Vísir - 26.03.1971, Blaðsíða 13
V 1 S I R . Föstudagur 26. marz 1971.
n
Guðmundur G. Þórarinsson, verlcfræðingur:
EKKI SAMRÆMI HJÁ
FRAMKV.STJÓRANUM
VEGNA UMMÆLA Knúts Ott-
erstedt framkvæmdastjóra
Laxárvirkjunar um rangar for-
sendur í útreikningum landeig-
enda, er rétt að eftirfarandi
komi fram.
1) Framkv.stj. telur, að stuðzt sé
við of lága orkuspá. Aðdragandi
þessara útreikninga var, að sátta-
semjari fékk landeigendafélaginu í
hendur tölur um orkuverð frá
nokkrum orkuvalkostum. Stuðzt er
við sömu orkuspá og lögð var til
grundvailar þessum tölum, enda hef
ur sú orkuspá verið notuð við
áætlanir um virkjun í Laxá. Fram
kvæmdastjórinn hefur hins vegar
gert nýja orkuspá með tilliti til
tengingar Axarfjarðar og Þistil-
fjarðar við Laxársvæðið og er sú
spá eðlilega hraðari og væntan-
lega réttari með tilliti tii þessara
forsenda.
Orkuspáin hefur hins vegar ekki
áhrif á samanburðargildi reikning-
anna um hvort hagstæðara orku-
verð fáist með virkjun eða línu.
Þess er og að gæta, að spá er
jú spá og felur óneitanlega í sér
nokkra óriákvæmni. Þannig gæti
raunveruleikinn jafnvel fylgt eldri
spánni betur.
2) Útreikningamir eru gerðir
fyrir mismunandj stofnkostnað
beggja valkosta og þar enginn dóm
ur lagður á endanlegan stofnkostn-
að. Á fundinum á Húsavík reikn-
aði ég hins vegar áætlanir um
virkjun og linu til verðgildis í árs-
lok 1972 og bar saman orkuverð
frá 400 millj. kr. virkjun og 216
millj. kr. línu.
3) Framkv.stj. segir réttilega að
útreikningamir gerj ráð fyrir 6,5
MW virkjun en Laxárvirkjunar-
stjórn miðar við 19 MW virkjun.
Útreikningamir sýna því aðeins
orkuverð frá virkjuninni, ef hætt
yrði eftir þann áfanga sem nú er
hafinn.
Við útreikninga á orkuverði fiá
virkjun þarf að taka tillit til þess,
að virkjunin getur aðeins selt orku
í samræmi við orkuþörf. 400 millj.
kr. virkjun sem fyrstu árin getur
aðeins framleitt og selt hluta af
þvf sem hún mest getur framleitt,
framleiðir því eðlilega dýrari orku
fyrstu árin en hin síðari, er hún
er fullnýtt. Fyrstu árm liggur
stór hluti stofnkostnaðar aðgerða
laus \ virkjuninni ef svo má segja.
Endanlegt orkuverð er fundið sem
meðalverð yfir afskriftatímamn, 40
ár.
Tölur framkvæmdastjórans sýna
hins vegar orkuverðið eftir að
fulinýtingu verður náð, sem
væntanlega verður ekki fyrr en
1985.
4) Það er misskilningur hjá fram
kvæmdastjóranum, að útreikning-
arnir geri ráð fyrir að keyra afl-
toppana af með dísilstöð ef orka
yrði keypt frá Búrfelli.
Á fundinum á Húsavik skýrði ég
það, að útreikningamir sýna orku-
verð á Laxársvæðinu miðað við
mismunandi verð inn á linuna við
Búrfel'l. 't " m
Þetta var reiknað þannig vegna
'þess, að verðskrá Landsvirkjunar
er í endurskoðun. Jafnframt er
verðskránnj þannig háttað, að
hentugra yrði fyrir Laxársvæðið
að keyra afltoppana af með dísil
og láta vatnið renna framhjá Búr-
felli á meðan, þótt lína væri til
staðar yfir hálendið sem flutt gæti
alla nauðsynlega orku.
Þannig getur niðurstaðan orðið
þegar opintber fyrirtæki skipta sfn
á mi'lli.
