Vísir - 09.11.1971, Side 5
Vl*S I R, Þriðjudagur 9. nóvember 1971
5
m \
H
■ :
'
||^ 't V'^í"
■ jj
J|
jfKJm
.........* IÉ
Gísli Blöndal skoraði flest mörk íslenzku leikmannanna í gær-
Víkingur —
Breiðablik
í kvöld!
Ákveðið er að úrsiitaletkur
| Bikarkeppni KSl verði f kvöld
I á Melavellinum og munu Vík-
ingur og Breiðablik mætast þar
’ og leika í flóðljósum. Aldrei
| fyrr hefur jafn þýðingarmikill
l leikur verið leikinn í flóðljósum
hér á landi.
Leikurinn hefst kl. átta og
. þar sem áður hefur verið rætt
um leikmenn liðanna bér á síð
unni verður það ekki endurtekið
1 — en bæði liðin mutvu mæta |
I með sína beztu menn.
Fyrirliði íslenzka liðsins Ólafur H. Jónsson, hefur sent knöttinn í netið. Danski landsliðsmaðurinn Ole Sandhöj kom við litlum
vörnum. Ljósm. BB.
Léku eins
10 mín..
• •
svo
— Furðulegar sveiflur i leik landsliðsins i gær-
kvöldi og liðið tapaði fyrir Árósa KFUM með
eins marks mun
Hvemig getur slíkt átt sér stað? Úrvalslið HSÍ — ís-
lenzka landsliðið — tapaði í gærkvöldi fyrir danska lið
inu KFUM Árósa með eins marks mun, 20—19, eftir
að bæði Valur og FH höfðu sigrað þetta danska lið
örugglega- Vissulega er þetta mikið áfall fyrir íslenzk-
an handknattleik og óafsakanlegt tap — en kennir.
leikmönnum okkar um leið að vanmeta aldrei neinn,
hversu slaklega, sem hann hefur leikið áður. Dönsku
leikmennirnir sýndu að vísu mun betri leik en áður í
heimsókninni og voru jafnvel óheppnir að vinna ekki
með meiri mun — öll vítaköst þeirra, fjögur að tölu,
misheppnuðust. Lentu í stöngum íslenzka marksins.
Ég verð þó að viðurkenna að innst |
inni er ég ekkert mjög óhress yfir j
þessu tapi íslenzka liðsins — þó i
það sé neyðaríegt, svo ekki sé í
meira sagt.
Fyrstu tíu mínútur leiksins lék
fslenzka Iiðið Geir: Björgvin og
Valsmennirnir fimm Ólafur
Jónsson, Gunnsteinn, Gísli, Stef
án og Ólafur Benediktsson
hreint eins og heimsmeistarar.
Ótrúlega hraður leikur liðsins
ásamt leiftursnöggum skipting-
um, línuspili og fallegum flétt-
um, er áreiðanlega eitt hið bezta
ef ekki það bezta, sem íslenzkt
Iið hefur sýnt. Hreint frábær
handknattleikur, sem danirnir
áttu lítið sem ekkert svar við.
Mörkin hlóðust upp og staðan
el’tir 10 mín. var 7:3 fyrir ís-
Ienzka liðið. Sigfús kom inn í
stað Björgvins og féll vel inn í
hraðan lcik Iiðsins — en þegar
Geir, fyrst, og síðan Ólafur Jóns
son og Gísli Blöndal fóru út af
— bá fór að halla undan fæti.
Eftir þessa glæsilegu byrjun er
ef tij vill enn óskiljanlegra hversu
langt niður liðið komst — leikur
þess í síðari hálfleiknum var meira
í ætt við leik 2. deildarliðs, en
okkar beztu leikmanna. Og ofan
á þetta bættist ein aumasta mark-
varzla, sem sést hefur hér í leik
— Ólafur Benediktsson stóð sig
rétt sæmilega upphafsminúturnar
en síðan hljóp allt f baklás hjá
honum — og markvarzla Guðjóns
Erlendsson mest allan síðari hálf-
leikinn var jafnve-1 ennþá verri.
