Vísir - 29.02.1972, Side 13
Vísir. Þriðjudagur 29. febrúar 1972.
13
wbM^IsSsjí
■nnmMMMiiinRH!
ÞAU EIGA
MÖGULEIKA
A OCARI
Þann 10. apríl næst-
komandi verða Oscars-
verðlaunin afhent í Los
Angeles. Hér á eftir
fylgir listi yfir þá er
taldir eru eiga mögu-
leika á að næla sér i
Oscarinn, sem veittur
er fyrir beztan kvik-
myndaleik á árinu:
Julie Christie i McCabe &
Mrs. Miller.
Glenda Jackson i Sunnudag-
ur Satans.
Vanessa Redgrave i Maria
Drottning Skotlands.
Janet Suzman i Zar Nicholaj
og Alexandra.
Peter Finch i Sunnudagur
Satans.
Gene Hackman i The French
Connection.
Walter Matthau i Kotch.
George C. Scott i Sjúkrahús-
ið.
Topol i Fiölaranum á þakinu.
BENEDIKTA
prinsessa og Richard prins
hata, m.a. sökum fráfalls Frið-
riks konungs, tilkynnt einka-
heimsókn sina til Grænlands.
Heimsóknin hefur verið ákveðin
öðru hvoru megin við 1. ágúst.
JANE BIRKIN
söngkonan, sem varð fræg fyrir
stunur sinar i laginu ,,Je t*
aime”, hefur nú tekið til við að
leika i sinni annari mynd.
Myndatakan fer fram i Róm, en
ameriskir standa að gerð
myndarinnar, sem þeir hafa
valið heitið,,Jane”.
URSULAANDRESS
væntir sin. Hún hefur afþakkað
meiriháttar kvikmyndatilboð
sökum þess, að hún er ófrisk.
Faðirinn er Jean Paul Belmondo.
Tiðindin bar franska útvarpið
hlustendum sinum fyrir nokkrum
dögum.
JULIE EGE
keypti nýverið hús á eyju I
norskum firði og gaf það foreldr-
um sinum. Julie Ege? — Jú, það
er einmitt sú, er brezk blöð
prýddu siður sinar oftast með á
siðasta ári.
ELÍSABET
DROTTNING
ber ekki á sér peninga nema einu
sinni i viku: Það er á sunnudög-
um, er hún fer i kirkju. Aö þvi er
fyrrum hirðmey hennar hefur
upplýst hefur drottningin þá með
sér einn pundsseðil til að pota i
samskotabauk kirkjunnar.
PETER USTINOV
kvikmyndaleikarinn sá, hefur
tekið að sér gestgjafahlutverkið
i nýrri sjónvarpsmyndaseriu,
sem ber heitið „Evrópa á tutt
■ugustu öldinni”. Það eru
sjónvarpsstöðvarnar BBC og
Suddeutscher Rundfunk, sem i
sameiningu standa að gerð
þessa myndaflokks.
Fannst myrt
í baðkari
Hið velþekkta, þýzka
ljósmyndamódel, Monika-
Edith, 20 ára gömul frá
Döhring fannst myrt i baðkeri
lúxusibúðar sinnar i Bonn
fyrir fáeinum dögum.
Það var unnusti hennar, sem
kom þar að henni fyrstur
manna. Monika var aðeins i
gegnsærri blússu og bikini-
buxum einum klæða. Hafði
hún verið kyrkt með hvitri
blússu.
Monika hafði, að þvi bezt er
vitað, einungis umgeng'izt
heiðvirt fólk.
Við leit i ibúð hennar fann
lögreglan þrjár minnisbækur,
sem höfðu inni að halda
heimilisföng stjórnmála-
manna og verzlunarmanna.
Telur lögreglan fullvist, að
Monika hafi þekkt morðingja
sinn.
Þessi 20 ára gamla
ljósmyndafyrirsæta skildieftir
sig 14 mánaða gamla dóttur að
nafni Nicole.
SVETLANA YFIRGEFUR
4. EIGINMANN SINN
Frá Arizona berast þær
fréttir, að ameriski arkitekt-
| ■
liisi
-
Svetlana Stalin — hefur
yfirgefið fjórða eiginmann
sinn.
inn William Wesley Peters
hafi gert það heyrinkunnugt,
að eiginkona hans, hún
Svetlana — dóttir Jóseps heit-
ins Stalins — hafi yfirgefið
hann og haft á brott með sér 10
mánaða gamla dóttur þeirra
hjóna.
Hinn 59 ára gamli Pétur og
Svetlana, sem náði 46 ára
aldri i gærdag, voru gefin
saman i hjónaband fyrir 22
mánuðum siðan.
