Vísir - 20.03.1972, Side 20
GLÍMA VIÐ
JÖKULFÝLU
— Þeir eru hér aö glfma viö
jökulfýluna, en þaö er engin smá-
ræöis fýla, sem er i þessu. Þeir
eru aö reyna aö finna hvaöa efna-
samsetning er I vatninu og hversu
tnikiö fer fram af óuppleystum
efnuni, leir og grjóti, sagöi Sigur-
jón Kist f ntorgun en hann er
staddur austur f Skaftafelli, um
aurburöarrannsóknir Hauks
Tóntassonar og dr. Gunnars
Sigurössonar frá Orkustofnun-
inni.
Fyrir austan er nú staddur
hópur visindamanna, sem hafa
skipt sér niður á bæina Skaftafell
og Svinafell. Þar er einnig þyrlan
til taks, en þar sem niðdimm þoka
var yfir i morgun var ekki hægt
aö taka hana á loft. t gær var
hinsvegar flogið nokkuð yfir, að
sögn Sigurjóns.
Hann sagði að Skeiðará vaxi
ákaflega hægt. — Þetta er ekki
ólikt þvi, sem hefur verið áður,
með hægara móti, en ekkert sér-
stakt. í nótt hækkaði á ánni um 10
cm.
Sigurjón býst viö aðalhlaupinu
siöar i vikunni. Hann sagöi, að
mikið flyti fram af efnum með
hlaupinu.
— Það komu einstaka jakar
fram i nótt, en hér sér ekki nema
endrum og eins yfir vatniö þar
sem er niðdimm þoka. 1 gær var
flogiö yfir og þyrian notuð og
margar smærri vélar voru á flugi
yfir, en nú er ekki hægt að róta
þyrlunni i svipinn.
Siguröur Þórarinsson flaug yfir
Grimsvötn i gær með Birni Páls-
syni. Hann sagöi, að um tólfleytið
heföi veriö bjart yfir Grims-
vötnum og sézt vel yfir.
— Það er auðséð, að Grimsvötn
eru komin i gang. Þarna hefur
sprungiö og komin griðarstór
kvos með vatni i og hamrar að
vestan og austan og sprungur i
veggnum aö vestan jafnvel tvö-
föld. Misgengið á sprungunum og
iækkunin er einn metri, sem sam-
svarar 30 milljónum tenings-
metra af vatni eöa meðalrennsli
Þjósár i einn dag. Þaö er þvi
öruggt, að Grimsvötn eru komin i
gang. Hinsvegar er Skeiðara
ósköp ómerkileg núna og litiö að
sjá fyrir þá, sem flugu þar yfir i
gær nema Skeiðará meö sumar-
vatni i, en ég heyrði, að það var
veriö að auglýsa ferðir þangað i
gær, -SB-
EINN AF FÁUM SNJÓ- a
SKÖFLUM VETRARINS l/
A einstaka stað hér á suð-veslurlandi mátti finna snjóskafla að
gagni um sfðustu helgi. Þau þessi voru meira að segja svo hepp-
in, að finna hcila skiðabrekku. Mynd þessa tók Hjaíti Gislason I
llamragili I gærdag.
Skuttogarar fyrir 1100
milljónir frá Japan
vísir
Mánudagur 20. marz 1972.
Teknir á reiðhjólum
Minnugir þess, að ekki er
heppilegt að aka bifreið undir
áhrifum/ ferðuðust tveir góð-
glaðir á reiðhjólum um Vestur-
bæinn árla i gærmorgun. Lög-
reglan var þó ekki allskostar
ánægð meö þessar hjólreiöar og
skarst i leikinn. Tvimenningarnir
brugðust hinir verstu við þessari
afskiptasemi
Lögreglan taldi mennina alls-
endis ófæra að halda hjólreiðum
áfram og einnig lék henni forvitni
á aö vita hvar kauöar komust yfir
reiðhjólin. Voru þeir settir inn
meðan þeir hugsuðu ráð sitt
betur. -SG.
Fullnaðarsamningar um kaup
á 10 skuttogurum frá Japan
voru undirritaðir á föstudags-
kvöld. Heildarverð skipanna
mun vera nálægt 11 hundruð
milljónir króna. Samningar eru
gerðir með fyrirvara sem
rennur út um næstu mánaða-
mót.
„Hér er um að ræöa framhaid
og lokun á bráðabirgðarsamn-
ingum sem gerðir voru i
desember i fyrra” sagði
Kjartan R. Jóhannsson hjá
Asiutélaginu, en það hefur um-
boð fyrir hina japönsku skipa-
smiðastöð. „Þessir samningar
ná yfir allan tækjabúnað og allt
þaö sem þarf til að fullbúa
skipin og voru þeir gerðir á
genginu 312 yen i dollar. I
islenzkum krónum er verið 106-
109 milljónir hvert skip, en þau
eru flest um 490 tonn að stærð”
sagöi Kjartan.
Fyrstu tveir togararnir verða
afhentir i desember á þessu ári.
