Vísir - 08.03.1972, Blaðsíða 1
vísm
62. árg. — Miðvikudagur 8. marz 1972 — 57. tbl.
KJÓSA FREKAR BREIÐHOLT
EN SÖGUFRÆG PRESTAKÖLL
Sjá baksíðu
- 920 milljón kr. skaðabótamálið á SÍS tekur alvarlega stefnu
SÍS svarar til saka
920 milljón kr.
skaðabótamálið, sem Mrs.
Paul's Kitchen í Banda
ríkjunum höfðaði á SIS
og dótturfyrirtæki þess,
lceland Products, hefurnú
tekið alvarlega stefnu.
Héraðsdómstóll í Cum-
berlard County hefur úr
skurðað, að bandarískir
dómsstólar hafi lögsögu
yfir SIS, erlendu fyrirtæki,
i þessu máli. Dómur þess
efnis féll 28. febrúar.
Lögfræðingar SIS hafa
áfrýjað dómnum til ríkis
dómstóls í Fíladelfíu.
Erfitt er fyrir okkur að henda
reiður á bandarisk lög, en þetta
virðist þýða, að alvarlegasta
ákæran á hendur SIS og Iceland
Products um brot á hringa
myndunarlögunum bandarisku
verði tekið til greina.
Mál þetta var höfðað vegna
þess, að Mrs.Paul’s Kitchen, sem
er einn stærsti kaupandi blokk-
fisks I Bandarikjunum taldi SIS
og Iceland Products ekki standa
við samninga og telur fyrirtækið
sig hafa orðið fyrir miklum
skakkaföllum,þegarþað fékk ekki
afgreiddar um 10 milljónir punda
af blokkfiski.
Málið var stefnt fyrir tveimur
Hómsstólum. Fvrst fvrir héraðs-
dómstólnum I Cumberland
County, rétt utan við Harrisburg,
þar sem Iceland Products hefur
aðsetur. Það er aðeins venjulegt
skaðabótamál á ferðinni og
nemur bótakrafan 1.856.000 dala.
Hinsvegar hefur verið höfðað mál
fyrir alríkisdómstólnum i Fila
delfiú. þar sem SIS og Iceland
Products er stefnt fyrir brot á
hringamyndasögunum, sem
eru mjög ströng.
Skaðabótakrafan hefði þar verið
hækkuð upp i 2.860.000 dala, en
allar skaðabótakröfur, sem
snerta hringamyndunarlögin eru
af sjálfu sér margfaldaðar meö
þremur.
Málið fyrir alrikisdómstólnum
hefur legið niðri meðan beðið er
úrskurðar þess efnis, hvort
bandariskir dómstólar hafi
lögsögu yfir SIS I þessu máli. Það
skiptir þvi höfuðmáli fyrir SIS og
fá úrskurði heraðsdómstólsins
hnekkt fyrir rikisdómstólnum I
Filadelfíu til að losna undan
í USA
ákærum um brot á hringa
myndunarlögunum. Dómstóllinn
þarf ekki að taka nema brot af
skaðabótakröfunum til greina til
þess að SIS fái slikt högg, sem
lengi gæti sviðið undan og sem
einnig mundi finnast i islenzku
atvinnulifi almennt.
Þess má geta að dómar kveðnir
upp i Bandarikjunúm eru ekki
aðfararhæfir hér á landi, þ.e. að
ekki væri unnt að ganga að
eignum SIS hér, ef dómurinn
verður þvi óhagstæður. Hins
vegar gæti Mrs Paul’s Kitchen,
gert hvorutveggja að höfða nýtt
mál hér á landi og ganga að
eignarhluta SIS i Iceland
Products i Pennsylvaniu og gæti
þar með eyðilagt það upp-
byggingarstarf, sem SIS hefur
unnið þar. Slik svartsýni mun þó
varla réttlætanleg ennþá. —VJ
SKIPSFLÖKIN LÁTIN HVERFA
„Það verður ábyggilega
gengizt í þvi á næstu dögum að
fjariægja skipsflökin tvö I
Kleppsvikinni og eins Leo gamla I
Vátnagörðunum,” sagði annar
öryggisvarða borgarinnar i við-
tali við VIsi I morgun, en svo sem
kunnugt er af fréttum slasaðist 7
ára drengur I fyrradag er hann
féll niður um lestarlúgu eins
skipsfiaksins.
Kvartanir kvað öryggisvörð-
urinn engar hafa borizt út af
skipsflökum þessum i sin eyru, en
hann hefði farið i gær og litið á
flöcin og komizt að raun um að öll
væru þau óbyrgö og byöu þannig
hættunni heim.
