Vísir - 24.03.1972, Page 8
8
Vísir. Föstudagur 24. marz 1972.
Æskilegt að fá hjúkrunar-
skóla við Borgarspítalann
: Hér sjáum við ■
S Öldu Sigriði óiadótt- E
._ . . ■
S ur greiða einm S
■ starfsstúlkunni,
■ Guðrúnu Nikulás- ■
S dóttur.
■ ■
— segir Magnús Kjartansson, heilbrigðisráðherra.
— Skapaði heilbrigða samkeppni. — Vaxandi
hjúkrunarkvennaskortur ella fyrirsjáanlegur
stofnuð, og eiga sæti i henni tveir
fulltrúar frá Reykjavikurborg,
tveir frá menntamálaráðuneyt-
inu og einn frá heilbrigðisráðu-
neytinu.
Ahugi borgaryfirvalda á
þessum skóla stafar fyrst og
fremst af almennum hjúkrunar-
kvennaskorti, sem kemur m.a.
fram i þvi, að nauðsynlegt hefur
verið að loka deildum i Borgar-
spitalanum i sumarleyfum. Þá
tekur hjúkrunarheimili fyrir
aldraða við Grensásveg til starfa
i haust, og er þegar augljóst, að
erfitt verður að fá starfslið til
heimilisins.
I athugun, sem Kjartan
Jóhannsson verkfræöingur hefur
-gert fyrir heilbrigðisyfirvöld,
kemur það fram, að lausn á
hjúkrunarkvennaskortinum næst
ekki á næstu árum, þó að
Hjúkrunarskóli Islands starfaði
með fyllstu hugsanlegum afköst-
um miðað við þær heilbrigðis-
stofnanir, sem eru fyrir hendi i
dag,- Fyrir dyrum stendur aö
stækka Borgarspitalann, þó að
ekki hafi endanlega verið ákveðið
i hvaða skyni stækkunin verður
nýtt. Til aö skipuleggja viðbygg-
inguna þarf fyrst að fá botn i
framtiðarskipulagningu spitala-
þjónustu borgarinnar og verka-
skiptingu milli spitalanna. Helzt
hefur verið rætt um að koma þurfi
upp göngudeild við spitalann, þ.e.
deild þar sem unnt er að taka
sjúkl. til ýmissa rannsókna án
þess að leggja þá inn, sem kemur
sér i mörgum tilvikum betur fyrir
bæði sjúklingana og sjúkrasam-
lögin vegna minni tilkostnaðar og
timasparnaðar.- Auk þess er
ljóst, að húsnæði slysavarðstof-
unnar er orðið mjög þröngt.
Heilbrigðisráðherra sagði i við-
tali við Visi, að auk nýs
hjúkrunarskóla hefði hann áhuga
á að gefa ljósmæðrum kost á
framhaldsnámi, til að þær gætu
fengið hjúkrunarréttindi. Þörfin
fyrir ljósmæður hefur minnkað
ört á undanförnum árum við það,
að fleiri konur fæða nú börn sín á
heilbrigðisstofnunum.
- VJ.
Vélritunarstúlka
Opinber stofnun óskar eftir að ráða stúlku
til vélritunarstarfa og almennra skrif
stofustarfa.
Skilyrði er, að um vana vélritunarstúlku
sé að ræða, með góða islenzkukunnáttu og
nokkra þekkingu i ensku og a.m.k. einu
Norðurlanda máli.
Laun samkvæmt launakerfi rikisins.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist blaðinu
fyrir 28. þ.m. merktar „Framtið”
Eldhús — gluggatjöld
Hin margeftirspurðu „PRINCES” eldhús-
gluggatjöld i nýjum fjölbreytilegum litum
og gerðum.
Última.
Gluggatjöld.
Kjörgarði. 2. hæð.
