Vísir - 24.03.1972, Side 11
Núverandi aðalstjórn KSt ásamt varamönnum. Talið frá vinstri,
efri röð: Gisli H. Guðlaugsson, GIsli Jónsson, Hreggviður Jónsson,
Hörður Felixson, ritari, Jens Sumarliðason og Haraidur Snorrason.
Fremri röö: Friðjón B. Friöjónsson, gjaldkeri, Helgi Danlelsson,
fundaritari, Albert Guðmundsson, formaður og Jón Magnússon
varaformaöur. (Ljósmynd BB)
Af mœlísár KSÍ
'v
maí i Turku. Fulltrúar íslands
veröa Albert Guðmundsson og
Hörður Felixson.
stórt í sniðum
Það verður mikið um að
vera á knattspyrnusviðinu
á afmælisári KSÍ — fjöl-
margir landsleikir m.a. við
Dani hér heima. Jón
Magnússon, varaformaður
sambandsins, skýrði blaða-
mönnum frá þvi helzta og
fer það hér á eftir.
íslandsmótið
innanhússknattspyrnu
Islandsmótið i innanhúss-
knattspyrnu kvenna og karla
verður háð um næstkomandi
páska og taka alls þátt i mótinu
27 lið, 18 karlalið og 9. kvennalið.
Islandsmeistari i kvennaflokki
1971 er I.A., en i karlaflokki
Knattspyrnufélgiö Valur i Reyk-
javik.
Heimsmeistarakeppnin
1972
Islenzka landsliðið tekur þátt i
undankeppni Heimsmeistara-
keppninnar 1974 og i riðli með
Norðmönnum, Belgiu og
Hollandi. Samið hefur verið um
leikina við Belgiu og Holland.
Leikið verður i Belgiu 18. og 22.
mai n k., og i Hollandi 22. og 29.
ágúst 1973.
Ekki hefur enn verið endanlega
gengið frá samningum við Noreg.
Norðurlandaráðstefnan
1972
Knattspyrnuráöstefna Norður
landa verður háð i Turku i Finn-
landi 28. til 31. mai næstkomandi
og hefst með þvi að fulltrúar
hennar horfa á landsleikinn Finn-
land/Noregur, sem fram fer 28.
Skólamót KSí og KRR
1972
Skólamót KSI og KRR er orðinn
fastur og árlegur viðburður siðan
1969, og átendur yfir um þessar
mundir. Alls taka 14 skólar þátt i
mótinu, en sigurvegari frá i fyrra
er Kennaraskóli Islands.
Alþjóðlegt mót
unglinga í júlí 1972
Unglinganefnd KSl gengst fyrir
alþjóðlegu móti fyrir unglinga',
sem fram fer hér á landi 10. til 15.
júli n.k. Þátttakendur i mótinu
verða þrjú lið frá Skotlandi og
þrjú islenzk lið. Skozku liðin eru
Ueltic Youth Club, Cowal Youth
Club og Morton Youth, en
islenzku liðin eru Faxaflóaliðið
og tvö úrvalslið.
Landsleikur við Dani
3. júlí n.k.
Landsleikur verður háður við
Dani 3. júli n.k. og fer leikurinn
fram á Laugardalsvellinum i
Reykjavik. Frétzt hefur að þetta
sé einn þeirra leikja, sem Danir
munu stilla fram atvinnu-
mönnum sinum i.
Henning Enoksen
til íslands
I samvinnu viö Knattspyrnu-
dómarasambandið, Knattspyrnu-
þjálfarafélag tslands hefur tekizt
að semja viö danska knatt-
spyrnuþjálfarann Henning
Enoksen, um að koma hingað i
sumar og halda hér námskeiö.
Verða námskeiðin haldin hér i
Reykjavikogútálandi. -hsim.
