Vísir - 28.10.1971, Síða 10
V I S I R . Fimmtudagur 28. október 1971.
/Cr
I i KVÖLD1 j DAG ~j IKVÖLD
Wé—i—ninniiiwiiiiii iiiiiiin "• - i n" iii n ^HWn—wm \ n .. .—— — i
SKEMMTISTAÐIR ®
Þórscafé. Polkakvartett söngv
ari Björn Þorgeirsson.
Röðull. Hljómsveitin Haukar
leikur og syngur.
Glaumbær. Diskótek.
Hótel Loftleiðir. Hljómsveit frá
Jamaica.
Tónabær. Opið hús frá kl. 8 —
11. Chaplin og félagar í heimsókn.
— Diskótek, plötusnúður Magnús
Magnússon.
HEILSUGÆZLA ®
SLYS:
SLYSAVARÐSTOFAN: sími
81200, eftir lokun skiptiborðs
81212.
SJÚKRABIFREIÐ: Reykjavík
sími 11100, HafnarfjörSur sími
51336, Kópavogur sími 11100.
LÆKNIR :
REYKJAVIK, KÓPAVOGUR.
Dagvakt: kl. 08:00—17:00, mánud.
—föstudags, ef ekki næst f heim-
ilislækni, sími 11510.
Kvöld- og næturvakt: kl. 17:00—
08:00, mánudagur— fimmtudags
sími 21230.
Helgarvakt: Frá kl. 17:00 föstu-
dagskvöld til kl. 08:00 mánudags-
n.orgun. sími 21230.
Kl. 9—12 laugardagsmorgun
eru læknastofur lokaðar nema á
Klapparstíg 27, símar 11360 og
11680 — vitjanabeiðnir teknar
hjá helgidagavakt, sími 21230.
HAFNARFJÖRÐUR. GARÐA-
HREPPUR. Nætur- og helgidaga-
varzla, upplýsingar lögregluvarð-
stofunni símí 50131.
Tannlæknavakt er I Heilsuvemd-
arstöðinni. Opið laugardaga og
sunnudaga kl. 5—6, sími 22411.
APÓTEK:
Kvöldvarzla til kl. 23:00 á
Reykjavíkursvæðinu.
Helgarvarzla kl. 10—23:00.
23.—29. okt.: Vesturbæjarapótek
— Háaleitisapótek.
Næturvarzla lyfjabúöa kl. 23:00
—09:00 á Reykjavíkursvæöinú er
f Stórholti í, sími 23245.
Kópavogs og Keflavíkurapótek
eru opin virka daga kl. 9—19,
Iaugardaga kl. 9—14, helga daga
kl. 13—15.
MINNINGARSPJÖLD ®
Minningarspjöld líknarsjóðs
Dómkirkjunnar eru afgreidd hjá
Bókabúð Æskunnar Kirkjuhvoli,
verzluninni Emmu, Skólavörðu-
stíg, verzl. Reynimel, Bræðraborg
arstíg 5 og 22 og prestkonunum.
TILKYNNÍNGAR ®
Sagnfræðingafélag Islands boð-
ar til fundar í kvöld kl. 20.30 í
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Fundarefni: Sögukennsla á skyldu
náms og menntaskólastigi.
Stjórnin
Kvenfélag Fríkirkjunnar í
Reykjavík heldur basar 2. nóv. kl.
2 í Iðnó uppi. Þeir vinir og vel-
unnarar Fríkirkjunnar, sem vilja
gefa á basarinn. eru góðfúslega
beðnir aö koma gjöfum sínum
til Bryndisar Melhaga 3, Kristínar
Laugavegi 39. Margrétar I .uga-
vegi 52, Elínar Freyjugötu 46.
„Þið getið haldið áfram til Ameríku, ef þið viljið“, sagði starfsstúlkan á Prestvíkurflugvelli við 30
farþega Loftleiða, sem ætluðu til íslands fyrir skömmu, en þá var ófært á Keflavíkurflugvelli.
Allir kusu hótel við flugvöllinn og skömmu eftir komuna þangað bættist annar eins hópur
Loftleiðafarþega í hópinn.
Lenti með 107 farþega
í rokinu i gærkvöldi
meðan BEA og Loftleiðir sneru frá Keflavik
Erfiðleikar eru miklir um þessar
mundir á lendingum á Keflavíkur-
flugvelli. Fiugféagsþota lenti á
Kefavíkurflugvelli, og þar með er
umferðin upptalin utan það að þot
an fór um morguninn, m.a. með
farþega sem komu frá Loftleiðum,
en vélar Loftleiða hafa vfirflogið
flugvöllinn undanfarna daga.
Flugvé] frá BEA kom fljúgandi
í gærdag upp að ströndum landsins
en flugstjóranum leizt ekki á blik
una og sneri aftur til Glasgow.
Þangað kom svo þotan frá Flugfé-
laginu og tók alla BEA-farþegana
að sér. í Keflavik lenti hún svo
með 107 farþega innanborðs. Inn-
anlandsflugið gekk eftir áætlun I
gær, nema að ekki var flogið til
Patreksfjarðar og Vestmananeyja.
„Með nýjum og bættum vélakosti
fækkar þeim tilfellum þegar ófært
er“, sagði Sveinn Sæmundsson,
þegar viö hringdum í hann í morg-
un.
Loftleiðaflugvélarnar geta ekki
lent vegna hliöarvinda á flugbraut-
ir í Keflavík, en þar vantar braut
inn í þannig að lendandi sé i vindi
eins og t gær, þá var hliöarvindur
á austur-vestur brautina. Vatns-
veður og hálka gera málið enn
verra eins og gefur að skilja.
