Vísir - 26.03.1971, Síða 9
V í S I R . Föstudagur 26. marz 1971.
and komið
inn fyrir þrösk-
uld geimaldar
Sjónvarpssendingar og talsamband með
gervihn'óttum innan fárra ára? — þrjár
mótt'ókust'óðvar fyrir gervihnetti þegar risnar hét
Margir hafa virzt vera þeirrar skoöunar, að
geimferðir óg gervihnettir séu aðeins fánýt eyðsla
á miklum fjármunum, gerðar til þess að skemmta
tæknióðum vísindamönnum og fullnægja hégóma-
girnd almennings og stjórnmálamanna, sem ákvarð
anir taka um fjármögnunina. Hér á landi hefur
borið á því, að almenningur telji áfanga í gervi-
hnattatækni og geimferðum aðeins athyglisverða,
en koma sér lítið við að öðru leyti. En gervihnettir
eru ekki aðeins fánýtt dót, sem svífur um úti í him-
ingeimnum og segir „bíb-bíb“ eins og sumir gagn-
rýnendur hafa sagt. — Auk þess að hafa aukið
stórlega á þekkingarforða mannkynsins hafa þeir
þegar komið að miklum og beinum hagnýtum not-
um. Einnig hér á landi.
gaf út upp á eigin spýtur nýja
stefnuyfirlýsingu um umbætur í
efnahagsmálum og þjóöfélags-
málum. Kjaminn í stefnu henn-
ar lýtur sameiginlega að banka-
kerfi og landbúnaðarkerfi lands-
ins. Þar vírðist vera ætlun
hennar að framkvæma viða-
mikla innri þjóðfélagsbyltingu.
Hún er í því fólgin að slíta í
sundur hið gamla bandalagskerfi
bændaánauðar og fjármagns. í
stað þess að þankarnir hafa að-
eins starfað gegnum stóru land-
eigenduma á nú að stefna að
því að veita bændaalþýðunni
lán og leysa hana úr klóm arð-
ræningjanna Þetta á að gerast
gamfara hinni grænu byltingu,
framförunum í kornrækt i land-
inu og jafnframt á að nema úr
gildi allskyns forréttindj gömlu
aðalsstéttanna. Það á að afnema
milljónagreiðslur til gamalla
fursta og stefna að því að draga
úr andstæðum öfgum auðs og
fátæktar í landinu. Það er mik-
ið sem Indíra hefur tekið upp i
sig og þó hún hafi sigrað í kosn-
ingunum er eaginn að segja að
brautin sé greiðfær framundan.
Kannski verður þetta ekki skap-
að á einum degi fremur en
gamla Röm t»g kannski kemur
Indíra til með að fara sér hægar,
heldur en hún hefur látið í
skína. Hitt er víst, að hún mun
á næstunni grípa til ýmissa rót-
tækra aögerða. Þær kunna aftur
að valda margvíslegri riðlun og
erfiðleikum. Sjálfsagt mun koma
til árekstra við þær auðstéttir,
sem mestu ráða yfir fjármaani
og þá sem þykjast eiga að rísa
yfir vesælan almúgann 1 þekk-
ingarhroka sínum. Ef til vill
dreifist sandur í tannhjólin i
rísandi iðjurekstri landsins, sem
á að gefa fólkinu atvinnu, ef til
vill bregzt monsúnvindurinn eitt
vorið og vofa hungursnevðar
kann aö voma að þrátt fyrir
allar grænar ræktunarbyltingar.
Allt er þetta hulið móðu.
En hitt er víst, að Indfra litla
hefur gefið þjóð sinnj nýja von.
Kosningamar, sem stóðu í 10
daga báru merki þióðlegrar sókn
ar, það var eins og fólkið hefði
aftur fengið eitthvað til að berj-
ast fyrir. Á meðan hrundi fylgi
afturhaldsmannanna, sem höfðu
skilið sig frá kongressflokknum.
Örlög þeirra eru uggvænlegur
vottur þess, hvernig farið hefði
og fyrr en nokkurn hefði varað,
ef þeir hefðu fengið að hjakka
áfram með allt í sama gamla
farinu. í stað þess fylkti aiþýðan
sér um hinn nýia forin!iia sinn
Indíru og veitti henn; þv’ilíkt at-
kvæðamaen að fiokkur hennar
hlaut % hluta þingsætai Sigur
hennar er byggður upp úr til-
viljunum, en kannsk; eru til-
viljanir líka söguleg nauðsyn.
T-jessi nýja von hefur miklu
v’íðtækari áhrif. Hún snert-
ir m. a. sjálft stríðið í Víetnam.
Þeim hugmvndum hefur vaxið
fylgi, að allar aögerðir Banda-
ríkjamanna f Víetnam væru til-
gangslausar, einfaldiega vegna
þess að það væri soguleg nauð-
syrt, að kinverska fyrirmyndin
breiddist út um alia Asíu. Það
væri einfaldlega að berja höfð-
inu við steininn að neita þessu.
