Vísir - 28.10.1971, Síða 4
4
V 1 S I R . Fimmtudagur 28. október 1971
Risinn Hreinn Halldórsson í Ármannsliðinu hefur rutt sér braut gegnum Víkingsvörnina og skorar.
Ljósmynd BB,
Víkingur náði þriggja marka
farskotigegn Ármanni 17-14
— og spurning hvort jboð nægir, þar sem
Jón Hjaltalin fór utan i morgun
i t k ,M , „ ,i .. 4 - - * ** *- - 0 •' *5 **' d
Víkingur náði’ þ’riggja
marka forskoti gegn Ár-
manni í gærkvöldi — sigr-
aái í fyrri leik liðanna um
réttinn til að leika í 1. deild
í vetur með 17—14. Og nú
er spurningin. Nægir Vík-
ing þetta forskot, því Jón
Hjaltalín Magnússon kom
gagngert frá Svíþjóð í gær
til að taka þátt í leiknum,
en hann fór utan aftur í
morgun? — Jón skoraði
sex af mörkuiw Víkings
þrátt fyrir hörkulegar
varnaraðgerðir Ármenn-
inga gagnvart honum — að
gerðir, sem þeir sluppu á-
tölulaust frá og því gengu
þeir á lagið. Síðari leikur
liðanna verður á sunnu-
dag kl. fjögur og má þá bú-
ast við mikilli baráttu —
því bæði liðin hafa fullan
hug á því að ná sætinu í
1. deildinni.
Þetta var mikill baráttuleikur,
þar sem Ármenningar lögðu aðal-
fáher?þ^na á sterka vörn, jafnframt
'pvijís SemSþeir. reyriSu. að halda
knettinum sem lengst I éigin sókn-
araðgerðum, og halda með því
markatölunnj niðri. Þetta heppnað-
ist þeim að vissu marki með góðri
aðstoð lélegs dómara — Váls Bene-
diktssonar.
Víkingur hafði allan tímann for-
ustu í mörkum — mest sex mörk,
en misstu leikinn talsvert niður
lokamínúturnar og Ármenningar
skoruðu þrjú síðustu mörkin í leikn
um.
Jón Hjaltalín byrjaði á því að
skora tvö fyrstu mörk leiksins með
miklum þrumuskotum eins og hann
getur bezt og Ármenningar sáu að
viö svo búiö mátti ekki standa —
og léku mjög harkalega vörn gegn
Víking eftir það. Björn Jóhannes-
son skoraði fyrsta mark Ármanns,
en Magnús og Guöjón svöruðu fyr-
ir Víking og staðan varð 4—1.
Ármenningar voru heldur betur
óheppnir með skot sín fyrst í
leiknum og þeir áttu ein fjögur
stangarskot. Hins vegar jafnað-
ist þetta upp síðar í fyrrí hálf*
lciknum, því þá fengu Ármenn-
ingar nokkur heppnismörk.
En áfram hélt leikurinn. Kjartan
skoraði annaö mark Ármanns, en
síðan var Magnús aftur á ferðinni,
en Kjartan og Jón Ástvaldsson
skoruðu fyrir Ármann 5—4 og það
var minnsti munurinn í leiknum
og þá varði Rösmundur m.a. víti
frá Heröi, Ármanni. En síöan skor
uðu Víkingar næstu þrjú mörk —
komust í 8 — 4 og sá munur hélst
til loka hálfleiksins, en þá stóð 10—
6 fyrir Víking.
í síðari hálfleik bjuggust áhorf-
endur við að V’ikingur mundi enn
auka forskot sitt og góðar líkur
virtust á því um miðjan hálfleik-
inn. Þeir komust sex mörkum yfir
17—11, þegar rúmar tuttugu mín-
útur voru af síðari hálfleik, en Ár-
menningum tókst mjög að laga
stöðuna í lokin og þá var Vilberg
Sigtryggsson drjúgur við að
skora fyrir Ármann af línu. Ár-
menningar fenau einnic tvö vjta-
köst f þessum hálfleik, en Rósmund
ur varði í báðum tilfellum og á
síðustu sekúndum leiksins fékk
Víkingur vítakast, en Ragnar Gunn-
arsson varði frá Páli Björgvinssyni.
