Vísir - 10.01.1972, Blaðsíða 9

Vísir - 10.01.1972, Blaðsíða 9
VÍSIR . Mánudagur 10. janúar 1972. „Alltaf skrefí á eftir smyglurunum jqwS98 - •'V'7'>TV // „Enginn okkar hér í svokallaðri eiturlyfjadeild hefur fengið neina þjálfun í að annast þessi mál“. — „Með núverandi mannafla og tækjum erum við alltaf skrefi á eftir eiturlyfjasmyglurum". — „Eitur lyfjasmygl hefur farið vaxandi í haust og vetur og menn jafnvel gerðir út í innkaupaferðir til ann- arra landa. Okkur vantar mannafla og tæki til að hafa eftirlit með slíku“. — Hasshundurinn er ekki þjálfaður til að finna LSD eða örvunarlyf“. Vonlítil barátta við eiturlyfin. Ofansreindar tilvitnanir eru glefsur úr samtölum sem Visir hefur átt við þá aðila frá lög- r-eglu og todlgæzlu, sem hafa það hilutverk að fiska eiturlyfja smyglara og eiturlyfjaneytendur Samkvæmt þeim virðast þeir berjast vonlítilli baráttu við þann bölvaid sem virðist vera að ryðja sér braut hérlendis. „Til þess að ná árangri í þess ari baráttu er frumskilyrði að stofnuð verði sérstök deild sem artnast þessi mál. Eftir að það hefur verið gert er hægt að fá menn t. d. frá Scotland Yard eða FBI til að koma hingað og þjálfa mennina eða þá að þeir verði sendir til þjálfunar er- iendis um nokkurra mánaða skeiö,‘‘ sagði Kristján Péturs- son deildarstjóri tollgæzlunnar á Keflavíkurflugvelli. Kristján hefur um 4 ára skeið kynnt sér þess; mál og undanfarin 2y2 ár hefur hann unnið mikiö að þessum málum hérlendis. Hann vann ásamt nokkrum öðrum mönnum í samstarfsnóp um þessi mál sem síðan skilaði tillögum um úrbætur eftir að hafa kynnt sér eftir föngum á- standið í þessum málum hérlend is Ein megintillagan um úr- bætur er sú að stofnuð verði sérstök deild tii að fjalla um þessi mál og starfsmenn henn ar sérþjálfaðir. Skýrslunni var skilað I byrjun nóvember og átti Kristján síðan viðræður við ráðherra og þingmenn um nauðsyn á stofnun deiidarinnar. Tóku þeir aöilar vel í málið og sóttj hann fyrir hönd hóps- ins um 4,9 milljón króna fjár veitingu til þessa máls Umsókn in var afgreidd með 700 þúsund króna fjárveitingu í fjárlögum. Þá sagöi Kristján að aðrar til- lögur hefðu verið hundsaðar af dómsmálaráðuneytinu. Því hefði hann ákveðið að hætta afskipt um af þesstim málum utan starfs sviðs sins hjá tollgæzlunni. Núverapdi Js|and. / Eituriyfín berast einkum á fernan hátt inn í landið. Með flugfarþegum, í pósti, frá vam arliðsmönnum og með skipum. Til þess að sporna gegn eit urlyfjasmygli virðist það vera 4 menn og einn hundur sem eink um starfa við slikt Á Kefla vikurvellj er Kristján sá eini af tollvörðunum sem hefur kynnt sér þessi mál í Reykja vík starfa þrír menn, 2 lögreglu menn og einn tollvörður í svo- kallaðrj ,,eiturlyfjadeild“ lög- reglunnar. Þá er einn maður sem annast hasshundinn Einnig má bæta því við að samkvæmt upp Hér er Kristján Pétursson að vinna við greiningu á lyfjum. lýsingum rannsóknarlögreglunn ar er þar einn maður sem eink um er í eiturlyfjamálum, „en það er ákaflega Htið um svo- leiðis mál hjá okkur,“ var blaða manni Vfsis sagt. Af þessum fjórum „smyglrás um“ virðast þó aðeins tvær sem reynt er að fylgjast með eftir því sem hægt er. Það eru flug- farþegar og pósturinn. Eftirlit með vamarliðsmönnum er erfitt og samkvæmt upplýsingum Kristjáns Péturssonar hefur að- eins einu sinn; verið gerð sér- stök leit að fíknilyfjum um borð í millilandaskipi og fannst þá eitthvað magn á einum manni. Á pósthúsinu hefur hund urinn farið um þefandi og einn ig eru póstmenn og tollverðir vel á verði. Virðist nokkuð hafa dregið úr eiturlyfjasmygli í póstsendingum upp á síðkastið. „Við áWtum að aðrar leiðir en pósturinn séu stórtækari," sagði tollvörðurinn í eiturlyfjadeild lögreglunnar Og þá er að snúa sér að flugfarþegum. Sem fyrr segir er Kristján einj tollvörðurinn þar sem hefur kynnt sér eiturlyfjasmygl þótt aðrir tollverðir geri að sjálf- sögðu sitt bezta „En það þarf mikla þjálfun og kennslu til.að vinna'. þetta starf. Þóft ég h|afi farið, tyær kynnisferðj^ til j3t- landa og reynt að lesa mér til teft ir mætti tel ég mig langt frá þvl að vera útlærðan," sagði Krist ján „Ef við höfum grun um að með véi sem er að koma sé fólk með eiturlyf þarf að taka það strax úti í flugvélinni Ef fyrrnefnd deild værj starfandi með 4—-5 sérþjálfuðum mönn- um væri hægt að gera skyndi kannanir fyrirvaralaust áður en fólkið yfirgæfi vélina.