Þeir sem þannig hugsuðu höfðu
m. a. afskrifað hina indversku
aðferð. Nú vitum við bað gerla,
að ef ekki hefði verið hamlað
á mótj hinni kfnversku aðferö
V Vfetnam með öllum hörmung-
um og blóðsúthellingum hennar,
bá eru jafnvel ákafiega litlar
líkur til að Indíru Gandí
hefði gefft.t nokkurt tóm til að
halda inn á sína nýiu braut. En
bað heizt jafnframt í hendur við
nýja von um að aðrar þjóöir
Suður-Asíu og þar á meðal
Vfetnamar siálfir eigi aftur völ
á nýrri „indverskri aðferð".
Þorsteinn Thorarrnsen.
Jfáir gera sér sennilega grein
fyrir því, að hér á landi
eru þegar risnar upp þrjár mót-
tökustöðvar fyrir gervihnetti. —
íslandi hefur veriö lætt inji fyr
ir þröskuld geimaldar hávaða-
laust, en í öllum þremur tilvik-
um eru það erlendir aðilar, sem
hafa í vísindalegum tiígangi
reist móttökustöðvarnar.
Fyrstu stöðina reisti Geim-
visindastofnun Þýzkaiands 1967
í Gufunesi, en hún hefur alla
tíð síðan með hléum tekið á
móti upplýsingum um eðli geims
ins frá gervihnöttum, en póst-
og símamálastjómin sér um
reksturinn. Varnarliðið á Kefla-
víkurflugvelli reisti aðra stöð
ina til að taka á móti veður-
myndum, sem Veðurstofa ís-
lands hefur fengið aðgang aö.
Ef þessar myndir hafa ekki þeg-
ar oröið íslenzkum veðurfræð-
ingum til ómetanlegs gagns, er
lítill vafi á því, að þær verða
það og þá um leið til jafnmikils
gagns fyrir íslenzkt atvinnulíf,
sem á svo mikið undir veörinu.
riðja móttökustöðin er nú ris
in á Reykjavíkurflugvelli.
Bandaríska stórfyrirtækiö Gen-
eral Electric hefur fengið leyfi
ísienzku flugmálastjórnarinnar
til að setja þar upp jarðstöð með
sendi, sem verður I notkun í eitt
ár meöan verið er að reyna nýtt
staðsetningarkerfi fyrir flugum-
feröarstjórn. Tækið, sem var
sett upp um áramótin, verður
í sambandi við tvo gervihnetti,
sem svífa hreyfingarlausir mið-
að við jörðu í 36 þús. km hæö,
annars vegar yfir Brasilíu og
hins vegar yfir Jólaeyjum á
Kyrrahafi.
„Við fáum í sjálfu sér ekkert
nema „good-will“ og upplýsing
ar fyrir þetta“, sagöi Leifur
Magnússon, framkvæmdastjóri
Flugmálastjórnar, þegar blaða-
maður Vlsis skoðaði tækin. —
En upplýsingarnar geta komið
okkur í góðar þarfir við rekst-
ur á flugumsjónarsvæði íslands
í framtíðinni Ef þessi tæki reyn
ast vel, gætu þau haft afar
mikla þýðingu í framtíðinni i
flugumferðarstjóm, svo það er
gott fyrir okkur aö fylgjast vel
með.
Umferðin yfir Atlantshafið er
nú að verða svo mikil á vissum
svæöum, aö ekki er lengur unnt
að beina þotunum inn á ákjósan
legustu flugleiðir ákveðna tíma
dagsins. Vegna öryggis flugs-
ins veröur að vera viss fjarlægð
milli flugvéla, þ.e. um 120 mílur
til hliöanna, 2000 feta hæðamis
munur og 15—20 mínútna tíma
munur á sömu flugleið. Með ná-
kvæmari staðsetningartækjum
er nú stefnt að því, að minnka
bilið ofan í 60 mílur, sem myndi
þýða um 100% betri nýtingu á
flugleiðunum. Þetta hefur ekki
verið unnt hingað til, þar sem
eingöngu hefur verið hægt að
styöjast við upplýsingar frá flug
vélunum sjálfum til staðsetn-
ingar. Ef þetta tæki reynist vel
mun það gjörbreyta aðstöðunni
og verður því þá komið fyrir á
flugveMinum sjálfum. Það send
ir frá sér hljóðmerki til tveggja
gervihnatta, sem aftur senda
merkin til jarðar, sem mælir
tímalengdina og staðsetur flug-
vélina, þar sem fjarlægðarlengd-
irnar skerast.