Síðan tveir i janúar 1973, þrir i
febrúar og þrlr i marz. Kaup-
endur eru frá Raufarhöfn,
Vopnafirði, Neskaupstað,
Fáskrúðsfirði, Stöðvarfjöröur
og Breiðdalsvik sameinast um
einn, Vestmannaeyingar kaupa
einn og Hnifsdalur, Sauðár-
krókur og ölafsfjöröur einn
hver. Þá er einum haldið fyrir
Keflavik en ekki er endanlega
búiö að ganga frá þeim samn-
ingum.
Kjartan sagði aö ekki væru
fleiri samningar i undirbúningi
hjá Asiufélaginu þar sem
félagið fengi ekki fleiri togara á
þessuverði. -SG
Fórna kóki
og súkkulaðikexi
Annar dagur fórnarvikunnar er
i dag og þeir sem ekki mundu
eftir að fasta á einhvern hátt i gær
geta nú bætt úr þvi. Til dæmis
geta menn neitað sér um eina
gosflösku og súkkulaðikex i kaffi-
timanum,en gefið andvirðið þess i
stað til Hjálparstofnunarinnar.
Þótt upphæðin sé ekki há nægir
hún til að fæða einn mann i sólar-
hring i Bangladesh.
Sennilega yrði það áhrifarikast
ef starfsfólk fyrirtækja og skóla-
nemar tæku sig saman um að
fasta á einhvern hátt hvern dag á
fórnarvikunni. Þaö þarf aðeins 25
kr. á dag til að fæða einn mann i
sólarhring á þeim stöðum sem
hungursneyðin er sem mest og
þvi getur hver einstaklingur lagt
fram umtalsverða aðstoð án þess
að finna fyrir föstunni. Giróreikn-
ingur Hjálparstofnunarinnar er
nr. 20001 og pósthús og bankar
taka viögreiðslum inn a reikning-
inn. —SG
Lagður hnífi í hjartasíað
- tveir drukknir urðu ósáttir - mildi að ekki fór illa Sá sem hnifinn fékk i sig kom
sér fljótt undir læknishendur, og
liggur hann nú á sjúkrahúsinu i
Keflavik, og var i gærkvöldi
ekki talinn i neinni lifshættu. Sá
sem stakk var látinn gista
svarthol og var aðeins byrjað að
yfirheyra hann i morgun, er
runnið var af honum.
Mun hann litið muna frá við-
burðum gærkvöldsins.
—GG
Við borð lá, að illa færi I gær
kvöldi, er tveir drukknir menn i
Keflavik urðu ósáttir.
Sátu þeir tveir einir við
drykkju heima hjá öðrum
þeirra, og munu hafa orðið
vondir mjög. Rifust þeir mjög,
eða þar húsráðandi þreif
flatningshníf.sem hann hafði hjá
sér, og lagöi til mannsins. Kom
lagið i hjartastað hans og
gekk nokkuð inn.
Sá sem hnifinn fékk I sig,
kippti sér vitanlega frá, og lik-
ast til hefur það bjargað þeim er
stakk frá vondum málum, svo
og að hann var næsta máttlaus
af brennivinsþambinu og gekk
hnifurinn ekki svo langt inn að
sá stungni gæti talist i beinni
lifshættu.
Haraldur Agústsson.
SVIFFLUGMAÐUR FÓRST
— Þegar dráttarvírinn slitnaði
Fyrsta dauðaslys í sögu
Sviff lugsfélags islands
varð um kl. 3 í gær á Sand-
skeiði. Þar fórst þaulvanur
svifflugsmaður, Haraldur
Ágústsson, tæplega fert-
ugur vélstjóri. Hann hafði
stundað svifflug með hlé-
um í um 20 ár, hafði byrjað
aftur að fljúga aftur eftir
nokkuð hlé fyrir tveimur
árum. —Dauðaslys hefur
að vísu áður átt sér stað i
svifflugu eða árið 1948,
þegar tveir menn fórust við
Reykjavíkurflugvöll,
þegar.svifflug þeirra rakst
á hús við flugbraut.
Sjónarvottum ber ekki alveg
saman með hvaða hætti dauða-
slysiö varö i gær. Haraldur mun
hafa tekið sviffluguna, finnsk-
smiðaöa af Vasana-gerð, nokkuð
bratt upp. I 60-70 metra hæð slitn-
aði virinn, sem dró sviffluguna
upp og hefur Haraldur sennilega
ekki gert sér grein fyrir þvi, fyrr
en um seinan. Hann rétti fluguna
þvi ekki nægjanlega snemma við
með þeim afleiðingum að hún of-
reis og stollaði. Svifflugan steypt-
ist svo til beint niður og mun
Haraldur hafa beðið bana sam-
stundis.
Alvanalegt er, að vir slitni,
þegar verið er að draga svifflugur
á loft og á það ekki að skapa veru-
lega hættu hjá vönum mönnum.
Haraldur var kvæntur og átti
einn son, 13 ára. Hann bjó að
Markarflöt 23, Garðahreppil.
—VJ