Vísir - 01.03.1971, Page 3
V I S I R . Mánudagur 1. marz 1971.
Í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND I MORGUN ÚTLÖND
UmsjOn: Haukur Helgason:
krefjast afsagnar Bortens
Sumir segja, oð oðe/ns sé eftir oð ákveða,
hvenær hann hætti — Áfram borgaraleg stjórn
eðo minnihlutastjórn Verkamannaflokksins?
0 Líf norsku stjórnarinn-
arinnar hangir á blá-
þræði. Ríkisstjórnin og for
menn stjórnarflokkanna
koma saman í dag til að
reyna að leysa vandann.
Tekur minnihlutastjórn Verka-
mapnaflokksins við undir for-
ystu Trygve Bratteli?
Nær öll norsku blöðin
segja í morgun, að aðeins
sé eftir að ganga frá því,
hvenær ríkisstjómin muni
hiðjast lausnar.
Hins vegar telja flest blöö borg-
araflokkanna, að borgarateg ríkiis-
stjóm verði að sitja, þótt Per Bort
en verði persónulega að hætita. Því
er talið, að nú sé verið að reyna
að mynda nýja borgaralega rfkis-
stjórn, þótt það muni reynast erfið-
ieikum bundið.
Mörg borgarablöðin telja, að John
Lyng eða Helge Seip séu líkllegastur
eftirmaður Bortens.
Málið ,,lekinn“ hefur verið efst
á baugi í Noregi í nokkra daga, en
það var fyrst um miðnætti á laug-
ardag, að menn fóru að óttast
stjómarkreppu þess vegna. Þá
gaf Borten forsætisráðherra óvænt
þá yfirlýsingu, aö hann hefði skýrt
forystumanni andstæðinga aðildar
að Efnahagsbandalagi Evrópu, Ame
Haugestad, frá efni leynilegrar
skýrslu um gang samninga 1 Briiss-
el. ■' ■■-■
is-i*.
Aðeins 19%
telja innrásina
nauðsynlega
Aðeins 19% Bandaríkjamanna
telja, að innrásin í Laos muni
stytta stríðið og hafi verið nauð-
synleg. Gallupskoðanakönnun,
sem gerð var 19. og 20. febrúar,
leiðir í ljós, að almenningur er
ékki sammála Nixon forseta og
ríkisstjóminni.
Skoðanakönnunin náði til
1500 manna, sem valdir voru
eftir stæröfræðilegum útreikn-
ingum, þannig að þeir gefi sem
bezta hugsmynd um afstöðu
heildarinnar. Af þessum 1500
kváðust 87% hafa hevrt eða les-
ið um innrásina í Laos. Þessir
\
1212 vom síðan spurðir, hvort
þeir teldu, aö. innrás Suður-Ví-
etnama í Laos mundu stytta eða
lengja styrjöldina í Víetnam. 40
af hverjum 100 töildu, að hún
mundi iengja styrjöldina, en 19
af 100 töldu, að hún mundi gera
styrjöldina styttri. Afgangurinn
taldi annaðhvort að innrásin
mundi 'iitlu skipta eöa þeir höfðu
ekki ábveðna skoðun á málinu.
Gallupstofnunin segir, að þessi
19%, sem telja innrásina stytta
strfðið, séu vei menntaðir og
telji sig repúblikana.
GÓMSÆTT FARS
GERT ÚR LOÐNU
@ Góður árangur hefur náðst af
tilraunum í Noregi til aö nýta
loðnuna. Meðal annars hefur
verið gert lir henni fars, sem
sagt er einstaklega gómsætt, og
er síðan bakað eins og kölcur.
Reynt hefur veriö að glóðar-
steikja loðnuna, og hefiu- gefizt
vel.
© Þessar tilraunir hafa verið gerðar
í Harstad f veitingastað bræðr-
anna Bothner. Enn hefur ekk-
ert verið framieitt, sem er til-
búið á markaö.
Helge Seip, formælandi borgara-
flokkanna á þingi, vildi lög-
reglurannsókn.
Yfirlýsing forsætisráöherrans
kom skriðu af stað í stjómmálun-
um. Nær öll dagblööin kröfðust
þess í gær, að Borten bæðist lausn-
ar.
Það var 19 febrúar, að Dagbladet
skýrði frá efni leyniskýrslu frá
sendiherranum í Brtissel, Jahn Hal-
vorsen. Þar var greint frá viðtali,
sem Halvorsen hafði átt við hátt
settan mann í EBE, Jean-Francois
Deniáú. Deniau háfði meðal annárs
sagt, að vandamál í norskum land-
búnáðis'ýééíCr' rfiéð ' þeim' hættV“aö
aðild að EBE kæmi ekki til greina.
Þessi grein í Dagbladet vakti at-
hyglli, og menn spurðu, hvaðan blað
inu kæmu slíkar „leynilegar" upp-
lýsingar. Formælandi borgaraflokk-
anna á þingi Helge Seip úr „vinstri
flokknum" sagði ti'l dæmis, að at-
huga yrði, hvort ekki ætti að fela
lögreglunni að rannsaka þennan
leka.