Vera má að framkv.stj. hafi mis
skilið þessar skýringar mínar.
Hins vegar gera útreikningarnir
ráð fyrir, að afltoppar umfram á-
stimplað afl virkjana yrðu keyrðir
með dísil ef virkjunin yrði valin,
sem og ístruflanir. Hækkandi ollu
verð gerir þv\' þann valkost óhag-
stæðari.
5) Orkukaup Reykjavikurborgar
voru óhagstæðari en annarra við-
skiptavina Landsvirkjunar. Nýting-
artíminn aðeins um 4300 stundir.
Reykjavfkurborg á hins vegar 50%
í Landsvirkjun þannig að fyrir hana
verða kaupin ekki eins óhagstæð
og ella.
Ekki verður séð, hvers vegna
miða skuli fremur við Reykjavfkur-
borg en aðra kaupendur.
Við orkuverð frá 19 MW virkj-
un miðar framkv.stj. við 6—8000
klst. nýtingartíma, en þegar kem-
ur að athugun á línunni, telur
hann eðlil. að miða við orkuverð
sem fengist með 4300 klst. virkj-
unartima. Ekki virðist mér sam-
.ræmi f því.
Aðalfundur
Verzlunarbanka íslands hf. verður haldinn í
veitingahúsinu Sigtúni, laugardaginn 3. april
1971 og hefst kl. J4.30.
/
Dagskrá:
1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bank-
ans síðastliðið starfsár
2. Lagðir fram endurskoðaðir rdkningar
bankans fyrir síðastliðið reikningsár.
3. Lögð fram tillaga um kvittun til banka-
stjóra og bankaráðs fyrir reikningsskil
4. Kosning bankaráðs
5. Kosning endurskoðenda
6. Tekin ákvörðun um þóknun tfl banka-
ráðs og endurskoðenda fyrir næsta kjör
tímabil
7. Tekin ákvörðun um greiðslu arðs
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundar-
ins verða afhentir í afgreiðslu bankans Banka
stræti 5, miðvikudaginn 31. marz, fimmtu-
daginn 1. apríl og föstudaginn 2. apríl kl.
9.30 — 12.30 og kl. 13.30 — 16.00.
1 bankaráði Verzlunarbanka lslands hf.
Þ. Guðmundsson Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
Magnús J. Brynjólfsson
ÞJÓNUSTA
Sé hringf fyrir kl. 16,
sœkjum viS gegn vœgu
gjaldí, smáauglýsingar
á tfmanum 16—18.
Sfaðgreiðsla.
Lausar stöður
Eftirfarandi stöður eru lausar til umsóknar
hjá flugmálastjóm:
1. Flugumferðarstjóri I. í flugturninum á
Vestmannaeyjaflugvelli.
2. Tvær stöður aðstoðarmanna í flugum-
ferðarstjóm á Reykjavíkurflugvelli.
3. Ritari við upplýsingaþjónustu flugmála.
Laun em samkvæmt kjarasamningi starfs-
manna ríkisins. Umsóknareyðublöð fást af-
hent á skrifstofu flugmálastjómar Reykjavík-
urflugvelli. Umsóknarfrestur er til 12. apríl
1971.
Reykjavík, 25. marz 1971.
Flugmálastjórinn
Agnar Kofoed Hansen
NORRÆNA HÚSIÐ er orðið of lítið ..»
í LISTAS AFNI ASÍ
Laugavegi 18, 3. hæð höldum við sýningu á verkum
SEX DANSKRA SVARTLISTARMANNA
Eftirfarandi listamenn sýna samtals
58 MYNDIR
Povl Christensen Petrea Dan Sterup Hansen
Henry Heerup Svend Wiig Hansen
Palle Nielsen Mogens Zieler
Sýningin verður opnuð laugardaginn 27. marz kl. 14
og verður opin alla daga frá kl. 14—18.
Allir velkomnir. — Aögangur ókeypis.
Beztu kveðjur
NORRÆNA HÚSIÐ POHJOLAN TALO NORDENS HÚS
NORRÆNA
HÚSIÐ
Rafsuðuvír
BRITISH OXYGEN
Þ. ÞORGRIMSSON & CO
SUOURUNDSBRAUT 6 SÍMl 3864(1