Vísir - 03.07.1971, Blaðsíða 2

Vísir - 03.07.1971, Blaðsíða 2
f Hollywood gerðu þeir einu sinni kvikmynd, sem hét „Lassie snýr heim“. Kannski hefur hún verið sýnd hér á landi, en hún f jallaði um hundinn Lassa sem gekk á eigin vegum frá Skotlandi og til Suður Englands. Lassi hundur lenti í mörgum ævintýr- um og þrengingum á leið- inni, en á endanum komst hann til húsbónda síns, sem hafði flutt frá honum 10 ára stráklings. Þessi saga endurtók sig nýlega, en nú í raunveruleikanum. Það var í Frakklandi að svartur Scheaffers hundur, Biackie að nafni, leitaöi að húsbónda sínum um landiö allt, gekk raunar þvert t yfir landiö — samanlagt sennilega LEITIN STÓÐ I HÁLFT ÁR og />ó fann hundurinn loksins húsbónda sinn talsvert yfir 2000 km — þar sem hann hefur ekki farið beina leið. Leit Blackies að húsbónda sínum tók 6 mánuði, en þá loksins bar hún árangur. Þegar farin er bein leið frá þorp inu Chateau Renard rétt hjá Lille og i norðvestur til þorpsins St. Remys de Provence rétt hjá Mar- seilles, mun vegalengdin vera um 1300 km. Jámbrautarstarfsmaðurinn Jean Marie Valembois hafði löngum verið á flækingi milli þorpa, þar sem starf hans krafðist þess, en ævinlega hafði hann Blackie með sér. Svo ákvað hann að skiljast við hundinn fyrir fullt og fast, og fór frá Renard hundlaus til Remys. „Stórkostlegt” „Þetta byrjaði allt um áramót- in“, sagði Jean-Marie blaðamanni einuni, „þá var ég enn einu sinni fluttur ti’l og þegar ég frétti að ég ætti að flytja í annan landshluta, fannst mér einhvern veginn að ég gæti ekki haft hundinn með. — Hann gaf því frænda sínum hann. Viku eftir að Jean-Marie var fluttur úr þorpinu, hvarf Blackie sporlaust. Frændinn sendi Jean-Marie skeyti: „Mér þykir það ieytt. — Hundurinn þinn e^ stunginn af. Enginn veit hvert“. Hálfu ári‘ seihna' birtíst kfanga- legur og þvældur hundsvesalingur í St. Remys de Provence, þar sem Jean-Marie nú starfar.’ Blackie kom til þorpsins og ráfaði þar um og I kring í fáeina daga. Þá létu kunningjar Jean- Marie hann vita af þessum skritna hundi, þar sem þeir höfðu heyrt hann segja af ínmdi sínum, og hvemig hann hefði horfið á eftir sér. Jean-Marie fór út að leita og fann hundinn i hnipri úti á akri. Hann kallaði varlega: Blackie! Sekúndu síðar lá Blackie í örm um hans. Vinimir höfðu fundið hvor annan. Skiljum ekki oftar Enginn getur skýrt hvemig hundinum hefur tekizt að finna rétt þorp, þar sem Jean-Marie vinnur núna. Þeir félagar höfðu aldrei komið til þessa landshluta áður — þann ig að Blackie hlýtur aö hafa próf- að sig áfram kerfisbundið og hann hefur sennil. á einhvem hátt gert sér grein fyrir að húsbóndi hans væri að störfum sem áður við einhverja jámbrautarstöð. Þeir höfðu verið saman í tvö ár, og oft flutt saman til nýs þorps. Þegar Jean-Marie svo ákvað að flytja einn tók Blackie málið á sfnar hundsherðar og hóf leit að hon- um. Jean-Marie: „Að hugsa sér að nokkur hundur geti verið svona tryggur. Við skiljum dski oítar við Blackie“.