Þetta var annað hjónaband
Péturs, en það fjórða i röðinni
hjá Svetlönu. Tvö fyrstu
hjónabönd Svetlönu enduðu
með skilnuðum, en þriðji
eiginmaður hennar, hinn ind-
verski fursti Brijesh Singh lézt
i nóvembermánuði ársins
1966.
Pétur sem er barnabarn
hins látna, ameriska arkitekt
Lloyd Wright, tilkynnti skip-
brot hjúskaparins á blaða-
mannafundi i Paradise
Valley i Arizona
Fyrri eiginkona Péturs, sem
einnig hét Svetlana, lézt i
bilslysi ásamt tveggja ára
gömlum syni sinum árið 1946.
Rauða myndin
af Einari
Sjómaður hringdi:
„Það var gott hjá hljóðvarpinu
að leika svona á stjórnina, þegar
tilkynnt var um uppsögn land-
helgissamninganna. Ég sá þessa
frétt i Timanum á föstudag ásamt
litmynd af utanrikisráðherra,
sem einn af ritstjórum blaðsins
hafði tekið morguninn áður,
þegar Einar ætlaði að fara að af-
henda sendiherrum Breta og
Þjóðverja tilkynningarnar.
Engar myndir sá ég i Mogganum
eða Þjóðviljanum af þessum at-
burði. En i Visi á föstudag er upp-
lýst, að hljóðvarpið hefði sagt frá
uppsögninni i tiufréttunum á
fimmtudagskvöld og þá sam-
kvæmt fréttaskeyti frá Noregi.
Stjórnin hefur þannig ætlað aö
liggja á þessari frétt i heilan dag,
svo hún gæti fyrst komið i dag
blöðunum og Timinn þá slegiö
önnur blöð út með litmyndinni
rauðu af Einari. Þvi ég geri ráð
fyrir að önnur blöð hefðu einnig
birt mynd af athöfninni, ef þeim
hefði verið tilkynnt um hana
fyrirfram eins og Timanum. En
að ætla sér að liggja á þessari
stórfrétt i sólarhring er meira en
minn smávaxni heili getur skiliö.
Það á ekki að vera með neitt puk-
ur i þessu máli. En svo vil ég
þakka honum Lúðvik fyrir að
styðja skuttogarakaupin svona
vel. Kaup á nýjum togurum eru
búin að dragast alltof lengi, og ég
held að við ættum aö kaupa fleiri
en nú er talað um. Allt upp i 50,
eða einn fyrir hverja milu i nýju
landhelginni.”
Opna útvarpið
meira
Kennari skrifar:
„Nú er nýtt útvarpsráð tekið til
starfa og verður það vonandi til
þess að útvarpið verður opnara
fyrir umræðum um ýmis
mál, sem hæst ber i þjóðfélaginu,
ef marka má ummæli hins ný-
kjörna formanns. Hin margum-
talaða hlutleysisstefna útvarps-
ins er gengin sér til húðar i núver-
andi mynd. Það er þar, og á ég þá
bæði við hljóðvarp og sjónvarp,
sem almenningur á að fá betri
yfirsýn yfir mál, sem varða þjóð-
ina alla. Að sjálfsögðu koma sum
mál illa við kaun stjórnmála-
flokka og alls kyns klikna, sem
vaða uppi i landinu, en að banna
umræður um það vegna mis
skildrar hlutleysistefnu, er óaf-
sakanlegt.
Rikisútvarpið hefur á að skipa
góðum dagskrármönnum eins og
Páli Heiðari, Jökli Jakobssyni,
Arna Gunnarssyni, Eiði Guðna-
syni og Magnúsi Bjarnfreðssyni.
Þessir menn hafa allir sýnt, að
hægt er að draga ýmislegt fram i
dagsljósið, sem miður fer i þjóö-
félaginu, án þess að brjóta
nokkrar hlutleysisreglur. Nægir
þar að nefna t.d. áfengismála-
þætti Páls Heiðars,þátt Jökuls frá
Kleppi, eiturlyfjaþátt Arna og
marga góða sjónvarpsþætti, þar
sem menn hafa setið fyrir svör-
um. Það þarf að halda áfram á
þessari braut, og treysti ég út-
varpsráði! til að svo megi verða,
þvi i ráðinu sitja hinir mætustu
menn.
Hitt er svo annað mál, að ég álit
það ekki i verkahring útvarps-
ráðsmanna sjálfra að annast
þætti i Rikisútvarpinu eins og
lengi hefur tiðkazt og gerir enn.