“ — En getur ekki hasshundur inn komið þarna að góðu eagni? „Að vissu leyti getur hann þaö. En hann er bara þjálfaður til að leita að cannabisefnum og hráópíum Hann hefur ekki verið þjálfaður til að þefa uppi LSD eða örvunarlyf t d. prehi- din. Það mun þó vera hægt að þjálfa hann upp í þaö. Við höf um hér ófullkomin tæki til að framkvæma prófum á efnum og hef ég fengið þau gefins per sónuléga erlendis frá eða héðan af vellinum. Ef við höfum grun um að farþegar með eiturlyf hafi sloppið i gegn og til Reykjav’ík ur gerum við lögreglunni þar aðvart." Eiturlyfjadeildin. „Eiturlyfjadeild er of stórt orð. Samstarfshópur vær; 'étt- ara,“ sagði tollvörðurinn sem þar vinnur ásamt tveim lögreglu þjónum. ,.Við höfum ekkj feng ið neina fræðslu um eituriyf nema það sem Kristíán hefur sagt okkur og svo það sem við höfum ge^ð lesið okkur til um. Það er alltof iítið tekið á þess um málum. Smyglararnir eru alltaf skrefi á undan okkur og erum við hræddir um aö dálitið af LSD sé á markaði hér Frlk virðist frekar óttast hasshund- inn og auðvelt er að smygla LSD inii í ]andið.“ sagði toll- vörðurinn og nefndi nok.;u- dæmi því til sönnunar. Þeir hafa þama ófullkomið tæki tfl að gera frumrannsóknir sem síðan Reynt er aS fylgjast úlfeð mögulegum sendingum fíkni- lyfja í pósti. eru sendar Háskólanum til frek ari greiningar ef ástæða þykir til. Þar vantar tilfinnanlega tæki sem getur ákvarðað 5 skyndi hvort um eiturlyf cr að ræða eða ekki. „Okkur vantar þjálfun í að leita að og greina eiturlyf. Sérþjálfun er nauðsynleg í þessu starfi.“ Úrbætur á döfinni? Jón Thors hjá dómsmálaráðu neytinu gaf blaðinu þær upplýs ingar að meira fé en 700 þúsund færi í baráttuna við eiturlyfin. Ætlazt væri til að hinn almenni löggæzlukostnaður greiddi kostn að af þessari baráttu. Ekki lægju fyrir að svo stöddu áætl anir um sérþjálfum manna en ætlast væri til að tollverðir og lögregluþjónar önnuðust þessi störf. „Það þýði ekkert fyrir dóms málaráðherra að skrifa bréf til lögreglustjóra og sýslumanna landsins og biðja þá um að vera á verði gagnvart eiturlyfj um,“ sagði Kristján Pétursson. „Það eru ekki fyrir hendi neinir þjálfaðir menn til að rannsaka slík mál Þess vegna er nauð- synlegt aö deild sárhæfðramanna verði komið á fót og það *-ekur 1—2 ár að- þjálfa menn. Ráða- menn virðast ekkí koma auga á hættuna og það voru t. d. ýmis áhugamannafélög sem söfn uðu fyrir hasshundinum." Blaðinu tókst ekkj að ná tali af dómsmálaráðherra, en hins vegar sagði aðrmðarráðherra heilbrigðismálaráðherrans að þess; mál hecðu lítillega verið rædd í því ráðunevti. En alla vega virðist nokkuð vanta á að þessi má] hafi verið tekin nægi lega föstum tökum. —SG 9 — Hafið þér farið á sinfómutónÍÞ?-?^? Sigríður Guðmundsdóttir, rit- ari: — Já, en aðeins einu sinni Það var með skólanum sem ég fór Það gæti hugsazt, að ég færi aftur á slíka tón- leika, ef eitthvað áhugavert er á efnisskránni. En, sem sagt, áhuginn hefur enn ekkj vakn- að. Jóhann G. Jóhannsson, pop-tón- listarmaður: — Nei það hef ég ekki gert lengi Ég fór hins vegar á þá nokkra, sinfóníu tónleikana. á meðan ég var viö nám í Tónlistarskólanum. Það er öllu frekar af trassaskap en áhugaleysi, sem ég hef ekki skellt mér á sinfóníutón 1 eika eft ir að ég hætti í skólanum. Jón Arason, afgreiðslumaöur: — Ha ... Nei, sinfóníutón- leika hef ég aldrei farið á. Einu kynni mín af ^infóníu- flutning; á ég útvarp’inu að þakka. — Hvort ég lilustj sér- staklega eftir sinfóniuflutningi f útvarpi? Nei, maður bara heyr ir ávæning af þessu öðru hvoru. Það er alltaf kveikt á tækinu hjá mér. Mér er satt að segja, gjamara á að lækka niður í tækinu þegar það flytur sinfón íur. Hafsteinn Sörensen, sjómaöur: — Nei, aldrei. Ahuginn hefur ekki verið nægur. Ég tek að minnsta kosti æði margt frarn yfir sinfóníur Því er þó ekki að neita. að þær eru til nokkrar, sem maður leggur alltaf eyrun eftir ósjálfrátt ... Sigurður Skúlason, sjómaður: — Nei en það mætti vel segja mér, að slíkt gæti verið afar ánægjulegt. Ég er bara ulltaf á sjónum og hef aldrei fengið áhuga fyrir að eyöa tíma min- um í landj % sinfóníutónleika. Helga Bjarnadóttir, MR: — Já. Þaö var á sklóatónleika Ég man ekk; hvað var á efnis- skránni, man bara, að ég var ánægð með tónleikana EkkJ vaknaði þó hia mer nægiraguí áhugi til að ég færi á fleiri tónleika.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.