,,Ég hef þegar haft samband
við eiganda Leós og fræddi hann
mig á þvi, að hann hefði tvivegis
byrgt skipið, en þau verk hans
voru óðar en varði brotin upp og
eyðilögð,” sagði öryggis-
vörðurinn. Hann hefur ekki enn
komizt i samband við eigendur
hinna skipsflakanna.
Skipsflök liggja einnig fyrir
neðan Keili, en þau eru betur
byrgð og eru lika nær mannaferð-
um en hin flökin og þvi ekki eins
„friðsæll leikvangur” fyrir börn-
in, sem hrakin eru jafnharðan úr
þeim skipsflökum.
-ÞJM
Baráttan um
bílastœðin
Baráttan um bilastæði I mið-
bænum er harðvitug og
grimm á köflum. Sifellt bæt-
ast við ný ökutæki, en bila-
stæðin koma ekki af sjálfu
sér. Við ræddum í gær við
Guttorm Þormar verkfræð-
ing um bilastæðin og vanda-
málin samfara skorti á
þeim, en Guttormur hefur
það erfiða verkefni að út-
vega fleiri og fleiri bilastæði
— Sjá bls. 4.
O O
Ryskingar í
stað handbolta
Handboltinn milli þýzka
liðsins Hamburger Sports
Verein og FH úr Hafnarfirði
tók óvænta stefnu í gærkvöldi.
Þar urðu blóðug átök, sem
lauk mcð þvi að tveir Hafn-
firðinganna lágu óvigir, —
annar var sóttur í sjúkrabil og
læknar á slysavarðstofu fengu
það vérkefni að sauma piltinn
saman, annar var mjög
blóðugur i andliti eftir pústrá,
og flestir héldu heim með
marbletti eftir þýzka. — A
myndinni cru sjúkraliðsmenn
að ná i Gunnar Einarsson i
gærkvöldi — Sjá iþróttaopnu.
Móralskur
meistari
Ekki sigra þeir alltaf, sem
fá flest atkvæðin. McGovern
er talinn vera „móralskur
sigurvegari” i prófkosning-
unum i New Hampshire i
gær. Edmund Muskie fékk
„aðeins” 48% atkvæða, en
hann hefur verið talinn
sigurstranglegastur af
demókrötum. Þetta fylgi i
heimabyggð Muskies, en
hann er þingmaður fyrir
Maine, þykir ekki nóg , svo
að hann geti vel við unað.
McGovern fékk hins vegar
miklu meira en menn áttu
von á yfirleitt. — SJA BLS. 5.
35 ár með
blaðabunkann
„Visir, Vísir...” Þetta hróp
hefur lengi heyrzt á götum
Miðborgarinnar. Þekktastur
allra blaðasala fyrr og siðar
er Óli blaðasali. Hann hefur
nú stundað biaðasöluna i 35
ár, og af þvi tilefni ræddum
við við óla i gær. — Sjá bls. 2.
O O
Óska eftir lélegri
nýtingu gistirúma
Yfirleitt keppast gististaðir
um að sýna sem hagstæðasta
nýtingu gistirúma. Einn er
sá gististaður þó, sem kærir
sig ekki um slikt, en vill
gjarnan að tölurnar séu sem
lægstar. Það er gistiheimilið
við Þingholtsstræti, en þar
hafa útigangsmenn borgar-
innar fengið inni. Mjög fækk-
aði heimsóknum þar á síð-
asta ári. — Sjá bls. 3.
Rafveitustjórar
vilja bíla
framtíðarinnar
í viðskipti
Það var ekki seinna vænna
en farið væri að ræða um bif-
reiðar, sem ekki valda
mengun hér á landi. Það eru
rafveitustjórar, sem ræddu
mál þetta meðal annarra á
miðsvetrarfundi sinum i
gær. Kannski eiga Shell,
Esso og BP eftir að selja bil
eigendum rafmagn i fram-
tiðinni á bila sina, — eða
.kannski selja rafveiturnar
eldsneytið á bilinn. — Sjá
nánar á bls. 2.
HVAÐ VITUM VIÐ UM FINNA, -
OG ÞEIR UM OKKUR?
Finnar vita litið um is-
lendinga. En vita islendingar
meira um Finna? Forseta-
heimsóknin hefur liklega eitt-
hvað bætt úr þekkingarskort-
inum. i grein um Finnland
inni i blaðinu i dag, segir að
gárungarnir telji Finnland
samanstanda af skógi að 80
hundraðshlutum, — en 22%
landsins séu vötn.
— Sjá bls. 7.