Vísir - 14.09.1971, Side 3
3
V í SIR. Þriðjudagur 14. september 1971.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND ÉMORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Slysa-atómstríð hindruð?
Samkomulag heimsvsldanna tveggja
undirritað eftir viku
Kurt Lotz, aðalforstjóri Volks-
wagen-verksmiðjanna, skýrði í gær
frá því að hann mundi senn segja
af sér. Hann hefur undanfarið sætt
harðri gagnrýni, ekki sízt innan
stjómar fyrirtækisins, einkum fyrir
þá stefnu að framleiða margar teg
undir. Undanfarna mánuði hafa sí-
fel'lt verið að birtast £ þýzkum
blööum fréttir um fjárhagsörðug-
'oika Volkswagen, er stafi af því,
að of mikið fé hafi verið lagt í nýj
ar bílagerðir. Þá hefur Lotz einnig
bAtt. ákaflega einræðissinnaður,
bæði gagnvart starfsmönnum og
einnig verkalýðsfélögum. Frétta-
stofan Reuter segir f gær aö and-
rúmslo'ftið f kringum Lotz hafi ekki
verið kuldalegt; heldur gaddfreðiö.
New York Times hélt því fram í
gær, að samkomulag hefði náðst
milli Bandarfkianna og Sovétríkj-
anna um aðgerðir til að hindra, að
kjarnorkustyrjöld brjótist út af
misskilningi. Þetta samkomulag
hafj náðst í kyrrþey í Salt-viðræö-
unum í Helsinki í Finnlandi og
verði undirritað af utanríkisráð-
herrum ríkjanna, William Rogers
og Andrei Gromyko, þegar þeir
hittast f New York eftir viku. á
þriðjudaginn kemur.
Þungamiðja samkomulagsins
I felst í því, að skotið veröi á loft
gervitungli, sem á að koma í stað-
inn fyrir beinu s’imálínuna milli
I Washington og Moskvu. Gert er ráð
fyrir að heimsveldin tvö forðist að
jgrípa til hefndaraðgerða eftir árás,
; fyrr en haft hafi verið samband við
jhinn aðilann og að þeir sameigin-
lega kanni, hvaða óhöpp geti hafa
komið kjarnorkusprengingum af
,stað.
Talsmenn bandaríska' utanríkis-
ráðuneytisins hafa ekki viljað segja
álit sitt á fréttinni. En New York
Times. vitnar í „áreiðanlegar heim-
ildir“ um að samkomulaeið hafi
verið samið af sovézkum eg bsr.o'a-
rískum sérfræðingum. Þessar við-
ræður hafi byrjað 31. marz í V\n-
arborg og hafi sfðan haldið áfram
í tengslum við viðræðurnar f Hels-
inki.
Scotland Yard hlustaði á
100 millj. króna bankarán
Fengu uðvörun rudíóumutörs
en gripu uð lokum í tómt
Lögreglan í London hlust-
aði í gær á beina útvarps-
sendingu frá' bankaráni í
borginni án þess að geta
haft hendur í hári ræningj-
anna. Það tók nærri 34
tíma að miða út ránið og
þá voru ræningjarnir á
bak og burt með 500 þús-
und sterlingspund eða yfir
100 milljónir króna, fyrir
itan gimsteina og peninga
skjöl.
Innbrotið var framið f útibú
Lloyds banka f Baker Street 185, að
eins steinsnar frá hinu sögufræga
húsi Baker Street 221b, þar sem
Sherlock Holmes átti að hafa búið.
Ræningjarnir höfðu radíósam-
band á milli sín, meðan á innbrot
inu stóð. Þeir notuðu stuttbylgju
tæki, sem geta bæði tekið á móti
sendingum og sent frá sér. Lög-
reglan hefur upplýst, að radíóama-
tör eða útvarpsáhugamaður hafi
náð samtali ræningjanna inn á tæk
ið sitt, þegar þeir voru í fullum
gangi í innbrotinu.
Þegar honum varð ljóst, hvaö var
á seyði lét hann Scotland Yard vita.
