Vísir - 03.07.1971, Side 16
p>'- T
VISIR
Laugarclagur 3. Jfllí
Handknattleiks-
maður slusast
alvarlega
Það slys varð i prentsmiðju
Morgunblaðsins klukkan rúrftlega
fjögur f gærdag, að hinn kunni
handknattleiksmaður Öm Hall-
steinsson, sem er prentari hjá
Morgunblaöinu lenti með höndina
í nrentvél þeirri, sem hann vinnur
við, og slasaðist alvarlega.
Þessi einhreyfilsvél fór í hafið rétt undan Grænlandi. Hún vakti mikla athygh á Reykjavíkurflugvelli, en þar ienti hún
1 fyrrinótt og tók bensín. Vélin fór héðan kiukkan 5 í gærmorg un og óhappið varð um klukkan 10 fyrir hádegið.
Skrautlegasta vélin fórst
flugmennirnir bj'órguðust strax
„Hún stakkst víst í sjó-
inn mjör; skanimt suð-
vestur af Grænlandi flug
vélin. Það voru tveir
niehh í henni og komust
báðir af“, sagði Arnór
Hjálmarsson, flugum-
ferðarstjóri Vísi í gær-
kvöldi, þegar við forvitn
uðumst um afdrif þeirr-
ar skrautlegu vélar, er
við mynduðum á Reykja
víkurflugvelli í morguns
árið í gær.
„Þeim hlekktist eitthvað á,
við vitum ekki vel hvað hefur
gerzt, og svo fóru þeir í sjó-
inn. Mönnunum var bjargað
strax og þess vegna höfum við
hér ekki frekari áhyggjur af
þessu — óheppni hjá drengjun-
um að missa vélina, en líkast
til hefur skyggnið verið svo lé-
legt og flughæðin litil. Þetta var
vél sem viö könnumst varla viö
hér amerísk af gerðinni Bell-
anca Viking".
Villtust yfir Þórisvatni
— Það heíur veriö allt í
himnalagi hjá þeim. þegar þeir
lentu hér?
„Já, þetta var vél númer 2 —
ég man að þeir áttu samt í enfið
leikum með að finna út staðsetn
ingu þegar þeir komu inn yfir
ísland í nótt. Við töluðum við
þá í talstöð, og þeir sögðust
vera á réttri leið, þetta væri allt
í lagi, en svo kölluðu þeir okkur
upp aftur, og sögðu þá að þeir
heföu ekki hugmynd um hvar
þeir væru.
Nú. við fundum þá í radarn-
um, og þá voru þeir inni yfir
Þórisvatni — mennirnir héldu að
þeir væru nálægt Reykjavíkur-
flugvelli!“
Barði niður flugstjórann
— Hafa fleiri óhöpp orðið í
þessari keppni?
„Ekki nema hvað aðstoðar-
flugmaður á vél sem hér lenti,
tók sig til þegar vélin lenti i
Prestv’ik og sló niður flugstjór-
ann. Flugstjórinn hélt víst að
vélin væri eitthvaö að bila og
vildi hætta við keppnina og þá
barði aðstoðarflugmaðurinn
hann niður, stökk upp í vélina
og hélt áfram. Sá lenti hér í
nótt, og við vitum að hann
lenti í Narsarsúak í dag. Það
er víst allt í lagi hjá honm“
Mennimir ómeiddir
— Þetta hefur verið stremb-
inn dagur hjá flugturninum, eicki
satt?
„Jú, við höfum varla getað
litið upp og ekki fengið okkur
kaffisopa síðan f gærkvöldi. Það
eru nefnilega heræfingar í loft-
inu hér á okkar umsjónarsvæSi,
og við sitjum hér 18 á vakt. Það
er helmingi meiri mannskapur
en venjulega er.“
Ekki reyndist unnt að ná frek
ari fréttum af björgun flugmann
anna tveggja, þar sem björgim
in tókst giftusamlega, mönnun-
um var bjargaö strax og eru
þeir með öllu ómeiddir eftir því
sem flugtu'rninn hér bezt veit.
—GG
t
Ekki er vitað nákvæmlega, hvem
ig slysið vildi til, en Örn var flutt-
ur hið bráöasta á Slysavarðstofuna,
bar sem gert var að meiðslum
hans.
Á Slysavarðstofunni fékk Vísir
þær upplýsingar, að meiðslin væru
alvarlegs eðlis, án þess þó að geta
talizt hættuleg. — ÞB
Vanfar börn sem
Jiskkjo sveitostörf
Mörg börn i Reykjavík hafa,
eins og gengur, ekki fengið
vinnu í sveitum. Ráðningastofa
landbúnaðarins segir hins vegar,
að mestu vandræði séu að fá böm,
sem eitthvað bekki til starfa f
sVeitum.
