Vísir - 03.07.1971, Qupperneq 8
8
V í S IR . Laugardagur 3. júlí 1971.
VISIR
Otgefandi: ReyKjaprenr ní.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R Eyjólfsson
Ritstjóri • Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Vaidimar H. ióhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannessoo
Auglýsingar: Bröttugötu 3b Simar 15610 11660
Afgreiösla- Bröttugötu 3b Simi 11660
Ritstjóm: Laugavegi 178 Simi 11660 (5 linur)
Áskriftargjald kr. 195.00 á mánufli innanlands
I lausasölu kr. 12.00 eintakifl
Prentsmiöia Vtsis — Edda hl.
Heimsmethafi
Yahya Khan forseti Pakistan á tvímælalaust metið
sem mesti fjöldamorðingi okkar tíma, að minnsta
kosti síðan þeir kumpánar Hitler og Stalín voru all-
ir. Gowon í Nígeríu kemst ekki í hálfkvisti við Khan.
Grimma einræðisherra skortir ekki í mannkyns-
sögunni. Á okkar tími ríkir einræðið í fjölmörgum
löndum heims, kommúnistískt og fasistískt einræði
og hvers konar afbrigði þar á milli.
Harmsaga þess fólks, sem byggir austurhluta Pak-
istan, er okkur ekki jafn ljóslifandi og hún ætti að
vera vegna fjarlægðar og ofurveldis einræðisins, sem
hindrar fréttir af ástandinu. Það orkar hins vegar
ekki tvímælis, hvað gerzt hefur í Austur-Pakistan. Um
það eru allar fréttir á einn veg. Ríkisstjórnin í Vestur-
Pakistan hefur látið myrða hundruð þúsunda al-
mennra borgara í austurhlutanum. Sumir segja meira
en milljón.
Þetta fólk hefur ekki fallið á vígvelli. Augljóst er,
að hermenn stjórnarinnar hafa beit. aðferðum, sem
eru jafnvel svívirðilegri en meðferð nasista var á sigr-
uðum þjóðum. Með ofstækisfullu hatri hafa saklausir
borgarar verið reknir út af heimilum sínum, hús
brennd, konum nauðgað og fólk myrt, karlar, kon-
ur og börn.
Afleiðing þessarar grimmdar er öllum ljós. Sex
milljónir manna hafa flúið frá Austur-Pakistan til
Indlands langan og örðugan veg. Flóttafólkið kem-
ur til Indlands sjúkt og örmagfia. Þess bíður engin
velsæld. í hinu nýja landi hírast milljónimar skjól-
og matarlitlar. Kólera og hvers konar sjúkdómar taka
sinn toll. Þrát fyrir samúð Indverja með málstað fólks-
ins er það þeim þung raun að ala önn fyrir þessum
sæg flóttafólks. Indverjar hafa átt nú" með sig. Ind-
land, þar sem 600 milljónir búa, hefur vr.rt getað
brauðfætt sitt eigið fólk.
IndveHar t"1;a sig þurfa 40 milliarða íslenzkra
króna til að ala önn fyrir flóttr.fí'kinu næstu sex
mánuðina.
Stjórnin í Vestur-Pakistan sýndi hug sinn til
fólksins í Austur-Pakistan, þegar flóðin miklu urðu
þar í fyrra. Stjórnvöld virtust jafnvel áhugalaus um
að koma matvæla- og lyfjagjöfum, sem bárust frá er-
lendum ríkjum og alþjóðastofnunum, til hins þurfandi
fólks. Það hefur aldrei upplýstst, hversu margir biðu
bana af afleiðingum flóðanna, en flestir telja, að ein
milljón manna hafi farizt.
í Austur-Pakistan býr fleira fólk en í vesturhlutan-
um. Khan forseti, sem kom til valda án kosninga, mis-
reiknaði sig hrapalega. Hann taldi, að Austur-Pakist-
anir væru sundraðir og því væri sér óhætt að efna til
kosninga. f kosningunum fékk hins vegar sá flokk-
ur, sem berst fyrir auknu sjálfstæði austurhlutans, al-
geran meirihluta og þá jafnframt meirihluta þing-
manna á þingi alls Pakistanríkis.
Þá gerðist Yahya Khan methafi í fjöldamorðum.
Hafði Joe Colombo staðið
of lengi í sviðsljósinu?