Ég fyrir mitt leyti er mjög
áhugasamur um, að stofnaður
verði nýr hjúkrunarskóli við
Borgarspitalann. Það er æskil. að
hafa tvo slika skóla hér i Reykja-
vík. t fyrsta lagi eru of fáar
hjúkrunarkonur útskrifaðar til að
mæta þörfinni. Þá væri hag-
kvæmt að hagnýta bæði Land-
spitalann og Borgarspitalann í
þessu skyni, og loks sköpuðu tveir
skólar heppiiegan samkeppnis-
anda i menntun hjúkrunar-
Magnús Kjartansson
kvenna, sagði Magnús Kjartans-
son heilbrigðisráðherra I viðtali
viö Visi i gær.- Borgarstjórn
Reykjavikur hefur samhljóða
samþykkt ályktun þess efnis, að
stofnaður verði nýr hjúkrunar-
skóli við Borgarspitaiann og vill,
að hann gæti tekið til starfa I
haust.
Viðræöunefnd til að kanna
möguleika þessa máls hefur verið
Fyrsta batamerkið
— þegar sjúklingurinn vill fara að snyrta sig
— hórgreiðslustofa opnuð við Borgarsjúkrahúsið
Læknarnir segja:
„Fyrsta batamerkið er
það, þegar fólk er farið
að hugsa um að láta
snyrta sig. Annað og
þriðja er það, þegar fólk
framkvæmir það”.
Þetta segir Alda Sigriður
Öladóttir, en hú sér um hár-
greiðslustofu á Borgarspitalan-
um.
A Borgarspitalanum já. Þessi
hárgreiðslustofa var tekin I brúk-
ið i byrjun maimánaðar siðastlið-
ins.
■ „Þeir voru búnír að vera með
þetta lengi i huga, en loksins kom
að þvi, að auglýst var eftir stúlk-
um, og siðan hef ég verið hér,
segir Alda”.
Asamt öldu starfar þarna einn-
ig stúlka að nafni Gréta Öskars-
dóttir, en hún sér um snyrtinguna
og vinnur hálfan daginn. Alda sér
um hárgreiðsluna, og það er nóg
að gera.
„Stundum er svo margt, að það
mætti ætla að hér væri verið að
halda tombólu, en einhvern veg-
inn kemst ég alltaf yfir það”.
Ekki komast allir sjúklingar
hingað uppT
„Nei.nei, en það er komið með
suma i hjólastólum, og svo förum
við llka niður á stofurnar.
T.d. kemur það oft fyrir, að
menn hringja hingað og biðja mig
um að fara niður og greiða ein-
hverri eiginkonunni, þar sem hún
sé eitthvað dauf, og þá er þetta
alveg gifurleg upplyfting fyrir
hana. En það er reynt að koma
með alla hingað upp. Svo hef ég
mjög gaman af þvi, hvað sjúk-
lingarnir kunna að meta þetta.
Það kemur oft fyrir, að þegar þeir
eru að fara héðan, timi þeirra hér
er búinn, þá koma þeir með blóm
og færa mér. Þeir sýna svo inni-
legt þakklæti”.
Koma karlmennirnir lika i
snyrtingu?
„Þeir gera nú ósköp litið að þvi, *
en þeir koma þó i klippingu, og þá
er oft glatt á hjalla hérna.
En þessi vinna er alltaf mjög
skemmtileg, og sérstaklega
vegna þess hvað við getum lifgað
marga upp”.
— EA.
OPIÐ TIL KL. 10
Vörnmarkaðurinn hf.
JÁrmúla 1A — Simi 86-113
MATVÖRUDEILD 86-111 HtrSGAGNADEILD 86-112
alla
föstudaga
AUGLÝSINGA-
DEILD ER AÐ
HVERFIS-
GÖTU 32
V
Ferðafélag Islands
Sunnudagsgangan 26/3.
Búrfell — Búrfellsgjá Brottför kl.
13 frá Umferðarmiðstöðinni. Verð
kr. 200,00
Ferðafélag íslands.
Staða
framkvœmdastjóra
Sambands sveitarféiaga i Austurlands-
kjördæmi er laus til umsóknar. Umsóknir
ásamt launakröfum sendist, fyrir 20. april
næstkomandi, stjórnarformanni sam-
bandsins, Reyni Zoéga Neskaupstað, sem
veitir nánari upplýsingar.
Stjórnin