Tækinu var komið fvrir héma
til að kanna hve stöðugt þaö
reynist til staðsetningar. Jafn-
framt hefur verið komið fyrir
sams konar. tækjum í Gander á
Nýfundnalandi, Shannon á ír-
landi, Buenos Aires, um borð
í Boeing 747 þotu Pan Am., um
borð í flugvél bandarísku flug-
málastjómarinnar og um borð
í bandarísku strandgæzlUskipi.
Eftir árið verða allar þessar mæl
ingar bornar saman og fæst þá
væntanlega úr því skorið hvort
þetta kerfi getur orðið lausn
vandamála sívaxandi flugumferð
ar yfir Atlantshafiö.
170 gervihnettir skapa fjölda
annarra möguleika til fjar-
skipta og verður ekki annað séð,
en að ísland geti notfært sér þá
innan fárra ára. Því hefur verið
spáð, að talsamband milli landa
eigi eftir að verða sáraódýrt
með tilkomu gervihnattanna,
símtal héðan til Japan kosti eitt-
hvað áh'ka og nú til Akureyrar.
Aöeins áratugur er nú liöinn
frá því fyrstu tilraunir voru
gerðar á notkun gervihnatta til
alþjóðlegra fjarskipta (Telstar
og Relay), en nú þegar virðist
hægt að eygja möguleika þess,
að ísland komist í slíkt fjar-
skiptasamband, bæði fyrir sjón-
varp og síma. í skýrslu, sem
Jón Þorsteinsson, Sæmundur
Óskarsson og Pétur Guðfinnsson
sömdu nýlega fyrir sjónvarpið
er athyglj hlutaðeigandi yfir-
valda vakin á þeim áætlunum,
sem nú eru uppi innan Vestur-
Evrópuríkja hjá fimm samtökum
um gervihnattafjarskipti. Jafn-
framt er vakin athygli á því, að
nú sé hægt að eygja tæknilega
möguleika á því aö tengja ís-
lenzka sjónvarpskerfið við dreifj
kerfi Evrópubandalags útvarps-
stöðva og þar með til nær alls
heimsins.
J skýrslunni segir, að Evrópu-
bandalag útvarpsstöðva
hafi sýnt mikinn áhuga á evr-
ópskum fjarskiptahnetti vegna
dreifingar sjónvarpsefnis, Áætl-
un um sérstakan hnött, sem ekki
á aðeins að þjóna meginlandi
Evrópu, heldur einnig íslandi og
síöar allri Afríku, hefur verið
gerð. Þar sem ekki reyndist
unnf af fjárhagsástæðum að
koma upp og reka slíkt kerfi
fyrjr siónvamsdreifingu ein-
göngu. hafa áætlanir nú beinzt
að þvf að koma upp fjarskipta-
kerfi um gervihnetti, sem jafn-
framt annaðist símasambönd.
Þar með hafa áætlanir snúizt á
þann veg, að líklegt er, að evr-
ópska póst. og símamálasam-
bandið muni eiga og reka kerfiö,
en lVklegt er talið að ákvörðun
um þetta verði tekin á þessu
ári, en kerfið sjálft tekið í notk-
un árið 1975.
Jarðstöð á íslandi til móttöku
og sendingar er frumskilyröi
þess, að ísland geti átt rulia sö-
ild að kerfinu og yrðu íslenzxir
aðilar aö eiga hana og reka.
Tæki stöðvarinnar fyrir síma
og sjónvarp eru áætluð að kosta
um 140 milljónir (fob), Ef tsekin
yrðu aðeins fyrir sjónvarpið
kostuöu þau um 90 milljónir en
ef aðeins er gert ráð fyrir mót-
töku um 60 milljónir króna.
í skýrslunnj er bent á fleiri
möguleika, svo sem það að
leigja rásir í Intelsat-kerfinu,
sem 15 lönd, en þó fyrst og
fremst bandarískir aðilar, stofn-
uðu 1964. 70 lönd eiga nú aðild
að því kerfi og hafa verið reist-
ar jarðstöðvar fyrir kerfið í 35
löndum. Þetta er þó talið of
kostnaðarsamt og evrópsk sam-
vinna talin mun hagstæðari, m.
a. vegna þess að EBU hefur
skipt dreifikostnaði sínurn eftir
svonefndum Rossi-skala, sem er
aö mestu byggður á íbúatölu
hvers lands.
Höfundar skýrsiunnar vekia
á því athygli, að tilhögun evr-
ópsks fjarskiptakeríis um eervi-
hnetti verði seunilega ákveðin
á þessu ári og að ekki sé víst,
að. það næði til íslands, ncma
því aöeins að ísiendingar láti V
Ijós áhuga á að nota sér það.
— VJ
Uppi á flugturninum bendir stefnuloftnet á Jóiaeyjar í Kyrra
hafi, fær sendingar frá hnetti, sem er þar í 36 þús. km hæð.