Vísir - 28.10.1971, Page 5
Mikil óvissa um 1. deildar-
sætið í meistaraflokki kvenna
Það var oft hart barizt í kvennaleiknum. Hér er bezta leikkona Breiðabliks komin í færi og send
ir knöttinn í netið. Ljósm. BB.
— jafntefli i fyrri leik Breibabliks og KR
Breiðablik og KR léku
fyrri leik sinn í meistara-
flokki kvenna um réttinn
til að leika í 1- deildinni í
vetur og lauk leiknum eftir
talsvert spennandi leik
með jafntefli 9—9 og verð
ur leikurinn á sunnudag
milli liðanna því hreinn úr-
slitaleikur.
Þetta lausa sæti. sem um er
keppt, orsakaðist af því, að stúlk-
urnar í Völsungum á Húsavík,
sem sigruðu i 2. deild í vor, sáu
sér ekki fært aö taka þátt í
keppninni. KR sem féll niður úr
1. deild, og Breiðablik sem varö
í öðru sæti í 2. deild, keppa því
um sætið.
Leikur liðanna í gærkvöldi var
mjög jafn nær allan tímann. KR
byrjaðj á þvi að skora, en síðan
komst Breiðablik í 2—1. KR-stúlk-
urnar skoruðu þrjú næstu mörk.
Staðan var 4—2 og var þaö mesti
'munurinn í leiknum. En nú var
sama uppi á teningnum aftur —
en breyting þó, þar sem Breiðablik
skoraði næstu þrjú mörk og hafði
yfir í hálfleik 5—4.
KR jafnaði fljótlega í siðarj hálf-
leik og leikurinn hélzt í miklu
jafnvægi ailan hálfleikinn. Oftast
var jafnt, en liðin skiptust á að
hafa eitt mark yfir á milli og loka-
tölur urðu eins og áður segir 9 — 9.
Handknattleikur sá sem stúlk-
urnar buðu upp á var yfirleitt
slakur, en þó komu fyrir inn á
milli leikkaflar, sem sýndu, að
bæðj liðin geta betur. Mikilvægi
leiksins hafði talsvert þrúgandi á-
hrif á hinar ungu handknattleiks-
konur. — ssím.
Aðeins West Ham
vann í gærkvöldi
— Tottenham átti i erfiðleikum
með Preston á heimavelli
Aðeins West Ham tryggði
sér rétt í næstu umferð í
enska deildabikarnum,
þegar liðið vann Liverpool
í gærkvöldi á leikvelli sín
um í Lundúnum, Upton
Park, með 2—1. Graham
skoraði fyrsta markið í
leiknum fyrir Liverpool, en
síðan jafnaði Hurst og
Robson skoraði sigurmark
ið rétt fyrir leikslok.
Tottenham tókst ekki áð
vinna Preston úr 2. deild á
White Hart Lane og kom það
vissul. á óvart. Martin Chivers
skoraði fyrir Tottenham á 4.
mVn. og þannig stóð þaf til
fimm mínútur voru eftir af leikn
um, að Lyall jafnaði fyrir
Preston.
Ekki gekk Chelsea betur á
leikvelli sínum í Lundúnum
gegn Bolton úr 3. deild og langt
fram í leikinn leit út fyrir, að
Bolton— sem sigraði Manch.
City í umferðinni á undan —
mundi einnig slá Chelsea út.
Jcmes skoraði fyrir Bolton á 13.
mín., en Hudson tókst að jafna
fyrir Chelsea.
Manch. Utd. lék ekki vel
gegn Stoke á Old Trafford og
var frekár heppið að ná jafntefli.
Mark var dæmt af John Ritchie,
Stoke, sem mörgum fannst lög-
lega skorað. Ekkert mark var
skorað ¥ fyrr; hálfleik, en á 72.
mín. náði Gerry Conroy forustu
fyrir Stoke. en sex m&i. fyrir
leiksiok jafnáðj A4an Gcnwiíag
fyrir Manch. Uéd.
Liðin f deitdabrkamum, sem
gerðu jafntefli í gær og fjwœa-
kvöld, mnnu mætasf á af í
næstu vikc. — þsim.
unnu
Norð-
menn í Evrópukeppni
Ungverjar eru á góðri leið
með að vinna sinn riðil í
Evrópukeppni landsliða. í
gærkvöldi sigraði Ung-
verjaland Noreg í Buda-
pest með 4—0 og hefur þá
náð níu stigum — stigatölu
sem að vísu Frakkland og
Búlgaría hafa möguleika
að ná.
Gegn Norðmönnum skoraði hinn
kunni leikmaður Bene eftir 21
mín. og nokkrum m’in. síðar var
Dunai á ferðinni fyrir Ungverja-
land og sendj knöttinn í netið.
Þriðja mark sitt skoruðu Ugverjar
beint úr hornspyrnu, og hið fjórðá
skoraði Szocs.
Ungverjar höfðu talsveröa yfir-
burði í leiknum, en Norðmenn
voru mjög óánægðir með tyrkneska
dómarann, sem þeir segja að eigi
að strikast út af lista alþjóðadóm-
ara fyrir alla framtíð, eins og Nic
Johansen komst að orði eftir leik-
inn
Staðan í riðlinum er nú þannig:
Ungverjaland 6 4 11 12:5 9
Búlgaria 4 2 1 1 8:4 5
Frakkland 4 2 1 1 7r5 5
Noregur 6 0 1 5 5:18 1
Frakkland og Búlgaría eiga eftiT
að leika báða s’ina leiki innbyrðis,
en Ungverjaland og Noregur hafa
lokið sínum leikjum.
B0LH0LTI 6 - SÍMI 82143