Vísir - 28.04.1971, Page 1
• - • ■'.t. ..
R
fíLárg,— MiövikudaSHr 28. apra 1971. — 94. tbl.
Auðveidd, en varia mikið magn
— segir Hjálmar Vilhjálmsson itm síldina — fleiri vitja fá veiáileyfí
SÍLDIN, sem Örfirisey fékk í fyrra-
dag austur af Vestmannaeyjum,
reyndist vera sumargotssíld mest
megnis. Þriggja og fjögurra ára, 30
cm. að lengd og horuð, eins og
vænta mátti á þessum árstíma.
— Það er ekki líklegt að þarna
sé verulegt magn á ferðinni, sagði
Hjálmar Viihjálmsson fiskifræðing-
ur í viðta'li við Vísi í gær, en hins
vegar er síldin venjuiega nokkuö
auðveidd, svona fyrst á vorin og
framan af sumri.
Hafrún fékk 13 lestir af síld úti
af Reykjanesi 1 fyrradag. Skipin
eru nú bæði austur af Eyjum og
HIRFERÐ CECNSlDHÆRD■
UM VÉLA VINNUMÖNNUM
Verbur ab sjást i eyrun á bitlunum, segir
Öryggiseftirlitið — „Loðnaklipping" lausnin,
segja hárskerar
■ Nú mega síðhærðir
piitar, sem vinna við vél-
ar og því um líkt fara
að biðja fyrir sér — eða
öllu heldur lokkum sín-
um, því Öryggiseftirlit
ríkisins er nú á hælum
þeirra með skærin voða-
legu á lofti. Hefur Örygg
iseftirlitið nú skorið upp
herör gegn vmnuslysum
hring skoðunarmanna
eftirlitsins.
Það á enginn karlmaður frek-
ar en kvenmaður, að komast
upp með það að fá að vinna
með sítt hár eða 'hártopp við vél
ar þar sem hárið getur festst,
sagði Friðgeir Grímsson, örygg-
ismálastjóri í viðtali við Vísi í
morgun.
Of mörg dæmi þess, að
vinnuslys hafi hlotizt af of
síðu hári til þess að Öryggis-
eftirlitið geti lengur látiO síða
hárið afskiptalaust, sagöi Frið-
geir. ,,Þess eru dæmi, að sítt
hár eða laust hafi festst í vél*
um eða öxlum og höfuðleðrið
ftetzt af við það,“ sagði Friðgeir.
Einnig eru viftuspaðar á vinnu-
vélum og reimar hættulegar síð
hærðum mönnum, og eins það,
að hárið flaiksist fyrir augu
þeirra svo aö þeir sjái ekki til
hliðanna er þeir aka jarðvinnslu
vélum — og yfirleitt hvaða öku
tæki sem vera skal.
„Hvað er það sem þið kallið
sítt hár?“
„Það hár, sem hylur eyrun
eða getur huliö þau, sé það
laust, er það orðið varhugavert,"
svaraði Friðgeir.
„Það er síður en svo fokið
í öll skjól fyrir piltunum fyrir
því“, sagi okkur hárskeri, sem
við höfðum tal af í morgun. —
Patentlausnin hans er hin svo
kallaða „loöna“-klipping, sem
hann segir vera að ryðja sér til
rúms víðast hvar erlendis.
„Það er ástæðulaust fyrir
strákana að krúnuraka sig til
að komast úr lífshættu", segir
þessi sami hárskeri. Kvaðst
hann hafa klippt vélavinnu-pilt
samkvæmt forskrift ,,loðnu“-lín
unnar og sú klipping hlotið við-
urkenningu Öryggiseftirlitsins.
Annar hárskeri sagði okkur
þá sögu, að hann hefði fengið
til sín í klippingu sl. laugar-
dagsmorgun síðhærðan pilt, sem
átti það yfir höfði sér að missa
vinnuna ef hann léti ekki skera
af hári sínu innan hálfs mánað-
ar. Hann kaus heldur aö fóma
lokkaflóði sínu en vinnunni. —
„En á meðan hann var í stóln-
hjá mér var hann líka á fullu
næturvinnukaupi hjá verktakan-
um, sem hann vann hjá“ lauk
hárskerinn máli sínu. —ÞJM
hefur ekki frétzt af veíði h§á þeim
í nótt.
Þr>jú skip hafa nú sótt um veiði
ti'l viðbótar, en leyfi eru ekki gefín
til sfldveiði á tímabilinu frá 1. febr-
úar til 1. september, nema síldin
fari í vinnslu eða til beitu. Örfiris-
ey landaði 80 tonnum af afla sin-
um í Vestmannaeyjum, þar sem
síldin fer í beitu, en rúm 20 tonn
fóru til Norðurstjörnunnar í Hafn-
arfiröi ti'l niðurlagningar. —JH
Hvað er
ferðamönn-
um sagt?
