Vísir - 14.09.1971, Page 13
VÍSIR. Þriðjudagur 14. september 1971.
Sex ára bekkur i Austurbæjarskóla.
Margt mæiir með skóla-
skyidu sex ára barna
— og í framtíðinni verður lögð iniklu meiri
la á að koma inn mótandi uppeldisáhrif-
um á börn á aldrinum 2—7 ára — sjálfsagt
þróunin, að skólinn taki æ meir að sér upp-
eldislegu hliðina segir Þorsteinn Sigurðsson
m.a. í viðtali við Fjölskyldusíðuna um skóla-
göngu sex ára barna, o.fl.
Hé! er seinnj hluti viðtals við
Þorstein Sigurðsson sér-
kenns'lufulltrúa um kennslu sex
ára barnanna í fyrra og niður-
stöður af henni.
Hann segir í byrjun að nú
standi yfir námskeið fyrir kenn-
ara sex ára barna, þá, sem séu
að hefja þetta starf og eru þar
á meðan kennarar utan af landi.
„Við höfum breytt talsvert
um efni og vinnubrögð í sam-
•raemi við þá reynslu, sem við
fengum í fyrra og reynum að
forðast ýmis mistök, sem þá
komu fyrir. En ég held, að
markmiðið breytist ekki, heldur
'leiðirnar að því.“
Það kemur í ljðs, að nú standa
kennarar sex ára bamanna bet-
ur að vígi með kennslugögn og
leik- og uppeldistæki, sem ekki
gafst tími sem skyldi til að
undirbúa í fyrra.
Einnig verður kennslan meiri
í t. d. grammik, sem er tjáning
í leik, með svipbrigðum og er
sérstaklega stíluð upp á þessa
aldursflokka en er ekki búninga-
leikur eð'a ákveðinn texti, „börn
in lifa sig inn í ákveðnar að-
stæður og reyna að tjá sig
frjálst“. Svo er t. d. tónlist
kennd með nýstáriegu sniði,
fengnir kennarar, sem nota svo-
kallað Orffkerfi, sú kennsla fór
einnig fram í fyrra.
Tjorsteinn ítrekar mikilvægi
þess, að öl-l sex ára börn
fái forskólakennslu.
„Til að tryggja uppeldislegt
jafnrétti, en hætta er á, að ein-
mitt þau börnin, sem mest þurfa
á forskóla að halda verði út-
undan, ef ekki er beinlínis þrýst
á foreldrana til að taka tilboði
skólans. Það er þegar margt,
sem mælir með því að tekin
verði upp skólaskylda sex ára
barna.
Þá eT rétt að vekja sérstaka
athygli á varnaðarþætti forskóla
starfsins, semraunar er tviþætt
ur, annars vegar sá, sem felst
í eðli og tilhögun starfsins og
miðar að því að veita börnum
úr mismunandi uppeldisum-
hverfi örvandi og þroskandi
námsaðstæður £ byrjun skóla-
göngunnar án kröfu um fyrir-
fram skilgreindan námsárangur
í bóklegum greinum og hins
vegar hinar kerfisbundnu þroska
athuganir kennaranna á börnun
um, sem leiða til þess að vitn-
✓ ✓
eskja um einstaklinga, sem víkja
á einhvem hátt frá því normala,
berst strax til þeirra aðila, sem |
hafa með skilgreiningu og náms-
stjórn að gera og gefur þeim'
færi á aö búa þessum viðkvæmu '
nemendum kennsluaðstæður við |
hæfi og koma þannig í veg fyrir i
mistök, sem gætu haft alvarleg-
ar afleiðingar fyrir námsárangur '
þeirra, félagslega aðlögun og |
geðheilsu síðar á ævinni“.
"Y^erðun skólaskylda , sex ára
barna þá ekki byrjunin á
skólagöngu enn yngri barna?
„Jú, tvímælalaust. Skólamenn
eru að komast að raun um það,
að fyrstu lífárin eru mjög mikil-
væg til náms og persónumótun-
ar, þá ráðast einmitt örlög ein-
staklingsins. Það er ekki nokkur
vafi á því, að í framtíðinni
verður lögð miklu meiri áherzla
á aldurinn 2 — 7 ára, að koma
inn mótandi uppeidisáhrifum,
að gefa börnunum tækifæri til
að þroskast við sem allra hag-
stæðust skilyrði".
— Skólinn hlýtur þá óhjá-
kvæmilega að koma í stað heim-
ilanna sem uppeldismötandi?
„Já, það er sjálfsagt þróunin,
að skólinn taki æ meir uppeldis
legu hliðina að sér. Þetta held-
ur sjálfsagt áfram. — Með auk-
inni verkaskiptingu í þjóðfélag-
inu og vaxandi þátttöku kvenna
í atvinnulífinu þá hlýtur uppeld-
ishliðin að færast æ meir á
herðar skólans. Eftir því sem
fólki verður meira ljóst hvað
kennsla og uppeldi er þýðingar-
mikið þá verða þeim mun meiri
kröfur gerðar til þeirra, sem ann
ast uppeldið. Við teljum, að þar
sé sérhæfður m'aður, sem annast
tannvemd barnanna — hvers
vegar þarf þá ekki sérhæfðan
mann til að móta börnin and-
lega?“ —SB
13
Sendlar
Viljum ráða nú þegar röska sendla til starfa
hálfan eða allan daginn.
Utanríkisráðuneytið,
Stjórnarráðshúsinu við Lækjártorg.
Lausar stöður
Hjá lögreglustjóraembættinu í Reykjavík eru
lausar stöður 2ja ritara við skrifstofustörf.
Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Laun sam-
kvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna.
Umsóknir um störfin, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist embættinu
fyrir 1. október n.k.
Lögreglustiórinn í Reykjavík,
13. september 1971.
Afgreiðslustúlka
Viljum ráða afgreiðslustúlku nú þegar, helzt
vana í matvöruverzlun. Upplýsingar gefur
verzlunarstjórinn.
Kaupfélag Hafnfirðinga
Garðaflöt, Garðahreppi. Sími 42424.
';f.,• i • v.. ' _■ i
Sendisveinn
Óskum eftir að ráða sendisvein, pilt eða
stúlku, hálfan eða allan daginn.
OLÍUFÉLAGIÐ HF.
Klapparstíg 25—27. Sími 24380.
Vinna
3—4 lagtækir menn óskast nú þegar til
verksmiðjustarfa.
Plast og stálgluggar
Auðbrekku 38 Kópavogi.
Sími 42550.
__^r?Smurbrauðstofan I
\á 1
BJORIMIIMIM
Njálsgata 49 Sími 15t05 |
AUGUlVég hrih
með gleraugumfiu
Austurstræti 20. Símí 14566.