Ötult starí unnið á yegum
Knattspyrnusambands íslands
-sem verður 25 ára á sunnudag, stofnað 26. marz 1947
Knattspyrnusamband is-
lands verður 25 ára næstkom-
andi sunnudag, en það er
langstærsta sérsambandið hér
á landi. Stjórn KSi boðaði
biaðamenn á sinn fund á mið-
vikudag og þar skýrði for-
maðurinn, Albert Guðmunds-
son, frá stofnun KSi og starfi
sambandsins. Opið hús verður í
Sigtúni afmælisdaginn og mun
KSÍ þá heiðra nokkra menn,
sem mikið starf hafa innt af
hendi fyrir ísienzka knatt-
spyrnu.
Knattspyrnusamband Islands var
stofnaö aö tilhlutan Knattspyrnuráðs
Reykjavikur áriö 1947 og var ástæðan
fyrst og fremst aukin samskipti við út-
lönd og þar með nauðsyn þess,
aö einhv.er aðili hér á landi,
kæmi fram fyrir hönd allra knatt-
spyrnumanna á tslandi, en fram til
þess tima höfðu viðskipti knattspyrnu-
aðila hér á landi við útlönd farið fram
fyrir milligöngu Iþróttasambands Is-
lands.
KRR fékk þegar i stað góðar undir-
tektir sérráða og iþróttabandalaga úti
á landi og árangurinn varð, að stjórn
ISI boðaði til stofnfundar KSI, sem
haldinn var 26. marz, 1947 og stjórnaði
þáverandi formaður ISI Benedikt G.
Waage fundinum. Óskirhöfðu borizt til
ISI frá eftirtöldum aðilum, að stofnað
yrði sérsamband knattspyrnumanna
og teljast þvi stofnendur KSI:
Iþróttabandalag Reykjavikur
Iþróttabandalag Hafnarfjarðar
Iþróttabandalag Akraness
lþróttabandalag Akureyrar
Iþróttabandalag Vestmannaeyja
tþróttabandalag Siglufjarðar
Iþróttabandalag tsafjarðar
I dág eru allir aðilar innan ISI, sem
knattspyrnu iðka, jafnframt aðilar að
KSI.
I stjórn KSl eiga sæti 7 menn, en ekki
er hægt að segja að umrót hafi verið
Björgvin Schram óskar Aibert Guðmyndssyni tii hamingju, þegar hinn sfðarnefndi var kjörinn formaöur KSt
1968. Björgvin lét þá af formennsku eftir 14 ár sem formaöur KSl og 20 ára setu I stjórn samtakanna.
Gott Islandsmet
A úrtökumóti i Laugardalslauginni i
gærkvöldi setti Guðjón Guðmundsson
gott tslandsmet i 100 m bringusundi,
synti á 1:11.1 min., en eldra met hans
— sett nýlega — var 1:12.0. Sigurður
Ólafsson jafnaöi tslandsmetið i 200 m
skriðsundi, synti á 2:07.8 min og
Finnur Garðarsson synti 100 m skrið-
sundá56.3sek.
mikil i stjórn sambandsins, og gott
dæmi þar um er að á þeim 25 árum,
sem Knattspyrnusambandið hefur
starfað, hafa 5 menn gegnt starfi for-
manns:
Agnar Kl. Jónsson 1947-1948
Jón Sigurðsson 1948-1952
Sigurjón Jónsson 1952-1954
Björgvin Schram 1954-1968
Albert Guðmundsson frá 1968
Af þeim, sem starfaö hafa í stjórn
sambandsins eru fjórir látnir Jón
Sigurðsson, fyrrv. slökkviliðsstjóri,
Pétur Sigurösson, fyrrv. Háskóla-
ritari, Guðmundur Sveinbjörnsson,
Akranesi og Ragnar Lárusson Reykja-
vik.
Lengst hafa starfaö i stjórn KSI:
Björgvin Schram 21 ár
Jón Magnússon 20 ár
Ragnar Lárusson 20 ár
Guðmundur Sveinbjörnss. 20 ár
Ingvar N. Pálsson 17 ár
SveinnZoéga 12 ár
Axel Einarsson 10 ár
(14 ár formaður)
Breytingar á vexti og viðgangi sam-
bandsins hafa verið miklar frá stofnun
til dagsins i dag, og vitnar hin aukna
starfsemi og þróun knattspyrnunnar i
landinu, betur en orð fá lýst, um hið
mikla starf, sem stjórnir og nefndir
sambandsins hafa unnið.
