Vísir - 24.06.1971, Page 5
V í SIR . Fimmtudagur 24. jóní 1971.
5
Nokkrir sigru
mörgum greinum
— á unglingameistaramótunum i frjálsiþróttum
Heldur var nú dauft yf-
ir unglingameistaramótum
Reykjavíkur í frjálsum í-
j óttum, sem lauk á Mela-
jvc^linum í gærkvöldi. Þrír
keppendur voru mjög sigur
sælir, Vilmundur Vilhjálms
son, KR í drengja flokki,
Sigrún Sveinsdóttir Á í
meyjaflokki og vann hún
jafnframt athyglisverðustu
afrekin, og Árni Þorsteins-
son. KR í drengjaflokki.
Keppnin hófst á þriðjudagskvöld
og þá var merkilegast — eins og
við sögðum frá í gær — þegar
Sigrún Sveinsdóttir hljóp á 13.0
I
sek 'i 100 m., en íslandsmetiö á
vegalengdinni er 12.7 sek. og á
Sigrún ekki langt í það. Hún sigr-
aöi einnig í 200 m. i gærkvöldi á
þokkalegum tíma 27.7 sek. — en
hvassviðri setti mjög svip sinn
á mótið þá, og 400 m. hlaupi á
65.9 sek. og sigraði þá meöal ann-
ars Lilju Guðmundsdóttir, ÍR, sem
hafðj sigrað með nokkrum yfirburð-
um á þeirri vegalengd á Þjóðhátíð-
armótinu. í>á var Sigrún einnig
Reykjavíkurmeistari í kúluvarpi í
meyjaflokki.
Viimundur Vilhjálmsson — sonur
hins kunna kúluvarpara hér áður
fyrr Vilmundarsonar — er að
verða ágætur hlaupari, þó ungur
sé. Hann sigraði í 100 m. hlaupi í
drengjaflokki á 11.1 sek. og hljóp
200 m. á 23.5 sek. og á áreiðanlega
eftir að iáta kveða mun meira að
sér í sumar Árni Þorsteinsson,
j KR, sigraði ’i mörgum greinum í
'þessum flokki eins og t.d. kúluvarpi,
spjótkasti, langstökki, en þar stökk
hann 5.84 m. og kringlukasti.
Aðrir keppendur, sem vöktu
talsverða athygli, voru Hörður Há-
konarson, I’R, í sveinaflokki (kepp-
endur fæddir 1955 eða síðar) og
sigraði í mörgum greinum eins
og 400 m. á 59.1 sek., 200 m. og
spjótkasti. Bezta afrekiö í þeim
flokki vann hins vegar Óskar
Jakobsson, IR, í kringlúká’sti óg
þar er mikið efni á feröinni. Hann
kastaði nú 53.42 m., en hefur áð-
ur kastað rúma 56 metra. Það er
aðeins nokkrum sentimetrum lak-
ará en Gunnar Huseby, sá mikli
kappi, náði á hans aldri og var
Gunnar þó enginn venjulegur
sveinn — eins og fullvaxinn karl-
maður rétt eftir fermingju, sem
var svo sterkur að hann sparkaði
til dæmis knettinum milli marka
í knattspyrunni á vellinum fyrir
vestan Melavöllinn, þar sem nú
eru glæsilegar íbúðarblokkir.
Af öðrum afrekum á mótinu má
nefna, að Magnús Geir Einarsson,
ÍR, híjóp 800 m. á 2:23.4 mín. í
drengjaflokkj og sigraði einnig í
þrístökki með 11.06 m. og Anna
Haraldsdóttir, ÍR, hljóp 800 m. á
2:53.7 m’in. í stúlknaflokki. Nokkr-
um greinum varð að fresta i gær-
kvöldi og verða þær síðar háðar.
— hsim.
Jón Ásgeirsson.
Jón Ásgeirsson formaður
Samtaka iþróttafréttamanna
Hver verður frá íslandi?
Nú er aðeins rúmt ár þar til
Ólympíuleikarnir verða í Miin-
chen og allur undirbúningur fyr
ir leikana gepgur með miklum
ágætum hjá Þjóðverjum enda
standa fáar þjóðir þeim á sporöi,
þegar að skipulagningu kemur.
Flugfélag íslands selur miða
hér heima á leikana og vitað er
að margir íslendingar verða þar
meöal gesta. En hvern ræður
framkvæmdanefndin þýzka til
að fylgjast með þessum íslend-
ingum? — Það kemur sennilega
í ijós einhvern næstu daga,
Eftir því. sem segir í frétta-
bréfi frá Ólympíunefndinni,
munu 1500 fallegar og gáfaðar
stúlkur víðs vegar að verða
gestum tij aðstoðar meðan á
leikunum stendur — og þær
munu tala öll tungumál heims.
Hinar átta fyrstu hafa nýlega
verið valdar úr hópi 6000 um-
sækjenda. Þær sem valdar eru
til þessara starfa verða aö tala
tvö til þrjú tungumál — auk
lýtalausrar. þýzku.
Á myndinni hér að ofan eru
þessar átta stúlkur ásamt þrem-
ur mönnum úr framkvæmda-
nefnd leikanna. Fremst til hægr;
er til dæmis Ravibala Shenoy,
sem er inöversk eiginkona leik-
fimikennara, sem aðsetur hefur
í • Múnohen. Hún er kennari í
ensku og rithöfundur. Auk
ensku, frönsku og þýzku talar
hún þrjú af tungumálum lands
s'ins — Hindi, Konkanj og
Marathi: Við hlið hennar er
Joyce Darko frá Ghana, sem
talar afríkönsku mállýskurnar
Twi og Ga auk ensku og þýzku.
