Vísir - 29.02.1972, Blaðsíða 1
vísm
62. árg. — Þriöjudagur 29. febrúar 1972 — SO.tbl.
DÖNSKUNNI FÓRNAÐ FYR-
IR SÆNSKU OG NORSKU?
Löngum hefur danska þótt óvinsæl námsgrein i skóium á islandi, af hverju sem þaö nú stafar.
„Hvers vegna megum viö ekki læra sænsku eöa norsku?” er oft spurt. Og nú er ekki loku fyrir þaö
skotiö aö nemendur i skólum hér fái valfreisi milli norsku og sænsku, — en danskan faiii niöur
sem skyldunámsgrein — SJA BLS 9.
, Verða
Islandsmeistarar
Fram ekki með?
Sjá iþróttir i opnu
þykist
illa svikinn
Sjá bls. 6
1E/G/R ÚT
IBUÐ srn
NANN Á
IKKtRT
Hann fœddist í morgun
— og á afmœli á fjögurra ára fresti
Hann viröist ekkert sérstak-
lega ánægöur meö þaö aö vera
kominn i heiminn þessi litli
piltur, sem viö sjáum hér meö
henni móöur sinni á fæöingar-
heimilinu I Reykjavík. En
hann hefur nú séö svo ósköp
litiö af honum enn, þvi hann er
rétt nýbúinn aö lita dagsins
Ijós. Hann er eitt af fyrstu
hlaupársbörnunum, sem
fæöast i ár, sprækur og
hraustlegur, tæpiega 15
merkur og 51. cm. á lengd.
Þetta er þriðja barn móöur-
innar, hennar Guöriöar
Hannibaisdóttur, og hún er
ósköp ánægö meö drenginn
sinn.
Aö sögn Huldu Jensdóttur,
forstööukonu Fæöingar-
hcimilisins, fæddist önnur
stúlka kl. 9 i morgun, og von
var á ööru á hverri stundu.
Ekki viröist fæöingum fækka,
þvi aö langtum fleiri börn
fæddust á árinu 1971 en á árinu
1970. —EA
Viötöl viö eldri Hlaupárs
„börn” Sjá bls 2.
en fólkiö á neðri hæöinni vildi ekki
leyfa neinn umgang”.
Þannig mun maöurinn, sem
hérum ræðir, hafa blekkt talsvert
marga, sem hafa undanfarna
mánuði leitað örvæntingarfullri
leit að samastað. Fólkið hefur
talið sig heppið aö fá góða ibúð
fyrir lágt verð, en 2500 krónur
voru settar upp fyrir mánuöinn.
Virðist maöurinn einkurn hafa
reynt að hafa samband við ung
pör, hrekklaus i málum sem
þessum, einnig einstæðar konur,
en forðaizt að hafa samband við
þá, sem vel þekkja til i húsaleigu-
málum.
En e.t.v. það furðulegasta við
allt saman er það að lögreglan i
Reykjavik hefur enn ekkert
fengið að vita um málið, fyrr en
nú að það kemur á prenti. Fólk
virðist semsé hálf-skammast sin
fyrir að hafa verið haft að fiflum.
Upphæðirnar hefur maðurinn lika
passað sig á að hafa lágar, þannig
að siður kæmi til kasta lögregl-
unnar.
— JBP-
Þessir kjóiar veröa meöal þeirra, sem sýndir veröa Ikvöid á sýningu kjólameistara. Þetta eru allt
módelkjóiar og hafa kjólameistarar lagtsig alla fram um aö hafa þá sem frumlegasta og glæsiiegasta.
Notar sér húsnœðisvandrœði manna til að svíkja
fé út úr fólki, en enginn hefur þó kœrt til
lögreglunnar enn
„Þiö fáið íbúðina 3. marz,
— en auðvitað væri gott að
fá eitthvað lítilræði fyrir-
fram", sagði maður einn,
sem þóttist vera að leigja
ungum. hjónum 2ja her-
bergja íbúð. Hann fékk
þúsund krónur, en aðrar
þúsund krónur nokkrum
dögum siðar, og loks 300
krónur. Þá sögðu ungu
hjónin stopp.
REYNT AÐ GERA ALLT SEM GLÆSILEGAST
Maður þessi virtist ekki hafa
haft annan starfa undanfarna 3
mánuöi en að leigja fólki i hús-
næðisvandræðum ibúð, sem hann
á ekkert i.
Maður nokkur vakti athygli
blaðsins á starfsemi manns
þessa, sem er maður um þritugt',
kemur vel fyrir, snyrtilegur og
vel til hafður. Höfðu ungu hjónin
fengið afnot af sima þess fyrr-
nefnda, ef vera kynni að einhver
vildi leigja þeim.
Svo var það kvöldið eftiraö aug
lýsing birtist, að dyrabjöllunni
var hringt. Utan dyra stóð maður
þessi og kvaðst hafa ibúöina
handa unga parinu. Smávægilega
fyrirframborgun þótti þeim fýsi-
leg, þar með væru þau búin að
festa sér Ibúöina, sem er inni i
Kleppsholti.
Þegar farið var að athuga
málið nánar, kom i ljós að fólkið,
sem bjó i ibúðinni, haföi vart flóa-
frið fyrir fólki, sem taldi sig hafa
tekið ibúðina á leigu. Einnig kom
i ljós að maðurinn hafði oft sýnt
fólki ibúð fööur sins á efri hæð
hússins, — „hún væri alveg eins,
— Viö rápum um alla Reyk-
javlk til aö finna þaö bezta, og
ef viö eigum eitthvaö I poka-
horninu, sem viö höfum rekizt
á I utanlandsferöum drögum
viö þaö fram. Sérlega gaman
er aö hafa eitthvaö, sem ekki
hefursézt hér I verzlunum og
reynt er aö gera alit sem
glæsilegast úr garöi, segir
Bergljót ólafsdóttir formaöur
Félags kjólameistara I morg-
un.
i kvöld er tizkusýning
félagsins aö Hótel Sögu. í
þetta sinn sýna 13 kjólameist-
arar, af um þaö bil 40 starf-
andi, 35 flfkur, mest siökjóla,
en einnig buxnadragtir og
sportfatnaö.
Bergljót sagði, aö hver ein-
asta flik, sem saumuö er fyrir
sýninguna sé saumuö á þá
sýningarstúlku, sem sýni þá
flik sem um ræöir. „Persónu-
lega finnst mér saumaskapur
sem þessi vera fremur sköp-
unarstarf. Þetta eru svokall-
aöar módelflikur, sem ekki
eru búnar til aö vinna eftir”.
Bergljót sagöi ennfremur aö
almenningur heföi sýnt þess-
um sýningum mikinn áhuga
og heföi þaö veriö lyftistöng
fyrir kjólameistara. Aöur
heföi fólk ekki gert sér grein
fyrir aö kjólasaumur væri iön-
grein. Kjólameistararlituá sig
sem stétt. Mikill áhugi sé fyrir
hendi hjá ungum stúlkum aö
læra kjólasaum sem fag, en
erfitt sé fyrir þær aö komast
aö hjá meisturum. Verknáms-
skóla i kjóiasaum þyrfti aö
koma upp og heföi þaö verið
baráttumál lengi vel, en geng-
iö erfiðiega aö fá þvi fram-
fylgt. Þó sé þróunin i þá átt og
allsstaðar vanti lært fólk i
þessari iöngrein.
— SB—
/