Vísir - 29.02.1972, Qupperneq 2
2
Vísir. Þriðjudagur 29. febrúar 1972.
vimsm:
Hafið þér farið i leikhús
nýlega?
Vtibarg Kjerull’, skrifstofustúlka.
Nei, ég hef ekkert farið nýlega og
ekki mikið gert að þvi að fara i
leikhús i vetur, en ég fór mjög oft
i fýrravetur. En ég þarf nú endi-
lega að skella mér á Spanskflug-
una.
Sigurður Bergsson. Nei, ég hef
aldrei á ævinni farið i leikhús.
Ahuginn er vissulega fyrir hendi,
en það er bara efnahagurinn, sem
ekki er nógu góður. Ég hefði
ekkert á móti þvi að drifa mig, en
ég veit ekki, hvað ég vildi helzt
sjá, ég hef svo litið kynnt mér
þetta.
Sigurjóna Jóhannesdóttir, fóstru-
nemi. Nei, ég hef ekki farið
nýlega og geri mjög litið að þvi að
fara i leikhús, annars hef ég
ekkert á móti þvi að fara, ég sá
t.d. Skugga-Svein úti á landi, og
hafði gaman af. Mér likar lika
bezt það islenzka.
Inga llöskuldsdóttir, Hiiðaskóla.
Ja, ég veit nú ekki hvað ég á að
segja um það, ég sá siðast Hárið,
áður en Glaumbær brann, og hef
ekki farið siðan. En ég fer að sjá
Nýarsnótt á miövikudag með
skólanum. Ég hef reglulega gama-
af að fara i leikhús, og langar að
sjá óþelló.
Vilhjálmur Sveinsson, inn-
heimtumaður. Nei, ekki hef ég
nú farið i leikhús nýlega, en ég hef
samt mjög gaman af þvi, Ég fór
oft hérna áður fyrr, en það hefur
dregizt eitthvað núna hjá mér.
Karl Einarsson, húsvörður. Ekki
nýlega, nei, en ég sá fyrir stuttu i
Félagsheimili Arness i Gnúp-
verjahreppi leikina Systir Maria
og Frænka Charles og likaði það
mjög vel. Annars geri ég mikið að
þvi að fara i leikhús og langar að
sjá Skugga-Svein, og þá sérstak-
lega Gisla Halldórsson og Grasa-
Guddu. Annars er minn upp
áhaldsleikari Arni Tryggvason.
Bara spennandi að eiga
afmæli fjórða hvert ár
— raett við nokkur afmælisbörn hiaupórsdagsins, sem er i dag
Það er hlaupár i ár, og
loks fá hlaupársbörnin
tækifæri til þess að fagna
aldrinum á sínum raun-
verulega afmælisdegi,
eins og við hin fögnum á
sama degi hvert ár.
t tilefni af hlaupárinu náðum
við tali af nokkrum, sem fædd
ust 29. febrúar og spurðum þá
hvernig það væri eiginlega að
eiga aðeins afmæli á 4 ára
fresti.
,,Hvenær heldurðu upp á af-
mælið?”
,,Ég hef alltaf haldið upp á það
annan hvorn daginn, þ.e.a.s. 28.
feb. eða 1. marz, og það hefur
verið gert frá þvi ég var litil, og
mér fannst það heldur ekkert
verra þá.”
,,Og nú ert þú að verða 20 ára?”
,,Já, nú er ég að verða 20 ára,
eöa með réttu aðeins 5 ára!”
Elin Asta Iiallgrimsson, er
einnig árgangur ’52, og hún
stundar nám i Kennaraháskóla
Islands.
„Finnst þér slæmt að eiga af-
mæli á 4 ára fresti?”
,,Nei, það finnst mér sannarlega
ekki, mér finnst þetta einmitt
voðalega spennandi, og einmitt
af þvi að afmælið manns er
svona sjaldan, þá gerir maður
meira til þess að hafa það hátið-
legt svona á 4 ára fresti. Ég held
að við reynum að gera daginn
eftirminnilegri heldur en t.d.
þeir sem fá tækifæri til að halda
upp á það á hverju ári.”
„Hvernig var þetta þegar þú
varst barn?”
„Ja, þá var þetta dálítið verra,
þá var mér stritt á þvi að eiga
ekkert afmæli og þar fram eftir
götunum, en þá var haldið upp á
afmælið 28. feb. eða 1. marz. En
ég held að þetta verði enn betra
eftir þvi sem maður eldist!”
