Vísir - 11.06.1971, Síða 1
Bætur almannatrygginga
hafa tvöfaldazt á 10 árum
Jbegar búið er að taka tillit til verðbólgunn-
ar — 4/4 milljarður / tryggingakerfið
Almannatryggingar hafa stór-
tukizt á síðasta áratug. Nú í ár
munu fjórir og hálfur milljarður
fara inn í tryggingakerfið. Þar
SÓLSKIN
í sólskinsskapi komu þær gangandi eftir Lækjargötunni rétt fyrir
klukkan níu í morgun á leið í sundlaugarnar. Sú litla fremst á
myndinni gaf gleðinni lausinn tauminn og hoppaði í parís á gang-
stéttarhellunum.
Enn var það góða veöriö, sem
lieillaði Reykvíkinga, þegar þeir
vöknuðu í morgun. Á Austur-
velli var þaö letileg stemmning
klukkan hálf níu í morgun og
fólk sat þar á bekkjum og teygði
andiitin móti sólu, krakkarnir í
unglingavinniinni fækkuðu föt-
um og iéttklæddar dömur stigu
út úr strætisvögnunum, þegar
Austurstræti vaknaði til lífsins
rétt fyrir klukkan níu. Þótt fólk
hraðaði sér til vinnu gaf það sér
samt tíma til að njóta góða veð
ursins. Þeir, sem gengu fram hjá
Tjörninni horfðu á nndarungana
litlu og æðarfug'inn, sem gaf frá
sér langt úa í göðviðrinu. — SB
af eru iðgjöldin, almannatrygg-
ingagjald, sjúkrasamlagsgjald
og iðgjöld atvinnurekenda, 1300
milljónir og tilfærslur frá opin
berum aðilum annars rúmir þrír
milljarðar.
Allar bætur almannatrygginga-
kerfisins nema um fjórum miMjörð
um króna samtals i ár. Kaupmáttur
þessara bóta hefur vaxið mikið.
Þegar búið er aö taka ful'lt tifflit til
verðbóigunnar, samsvara þessir 4
miHjarðar því, að bætur hafi aukizt
um 50% á síðustu fimm árum og
að þær hafi meira en tvöfaldazt á
s:fðasta áratug.
í hlutfalli viö þjóðarframleiðsluna
eru bætumar nú 8 prósent en voru
5,8% árið 1966 og 4 prósent 1956
en aðeins 1,7 prósent árið 1946, en
þessi samanburður gefur nokkuð
góða mynd af aukningunni, eins og
hún er í rauninni.
Jafnframt hafa þjóðartekjur vax
> nk! |l,
Hann sat í þungum þönkum
við Hringbrautina í morgun ekki
langt frá Umferðarmiðstöðinni og
virtist gefa góða veðrinu lítinn
gaum. Með bakpoka og annan bún
að var ekki að sjá annað en þessi
ungi ferðamaður væri að bíða eftir
fari út á landsbyggðina, en svo
var þó ekki.
„Nei, nei“, sagði Riohard Azott,
þegar hann var spuröur ,,ég kom
aðeins fyrir nokkrum mínútum og
nú er ég að hugsa um hvað ég
eigi að gera og hvert ég eigi að
fara“. Það kom í ljós að hann hafði
hug á að útvega 'sér samastað með
an hann væri í Reykjavík, en hér
á íslandi ætlar hann að dveljast í
mánuð og fer ekki til annarra landa
I þetta skiptið.
Þessi ungi Bandaríkjamaður er
einn hinna fjölmörgu feröamanna,
sem nú gista landið — bakpoka-
maður, sem stundar nám við há-
skólann í Massachusetts I kennslu-
fræðum og ætlar að verða kennari.
Siðan bjó hann sig til að ganga
Lækjargötuna að Ferðaskrifstofu
rikisins til að fá upplýsingar um
gistiheimili í Reykjavík og aðrar
hagnýtar upplýsingar — en um ís-
land veit hann þó nokkuö þar sem
fræösla um ísland er á kennslu-
skrá í skólanum þar sem hann nem
ur. — SB
MhI
„Hvert skal fara — hvert á að snúa sér...?“ Þótt Reykjavík sé ekki stórborg á heimsmælikvarða
getur hún verið flókið fyrribæri þeim sem' kom til landsins fyrir nokkrum mínútum, og þá er
betra að hugsa sig um í morgunsárinu við Hring brautina.
50% aukning sólarferða
— ánægjuhljóð hjá ferðaskrifstofum'ónnum
„Það er gríðarmfkil inga úr landi — mikil
aukning í ferðum Islend-
aukning frá því í fyrra,
ög til marks um það“,
sagði Geir Zoega, for-
stjóri ferðaskrifstofu
Zoega, „ er sú staðreynd
að við höfum ekki svo
mjög haft með að gera
ferðir íslendinga úr
landi. í vor hefur þetta
aukizt. Það er kannski
ekki svo gott að segja til
um, hversu margir hafa
farið, eða hve margir
munu væntanlega f ara á
okkar vegum úr landi,
því að íslendingar á-
kveða ekki ferðalög fyrr
en á síðustu stundu, en
það er mikil aukning.“
Ferðaskrifstofa Zoega sér að-
eins um einstaklingsferðir, þ. e.
ekki stærrj hópferðir, en á því
sviði virðist aukning einnig vera
mjög mikil.
„Við sendum 4000 manns til
sólarlanda í fyrrasumar," sagöi
Guðni Þórðarson hjá Sunnu, „en
í vor var miklu fyrr byrjað að
bóka í ferðir, og miðað viö
fjöldann á sama árstíma í fyrra
— og ef ég reikna með aö bók-
að verði fram eftir sumri, eins
og var þá, þá spái ég þv'f að
aukningin verði 50%, að við
förum með 6000 manns suöur
á bóginn í sumar. Þetta er að
vfsu spá án ábyrgðar, en það er
spá eftir öllum sólarmerkjum“.
Sagði Guðni að þegar hanntalaði
um 6000 manns, ætti hann að-
eins við þá sem fara með leigu-
fiugvélum til Spánar eða Portú-
gals, en ekki þá sem fara til
annarra staða og utan við allar
hópferðir.
Örval, ferðaskrífstofan, stend
ur að ferðum tfl Mæjorku í
ágúst, september og október, og
„við getum selt 600 manns
hótelpláss,“ sagði Steinn Lárus-
son, framkvæmdastjóri, „og
það lítur út fyrir aö okkur muni
takast það. Við höfum þegar
selt helminginn af þessum ferð-
um þannig að þetta lítur vel út.“
„Ég gæti trúað að aukningin
frá í fyrra væri 60%,” sagði
Ingólfur Guðbrandsson, for-
stjórj Útsýnar. Það var miklu
fyrr byrjað að panta í vor, og
það ef næstum uppselt f 10
feröir suður á Costa del Sol.
Þar fyrir utan erum við svo með
ferðir um London og suður til
Grikklands og Júgóslavíu og
svo einnig um Kaupmannahöfn.
Það er aukning í öllum þessum
ferðum. Að vísu er aldrei hægt
að segja til um hve margir munu
fara, en ef pantanir frá í fyrra
á sama tíma, eru bornar saman
við þær sem nú eru komnar, þá
verður aukningin 60%,“ sagði
Ingólfur Guðbrandsson. — GG