Vísir - 20.03.1972, Page 12
Látt 'ann vera, hróp-
aði Bobby og skoraði
en markið var dœmt af vegna kallsins og Manch. Utd. og Stoke mœtast að nýju
iö er ekki sama bakvið Gordon Banks í tók hann þessu atviki með
Það er ekki sama
hvernig hrópað er í knatt
spyrnu. í bikarleiknum
milli Manch. Utd. og
Stoke á Old Trafford á
laugardaginn barst knött-
urinn fyrir mark Stokt —
Bobby Charlton hrópaði
,,Leave it", fékk knöttinn
og eitt af þrumuskotum
hans hafnaði óverjandi
bakvið Gordon Banks
marki Stoke. En dómar-
inn dæmdi markið af
vegna þess, að Bobby
hafði ekki tilgreint á
kveðinn leikmann i kalli
sinu. Hann hafði kallað til
Steve James, miðvarðar
United, sem var kominn í
sóknina — en sagði hvorki
Steve né James. Á eftir
Þarna slær Gordon Banks knöttinnn frá, en hann varOi ekki skot
George Best. lengst til hægri, sfOast f leiknum og heldur ekki
þrumuskot Bobby Charlton, sem var dæmt af.
tók hann þessu atviki með
heimspekilegri ró-þetta er
eitt af því, sem við
verðum að beygja okkur
undir, sagði hann aðeins.
Og jafntefli varð i leiknum,
þrátt fyrir miklu meiri sókn
Manch. Utd., og 54 þúsund
áhorfendur voru hreint ekki
ánægðir með, að United skyldi
ekki tryggja sér sigur i leiknum.
Stoke lék upp á jafntefli og
tókst það og varð meira segja
Enska
knatt-
spyrnan
á undan til að skora. Það var á
14 min. i siðari hálfleik. Conroy
átti fast skot á markið, Alex
Stepney hálfvarði, en knöttur
inn hrökk til Grennhoff, sem
sendi hann innanfótar i markið.
Þrátt fyrir mikla pressu tókst
United ekki að jafna fyrr en átta
min. fyrir leikslok — róleg inn
anfótarspyrna einnig. Liðin
mætast þvi að nýju á miðviku-
dag og verður þá leikið i Stoke.
Þrjú önnur liö hafa tryggt sér
rétt i undanúrslit, Leeds, sem
vann Tottenham ' heima 2-1,
Arsenal, sem sigraði Orient á
útivelli með marki Alan Ball,
og Birmingham, sem vann
öruggan sigur gegn Hudders-
field 3-1.
,,Með þessar heppni veröur
Arsenal bikarmeistari” var
samdóma álit þeirra, sem sáu
leikinn gegn litla Lundúnaliðinu
Orient. Litla liðið sótti og sótti
allan fyrri hálfleikinn — átti þri-
Alan Ball skoraði
Sigurmark Arsenal
vegis hörkuskot, svo mark
Arsenal nötraði, auk þess, sem
Bob Wilson varð að sýna allar
sinar beztu hliðar i marki Ar-
senal til að verjast mörkum. En
ekkert heppnaðist litla liðinu. í
byrjun siðari hálfleiks tókst
Alan Ball svo að senda knöttinn
i mark Orient og þar við sat.
Fleiri mörk voru ekki skoruð i
leiknum og eftir þvi, sem leið á
hann jókst öryggi leikmanna
vopnabúrsins. Og Alan Ball —
hann hefur þegar endurgreitt
Arsenal þá upphæð, sem liðið
greiddi fyrir hann — 220 þúsund
sterlingspund.
En það er nú kominn timi til
að lita á úrslitin eins og þau
voru á getraunaseðlinum.
1 Birmingham-Huddersf. 3-1
1 Leeds-Totterham 2-1
X Manc.Utd.-Stoke 1-1
X Ipswich-Southampton 1-1
1 Liverpool-Newcastle 5-0
1 Manch.City-Chelsea 1-0
X Sheff.Utd.-Everton 1-1
1 West Ham-Nottm.For. 4-2
X Blackpoal-Millvall 0-0
1 Luton-Burnley 1-0
1 Portsmouth-Norwich 2-1
1 Q.P.R.-Middlesbro 1-0
Aðalleikurinn i bikarkeppn
inni, 6. umferð, var i Leeds, þar
sem Tottenham kom i heim-
sókn. Leeds-liðið sýndi alveg
frábæran leik og það var aðeins
snilldarmarkvarzla Pat Jen-
nings i marki Totthenham, sem
kom i veg fyrir stórsigur liðsins.
6-7 sinnum i leiknum varði Pat
hreint ótrúlega.
Þrátt fyrir yfirburði Leeds i
fyrri hálfleiknum varð Totten-
ham fyrri til að skora. Á 42 min.
átti Pratt skot á markið talsvert
fyrir utan vitateig og Sprake
tókst ekki að verja. En það liðu
aðeins örfáar min. þar til Leeds
jafnaði. Alan Clarke jafnaði rétt
fyrir hálfleik. Strax i byrjun
siðari hálfleiks fékk Leeds
aukaspyrnu sem Billy Bremner
tók. Jackei Charlton fór upp i
vitateiginn og skallaði óver-
jandi i mark og það reyndist
sigurmark Leeds i leiknum.
