Vísir - 01.03.1971, Qupperneq 9
V I S I R . Mánudagur 1. marz 1971,
h
69. skoðanakönnun Visis: Viljið þér, að Kina verði tekið inn i Sameinuðu þjóðirnar eða ekki?
„IKKI VITLAUST AD
CffA ÞCIM TÆKIFÆRI"
„Ættum við að fara að viðurkenna þá og
hjálpa þeim til að leggja undir sig heiminn? Ég
held nú ekki“. — „Framkoma utanríkisráðherra í
þessu máli er til háborinnar skammar. Við höfum
sýnt, að við erum íhaldssamasta Norðurlandaþjóð-
in“. — „Ef okkar utanríkisstjórn er því andvíg, þá
treysti ég mér ekki til þess að andmæla því“.
„Kannski er ekki svo vitlaust að gefa þeim
tækifæri á þeim vettvangi til þess að kynnast
pólitík Vesturlandaþjóðanna, sem þeir halda allar
vera heimsvaldasinna“. — „Ég hef ekki vit á stjóm
málum og þaðan af síður utanríkispólitík“. —
„Ekki hefur mér nú heyrzt þeir leggja mikið gott til
málanna. Einskis góðs er von úr þeirri áttinni".
„Er ekki óviðeigandi að hafa eitt mesta stór-
veldi heimsins utan samtakanna? Ég spyr. Ann
ars þekki ég ekkert inn á þetta og er alveg sama“.
Niðurstöður úr skoðanakönnuninni urðu pessar
Tekið inn • • • • 77 eðn 39%
ikki inn........34 eðn 17%
Ónkveðnir.... 89 eðn 44%
Ef aðeins eru taldir þeir, sem afstööu tóku,
lítur taflan þannig út:
Tekið inn.............69%
ikki inn.............31 %
— „Ég skil ekki að heimspólitíkin komi okkur mik-
ið við hér á hjara veraldar“. — „Kínverjar em
fimmti hlutinn af mannkyninu. Með því að veita
þeim inngöngu í SÞ gæti kannski ýmislegt lagazt“.
Kiínamálið. hefur verið í heims-
fréttunum reglubundið ár eftir
ár eða í hvert skipti, sem staðið
hefur fyrir dyrum, að greiða at-
kvæði á þingum Sameinuðu
þjóðanna um spurninguna, hvort
stjóm kommúnista í Peking
skuli taka sæti fyrir hönd Kína,
sem hin útlæga stjórn Ohiang
Kai Cheks á Formósu heldur
enn. Þetta mál var enn 1 fréttum
nýlega, þegar greidd voru at-
kvæði á allsherjarþingi SÞ um
það, hvort Kína skyldi taka sæti
á þinginu og þá eins og oft áður
heyrðust raddir, sem telja af-
stööu Islendinga til Kínamálsins
óviðunandi. Vísi þótti því for-
vitnilegt aö kanna hug almenn-
ings til þessa máls og lagði
eftirfarandi spurningu fyrir í
' 69. skoðanakönnun sinni: Viljið
þér, að Kína verði tekið inn í
Sameinuðu þjóðimar eða ekki?
Það kom ekki á óvart, að
mjög lítill áhugi reyndist á þessu
máli Þetta kom í ljös í ’ þvi,
aö stærsti hlutfallshópurinn var
óákveðinn í afstöðu sinni, en
hinir, sem afstöðu tóku, fylgdu
skoðun sinni ekki etftir nema í
Ár eftir ár hefur Kínamálið komizt í heimsfréítir, þegar greiða á atkvæði um rétt Peking-
stjórnarinnar til aðildar að SÞ. Hér er Hannes Kjartansson ambassador í ræðustólnum á alls-
herjarþinginu.
örfáum tilvikum. Alls reyndust
44% vera óákveðin, 39% vildu
að Kína yrði tekið inn í SÞ, en
17% voru andvíg.
Töluverður afstöðumunur
milli kynjanna til spumingar-
innar kom fram. Karlmenn
reyndust mun meiri „Kínasinn-
ar“ ’en kóriur.' 54%' ’áíírá karlm.
vildu láta taka _ iþna inn i SÞ.
' en aöeiris" 23% lcvenna. Éf að-
eins eru taldir þeir karlmenn,
sem tóku afstöðu til spurning-
arinnar reyndust um 80% karl-
manna vilja fá Kína inn, en að-
eins rúmur helmingur kvenna
tötfdu rétt að taka þá inn í
..klúlbb þjóÖanna“. Þó að konur
hafj reynzt svona neikvæðar í
afstöðu sinni til Mao formanns
og hans manna, lenti þó meiri-
hluti kvenna í hópi óákveðinna.
58% allra kvenna reyndust ekki
hafa skoðun á málinu, en hlut-
fall óákveðinna karlmanna
reyndist 31%.
Ljóst er af þessum niðurstöð-
um, að abnenningur á Isilandi er
mjög ófróður um Kínamálið.
Þannig kynnu niðurstöðurnar að
hafa orðið allt aðrar ef t.d. hefði
verið spurt: Teljið þér rétt að
reka Formósu- Kínverja úr S.Þ.
svo að Peking-Kínverjar geti
fengiö þar saeti?
Tuttugu ár eru nú liðin frá
því kommúnistar undir forystu
Mao Tse Tungs tóku völdin á
öllu meginlandi Kína með bylt-
ingu. Stjóm Chiang Kai Cheks
var hrakin til eyjarinnar For-
mósu undan Kínaströndum.
Enn hefur ekki fengizt sam-
þykkt, að kommúnistar taki sæt
iö. Norðurlöndin hafa öl'l, nema
ísland undanfarin ár greitt at-
kvæði með aðild þeirra. Tillag-
an er jafnan í því formi, að
fulltrúi Formósu skuli víkja af
þinginu. Þetta hafa íslendingar
ekki talið sér færtaösamþykkja,
en fulltrúar íslands hafa aldrei
lagzt gegn aðild Pekingstjórnar-
innar.
Það er talið hafa spiltt fyrir
Pekingstjóminni að hún hefur
sjálf sýnt lítinn áhuga fyrir
|>e9su máli og oft lýst fyrirlitn-
ingu á samtökum Sameinuðu
þjóðanna. —VJ
it
I
— Viljið þér að Kína
fái aðild að Samein-
uðu þjóðunum eða
ekki?
Hlynur Möller, verkamaður:
„Tvímælalaust. Um það þarf
ekkj að rökræða".
Rafn Sigurðsson, veitingamaður:
„Ég veit ekki — jú, af hverju
ekki?“
Bergsveinn Þorkelsson, sjó-
maður: „Hiklaust. Engar vanga-
veltur þar um“.
Magnea Kristinsdóttir, starfs-
stúlka, Loftleiðahóteli: „Nei,
alls ekki. Mér geðjast ekki að
þeirra öfgafullu kenningum"
Hjálmar Baldursson, smyrjari:
„Nú veit ég ekki — jú, því ekki
það, þaö held ég bara“.
Haukur Sigurðsson, kaupmaður:
„Ég held að enn sé ekki kominn
tími til að þeir fáj aðild. Þeir
eru of rauöir — býst við að þeir
hljóti aö veröa hægri sijnnaðri
með tímanum".