Vísir - 03.07.1971, Blaðsíða 3
V1SIR. Laugardagur 3. júlí 1971,
3
i
i
i
(
I
• >••".* •••»••• •
SPA MIKIU
HVAIKJOTSA Tl
„Það verður áreiðanlega
mikil eftirspurn eftir
hvalkjöti í sumar“, full
yrtu kjötkaupmennimir,
sem Vísir hafði tal af.
„Það er nefnilega svo lít
ið framboð á öðru kjöti
sökum þess hve lítið var
slátrað í vor“, bættu þeir
við.
„Hvalkjöt er annars ákaflega
ódýr fæöutegund og getur lfka
verið úrvalsvara“, sagði einn
kaupmannanna ennfremur. —
Einkum og sér lagi kvað hann
hrefnukjat geta verið Ijúffengt
„fengist það frá góöum mönn-
um, sem „handeruðu kjötið vel“.
Og nú eru þeir famir að
Stormur á miðum hvalbát-
skjóta hrefnu, karlarnir frá Dal
vík og fleiri góðir.
anna fjögurra frá Hvalstöðinni
í Hvalfirði, hamlaði mjög veiði
í síöustu viku, en að ööru leyti
hefur hvalveiðin gengið vel þar
sem af er. 125 hvalir hafa bor-
izt hefur. >á eru þaö ófá tonnin
þeir síðustu bárust á iand í gær.
Það er nú minnst af kjöti
hvalanna >16, sem fer í maga
okkar, mest fer í skepnufóður
til Bretlands, eða um 700 til
800 tonn af þvi kjöti, sem unn-
izt hefur. Þá eru það áfá tonnin
af hvölunum, sem fara f lýsis-,
mjöl- eða súputeningafram-
leiðslu Hvalstöðvarinnar.
Ekki tókst Vísi að fá tölur
eða upplýsingar um magn og
annaö þar að lútandi. Fram-
kvæmdastjórinn Loftur Bjama-
son er erlendis og sonur hans
Kristján Loftsson, sem gegnir
störfum skrifstofustj. hjá Hval
hf. kvaðst lítið vera gefinn fyrir
að ræða við blaðamenn. „Tölum
ar hef ég svo sem hér fyrir fram
an mig“, sagði hann, „en ég
nenni ekki að leggja þær saman
fyrir ykkur. Þar sem hvalveiði
hefur líka verið stunduð í 25 ár,
sé ég ekki að hún geti lengur
verið neinn fréttamatur".
— ÞJM
Hringekja utanríkisþjón
ustunnar tekur hring
Margháttaðar mannabreyting-
ar verða í utanríkisþjónustunni
nú í ágúst, en í þeirri atvinnu-
grein er til siðs aö láta aldrei
sömu mennina sitja lengi í sömu
póstunum. — Guðmundur I.
Guðmundsson, sendiherra f
London fer til Washington, Ní-
els P. Sigurðsson í Bruxeiles fer
til London, en Tómas Tómasson,
sem verið hefur skrifstofustjóri
utanríkisráðuneytisins verður
sendiherra ( Bruxelles. — Dr.
Gunnar G. Schram, sem hefur
verið f leyfi frá störfum f utan-
ríkisráðuneytinu undanfarið ár
vegna kennslu í Háskólanum,
verður sendiráðunautur í New
York en Hannes Jónsson kemur
heim. Þá verður Ingvi Ingvars-
son, sem verið hefur sendiráðu-
nautur í Bruxelles, skrifstofu-
stjóri utanríkisráðuneytisins. en
ólafur Egilsson, sem hefur verið
sendiráðsritari í París tekur við
starfi hans. Við starfi Ólafs tek-
ur svo Sverrir Haukur Gunn-
laugsson (Péturssonar, borgar-
ritara), en hann hefur verið
deildarstjóri í utanríkisráðu-
neytinu.
77.676 skemmtu sér hjá
Leikfélaginu
Nýliðið leikár varð metár í
flestu tilviki að því e*. segir
í fréttatilkynningu frá Leikfé-
lagi Reykjavfkur. Sýningarnar
uröu 305, sem er.einsdæmi, þar
af 221 í Iðnó sjálfri, sem einmg
er einsdæmi. Einsdæmi var, hve
margir komu til að skemmta sér
hjá LR eða 77.676, þar af 43.338
f Iðnó sjálfri, sem einnig er
einsdæmi. — Þá er það eins-
dæmi, að eitt leikrit, Kristnihald
undir Jökli, var sýnt samtals 95
sinnum á leikárinu. Aðsóknin að
Spanskflugunni. sem var sýnd
um miðnættið í Austurbæjarbíó
í allan vetur varð með eindæm-
um eða 28.500 manps, sem sáu
grínið. — Leikfélagið hafði fjór-
ar frumsýningar á árinu og tók
þar að auki upp sýningar frá
fyrra leikári.
Einnig met hjá
Þjóðleikhúsinu
í Þjóðleikhúsinu urðu fleiri
sýningaj- en nokkru sinni áður
eða 215, en sýningargestir urðu
um 88 þúsund og hafa áður orð-
iö fleiri. Hinsvegar hafa þeir al-
drei gefið eins vel af sér krónu-
tölulega séð. Á leikárinu seld-
ust miöar fyrir 21,5 milljónir
króna. Við þetta bætist svo það,
sem kemur inn fyrir sýningar
úti á landi.
Barnaleikrit Þjóðleikhússins
hafa löngum verið vinsæl, enda
kom upp úr dúrnum, að Litla
Kláus og Stóra Kláus sáu 18
þús. Það vill segja, að nær fjórði
hver gestur, sem f Þjóðleikhúsið
kom valdi Kláusana. Leikritin,
sem sýnd voru aö staðaldri voru
þó níu, auk list og darissýninga,
gestaleikja o. fl.
Tveir framkvæmdastjór
ar fyrir einn
Stefán G. Björnsson, sem ver-
ið hefur framkvæmdastjóri Sjó-
vátryggingafélags Islands hf. i
13 ár hefur sagt lausu starfi
sínu hjá félaginu fyrir aldurs
sakir og lætur af störfum þann
30. sept. n.k.
1 stað hans hafa veriö ráðnir
tveir nýir framkvæmdastjórar
að félaginu, þeir Axel Kaaber,
sem um langt skeið hefur veriö
skrifstofustjóri félagsins og Sig-
urður Jónsson framkvæmda-
stjóri Síldarverksmiðja ríkisins.
Taka þeir við framkvæmda-
stjórastörfum hjá félaginu þann
1. okt n.k.
Sýning á prófsmíði
í húsgagnasmíði verður í anddyri Iðnskólans
við Skólavörðuholt laugardaginn 3. júlí og
sunnudaginn 4. júlí frá kl. 14—19.
Húsgagnameistarafélag Rcykjavíkur.
1
I