Vísir - 24.03.1972, Side 3
Vísir. Föstudagur 24. marz 1972.
3
Vilja stofna
félagsskap
um ,kassana'
„islenzkir sjónvarps-
notendur. Ef þér eruð ein-
dregið með stækkun sjón-
varpsins á Keflavíkurflug-
velli þannig að sem flestir
geti notið sendinga þaðan,
SLEPPA
MÁLTÍÐ
• gefa andvirðið
til fórnarvikunnar
Nefnd sem sér um undirbúning
æskulýðsdags þjóðkirkjunnar
hefur haft það fyrir sið að fá sér
góða máltið á veitingahúsi þegar
störfum er lokið. í þetta skipti
ætlar nefndin hins vegar að
sleppa máltiðinni en gefa and-
virðið þess i stað til fórnarvik
unnar. Atta manns sitja I nefnd-
inni og telst þeim til að sparnaður
verði um 9.600 kr.
Talsvert er um að menn hafi
gefið 1% launa sinna til fórnar
vikunnar og eru ýmsir þjóðkunnir
menn i þeim hópi. Leggið framlög
inn á giróreikning nr. 20001 I
bönkum eða pósthúsum.
—SG.
Eldur í Sjöfn
ó Akureyri
í gœrkvöldi
Eldur kom upp i málningar-
verksmiðjunni Sjöfn á Akureyri i
gærkvöldi.
Verksmiðjan stendur ofarlega i
Kaupvangsstræti, og var slökkvi-
lið kvatt þangað er elds varð vart.
Logaði mest i drasli sem á gólfi
var á þriðju hæð verksmiðjuhúss-
ins, og munu skemmdir mestar
hafa orðið af völdum vatns og
reyks, eins og svo oft er.
Var eldurinn slökktur á
skömmum tima og er ókunnugt
um upptök hans. —GG
Iðnaðarmenn
fá námslán.
Hafi iðnaðarmenn áhuga á
framhaldsmenntun ytra, stendur
það til boða hjá menntamála-
ráðuneytinu, ef settum skilyrðum
er fullnægt, en ráðuneytið mun
gefa allar frekari upplýsingar og
þar er einnig að fá umsóknar-
eyðublöð, en þau eiga að koma
réttilega útfyllt á skrifstofuna að
Hverfisgötu 6 fyrir 10. april.
Bifvélavirkjar áhugasamir
um framhaldsnám
vínsamlega staðfestið það
með undirskrift yðar.."
Þetta er glefsa úr dularfullu
plaggi sem undanfarið hefur legið
frammi i nokkrum verzlunum i
Kópavogi. Þar geta þeir sem
fylgjandi eru stofnun Félags is-
lenzkra sjónvarpsnotenda ritað
nöfn sin og heimilisföng, en fyrir-
hugað félag ætlar að beita sér
fyrir frjálsum sjónvarpssending-
um hvaðan sem þær berast. Visir
hafði samband við tvær verzlanir
i Kópavogi þar sem skjalið hefur
legið frammi, en enginn vissi á
hvers vegum það væri eða hverjir
hefðu komið með bréfið. Hins
vegar hafa verið uppi sögusagnir
um að Ólafur Ragnar Grimsson
hafi reiðzt stórlega er hann hafði
spurnir af listanum. Atti hann að
hafa farið inn i eina verzlun og
gert útfyllta lista upptæka.
Visir bar þetta undir verzlunar-
stjóra i Kópavogi, en hann varðist
allra frétta. Þó neitaði hann þvi
ekki að ólafur hefði haft litils-
háttar afskipti af undirskrifta-
plagginu.
„Þetta er nú i fyrsta skipti sem
ég heyri um slika lista og ég kann
ast þar af leiðandi ekki við að
hafa haft nein afskipti af honum”,
sagði ólafur Ragnar i samtali við
VIsi i morgun.
Ekki var honum kunnugt um
neinn tvifara sinn og gerir það
málið enn dularfyllra, en Kópa-
vogsbúar viröast hafa tekið skjal-
' inu fegins hendi þvi margir hafa
ritaö nöfn sin á bað. -SG
Ur 1000 kíló-
metrum í 500
Prentvillupúkinn hefur gert
þann óskunda i ieiðara um
hringveginn að þar kom talan 100
kílómetrar i stað 1000. Vitanie^i
styttist leiðin á Sv-landi úr 1000 I
500 kilómetra, eins og velviljaðir
lesendur hafa liklega getið sér til.
• n
Egilstoðir
efstir ó blaði
— segir flugmólastjóri
Það er sannarlega ánægju-
legt, hvað menn sýna flug-
málunum mikinn áhuga, sem
kemur fram I þvi að margir
aðilar lýsa yfir ágæti þess eða
hins staðarins, sem varaflug-
vallar fyrir alþjóðlegt flug,
sagði Agnar Kofoed—Hansen,
flugmálastjóri, þegar Visir
spurðist fyrir um það hjá honum
I gær, hvort ákvörðun heföi
verið tekin um gerö sliks flug-
vallar hér á landi.
Flugmálastjóri sagði, að það
væri framtiðarmúsik að tala um
gerð alþjóðlegs varaflugvallar
hér á landi. Hinsvegar væri ein-
synt að gera þyrfti nýjan flug-
völl á Egilsstöðum. Flugbrautin
þar væri hreinlega oröin ónot-
hæf og stæði þvi fyrir dyrum að
hanna þar nýja flugbraut i vor.