Margir glæpaforingjar hafa fallið fyrir hendi starfsbræðra sinrta
„Drottinn gaf, og drottinn
tók“. Segðu þetta Albert Ana
stasia og „óða hundinum”
Vincent Coll eða „hollenzka“
Schultz. Einu sinni „gáfu þeir
og tóku“, þessir drottnarar
undirheimanna. Þelr tóku og
tóku, unz þeirhöfðuaðlokum
samkvæmt dularfullum lög-
málum undirheimanna Hfað
einum of lengi. — Þessir for
ingjar glæpamanna luku ævi
sinni eins og margir aðrir
starfsbræður þeirra fyrir
hendi keppinautanna f glæpa-
hreyfingunni. Þessi áttu að
verða öriög Joe Colombos, er
svertlngi réyndi að myrða nú
i vikunni.
Stofnuðu allri glæpa-
starfsemi í voða
Þeir höfðu framið þá dauða-
synd afl hreykja sér of lengi
f sviðsljósinu og vekja of mikla
athygli á sjdlfum sér og iðju
sinni. Á sinn hátt voru þeir
eins og Hollywoodstjömiir. —
Þetta töldu aðrir foringjar und
irheimanna óhagstætt. Hver
„elskar" sigurvegarann og
stjörnuna? Mestu skipti, að sú
athygli, sem þessar „stjömur
undirheimanna" vöktu, ógnaði
öllum „bísness"' i glæpastarf-
isemi. - ao>i aui, ói.
Þess vegna eru þeir dauðir all
ir saman. Andlát þeirra skipti
reyndár Iitlu. Aðeins ný nöfn
komu i dagsljósið, nýir menn
vom nefndir foringjar glæpa-
hreyfingarinnar. Ef til viil sett
ust Gyðingar í sæti íranna og
svo ftalir i sæti Gyflinganna.
Mafían var söm við sig.
Morðtilræðið við Joe Colombo
var ef til vill aðeins verk eins
mann? i örvæntingu. Tilræðis-
maðurinn var drepinn á staðn-
um. Hann er ekk; til frásagnar
fremur en Lee Harvey Oswald
morðingi John Kennedys.
En margir telja að tilræðið
við Colombo hafi verið verk
glæpaforingja í Mafíunni hans.
1400 féllu á bannárunum
Lögreglan athuear þann mögu
leika að útsendarar „geðveika
Gallos" eða flokkur Car’o Gam-
binos haC; s*aðið aö bessu. Löb-
reglan óttast. að sé svo þá
veröi aðrir ,.á undan b°nni“ að
grípa sögudólginn og koma
honum fyrir kattamef nokkuð
fliótar en gerist í dómsmálum.
Þeear áfengisbann var í
Bandaríkjunum voru fjórtán
hundruð glæpamenn mvrtir af
öðrum glæpamönnum. f annál-
um glænafræðinga er sagt. að
..glæpir hafi orðið b^’ersdxgs’es-
ir viöburð;r“ meö fjöMamofö-
unum 1929. Þá voru siö af út-
sendurum glæpaforingians Bua
Morans drepnir í bYlskúr í
Chicago. Þá geisaöi sú frægasta
allra styrialda glænaflokka. Það
var barizt um áfengisgróöann
og annan „bísness".
„Óði hundur“ myrtur í
í símaklefa
Minna handahófsbragð var
að morðunum, sem bræðurnir
Vincent og Peter Coll frömdu i
uanboði „holienzka" Schultz,
sem stóð f harðri samkeppni I
órugginu. Vincent fékk brátt
viðurnefnið „óði hundur" vegna
afhafna sinna með byssu. Af
öllu þessu varð hann upp með
sér og fór að líta girndarauga
hinn blómlega ölöglega „bís-
ness" Schultz. Óskadraumur
Vincents voru tjáöir með
„iporsemerkjum" vélbyssunnar.
Staðan varö þessi, reiknuð í
mannfalli: Schultz drap 10, „óði
hundur" 7. „Óði hundur" myrti
ungbarn í vagni í brjálæði sínu.
Það leið nokkur ttmi. Loks gerð-
ist það 8. febrúar 1932, aö skila-
boð bárust til „Óða hunds
Vincent Coll". „Siminn til yðar,"
sagði sendimaður í lyfjabúð
einni. Þegar Vincent Coll gekk
inn í símaklefann, var hann
skotinn til bana.
