Vísir - 28.10.1971, Page 16
Fimmtudagur 28. október 1971.
Týndi
barna-
vagni
(bnrnSssusum)
Góðglaður maður uppgötvaðj sér
til skelfingar sl. mánudag, að hann
var búinn að týna barnavagni sem
hann ók um götur borgarinnar. —
Þurfti hann að sinna ýmsum erind
um, en var jafnframt með nokkurn
farangur. Datt honum þá það
snjallræði í hu^ að fá lánaðan
barnavagn til að létta sér byrðina.
Raðaðj hann svefnpoka, sjóstakki
og gítar í farartækið og þótti hag-
ur sinn hafa mjög svo batnað. —
Fór hann fyrst í bankaútibú á
Laugavegi, en að því loknu niður
í bæ. Rámar hann helzt í það, að
ha'nn hafði gleymt vagninum ein-
hvers staðar V Bankastræti. Maður-
inn hefur áhuga á að finna vagninn
með farangrinum og eru þeir, sem
verða varir við bláan, nýlegan
barnavagn í reiðileysi, beðnir að
hafa samband við lögregluna.
— SG
Má bjóða yður nýjustu
kextegundina?
—- segir skólastjórinn um mótmælin
— Það hefur hver og
einn leyfi til þess að
vera hissa og óánægður,
en meðan fólk skýrir
það ekki nánar út, þá
get ég ekki getið í eyð-
urnar, sagði Oddur Sig-
urjónson skólastjóri Víg
hólaskóla í Kópavogi í
viðtali við Vísi í morgun
en skólinn hefur nú mjög
verið til umræðu í Kópa
vogi og 62 aðilar, aðal-
lega foreldrar barna í
skólanum, hafa sent
Fræðsluráði Kópavogs
mótmæli vegna þess að
stjórn skólans skuli ekki
hafa verið endurnýjuð.
Skólastjóri sagði starfi
sínu lausu í vor, en dró
uppsögn sína til baka
vegna áskorunar þorra
kennara við skólann.
— Karli Guðjónssynj for-
manni Fræðsluráðs Kópavogs
var af Fræðsluráöi falið að
kanna, hverju þessi mótmæli
sættu og eins ástæðu fyrir á-
skorun kennáranna á skólastjóra
að draga uppsögn sína til baka.
Sagði hann i viðtali við Vísi að
hann gætj ekki gefið uppiýsing-
ar um þessa könnun fyrr en
henni væri lokið.
— Ein af þeim ástæðum, sem
óánægðir aðstandendur barna í
skólanum tilgreina er sú að fall-
prósenta i þessum skóla sé meiri
meðál nemenda þessa skóla en
almennt gerist í gagnfræðaskól-
um
— Ég held að þessj aðdróttun
sé röng, sagði Karl, en þetta
atriðj og fleiri varðandi þetta
umtalaða mál er ég að athuga.
Skólastjóri benti á að þessir
62 væru lítill hluti af aðstend-
endum skólans, en þeir eru ekki
færri en 1300 og eflaust væri
það ekki einsdæmi aö um 5%
aðstandenda gagnfræðaskóla
væru óánægðir með rekstur skól
ans. — JH
i
„Bremsuskálar
úr Rolls-Royce
eru hljóðfæri
líka"
• Sjö snaggaralegir Jamaica-
menn, dökkir á brún og brá
leika að heita má stanzlaust
Reggay-beatið fræga frá Jamaica
f veitingásölum Loftleiðahótelsin •
næstu 4 kvöld. „Bremsuskálar úr
Rolls-Royce og Morris Mini eru
líka h1jóðfæri“, sögðu þeir kump-
ánarnir og tóku fram þessa vara-
hluti sem greinilega höfðu áður
unnið gott starf í viðkomandi b’il-
um, og sönnuðu síðan að bílavara-
hluti má einnig nota til að iðka
hljómlist. Ættu viðgerðaverk-
stæðj hér því að geta sett saman
fjölskrúðugar hljómsveitir.
• Calypso-hljómsveit þessi kom
mest fyrir tilviljun, en hún
hefur leikið víða um lönd undan-
farið misseri, — og er á heimleið
— eftir helgina halda þeir sjö-
menningarnir í sólina á Jamaica
eftir að hafa brætt svol’ftið af ísn-
um í I'slendingum með hinum heita
hljöðfæraslætti sínum.