~~ -—- — Harry Keller- man vill skaðabætur ■ Harry Kellerman, verkfræðing ur í Camarillo í Kaliforníu hefur höfðað mál á hendur Cinema Cent er Films fyrirtækinu og krefst hann 105.000 dollara (9,2 millj. ísl. króna) í skaðabætur, þar sem hann segir að titill kvikmyndarinn ar „Hver er Harry Kellerman og hvers vegna segir hann þessa hraeðilegu hluti um mig“, baki honum leiðindi og almenningur muni fyrirlíta sig. Kellerman krefst einnig að kvik myndafélagið breyti auglýsingum um mynd þessa — einkum plaköt um sem sýna Dustin Hoffman, sem í my.ndinni leikur pophljóm- listarmann, standa og horfa undr- andi á titil myndarinnar. — „Gömlu víkingarnir ættu oð sjá afkomendur sína á Islandi núna — sérstaklega á laugardagskvöldum!" Nú er ferðamannatím- inn á íslandi. Ferðamanna straumur hingað er víst varla til að tala um, ef miða á við það sem ger- ist úti í þeim stóra heimi — en hvemig sem það nú er, þá erum við ævinlega dulítið spennt að heyra, hvernig útlendingum falli '’ð koma hingað. Hvemig hetta undarlega land, og hetta undarlega fólk, komi venjulegum Breta eða venjulegum Amerí- kana fyrir sjónir. Hér kem ur á eftir þýddur úrdrátt- ur úr grein eftir banda- rískan blaðamann. Við skulum gægjast á stöku stað í grein, sem John Barbour, fréttamaður á snærum AP frétta- stofunnar bandarísku, skrifaði um Island og dreiföi út um allan heim. Við rákumst á greinina um Island eftir John Barbour í „The Miami Herald". Hún birtist þar snemma í vor. „Reykjavík. íslandi — hvernig verður heimsendir? Ferst jörðin , í eldi, i ís? Vatnsflóði? Eða úr leiðindum? Hvernig sem heimsendi ber að höndum, þá er ísland tílbúið. Is- lendingar hafa lifað með þessum fjórum plágum gegnum aldirnar, og sigrazt á sérhverri þeirra. Þeir hafa beizlað heitu hverina, er neöanjarðar eldfjöll halda gang andi, þannig að þeir geti fram- leitt heitt vatn fyrir alla höfuö- borgina og hitað hana upp. Þeir hafa beizlað bráðnandi skriðjöklana og jökulárnar sem undan þeim renna og framleiða ódýrasta rafmagn í heimi, svo ó- dýrt, að svissneskt fyrirtæki byggði stóriðjuver á Islandi til að vinna ál úr boxíti sem flutt er þangað frá Ástralíu. Samt hef- ur ísland aðeins beizlað um 2% af vatnskrafti sínum. Og. ó jú, leiðindin. IslendingaT fundu upp föstudags og laugar- dagskvöldin til að stöðva leiö- indin. Þeir virðast lifa næsta hljóö látu lífi alla vikuna — en svo er líka sparkað úr klaufunum um helgar. Þótt þessar 200.000 sálir — helmingur þeirra býr í Reykjavík — séu einangraðar — þá hafa ís- lendingar komið sér af sjálfstKÖ- um I samband við veröldina. Ef víkingarnir, ?orfeður þeirra og Keltamir gætu séö þá núna, þá hefðu þeir orðið mjög stoltif af bömum sínum, sérstaklega samt á laugardagskvöldum... Bandaríkjamönnum gætí farið svo að þeim fyndust íslendingar í fyrstu hrottafengnir I framkomu. Gróf framkoma þeirra þarfnast skýringar. Frekja og framhleypni merkir á íslandi allt annað en í Bandaríkjunum. Á föstudögum og laugardögum, þegar manni virðist öll þjóðin þyrpast saman á þessa fáu dans- staði 1 Reykjavík til þess að drékka og dansa, þá virðast Is- lendingar slæmir með að velja sér mannsöfnuð, þar sem hópur- inn stendur þéttast og ryðjast beina leið í gegn. Stundum slá þeir flösku niður a? borði — eða allt borðið um koll og ryðjast þannig að farþegar í neðanjarðar lestum New York minna mann helzt á þægar rollur í samanburði. íslendingur skýrði þennan sí- fellda ruðning fyrir mér: Hann sagði að h'kast til væri dæmigerð- ur íslendingur ekki /anur fólks- fjölda. Hann er vanur því að kom ast þangað sem hann ætlar sér. Islendingar eru ekki dónalegir af ásettu ráði. Bandaríkjamenn eru frekar framhleypnir og ef einhver er frekur við þá, velta þeir því fyrir sér. hvaö sá freki maður hafi í hyggju. Fri'kur Islendingur hefur ekkert sérstakt í hyggju, hann er bara svona ...“

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.