Klemens Jónsson, leikari og
biaðafulltrúi Þjóðleikhússins
þarf ekki að kvarta yfir verk-
efnaskorti. Það var með naum-
indum að við náðum i hann i
æfingastúdiói Sjónvarpsins i
gærkvöldi. „Jú, ég verð jafn-
gamall og spilin eru mörg, — og
reiknaðu nú!” Klemens er
annars bundinn flest kvöld eins
og leikararnir i leikhúsum
Reykjavikur eru yfirleitt. Eitt
kvöld i viku geta þeir slappað af
örugglega, leikararnir, á mánu-
dagskvöldum, þ.e.a.s. ef
grimmu leikstjórarnir boða
ekki æfingu.
„Það væri til bóta ef þessa fáu
afmælisdaga manns bæri upp á
mánudaga, þá væri hægt að
halda svolitið upp á þetta.
Annars verð ég nú að segja aðég
er hálfvegis feginn að njóta
þessara forréttinda að eiga
svona fáa afmælisdaga,” trúði
Klemens okkur fyrir að lokum.
—EA—
Kristin Þórðardóttir
Edda Asgeirsdóttir
Edda Asgeirsdóttir, heitir ein
stúlkan og hún stundar nám i
Menntaskólanum v/Lækjargötu
og verður stúdent i vor. Edda er
árgangur '52.
„Segðu mér Edda, hvernig er að
eiga afmæli svona sjaldan?”
„Ja, ég finn nú ósköp litið fyrir
þessu þannig, en mér finnst
þetta samt reglulega spennandi.
Ég veit að sumum finnst það
ósköp súrt i broti að fá ekki að
halda upp á sitt afmæli eins og
allir eða flestir á hverju ári, en
mér finnst þetta reglulega
skemmtilegt og dálitið sérstakt.
Elin Asta Haligrimsson
Kristin Þórðardóttir, fæddist
árið 1948 og hún er húsmóðir.
Kristín verður þvi 24 ára i dag.
„Ert þú ánægð með afmælis-
daginn þinn Kristin?”
„Nei, það get ég ekki sagt. Mér
finnst það anzi slæmt að minn
dagur er ekki merktur inn á
almanakið á hverju ári, eins og
allir aðrir dagar, en það þýðir
vist litið að fást um það. Svo
missum við af öllum stóraf-
mælum, t.d. 30 ára og 50 ára og
þar fram eftir götunum.
„Fannst þér þetta slæmt sem
barn?”
„Já, eiginlega fannst mér það,
mér fannst alltaf vanta eitt-
hvað, en við héldum upp á af-
mælið sitthvorn daginn við, eða
28. feb. og 1. marz til skiptis. En
ég er nú á þvi að eftir þvi sem
árin færast yfir mann þá lagist
þetta allt saman.
Klemens Jónsson
Óvenju lítill klaki í jörðu
klaki mánuði fyrr - vorflóð verða minni vegir verða f ærir og kannski gætir
þurrka seinnipart sumars ef sumar verður þurrt
Óvenju litill kiaki er nú i jörðu.
Það mun hafa þau áhrif að leys-
ingaflóö verða minni og að vegir
muni koma fljótt upp i vor,
jafnvcl mánuði fyrr en venjulega
á hálendinu. Ef sumariö verður
þunr má búast viö þvi að þurrka
gæti i jarðvegi á lægstu stöðum
landsins, þegar liða tekur á sum-
arið.
Sigurjón Rist vatnamælinga-
maður veitti Visi þessar upp-
lýsingar.
Hann sagði, að klaki væri alveg
sérstaklega litill núna. „Það er
enginn klaki i jörð á stórum
svæðum á láglendinu, og i þau
skipti, sem hefur komið frost,
hefursnjóhula legiðyfir og dregið
úr áhrifum þess, Þetta hefur haft
þau áhrif, að leysingavatnið fer
rakleitt niður i jörðina, sem
þýðir, að vorflóð verða minni, og
hefur það þegar komið greinilega
fram við Elliðaárnar, að þar hafa
ekki orðið flóð i vetur, Það hefur
einnig i för með sér, að vegir eiga
að koma mjög fljótt upp i vor. Ar
á hálendinu fá leysingavatnið
niður og verður ekki mikið vatn i
þeim allt sumarið,
A láglendinu þar sem er mjög
litill snjór, t.d. á lægstu stöð-
unum, Reykjavik og Dalasýslu,
getur það merkt, að það verði
mjög litið vatn i jarðveginum
seinni part sumars ef sumarið
verður þurrt.”
Sigurjón sagði, að frostlaust
væri upp i 100-200 metra hæð.
Búast megi við þvi, að klaki fari
úr jörðu á láglendi i april og
mánuði fyrr en venjulega á
hálendinu i júnibyrjun i stað júli-
byrjunar. „Annars er það mai
mánuður, sem er alltaf afgerandi
i þessum efnum og hvort snjó
leysi fljótt. En núna litur mjög vel
út með þetta og klaki ætti að vera
farinn mánuði fyrr úr jörðu en
vant er.”
—SB—