Huddersfield varð fyrir þeirri
óheppni, að markvörður liðsins
Lawson meiddist og var borinn
af velli skömmu fyrir leikhléið,
en Birmingham hafði þó áður
sýnt sig mun betra lið. Page
skoraði á 34 min. og á 57 min.
bætti Latchford öðru marki við.
Nokkru siðar skoraði Ellam
fyrir Huddersfield, en það liðu
ekki nema þrjár min. þar til
Hatton tryggði öruggan sigur
Birmingham.
Manch. City sigraði Chelsea
örugglega i 1. deild og hefur nú
49 stig — fimm stigum meira en
Derby, sem hefur leikið tveimur
leikjum meira. Vegna þrengsla
i blaðinu i dag verður frásögn
um deildarleikina að biða.
hsim.
Kiartan til S.Þ
i dag pakkar Kjartan Sig-
tryggsson, markvörðurinn
góðkunni i Keflavikurliðinu,
kna ttspy r nuskónu m með
öðrum farangri, og hetdur
fljúgandi áleiðis til New
York.
Kjartan, sem er lögreglu-
þjónn að atvinnu, mun næstu
12-16 mánuðina starfa sem
öryggisgæzlumaður hjá
Sameinuðu þjóðunum. Þar
starfar fyrir annar maður
kunnur knattspy rnuáhuga-
mönnum, Grétar Norðfjörö,
knattspy rnudóm ari, sem
hefur verið i nokkur ár hjá
S.Þ.
Kvaðst Kjartan ákveðinn I
að fylgjast vel með fþrótta-
lifinu þar vestra, — og jafn-
framt reyna að taka virkan
þátt sjálfur eins og aðstæður
leyfa.
Botnliðið sigraði Reykjavíkurmeistarana
Aldrei fór þaö svo að
Borgnesingar ynnu ekki
sinn fyrsta leik í 1. deildinni
í ár, og þeir völdu aldeilis
liðiö til að byrja á. Sjálfir
Reykjavíkurmeistararnir,
Ármenningar, lágu i
valnum eftir stórsigur
Borgnesinga, sem skoruöu
99 stig gegn 78. Var þessi
sigur UMFS að verðleik-
um, því liðið átti i heild
stórfallegan leik, og
minnist ég ekki að hafa séð
þetta ágæta lið jafnsann-
færandi og í þessum leik.
Armenningar hins vegar voru
ekki almennilega i essinu sinu
þetta kvöld, og þó sérstaklega i
fyrri hálfleik. Hittnin var þá langt
undir meðallagi, vörnin hriplek,
og ekki bætti það úr að Birgir
Birgis gat ekki verið með vegna
meiðsla. Loks má nefna, hvort
sem það hefur haft neikvæð áhrif
á liðið eða ekki, að leik þessum
var flýtt án þess að Ármenningar
fengju að vita um breytinguna, og
þegar þeir voru ekki mættir til
leiks þremur stundafjóröungum
eftir að leikurinn átti að byrja,
sagði framkvæmdastjóri hússins,
Magnús Georgsson hingað og
ekki lengra — „verði leikurinn
ekki byrjaður eftir 5 minútur rek
ég alla út úr húsinu og loka.”
Neyddust Armenningar þá til að
byrja leikinn með þann mann-
skap sem af tilviljun var mættur
— án miðherja, og án Jóns
Sigurðssonar, sem gekk i salinn,
þegar liðnar voru sjö minútur af
leiknum, og Borgnesingarnir
höfðu skorað 14 stig gegn 1.
Komu nú Jón og Sveinn
Christensen inná, og um leið fóru
Armenningarnir að skora — en
Borgnesingarnir skoruðu lika, og
þegar fimm minútur voru eftir af
fyrri hálfleik stóð 26-17 fyrir
UMFS.
Þá kom kafli i leiknum, sem
maður sér varla nema einu sinni
á ári. Borgnesingarnir gengu
slikan berserksgang i sókninni að
ekkert stóðst fyrir þeim, og i
stanslausri skothrið á körfuna
hitti nærri hvert skot, svo að
þegar flautað var til hlés, var
UMFS með yfirburðastöðu, 49-25.
Bjóst maður nú við að Armenn-
ingar myndu bræða saman mót-
leik við þessum ósköpum i hálf-
leik, en ekkert bar á sliku. Borg-
nesingarnir héldu áfram að skora
jafnt og þétt, og enda þótt hnittnin
hjá Armanni batnaði mikið frá
þvi sem var i fyrri hálfleik,
héldu Borgnesingar yfir 20 stig,
forystu, og juku hana i 29 stig,
þegar 5 minútur voru til leiks-
loka, 86-57.
Allir hjá UMFS virtust geta
skorað að þessu sinni, eins og
stigin bera með sér, en Gunnar
varð stigahæstur með 21 stig, þá
Pétur Jónsson með 18,
Sigurður Danielsson skoraði 17,
Bragi Jónsson 16, Tryggvi og
Gisli 12 og 11. Björn Christensen
leikur nú hvern leikinn öðrum
betri, og átti að þessu sinni mjög
góðan leik. Skoraði Björn 32 stig,
en Jón Sigurðsson, sem einnig var
ágætur, skoraði 21.