Sagt frá námskeiði
leiðsogumanna
— Sjá bls. 9
Þjóðverjum
gremst
óstundvísi
Kennedys
— Sjá bls 3
af völdum síða hársins
og hyggst fylgja því eft-
ir af vaxandi krafti, að
síðliærðir vélavinnu-
menn hverfi úr sögunni
og verður það í verka-
Óhugguleg
aðkoma
— sagði bæjarverk-
ræðingur, sem fór um
borð i togarann á
strandstað við Isafjörð
i gær
Að sögn Þorbergs Þorbergssonar,
bæjarverkfræöings á ísafirði virð-
ist hafa tekizt að koma í veg fyrir
frekari olíuleka úr togaranum
Cæsari og er nú lítil olíubrák í
kringum skipið, en brákin hefur
færzt inn Djúp og valdið nokkrum
fugladauða, því fugl hefur fundizt
dauður og útataður í olíu á fjörum,
meðal annars æðarfugl. Fugladauð-
inn er þó ekki stórkostlegur.
Togarinn Cæsar hangir að því er
virðist á klettabrún og er nokkuð
aðdjúpt að honum. Sjómenn frá
ísafirði fóru út í togarann í fyrrad.
og tóku úr honum fiskinn, um 15
tonn eöa svo af þrifnaðarástæðum,
annars hefur 'lítið verið farið um
'borð í skipið, enda er heldur ó-
kræsileg aðkoma þar aö sögn bæj-
arverkfræðingsins, en hann fór i
gær ásamt bæjarstjóra út í skipið
til þess að kanna aðstæður.
Umboðsmaður eigenda, sem
staddur er á ísafirði sagði að reynt
yrði að bjarga togaranum og gera
hann sjófærann aftur til veiða ef
unnt væri. En norsku björgunar-
sérfræöingarnir eru væntanlegir til
Isafjarðar á morgun. — JH
Þessi síðhærði piltur varð í morgun á vegi ljósmyndara Vísis niðri við höfn. Pilturinn heitir Jón Ömar Sigfússon og vinnur i fiski.
Hann sagðist vera á leiðinni til hárskera hvað úr hverju, fyrst yrði hann bara að taka þátt í þrem sýningum á söngleiknum
Hárinu, sem eftir eru á þessu leikári.
Fyrir þeim er ísland hvítur þokublettur
— segir Halldór Laxness um þýzka kvikmynda-
gerðarmenn. Undirbúningsvinna að kvikmyndun
Brekkukotsannáls hefst hér i sumar
© „Jú, það koma víst þrír menn
frá noröur-þýzka útvarpinu til
íslands í sumar til að undirbúa sig
undir að filma Brckkukotsannál,“
sagði Halldór Laxness í símtali við
Vísi í morgun, en hann er nú stadd-
ur í Kaupmannahöfn.
„Annars er ég svo ókunnugur
þessu máli, sem frekast má vera.
Samningastappinu við þessa aðila
er lokið og málið er í þeirra liönd
um. Það verður sennilega lítið um
að þeir filmi í sumar, því þótt það
taki sex vikur að filma, er undir-
búningsvinnan geysimikil. Og þess-
ir karlar vita lítið um staðhætti á
íslandi. Fyrir jieim er ísland eins
og hvítur þokublettur.“
Halldór Laxness sagðist hafa
verið á sprettinum um Evrópu und-
anfarið.
„Það er eins og allur heimurinn
stand sameinaður um að forða því,
að ég fái tækifæri til að stinga nið-
ur penna. Ég hef verið á þönum
um allar trissur að skipta um for-
leggjara. Ef mér líkar ekki við þá,
læt ég þá fara. Annars er þetta
bara eins og þegar maður vill held-
ur verzla við einn kaupmann en
annan, af þvl hann selur sykur-
pundið fimm aurum ódýrara.
Mín mál eru reyndar svo ómerki
leg miðað við það, sem til slf-ndur
uppi á íslandi, þar sem talaö er
um að virk'ja Gullfos's og Mývatn
og guð má vita hvað, að ég skamm i
ast mín eiginlega fyrir að opna j
kjafinn".
Hvort ekki heföu fleiri filmarar
sýnt á'huga á því að mynda verk 1
hans?
„Jú, það eru alltaf að koma ein
hver tilboð um að búa til kvik- j
myndir, en þau eru yfirleitt svo ó- i
merkileg, að maður sinnir þeim
ekki. Ég sem litterer stílfsti kann j
ekki að skrifa leiðbeiningar
kvi'kmyndamönnum um, hvar þeir. j
eigi að setja niður þessa eða hina
kameruna."