Og hinar stúlkurnar eru frá
Brazilíu, Japan og fjórar frá
Þýzkalandi — allt málastúdent-
ar.
Af þeim 1005 stúlkum, sem
ákveðið er' að ráða í starfann,
eru 523 frá Múnchen og ná-
grenni, en 55 erlendar. 748
tala ensku, 572 frönsku og þær
geta saman talaö 34 af hinum
skráöu tungumálum heims. Og
Þjóðverjar stefna að þvi, að
þessar leiðsögustúlkur — 1500
talsins — tali öll tungúmál
heims. Sennilega verða til dæm-
is gestir frá Eþiöpíu hissa, þeg-
ar þeir hitta fyrir þýzka stúlku,
sem talar Amharic — og Þjóð-
verjar verða áreiðanlega ekki í
vandræöum með að finna ein-
hverja þýzka stúlku, sem talar
íslenzku vel — en möguleiki er
enn á því, að það verði íslenzk
námsmær í Þýzkalandi, sem
verður fyrir valinu.
John Holsgrove á tíu millj.
John Holsgrove, hinn kunni mið-
' vörður Úlf'anna, var í gær seldur
i til Sheff. Wed. fyrir 50 þúsund
: pund. Hann hefur verið einn bezti
National, meistaralið Suður- i -naður Úlfanna undanfarin ár, en
Leikið í ivrépu
Aðalfundur Samtaka í- j
þróttafréttamanna var j
haldinn nýlega. — Sam- j
þykkt voru ný lög fyrir fé-;
íagið og ný reglugerð um!
kiör íþróttamanns ársins.
Aðalfélagar samtakanna geta
,,þeir orðið, sem eru ábyrgir fyrir
fþróttafréttum dagblaða, útvarps
og sjónvarps. Ennfremur þeir, sem
starfa hjá áðurgreindum aðilum, og
eru íþróttafréttamenn að aðalstarfi.
Aðalfélagar skulu jafnan viður-
• kenndir af fréttastjórum viðkom-
andi aðila, og hljóta samþykki 2/3
hluta aðalfélaga. — Á aðalfundin-
um voru samþ. 6 nýir aðalfélagar.
Fráfarandi formaður gerði grein
fyrir störfum samtakanna, og kosin
var ný stjórn. Hana skipa: Jón
Ásgeirsson, formaður, Alfreð Þor-
steinsson, ritari og Steinar J. Lúð-
víksson, gjaldkeri. — Fráfarahdi
formanni, Sigurði Sigurðssynj sem
nú hefur hætt störfum íþróttafrétta
manns voru færöar þakkir fyrir
störf í þágu samtakanna á liðnum
árum, en hann var formaður þeirra
frá 1965.
Samtök íþröttafréttamanna voru
stofnuð árið 1956, og 1960 fengu
þau aðild að Alþjóðasamtökum
íþróttafréttamanna. Arið 1962 var
haldið norrænt mót íþróttafrétta-
manna V Reykjavík.
' Ameríku, sem leika mun við Ajaxj
Amsterdam, í heitnsmeistarakeppni
i félagsliða. hefur nú óskað eftir þvi
1 að báðir leikirnir veröi háðir I
Evrópu, það er annar á leikvelli
Ajax, en hinn á hlutlausum velli.
En leiki National á heimavelli sín-
um v Morttevideo i' Uruguav mun
; 80% af tekjum leiksins fara í
skatía.
j meiddist á síðasta leiktímabili og
missti þá stöðu sína til Frank
| Munro — skozka landsliðsmanns-
ins Holsgrove hefur leikið með
mörgum kunnum liðum eins og til
dæmis Arsenal, Birmingham og
West. Ham.
Þá réðist Jimmy Blomfield í gær
j sem framkvæmdastjóri Leicester í
; stað Frank O’Farrels sem er kom-
|inn til Manchester United. Blojn-
j field er 37 ára og hefur að undan-
i förnu verið með Lundúnaliðið
Orient í 2. deild. Hann var áður
mjög kunnur leikmaður.
í Leicester reyndi að fá Don
: Howe, aðstoðarframkvæmdastjóra
' Arsenal til sin, en þegar til kom
og eftir mikil fundahöld ákvað
Howe að vera áfram hjá Arsenal.
Tommy Docherty sótti einnig um
starfið en kom ekki til greina, og
er nú af sem áður var. þegar mörg
lið vildu fá Tommy. Hann var mjög
umdeildur framkvæmdastjóri Chel-
sea.
Nártiskeið
Körfuknattleiksdeild Vals gengst .
fyrir körfuknattleiksnámskeiði fyr-
ir pilta, 8—14 ára. í suniar. Hefst j Finnskir kúluvarpar tryggðu sér
þa, n.k. föstudag, 25. júní, í Vals- j tvö fyrstu sætin i landskeppninni
heimilinu, og stendur frá kl. 18.00 jviö Rúmena. Seppo Simola sigraði
til 19,30 einu sinni (ef til villjmeö 19.17 m. og Marri Yrjola
tvisvar) í viku. varjaöj 18.73 m. Mesta athygli í
FINNI Á 10.2 SEK
keppninni vakt; 100 fn. hlaup
Raimo Vilen, Finnlandi, sn hann
hljóp á 10.2 sek. og var fjórum
metrum á undan næsta keppanda.