Mörgum dögum síðar viður-
kenndi Borten, að hann væri hinn
seki. Hann kvaðst hafa skýrt Hauge
stad frá efni skýrslunnar, en sagt
honum, að þetta væri leyndarmál.
Haugastad neitar því, að forsætis-
ráðherrann hafi „beðið hann fyrir“
efni skýrslunnar.
Blaðið Aftenposten (óháð, íhalds-
samt) segir í morgun, að óhugsandi
sé, að forsætisráðherrann haldi á-
frarn. Blaðið vonar, að málið hafi
ekki ruglað stjórnarflokkana í rím-
inu og bendir á, að borgaraflokk-
arnir hafi áfram meirihluta á þingi
og eigi þeir að halda áfram að
stjóma,
Arbeiderbladet, málgagn verka-
mannaflokksins, segir í morgun, að
ný stjórn verði að taka við. Stjórn-
málalegur grundvöllur samstarfs
borgaraflokkanna sé brostinn. Hið
alvarlega við mál þetta sé ekki, að
John Lyng úr hægri flokknum
kemur til greina sem eftirmað-
ur Bortens.
Per Borten forsætisráðherra seg-
ir „Iekann“ vera „smávægileg
mistök“.
efni leyniskýrslunnar hafi verið svo
stórkostlegt, heldur hitt, að ekki
sé unnt að treysta því, að varlega
sé farið með slik mál. Því sé þetta
ekki „smávægileg mistök“, eins og
forsætisráðherrann vilji vera láta.
Andrúmsloftið í samningunum við
EBE hafi lengi veriö „eitrað“.
Morgenbladet (óháð, íhaldssamt)
segir á forsíðu, að Borten veröi að
fara frá og miðflokkurinn megi
ekki hafa forsætisráðherraembætt-
ið lengur.
Dagbladet (vinstri flokkur) segir,
að hið eina, sem til greina komi,
sé minnihlutastjórnVerkamanna-
flokksins. Vinstri flokkurinn á að-
ild að rfkisstjórn borgiaraflokkanna.
Þó segir Dagbladet að landið þurfi
samhenta stjörn, og því verði að
fela foringjum stjórnarandstöðunn-
ar, verkamannaflokksins, að taka
við.
Innrásarliðið tvöfaldað
í bandarískum útvarps-
fréttum var í morgun talið
líklegt, að aukið lið yrði
sent inn í Laos. Var helzt
búizt við, að allt að sextán
þúsund Víetnamar til við-
bótar mundu fara inn í La-
os til stuðnings þeim um
sextán þúsundum, sem þar
eru fyrir. Suður-Víetnöm-
um hefur vegnað illa und-
anfama daga.
Mikið heriið Norður-Vfetnama
hefur hafið gagnáhlaup í Laos og
náð bækistöð stórskotaliðs Suður-
Víetnama, sem var á hæð 15 kíló-
metrum innan landamæranna. Tóku
kommúnistar marga fanga. Þessi
frétt er höfð eftir heimildarmönn-
um í Saigon.
Verði nýtt lið sent inn í Laos,
er talið, að það muni sfefna til
Sepone, sem er 45 kilómetrum inn-
an landamæranna, en þar er álitið,
að Norður-Víetnamar hafi herstjórn
arstöð.
Kunnir Svíar mótmæla
Gyðmaaofsóknam í Sovét
55 kunnir Svíar, þar á með-
al tveir Nóbelsverðlauna-
hafar og leikstjórinn Ing-
mar Bergman, hafa sent
ríkisstjóm Sovétríkjanna
mótmæli við því, sem þeir
kalla nýja öldu ofsókna
gegn Gyðingum í Sovét-
ríkjunum.
Ruben Josefsson erkibiskup, senn
er í hópi þeirra, er undirrituðu,
sagð í gær, að mótmælin hefðu ver-
ið afhent sendiráði Sovétríkjanna í
Stokkhólmi. í bréfinu segir, að fólk
hafi fylgzt með því með áhvggium,
að ný ailda ofsókna hafi skollið á
Gyðingum í Sovétríkjunum og
styðji ýmsir forystumenn þar of-
sóknirnar. Þessar ofsóknir minni
mjcig á fyrri Gyðingaofsóknir í Evr-
ópu, segir í mótmælunum.
Svíarnir 55 mótmæla sérstaklega
þeim hiridrunum, sem lagöar eru í
veg fyrir þá Gyðinga, sem vilja
flytjast úr landi. Þess er krafizt,
að ríkisstjórn Sovétríkjanna sjái til
þess, að Gyðingar sæti ekki órétt-
læti.
Meðal þeirra, er mótmæltu, eru
Arne Tiselius, sem hlotið hefur
Nóbelsverðlaun í efnafræði, Per
Lagerkvist, Nóbelsverölaunahafi í
bókmenntum, og Berti'l Oh'lin pró-
fessor, kunnur hagfræðingur.