Þeir eiga aö sjálfsögöu að hafa
hönd i bagga með dagskránni, en
að þessir æðstu menn stofnunar-
innar fáist sjálfir við dagskrár-
gerð finnst mér ekki viðeigandi,
hvorki gagnvart starfsliði stofn-
unarinnar eða þjóðinni i heild. Á
þetta sjónarmið hljóta þessir á-
gætu menn að geta fallizt án þess
að ég ræði það frekar nú.”
Hingað og
ekki lengra
Heimilisfaðir skrifar:
„Ætla mætti að ekki væri allt
með felldu varðandi innheimtu
Rikisútvarpsins á afnotagjöldum.
A siðasta ári fékk ég eins og aðrir
senda rukkun um fyrrihluta-
greiðslu á afnnotagjaldi útvarps
og sjónvarps. Af einhverjum or-
sökum, sennilega gleymsku,
dróst að ég greiddi þetta gjald. í
lok ágústmánaðar var svo komið-
heim til min og gjaldið innheimt
og var ekkert við þvi að segja. t
nóvember ákvað ég svo að borga
seinnihlutann. Þegar ég kom á
pósthúsið tók ég eftir þvi, að ég
var með spjaldið fyrir fyrrihlut
ann með mér. Ég áleit að það
kæmi i sama stað niður og fram
visaði þvi um leið og ég greiddi.
En svo stuttu seinna kom svo
maður frá Rikisútvarpinu til þess
að rukk/amig um seinnihlutann.
Virtist þá sú greiðsla, sem ég
sendi i gegnum póstinn ekki hafa
fundizt. Þá sagði ég stopp. Að
sjálfsögðu sýndi ég kvittanir fyrir
greiðslunni, og málið var þar með
úr sögunni. En ég veit að þetta er
ekkert einsdæmi, að verið sé að
margrukka fólk um afnotagjöld-
in. Hlýtur það að vera ódýrara
fyrir stofnunina að hafa bók-
haldið f lagi, en að hafa fjölda
rukkara við að innheimta gjöld,
sem búið er að greiða.”
Eins og
Hannibal sagði
K.K. skrifar:
„Ég sé að einhver T.V. er aö
reyna vekja upp gamla drauga i
lesendabréfi Vfsis nýlega, þar
sem hann ræðst á Keflavikur-
sjónvarpiö. 1 þvi sambandi leyfi
ég mér að vitna i orð Hannibals
Valdimarssonar sem hann við-
hafði við heimkomuna frá Banda-
rikjunum fyrir stuttu, þar sem
hann segir: „Heim kominn sé ég,
að nokkrir strútar hafa leikið
listir sinar á siðum Þjóðviljans,
meðan ég var i burtu og komu
þær kúnstir mér sizt á óvart”.
Nú sé ég að einn strútur hefur
villzt inn i Visi með skrif á móti
ameriska sjónvarpinu. Veit ekki
þessi maður, að kvikmyndir frá
Bandarikjunum hafa verið
sýndar um allt Island frá þvi að
kvikmyndasýningar hófust hér?
Allir vita að Bandarikin eru
fremsta Þjóð veraldar á tækni-
sviöum eins og svo margar upp-
finningar þeirra sýna. Við erum i
NATO vegna aösteðjandi og
sivaxandi hættu frá óvinveittum
þjóðum og veitir okkur af vernd
Bandarikjanna,
Um þá menn sem vilja ófrægja
okkar beztu vinaþjóð segi ég eins
og Hannibal: „Um þá fugla fer ég
ekki fleiri orðum”."
Svar er ókomið
Amma hringdi:
„Ég hef af miklum áhuga fylgzt
með skrifum Visis um störf
Barnaverndarnefndar Reyk-
javikur og ég veit að þau hafa
vakið mikla athygli. Ekki get ég
dæmt um þessi skrif frá eigin
reynslu, þvi ég hef ekki þurft að
leita til þessarar nefndar. En ég
þekki fólk sem hefur þurft þess og
lætur þaö misvel af.
Fyrir nokkrum dögum birtust
nokkrar áleitnar spurningar til
nefndarinnar og Félagsmála-
fulltrúa i lesendadálkum Visis.
Siðan hef ég alltaf veriö að leita
að svari frá þessum mönnum, en
þeir virðast ætla sér að þegja
þunnu hljóði. Mér finnst sú af-
staða benda til þess að þarna sé
óhreint mjöl i pokahorninu og vil
þvi skora á þessa aðila aö svara”.
HRINGIÐ í
SÍMA1-16-60
KL13-15