var það gert á sein
ustu stundu.
Síöan stýrði Shepard tungl-
ferjunni sjáifur síðasta hlutann
og valdi sjálfur lendingarstað.
Þetta heppnaðist fullkomiega,
og var lent þar, sem ákveðiö
hafði verið.
Lendingin var tveimur mínút-
um eftir áætlun.
e/1 allt fór vel
Tunglferjan, „Antares“, hafði
fjórum og hálfri stundu áður
skilizt frá stjórnfarinu og farið
á braut um tungl. Þrettán m'in-
útum fyrir lendingu skutu þeir
félagar tunglferjunni af braut og
til lendingar á tungli. Þeir fóru
fram hjá fjallaklasanum Hippar
cos og gígnum Ptolemaes og
áfram yfir Haf skýjanna. Lentu
þeir á fyrirfram ákveðnum stað
náiægt Hafi stormanna.
Roosa geimfari mun halda
áfram hringferð um tungl, þang
að til þeir Shepard og Mitchell
skjóta sér aftur frá tungli og
tengjast stjómfarinu.
Klukkan tíu mínútur yfirtvö
í dag fara þeir félagar göngu
ferð um mánagrund, sem á að
standa fjórar eða fimm klukku-
stundir. Önnur gönguferö þeirra
verður í fyrramálið.
Kiukkan 18.47 á morgun eiga
þeir að fara frá tungli að nýju.
—HH
3JA ARA DRENGUR
KAFNAÐI í HÚSBRUN A
Hjón með fírjú önnur börn einnig i hættu við eldsvoða i Hafnarfirði i morgun
Þriggja ára drengur kafnaði af
völdum reyks, þegar eldur kom
upp í íbúðarhúsi aö Álfaskeiði
nr. 16 f Hafnarfirði í morgun.
Aðrir íbúar hússins, foreldrar
drengsins og þrjú systkini, fengu
forðað sér út, þegar eldsins var
vart um kl. hálf sjö í morgun, en
þá uppgötvaðist að drengurinn hafði
orðið eftir inni.
Var farið inn í logandi húsið aftur
og fannst þá drengurinn meðvit-
undarlaus í reyknum, og honum
var bjargað út Hann reyndist vera
látinn, þegar komið var með hann
á slysavarðstofuna.
Kviknað hafði í eldhúsi, en eld-
inn lagt út um gluggann og teygt
sig upp í glugga á efri hæð, þar
sem svefnherbergj fölksins var.
— GP
Rétt ísland á dökku kápunni, en á þeirri ljósu eru Vestfirðir komnir þar, sem Austfirðir eru á
veniulegum landakortum og öfugt.
Öfugt ísland ú
útflutningslcápum
Það kann að vefjast fyrir út-
lendingunum hvernig ísland sé
nú eiginlega £ laginu, þegar þeir
sjá tvær útgáfur af landinu á
útflutningskápum, sem á að
drífa á Evrópumarkað í mikilli
söluherferð, sem hefst innan tíð
ar. Tvær gerðir eru af þessum
kápum og samanstendur munstr
ið af víkingaskipum og íslands-
korti. Á annarri káputegundinni
kemur ísland út eins og íslend
ingar eru vanir að sjá það á
kortum, en í hinni útgáfunni
hafa Vestfirðir veriö settir þar
sem Austfiröir eru venjulega og
öfugt. En þannig mun standa á
þessu, að sama efnið er notað
i báðar flíkurnar og rangan lát-
in snúa út á káputegundinni þar
sem Island kemur út öfugt.
Þessar kápúr eru meðal 200
flí'ka, bæði stórra og smárra,
sem verða sýndar næstu 8—10
vikurnar á kaupstefnum og í
fyrirtækjum í Evrópu. Það eru
Otflutningsskrifstofa iðnaðarins,
Álafosis og Samband ísl. sam-
vinnufélaga, sem standa að þess
um sölusýningum og útflutningi
ísienzkra tízkufata. — SB
Bítlurnir búnir
%
Þorsteinn ( Thorarensen hefur
ritað margar Föstudagsgreinar um
a'lla helztu stjómmálaforingja
aila helztu st'jómm'á'laforingja
heimsins. I dag fjallar Þorsteinh
um óvenjulegt efni, Bítlana, sem
einnig hafa markað veruleg spor
undanfarin áratug. Föstudagsgrein-
in á bls. 8 heitir BÍTLARNIR
BÚNIR.
Byssu eðu sfúkru-
hús fyrir særður
skepnur
Löngum hefur byssan verið tál-
in bezta liknartæ'kið, þegar um hef-
ur verið að 'ræða veik dýr. Um
lækningu á skepnunum hefur varla
verið að ræða í mörgum ti'Hfellum.
Víða eriendiis er þessi hugsunar-
háttur ekk; lengur við lýði, —
dýraspítalar hafa verið reistir.
Hugmynd er 'komin uipp hér á landi
um slíka stofnun, — og að sjálf-
sögðu eru það dýravemdunarmeim,
sem hafa þessa hugmynd og kynna
hana. Viðtal er í hlaöinu í dag
á bls. 9 við Þorstein Einarsson,
í'þróttaiMi'trúa, — BYSSAN TAL-
IN BEZTA LÍKNARTÆKIÐ. —
! i
i