Æn það tók rannsóknarlögregluna
tíma og 40 mínútur að miða stað
inn út. Þar fundu þeir 13 metra
löng göng frá verzlun í næsta húsi
sem hafði verið lokuð í tvær vikur.
Göngin náðu undir kjallarann und
ir bankanum og enduðu í hálfs fer-
metra ferhyrntu gati í gólfi á
geymsluhvelfingu bankans.
En löigreglan greip í tómt. Ræn
ingjamir höfðu haft nógan tíma til
að tæma gevmsluhólf bankans og
komast burt með allt fémætt, um
105 milljónir króna í peningum og
mikið magn a? gimsteinum og verð
mætum skjölum.
Meðan reynt var að miða út ræn
ingjanna, var, farið f alla bánka,
bankaútibú og stórverzlanir á
margra km svæði kringum Baker
Street til þess að athuga, hvort
allt væri f lagi. Lögreglumenn fóru
m.a. inn í bankann, þar sem ránið
var framið. Þeir skoðuðu bankann
að innan og komust að raun um, aö
dyrnar að geymsluhólfum bank-
ans voru óhreyfðar. Töldu þeir þá
allt vera í lagi, en í rauninni voru
ræningjarnir þá bak við hurðina og
höfðu hægt um sig.
Þetta mun vera í fyrsta sinn, sem
lögreglan he-fur hlustað á beina út-
sendingu frá bankaráni.
Sáttatilraunir sem tókust ekki
Hér standa yfir tilraunir til sátta í Attica-fangeslinu í New York ríki, þar sem nokkur hundruð
fangar hafa í fjöra daga haidið 38 gíslum föstum. í gær var útséð um, að samkomulag mundi nást.
Var þá ráðizt inn í fangelsið og völdin tekin með vopnavaldi af föngunum. Átta fangaverðir og
29 fangar létu lífið í bardaganum, sem lauk með sigri laganna varða.
Sex gegn Bandaríkjunum
Samkomulag fjármálaráðherra
Efnahagsbandalagsins
Hinir seX fjármálaráðherrar Efna-
hagsbandalagsrikjanna luku f nótt
viöræðum s’inum f Bruxelles og
höfðu þá náð samkomulagi um
ýmsar aðgerðir í gjaldeyrismálum.
Fyrst og fremst munu ríki Efna-
hagsbandalagsins krefjast þess, að
Bandaríkin afnemi hinn nýja 10%
innflutningstoll sinn og lækki gengi
dollarsins miðáð við gullverð. Aö
þessu loknu muni ríki Efnahags-
bandalagsins taka afstöðu til hugs-
anlegrar hækkunar gjaldmiðla
bandalagsins
Formaður ráðherranefndarinnar
ítalski fjármálaráðherrann Ferrari-
Aggradi, sagði eftir fundinn, að
langar og erfiðar alþjóðaviðræður
væru í vændum. Svo virðist sem
þessi sex rtki muni koma fram sem
ein heild á fundi „hinna tíu‘‘ ríku
landa heims, sem verður á morgun
f London og á fundi Alþjóðagjald-
jeyrisvarasjóðsins f Washington 27.
I september.
Stálu 30
milljón kr.
virði af
pelsum og
skinnum
Mesti pelsaþiófnaður í sögu Sví
þjóðar var farminn um helgina
hjá skinnaheildsala í Stokkhólmi
J. L. Chanow f gamia bænum.
Verömæti skinnanna, sem stolið
var er áætlað um 30 milljónir fs-
lenzkra króna.
Svo virðist sem þjófarnir hafi
notal stiga til að komast inn í
geymslusal heildsölunnar og síð-
an kastað skinnum og pelsum
niður á vörubíl fyrir utan. Meðal
þess sem stolið var, eru 600
skinn af silfurmink og hvítmink
og 300 pelsar, þar á meðal 60
ákaflega verðmætir.
Stokkhólmslögreglan telur, aö
þjófarnir muni reyna að komast
úr landi. Allar tollstöðvar hafa
verið varaðar viö þeim.
Gromyko
VW-Lotz
fallinn
Undirríta þeir á þriðjudaginn kemur?
Rogers