Vísir - 29.02.1972, Síða 12
12
Vlsir. Þriöjudagur 29. febrúar 1972.
KAUPMANNA-
HAFNARBOAR
hafa nú oröið varir feröa
fyrsta puttaferöalangsins
þar i borg á þessu ári. Sá
kveöst' heita Bongoes, og um
leið og hann skellti niður bak
pokanum sinum ú Ráöhústorgið
lét hann þess getið, aö hann væri
frá Brighton i Englandi, og heföi
i hyggju, að feröast á þumli
sinum umhverfis jöröina, svo
honum væri eins gott aö hafa
timann fyrir sér. „Þegar þið
opniö TIvoliiö ykkar verð ég aö
öllum likindum kominn langa
vegu héöan, ” sagöi hann án
þess aö blikna.
ÞAÐ FÓR HELDUR
ILLA FYRIR
Fjórum IRA-sprengju
mönnum sl. föstudag. Bifreið
þeirra sprakk i loft upp er þeir
voru aö aka 11 kilóum sprengju-
efnis þangaö sem það skyldi
brúkaö öörum til meins. Bifreiö
fjórmenninganna tættist i
sundur og dreiföist i 60 metra
radius.
FIKNILYFJALÖGREGLA
sænskra og italskra hefur nú
tekið höndum saman i stríöinu
viö fiknilyfjasmyglara. Asbjörn
Asbjörnsson, yfirmaöur rann-
sóknarlögreglunnar I 'Stokk-
hólmi hefur upplýst aö smygl
eriiö hafi aldrei veriö umsvifa-
meira og erfiöara aö kveöa þaö i
kútinn og einmitt nú. Smyglar-
arnir svifast einskis, þar eð þejr
hafa tök á aö selja amfetamin
fyrir eitt til tvö þúsund sinnum
hærra verö I Sviþjóö en þeir
kaupa þaö á i Itallu.
JESÚM SOPER-
STJÖRNU
var verið aö frumsýna
i Gautaborg fyrir fáeinum
dögum. Þaö lá raunar við, að
frumsýningin færi i hundana, en
svo fór þó sem betur fer ekki.
Þannig var mál meö vexti, að
aðstandendur sýningarinnar
höföu látiö undir höfuö leggjast
að hlýöa á kauphækkunarbeiðni
þess er fór meö hlutverk
Krists i óperunni.
Leikaranum leiddist þófið og er
aöeins fáeinar minútur voru til
frumsýningar og ekkert haföi
miöaö i samkomulagsátt,
snaraði hann sér úr hvita kirtl-
inum sinum og arkaði út úr leik-
húsinu. Þá var þaö fyrst, aö
leikhúsmennirnir tóku mark á
honum, og áður en leikaranum
— Peter Wisnes — haföi tekizt
aö starta bifreiö sinni og aka á
brott, höfðu þeir hlaupið hann
uppi og lofað honum einhverri
kauphækkun, Hvort sem Kristi
hefur þótt þeir hafa boðið nógu
vel eöa ekki, lét hann segjast og
Peter Winsnes som Jesus.
söng fullum hálsi á frumsýn-
ingunni.
Fyrirsjánanlegt var, að á
aöeins niu dögum myndi pop-
óperan mala inn kvart milljarö
islenzkra króna. „Ykkur munar
þvi ekkert um aö borga okkur
leikurum viðunandi laun, ”
hafði Peter þrumaö yfir hausa-
mótunum á leikhússtjórninni.
Peter hafði i uppfærslu óper-
unnar i Kaupmannahöfn haft
hlutverk Krists meö höndum
tvisvar i viku og að allra dómi
spjaraö sig vel i þvi.
14 ÁRA GAMALL,
enskur drengur hefur eytt
siðustu sex mánuöum i rökum
og köldum fangelsisklefa i tyrk-
nesku fangelsi. Hann er
ákæröur fyrir hashsmygl og má
eiga von á að verða dæmdur til
allt að tiu ára fangelsisvistar.
Drengurinn, sem heitir Timothy
Davey, er niðurbrotinn orðinn
sem vonlegt er, en enn þarf
hann aö biöa i allt að þrjá
mánuði til viðbótar eftir aö
dómur i máli hans verði kveöinn
upp. Móðir drengsins heldur til
i Istanbul og berst fyrir þvi, að
fá drenginn látinn lausann. Það
eina, sem Timothy fæst til að
gera við tima sinn i fangelsinu,
er að hamra á trommur við
gítarundirspil klefafélaga sins.
I BRASELÍU
var maður einn handtekinn um
siðustu helgi i þann mund er
hann var aö labba sig inn i kvik-
myndasýningasal i Belem.
Hann hafði nefnilega vafða um
fótlegg sér kyrkislöngu eina
mikla, sem hann hugöist lofa aö
kikja á biómyndina með sér.
Lögreglan upplýsir, að maö-
urinn hafi verið handtekinn
sökum þess, að hann var að
brjóta tvöfalt af sér. „t fyrsta
lagi er bannaö aö hafa með sér
dýr i kvikmyndasali, og i öðru
lagi haföi slangan ekki náö til-
skildum aldri, en myndin, sem
verið var að sýna i kvikmynda-
húsinu, var bönnuö innan 16.”
NIXON FORSETI
gat ekki þegið boð grinistans
Jackie Gleason að vera i af-
mælisboöi hans þá er hann hélt
upp á 56. afmælisdag sl.
miövikudag. Forsetinn var „i
önnum ” erlendis. Hann lét þó
ekki undir höfuö leggjast að
senda afmælisbarninu gjöf i til-
efni afmælisins. Hann sendi
honum griðarmikiö golf-kylfu-
sett i „hjólbörum”, sem bera
innsigli forsetans.
Þessi vingjarnlegi bangsi var nærri þvl aö valda póiitlsku strlöi I
Vestur-Þýzkalandi fyrir skömmu. Húsbóndi hans var vanur aö taka
bangsa meö sér I gönguferöir i heimaborg þeirra félaga sem er Bonn.
Litu þeir gjarnan inn á krá i ieiöinni og fékk bangsi hunang en hús-
bóndinn vænan bjór.
En lögreglan I borginni fékk þá flúgu i höfuöiö aö heimili bangsa væri
alltof ótryggt fyrir sllka risaskepnu og læs.ti kauöa bak viö grindur.
Eftir aö þingiö og forseti höföu fjaliaö um máliö og rifizt um skeiö var
bangsa leyft aö halda sinu gamla húsnæöi og rölta um bæinn meö
sinum 69 ára gamla húsbónda, sem er fyrrverandi listamaöur.
f fUiM
Kf 1ÍAN 1
MIKL A&HAUT
VIVEX
VIVEX
er stórglæsilegt sófasett
fæst með ótal áklæðum
Greiðsluskilmálar hvergi betri. 600 fermetrar þaktir húsgögnum