Skemmtilegt væri, ef unnt væri
að gera flugvöllinn þar þannig
úr garði, að hann gæti þjónað
sem varaflugvöllur fyrir a.m.k.
einhverjar gerðir flugvéla, sem
nú eru notaðar i Atlantshafs-
fluginu. Þar með væri ekki loku
fyrir það skotið, aö aörir flug-
vellir gætu ekki i framtiðinni
orðið varaflugvellir fyrir al-
þjóðlegt flug fyrir aðrar
tegundir flugvéla. Framtiðar-
þróunin yrði að leiða slikt i ljós.
Kosturinn við að gera vand-
aða flugbraut á Egilsstöðum
setti flugvöllinn þar þó augljós-
lega núna i forgangsröð. Völlur-
inn þar er ónothæfur, en honum
er ætlað að þjóna stórri og
stækkandi byggð. Þá þyrfti
aöeins aö gera þar eina flug-
braut, þar sem vindur stæði
alltaf út eöa inn Hérað, nema
kannski i afspyrnuveðri, sagöi
Agnar. — Samkvæmt þessum
ummælum flugmálastjóra hafa
Austfirðingar þvi mestar vinn-
ingslikurnar fyrir aö fá aukna
drift i sin flugmál á næstu árum.
-VJ
Hún er ung og sæt, og nú er
það að koma á daginn að hún
og aörir unglingar eru
sannarlega ekki lakari en
forfeðurog formæöur hennar
og kom fáum á óvart. Mynd-
ina af ungu Reykjavíkur-
stúlkunni tók Astþór.
„Unglingar nútímans ekki
lakari en forfeðurnir"
„Góöu gömlu dagarnir"
eru liönir. Setning þessi
stendur í bækling
nokkrum, sem ber nafniö
Börn síns tima. Bækling
þessum hefur Barna-
verndarnefnin í Kópavogi
látið dreifa inn á hvert
heimili þar. Þessum bæk-
ling er ætlað að vekja
fólk til umhugsunar um
uppeldishlutverk heimil-
anna og svonefnd „ung-
lingavandamál", og ailt,
sem þeim fylgir.
Afengisneyzla, reykingar og
jafnvel eyturlyfjanautn nær
stöðugt meiri útbreiðslu meðal
unglinga. Gerð var könnun um
áfengis- og tóbaksneyzlu ung-
linga i Kópavogi. Töflu um þá
könnun er að finna i bækling-
num.
Þar kemur meðal annars i
ljós, að 11 ára og 12 ára börn eru
þegar farin að reykja að staö-
aldri, og mörg 13 og 14 ára börn
hafa þegar fundið til áfengis-
áhrifa.
t bæklingnum er meðal ann-
iars þessi spurning: „Hefur þú
hugleitt allar þær breytingar
sem hafa orðið frá unglings-
timum afa og ömmu og áhrif
þeirra á börn okkar?”
Allir gera sér grein fyrir þeim
breytingum sem hafa átt sér
stað á þessu timabili.
Nútiminn býður unglingum
upp á meiri fjárráð og fristundir
og býður upp á fleiri skemmt-
anir ánafskipta og aöhalds full-
orðinna. Afleiðingar eru aug-
ljósar. Hvaðber að gera? -EA
eftlr rauðmaganum
þau fengum við að norðan.
Þeir veiða alltaf rauðmag-
Framhaldsnám og sinám svo-
kallað eru flestum stéttum að
verða lífsnauðsyn. Enginn er laus
við skólabekkinn, enda þótt loka-
prófi hafi e.t.v. verið náð. Bif-
vélavirkjar, sem eru alls 292 inn-
an Félags bifvélavirkja, eru mjög
áhugasamir um framhaldsnám-
ið, sem stjórn FB gekkst fyrir i
Iðnskólanum. 1 stjórn FB voru
kjörnir þeir Sigurgestur Guðjóns-
son, formaður, Ingibergur Elias-
son, varform., Gunnar Adólfsson,
ritari, Eyjólfur Tómasson, gjald-
keri og Guðmundur Kristófers-
son, varagjaldkeri.
Beðið
„Við hliótum að fara að
géta selt spriklandi og glæ-
ný hrognkelsi hér", sögðu
þeir í Fiskhöllinni i
morgun,, „reyndar er langt
síðan við fórum að hafa hér
hrognkelsi til sölu í ár — en
ann þar fyrr en hér sunnan-
lands.
Fyrstu sunnlezku hrognkelsin
komu raunar til okkar á laugar-
daginn var. Seldust upp á svip-
stundu og siðan hefur ekki gefið á
sjó. Það voru menn i Skerjafirði
sem fyrstir gátu selt okkur rauð-.
maga — en svo hafa þeir ekki
getað veitt neitt meira — þeir
segja að netin fyllist bara af
þangi og skit, veðrið er svo leiðin-
legt.
En veðrið hlýtur að fara skán
andi úr þessu — við trúum ekki
öðru en vorið sé a’ næstu grösum,
og þá hrognkelsin um leið”.
Talsvert er siðan þeir fóru að
veiða hrognkelsin fyrir norðan.
Reykvikingar fengu ögn i soðið
frá Siglufirði, Ólafsfirði og Húsa-
vik — ef til vill viðar að, en veöur-
far hefur siðan orðið óhagstæðara
fyrir norðan lika, og litið fengizt
þaðan . Eitthvað mun þó til af sölt
uðu i Fiskhöllinni, aö þvi þeir
sögðu þar i morgun. —GG