Keppinautur hans Schultz gekk
hinn 23. október 1935 út frá
salemi karla i bar í Newark. Þá
rigndi yfir hann kúlunum. Grát-
andi hringdi glæpaforinginn
Schultz til lögreglu og bað um
hjálp. Hann var látinn fyrir sól-
setur.
Rakarinn lét volgt hand-
klæði á andlit Mafíu-
foringjans Anastasia
Þeir kumpánar höfðu um hríð
rotnað f gröfum sínum og blöð-
in gulnað, sem sagt höfðu frá
striði þeirra, þegar Albert Ana-
stasia sneri baki við dyrum og
leyfði rökaranum að dáta volgt
handkjæöi yfir andlit sitt. Mafíu-
foringinn Anastasia fékk ekki
ttma til að gera sér grein fyrir
þessum mistökum.
Tveir leigumorðingjar 6-
grímuklæddir, löbbuðu inn í
„Geðveiki“ Joe Gaiio.
rakarastofuna í Park-Sheraton
hóteli í New York og komu tíu
byssukúlum fyrir f skrokk AI-
berts Anastasia. LöBreglan þyk-
ist vita, hver framdi verknaðinn,
en enginn hefur enn komið fyrir
rét.t út af málinu. Morðið var
framið árið 1969.
Tilræðisimður Colom-
hos var að komast í
álnir
Var sagan að endurtaka sig,
begar Joe Colombo var skotinn?
Þetta vita menn ekki enn. Til-
ræðismaðurinn var svertinginn
Jerome Johnson. Vinur hans 6-
nefndur s^gir, að „hann hafi
verið eitthvað skrýtinn í hausn-
um“. Hann hafði sýnt vininum
flugfarmiða lfklega til eyju f
Karabíahafj. Hann sagði vinin-
Umsjón: Haukur Helgason
Var Johnson tilræðismaður
Colombos myrtur af „verk-
kaupanda“ sínum?
um, að hann væri að fá mikla
peninga og væri á förum. John-
son þóttj vænt um vopn alls
konar, og hann kom oft meí-
vopn er hann heimsótti vin
sinn, axir sverö, hnífa og sagir.
Leynilögreglumenn i New York
gátu sér þess fljótt til, að John-
son hefði verið „keyptur" af
„geðveika Gallo" til verksins.
Gallo hefur löngum keppt við
flokk Colombos, Leynilögreglu-
menn segja, að „geðveiki Gallo"
hafi kunnað til, verks. Johnson
hefði verið lofað hndankomu og
fjárfúlgu, en í rauninni hafi út-
sendari Gallos staðið nálægt
honum og skotið hann. jafn-
skjótt og Johnson hafðj skotið
á Colombo. Þessi aðferð væri
hentugust fyrir Joe Gallo.
Svertingjar f leynilögreglunni
hafa reynt að komast aö því
með samböndum sínum f svert-
ingjahverfinuu Harlem, hvort
Johnson hafi verið f tengslum
við glæpaflokk svertingja, sem
sagt er, að „geðveiki" Joe
Gallo" hafi myndað, þegar hann
var eitt sinn í fangelsi. Gallo
var fyrir skömmu látinn laus úr
fangelsi, eftir að hafa setið inni
I níu ár fyrir fjársvik.
Lögreglan yfirheyröi einnig
Carlo Gambino sem er sagöur
valdamestur allra, „glæpakon-
ungur glæpakonunga" í Mafí-
unni.
Kapnhlaup lögreglu og
Mafíunnar í leit að
sökudólg
Joe Colombo hefur verið V
sviðáljósinu. Eins og skýrt var
frá hér í blaðinu í vor, hugðist
lögreg'an hafa hendur f hári
hans Hann sat í fangelsi stuttan
tlma, og saksóknari kvaðst
hafa í höndum sannanir. Col-
ombo svaraði þessu, sem hann
kallaði „ofsóknir stjðmvalda á
hendur fólki af ftölskum ætt-
um“ með áróöursherferð. Þús-
undir fólks af ítölsku bergi lýstu
stuðningi við Colombo. sem er
foringi í samtökum þessa fólks
„amerísk-ítölskum samtökum"
og sagðist starfa að mannúöar-
málum.
Lögreglan og ýmsir Mafíufor-
ingjar eru nú í kapphlaupi viö
að finna þá, sem stóðu á bak við
tilræðið við Cqlombo. Hvað
sem líður er ðlíklegt, að hðfuð-
paur þess lifi það að segja
barnabflmum sfnum sflguna.