Bogi Þorsteinsson, yfirflugum-
ferðarstjóri sagði að þetta yfirflug
gerðist ekki oft hjá Loftleiðum. en
greinilegt væri að nauðsyn bæri
til að lengja þverbrautina, þ.e.
norður-suður brautina.
Eins og gefur aö skilja kostar
það Loftleiðir hunduð þúsunda,
jaínvel miiljónir, að þurfa að halda
I farþegum uppi á hótelum, jafnvel
svo dögum skiptir. Að auki missir
hótel þeirra í Reykjavik viðskipti,
; áningarfarþegarnir mæta ekki af
; þessum ástæðum, og þeir sem ætla
ti) íslands óttast áð lenda l yfir-
flugi, sem þýöir e.t.v eina eða tvær
: nætur í Luxemborg, — óvænt , en
oft án mikilla fjárráða. — JBP
1 j DAG I 1KVÖLD
Á fundi í Lögfræðingafélagi Is-
lands i kvökl (fimmtudagskvöld)
verða rædd nokkur viöfangsefni
réttarheimspeki.
Frummælandi verður Garðar
Gíslason lögfræðingur, en hann
stundaði að loknu embættisprófi
frá Háskóla íslands, nám í réttar
heimspeki við Háskólann í Ox-
ford og varöi þar sl. vor ritgerð
til gráðunnar Bachelor of Litera-
ture. Garðar vinnur nú við dóms
störf í Borgardómi Reykjavíkur.
í erindinu mun hann fjalla um
réttarheimspeki almennt og leit-
ast við að gefa hugmynd um þau
viðfangsefni, sem nú á tímum
er mest fjallað um í þessari fræði
grein. Þá mun hann fjalla ummun
inn á lögfræði og réttarheimspeki
og væntanlega hvort réttarheim-
speki eigi almennt erindi til lög-
fræðinga.
Að loknu erindi frummælanda
veröa frjálsar umræður að venju.
Fundurinn verður haldinn i Átt
hagasal Hótel Sögu og hefst kl.
20.30.
KFUM AB. Aðaldeildarfund
ur verður í húsi félaganna við
Amtmannsstíg i kvöld kl. 8.30.
Efni: Þrír ungir félagsmenn svara
spurningunni: Hvers vænti ég af
? KFUM? Hugleiðing: Árni Sigur-
1 jónsson.
Kvenfélag Hreyfils. — Fundur
fimmtudaginn 28. okt. kl. 20.30
í Hreyfilshúsinu. Takið með ykk-
ur handavinnu.
Kvenfélag Áspresfcakalls. Handa
vinnunámskeið í Ásheimilinu Hóls
• '-"vgl 17. hefst ( byrjun nóv. —
Kennt verður tvisvar i viku á
þriðjudagskvöldum frá kl. 20 —
22.30 og á fimmtudögum frá kl.
14—16.30. Þátttaka tilkynnist i
síma 32195 (Guðrún) eða 37234
(Sigriður).
Islenzka dýrasafnið er opið frá
kl. 1—6 alla daga Skólavörðustíg
6 b, Breiðfirðingabúð. S. 26628.
BaSar Kvenfélags Háteigssókn-
ar verður í Alþýöuhúsinu Hverfis-
götu mánud. 1. nóv. kl. 2.00. —
Vel þegnar eru hvers konar gjafir
til basarsins og veita þeim mót-
töku Sigriður Jafetsdóttir Máva-
hlíð 14, s. 14040, María Hálfdánar
dóttir, Barmahlíð 36, s. 16070,
Vilhelmina Vilhelmsdóttir, Stiga-
hlíð 4, s. 34114, Kristín Halldórs-
dóttir Flókagötu 27, s. 23626 og
Pála Kristjánsdóttir, Nóatúni 26,
s. 16952.
Frá Dómkirkjunni. Viðtalstimi
séra Jóns Auöuns verður eftirleiö-
is að Garðastræti 4° kl. 6—7 e.h.
alla virka daga nema laugardaga.
en ekki fyrir hádegi. Viðtalstími
séra Þórs Stephensens verður i
Dómkirkjunni mánud þriðjud.
miðvikud og fimmtud milli kl
4 og 5 oe eftir samkomulagi
heimili hans er á Hagamel 10
sími 13487 Vottorð og kirkju-
bókanir sem séra Jón Auðuns hef-
ur haft gefur séra Þórir Stephen-
sen t Dómkirkjunni
Grænlandsvaka fer fram í fé-
Iagsheimili Kópavogs annað
kvöld kl 20.30. Herdís Vigfús-
dóttir, menntaskólakennari tók
sjálf kvikmynd i Grænlandi og
flvtur skýrincar með henni, en dr.
Björn Þorsteinsson flvtur erindi
um Grænland að fomu og nýju,
en dr Björn er búinn að stjóma
feröum til Grænlands um árabil.
Ýmsir grænlenzkir munir verða
sýndir þarna og kaffiveitingar
bornar frarr. að vökunni lokinni.
BELLA
Ég vil fá bitann með óskabein-
inu í — það hefur nefnilega svo
voðalega margt farið úrskeiðis
hjá mér upp á síðkastið.
VEÐRIÐ
DAG
Suðvestan gola
eða kaldi og
skúrir fyrst.
Austan kaldi
og skúrir í kvöld.
Hiti 6—9 stig
t
andlAt
Þórhallur Kristjánsson. Klepps-
vegi 20, andaðist 22. okt. 48 ára
að aldri. Hann verður jarösunginn
frá Fossvogskirkju kl. 1.30 á
morgun.
Haraldur GuðmundsSon, fyrrv.
ráðherra, Hávallagötu 33, andaö-
ist 23. okt. 79 ára aö aldri. Hann
verður jarðsunginn frá Ðómkirkj
unni kl. 2 á morgun.