Furðulegt, þar sem þessir ungu
piltar hafa átt glæsileiki að undan-
fömu með liðum sínum. Dönsku
leikmennirnir þunftu ekki annað en
hitta markið — þá var mark.
Eins og áöur segir var leikur
ísl. liðsins glæsilegur í byrjun —
samleikur Ólafs og Geirs þar há-
punkturinn — og ef þetta er það,
sem við megum eiga von á í vetur,
þá mun ekiki vanta áhorfendur í
Laugardölshö'Hina. Reynum að
gleyma því, sem á eftir kom —
það h-lýtur að vera einfaltfyrir hinn
ágæta iandsliðsþjálfara, Hilmar
Björnsson, að laga slíkt.
I fyrri hálfleik var staöan 11:9
fýrir íslenzka og fékk iiðið þó á
sig klaufalegt mark síða'st— þeg-
ar Tholstrup skoraöi beint úr
aukakasri eftár að leiktfma lauk.
Þrábt fyiTir slappan kafla eftir
hina góöu byrjun, var yfirieitt
þriggja marka munur þar til í lok-
in.
í býrjun síðari hálfleiks lék sama
lið,;—f>riema Guðjón var í markinu
— og leikiö haföi upphafsmínútur
leiksins. Og nú sýndi þaö l'ítiö sem
ekkert af þeim glæsilega leik. Dön
um tókst að jafna í 11:11, en enn
benti þó ekkert á það, sem koma
átti, þegar Gísli og Björgvin skor-
uöu tvö mörk. En þegar 17 min.
voru af leik tókst Dönum aftur að
jafna í 16:16. Leikurinn var jafn
það, sem eftir var — oftast jafn
eða íslenzka liðið marki yfir þar
tii rétt f lokin að KFUM tókst að
jafna og skora sigurmarkiö — Kaae
skoraði fjögur síðustu mörk þess.
Þrátt fyrir áfallið voru ýmsar
bjartar hliðar á leik íslenzka liðs-
ins — samvinna Ólafs og Geirs,
þrumuskot Gísla og oft sæmilegur
varnarleikur í fyrri hálfleik þar
sem Stefán, Gunnsteinn, Björgvin
og Sigfús komu nokkuð vel út. En
þv'i miður féllu ekki allir leik-
mennirnir inn í leik liðsins. Axel
Axelsson brást, því miður, og þessi
stórhættulegi skotmaður var tauga
óstyrkur í leiknum hverju sem um
er að kenna. Sama er einnig að
segia um Vilhiálm og Auðunn
hefur oftast leikið betur en að
þessu sinni. En alvarlegast er þó
kannski — þegar upphafsmínút-
urnar eru undanskildar — aö linu-
spil sást varla. Það kemur eirrnig
vel fram i' því hverjir skoruöu
mörkin Gísij 6, Geir 5 Ólafur 5,
Stefán 1, ViíhjáLmur 1 og Björg-
vin 1.
Við skukim ekkert draga af
danska liðinu — það sýndi smn
langbezta leik í heimsökninni og
það þótt Bjarni Jónsson væri ekki
með vegna meiösia, en í fyrri leikj-
um var hann bezti maöur liösins.
Kaae var nú afar hættulegur og
skoraöi átta mörk, Stenkjær 4,
Tholstrup 3, Weinreich og Sören-
sen 2 hvor pg Holst.i^..En þrátt
fyrir þennan sigur þeirra hef ég
ekki skipt um skoðun . — Það er
að mínu áliti ekki eins gobt hand-
knattleikslið eins og okkar beztu
lið, FH og Valur. Dómarar leiksins
voru Björn Kristjánsson og Karl
Jóhannsson og ágætir að venja.
Þeir eru nú tv’imælalalust bezta
dömarapar okkar. — hsím.
Jörgcn Tholstrup, danskur landsliðsmaður, fái hindraft hann.