Víkingar voru allan tímann betra
liðið í þessum leik og voru sann-
arlega óheppnir aö vinna ekki með
talsvert meiri mun. Jón Hjaltalín
var mjög ógnándi í leik sínum og
tókst sex sinnum að senda knött-
inn f netið og Guðjón og S.igfús
áttu einnig ágætan leik og voru
drjúgir við að skora. Varnarleikur-
inn var ekki alltaf sem beztur, eink
um var línumanna illa gætt og
skoruðu' Ármenningar flest mörk
sín af línu. Rósmundur átti misjafn
an leik í marki — varði vítin glæsi
lega og ýmislegt annað, en sá svo
á eftir auðveldum boltum í markið
á milli.
Varnarleikur Ármanns var góður
í þessum leik, og markvarzla Ragn
ars Gunnarssonar mjög góð og var
hann bezti maður liðsins ásamt Vil-
berg. Kjartan og Olfert áttu einn-
ig góðan leik, en minna bar á Herði
en oftast áöur, nema hvaö hann
komst upp meö mjög harðan varn-
arleik.
Dómgæzlan í þessum leik var
kapituli út af fyrir sig. Maður er
ýmsu vanur frá Val Benediktssyni,
en þetta er þó með því Iakasta sem
hann hefur sýnt — mikils misræm-
is gætti í dómum hans, og nær
undantekningarlaust högnuð-
ust Ármenningar á þvi. —
Hann dæmdj oft á annan veg en
Sveinn Kristjánsson o*g það svo.
að Sveinn beinlínis gafst upp á
því aö reyna að hafa áhrif á dóm-
gæzluna. Þetta var ekki gott í jafn
þýðingarmiklum leik og þarna var.
Mörk Víkings í leiknum skoruðu
Jón 6 Guðjón 4. Sigfús 3, Magnús
0g Skarphéðinn 2 hvor. Fyrir Ár-
mann skoruðu, Vilberg 4, Kjartan
3, Hreinn og Jón 2 hvor, og Björn.
HÖrður og Olfert 1 hver.
Síðari leikur liöanna verður á
mnnudag klukkan fjögur. — Jón
Hjaltalin leikur þá ekki með Vík-
ingi, en hins vegar eru allar líkur
á því, að hinn landsliðsmaður fé-
lagsins, Einar Magnússon, verði
með í beirn leik. — hsím
Ármenningar flugu upp í fang Jóns Hjaltalín, þegar hann nálgað-
ist markið. Hér reynir Vilberg að hindra Jón. Ljósm. BB.
FH gegnj
Yvryí |
kvöld j
FH-ingar eru komnir til •
Frakklands og í kvöld verður J
síðari leikur liðsins við Ivry,*
Frakklandsmeistarana, f Evrópu •
keppninni. I fyrri leiknum hérj
heima vann FH með sex marka •
mun og liðið hefur því gottj
veganestj fyrir leikinn i kvöld. •
Að vísu segia þeir. sem til*
þekkja, að mjög erfitt sé aðj
leika á velli Ivry fyrir lið, sem*
ekk) þekkja þar aðstæður. en«
það kæmi þó mjög á óvart, ef J
FH-ingar misstu niður þetta*
góða forskot sitt. J
Magnús Gíslason, fréttaritari •
Vísis í Keflavik, er staddur f*
Frakklandj og mun hann skrifaj
um leikinn i blaðið á morgun. •
Juventus
vann 2-0
Italska liðið Juventus vann
Aberdeen frá Skotlandi í gær í
Torinó með 2—0 i EUFA-keppn-
innj í knattspyrnu. Tveir leikir
voru háðir í 1. deildinnj skozku.
Celtic vann Dunfermline 2—1, en
Dundee og Partic Thistle gerðu
jafntefli án þess mark væri skorað.
Sovét
áfram
Sovétríkin hafa tryggt
sér rétt í átta liða úrslit í
Evrópukeppni landsliða. í
gærkvöldi léku Spánn og
Sovétríkin í Sevilla og varð
:afntefli án þess mark væri
■^orað 0—0.
Sovétrikin sem urðu Evrópu-
meistarar í knattspyrnu 1960, hafa
nú leikið alla sína leikj i riðlinum
og hafa tryggt sér sigur þar.
Staðan er þessi:
Sovét 6 4 2 0 13:4 10
Spánn 4 2 1 1 6:2 5
N.-írland 5 2 1 2 6:2 5
Kýpur 5 0 0 5 2:19 0
Happ-
drætti FRÍ
Dregið hefur verið i hapjxlrætti
Frjáls’iþróttasambands íslands. —
Upp komu þessj númer: 1316 —
ferð ti] Majorka, 1909 — ferð til
Maiorka og 2517 einnig ferð til
Majorka. Vinningshafar vitji vinn-
inga sinna tij Svavars Markússon-
ar í Búnaðarbankann í Austur-
stræti.