450-550
| ólögleg
\ ættarnöfn
s
„Nú er talið aö 450—550
manns hér á landi berj ættar-
nöfn sem eru ólögleg. Þar af
stór hluti erlendir menn sem
hér hafa setzt að“, sagðj Magn-
ús Torfi Ólafsson, menntamála
ráðherra á alþingi í gær, er
hann mælti fyrir stjórnarfrum-
varpi um breytingar á lögum
um mannanöfn. Ekki kvöddu
fleiri sér hljóðs við þessa fyrstu
umræðu.
í samtali við Vísi sagði
menntamálaráðherra. að þetta /
frumvarp hefði ekki hlotið af- J
greiöslu á síðasta þingi vegna ^
þess að það hefði komið seint t
fram og einnig væri ágreining- í
ur um nokkur ákvæði frum- ’
varpsins, t.d. að leyfa mönnum I)
að bera ættarnafn. Hins vegar (
væri vart framkvæmanlegt að /
höíða mál á hendur þeim er 7
ólögleg ættarnöfn bera og bvi \
hefði þetta atriði verið sett inn i
í frumvarpið. — SG l
Spýtukex!
Rannsóknarstofa fyrir
sýkla- og gerlarannsóknir?
Spýtukex mun vera sjaldséðara
en spýtubrjóstsykur en þó kemur
það fyrir að þennan fágæta varn-
ing rekur á fjörur venjulegs fólks.
Flestir eru ekkj hrifnir, þegar þeir
fá þetta góðgæti upp í hendurnar.
Svo fór líka með þá fjölskyldu, sem
varð fyrir því að "á spýtukex merkt
Frón upp í hendurnar. í venjulegri
sakleysislegri kexköku var stærðar
tréflís — svo stór að erfitt er að
ímynda sér hvemig hún hefur kom
izt inn f kexkökuna án þess að
eftir væri tekið. En þar var hún í
miðri köku og til allrar hamingju
— eða verða stofnanir,
Ýmsir sérfræðingar hafa hitzt
á fundum nýlega og rætt um
bætta aöstöðu til gerla- og sýkla
rannsókna á neyzluvörum og öðr
um matvælum. Páll Sigurðsson
ráðuneytisstjóri í Heilbrigðis-
sem fyrir eru efldar?
Vísi að um væri að ræða að setja
upp rannsóknarstofu til þess að
sinna þessu verkefni eða að
efla þær stofnanir, sem fyrir
eru.
Páll Sigurðsson sagði ennfremur,
að rannsóknarstofnuninni væri æti
að það hlutverk að vinna að rann
sókn á neyzluvörum og matvælum
fyrir allt landið. Rannsóknarþáttur
inn hefði hingað til og verði kost-
aður af ríki. Sveitarféiög eigi að
geta sent þangað matvæli í rann-
sókn. Þess vegna haf; Reykjav'ikur-
borg ekki sett upp sérstaka rann-
sóknastofu.
Hingað til hefðu matvæiarann-
sóknir farið fram að mestu hjá
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
og Rannsóknastofu Háskólans. —
Báðar þessar stofnanir séu með
mikið af öðrum verkefnum og því
hefði gerla- og sýklarannsókn á
neyzluvörum og matvælum ekki
þróazt eins og æskilegt væri þar
sem aðstöðu hefði skort.
Þá mun efling heilbrigðiseftirlits
jns og aukið starf heilbrigðisfulltrúa
úti á landi knýja á um bætta rann-
sóknaaðstööu. —SB
Ný lánastofnun:
Norðurlandabanki?
Norðmenn hafa lagt fram tillög-
ur um aukið samstarf Norðurlanda
í efnahagsmálum, einkum um iðn-
að. Þeir vilja stofnun norræns
framkvæmdabanka, og aukna sam
vinnu í menntamálum og þróunar-
málum.
Ölafur Jóhannesson forsætisráð-
herra situr um þessar mundir fund
forsætisráðherra Norðurlanda, þar
sem tillögur Norðmanna hafa ver-
ið athugaðar. — HH