Um 500 börn hafa snúið sér til
ráðningastofunnar. Skrifstofan hef-
ur engin tök á að fylgjast með því,
hvernig fer um atyinnuleit allra
^éssara barna, þar serp fjölmörg
beirra ráða sig annars stáðar án
þess að láta skrifstofuna vita.
Ráðningastofan hefur hins vegar
ieitað að börnum, sem áður hafa
verið í sveit. og ekki fundið nægi-
lega mörg þeirra. — HH
0.1 stigi yfir
meðailogi
9 Veðrið sló met á fleiri stöðum
en í Reykjavík í júní. Á Akur-
•yri var úrkoma júnímánaöar að-
cins 40% af meðalúrkomu í júní,
en þar rigndi 8—9 mm. Þar var
' ■'Wara en í meðalári 8,2 stiga með
alhiti. sem er 1,1 stigi kaldara en
í meðalári.
Á Hveravöllum var júnímánuður
ólríkasti og þurrasti júnf frá því
ð samfelldar veðurathuganir hóf-
■st þar árið 1966. Meöalhiti var
’ ,9 stig, sólskinsstundir 209,6 og úr-
■'ma 26,2 mm.
Meðaihitinn í Reykjavík var 9,6
ig, sem er aðeins 0,1 stigi yfir
'"'ðallagi. —SB
Viðsjár með iðnnemum og
sýslumanninum í Borgarfirði
9 Miklar viðsjár eru nú með Iðn
nemasambandi íslands og sýslu
; mannembættinu í Mýra- og Borg-
arfjarðarsýslu, vegna þess að sýslu
mannsembættiö dró til baka Ieyfi,
sem iðnnemar segjast hafa fengið
til að halda dansleik að Húsa-
felli í sambandi við landsmót lön-
nemasambands íslands.
Þessi gangur mála olli samband
inu fjárhagslegu tjóni, sem iðnnem
ar telja að nemi á annað hundraö
þúsund kr., og vegna þessa máls
hafa þeir nú fengið sér lögfræðing
og hyggjast leita til dómstöla.
— ÞB
ær þúsund króna lækkun
bréfi" ti! Japans
á 1 kg.
Bréf er orð, sem póstþjónust
'.n notar á dálítið annan hátt
n almenningur í sumum tilfell-
•n Á póstmáli geturðu sent bréf
1 Janan, sem er eitt kíló að þyngd
- bá er átt við vissar umbúðh-.
’cð nýju gjadskránni, sem gekk
gildi um mánaðamótin eru þessi
'ckipti við póstþjónustuna mun
'ístæðari en áöur var. Nú er
//'
hægt að senda bréf eitt kíló að
þyngd til Japan fyrir 771 krónu.
Áður hefði sama sending kostað
1700 krónur. Þarna er um nærri
þúsund króna lækkun að ræða.
Þessi ’ hagstæða lækkun liggur
fyrst og fremst f því að sams konar
gjaldsikrá gildir nú fyrir öll. lönd
utan Evrópu, sem áður fyrT var
skipt í þrjá flokka. Þannig gildir
sama gjaldskrá fyrir Japan og
Bandaríkin t.d. Tíu gramma bréf
munu vera algengari en þúsund
gramma bréfin og burðargjald
þeiira lækkaði úT 24 kr. í 16 kr.
Lækkun kemur einnig fram í breytt
um þyngdartakmörkunum á prenti.
Nú eru þyngdarmörkin 20—100—
250 —500—1000 gr, en áður var
miðaö við hver 50 grömm. - SB
W. F. Snider og Paul R. Gilmore, heita flugmennirnir sem misstu
Bellanca Viking-vél sína í hafið. Þeir eru frá -Ontario í Karada,
en á þessari mynd sést Snider, þar sem hann er að leiðbeina bens-
ínmanni á Reykjavíkurflugvelli við áfyliinguna.
Föstudagsf y I li rí
Lögreglumenn í Reykjavík voru
heldur ókátir yfir því, hversu mikil
ölvun var í borginni. Bílamir voru
sífellt á feröinni til að sækja fylli-
rafta, sem gerðu uppsteit í húsum
ellegar lágu afvelta einhvers staðar
á almannafærL
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni er þetta föstudagsfyllirí
orðinn viss passj í borgarlífinu,
helgardrykkjan byrjar eftir hádegi
á föstudögum, og tekur ekki enda
fyrr en á mánudagsmorgnmn. - ÞB