Knattspyrnusamband Islands er aðili
að Alþjóðaknattspyrnusambandinu,
Knattspyrnusambandi Evrópu og
samtökum knattspyrnusambanda á
Norðurlöndum. Hafa islenzk knatt-
spyrnuliö tekið þátt i Heimsmeistara
keppni, Evrópukeppni og Norður-
landakeppni, sem fram hafa farið á
vegum framangreindra aðila, og full-
trúar KSI hafa tekið þátt i ráðstefnum,
þjálfara-og knattspyrnudómaranám-
skeiðum og öðrum fundum, sem fram
hafa farið á vegum þessara samtaka.
Þannig hefur KSI ávallt lagt mikla
áherzlu á að auka sambönd við útlönd
og siðastliðin ár hafa þau margfaldast.
Frá að leika einn landsleik ár ári, fara
nú hópar islenzkra knattspyrnumanna
erlendis árlega. Erlend lið gista Island
vegna landsleikja og leikja i Evrópu-
keppnum og flokkar frá vinafélögum
islenzkra knattspynufélaga koma ár-
lega i heimsókn.
Alls hafa islenzkir knattspyrnumenn
Ieikið 64 A-landsleiki, 4 B-landsleiki, 2
landsleiki (23 ára og yngri) og 16 ung
lingalandsleiki (18 ára og yngri).
Þjóðirnar sem leikiö hefur veriö við
eru eftirfarandi: A-landsleikir: Dan-
mörk (10), Noregur (13), Finnland (4),
Austurriki (1), Bandarikin (1), Eng-
land (8), Frakkland (7), Belgia (2), Ir-
land (5), V.-Þýzkaland (2), Holland
(1>, Skotland (1), Bermunda (3),
Wales (1), Spánn (2), Japan (1).
B-landsleikir: Færeyjar (4)
Landsleikir 23 ára og yngri: Noregur
(1) , Sviþjóð (1)
Unglingalandsleikir (18 ára og yngri):
Danmörk (1), Rússland (1), Pólland
(2) , Sviþjóð (3), Noregur (2), Finnland
(1) , Skotland (2), Wales (2), trland
(2) .
Knattspyrnan barst hingað til lands
fyrir siðustu aldamót (1894) og má
segja að frá þeim tima og til dagsins i
dag, hafi hún verið vinsælasta iþrótta-
greinin hérlendis og i dag jafnframt
fjölmennasta iþróttagreinin, er stund-
uð er hér á landi.
Uin vöxt knattspyrnunnar eru lands-
mótin gleggsta dæmið, en á þeim hafa
-orðið miklar breytingar á s.l. árum.
Stærztu breytinguna má þó telja, er 1
aldursflokki var skipt i I. og II deild
árið 1959 og jafnframt ákveðið að leika
heima og heiman. Ennfremur er
Bikarkeppni KSI var stofnuð 1960 og
stofnun 3. deildar 1965.
Vetraræfingarlandsliðsins, er byrjuðu
rétt fyrir jólin 1968 og hafa verið end
'urteknar hvern vetur siðan, hafa
'.áorkað það, að sannað hefur verið, að
.það er engin goðgá, að íslendingar geti
iðkað og keppt i knattspyrnu yfir
vetrartímann eins og aðrir Evrópu-
búar.
Það að islenzka landsliðið er fært til að
keppa jafnt vetur sem sumur hefur
orðið til að efla samböndin við útlönd,
og ekki aðeins stólað á og leitað til
Norðurlanda til gagnkvæmra við-
skipta og samvinnu, heldur um ger-
valla Evrópu, Norður-*og Suður
'Ameriku, Afriku og Asiu.
Innanlands hefur aukin starfsemi rutt
fram nýjum knattspyrnumótum og
keppnum. Fræðslustarfsemi hefur
verið efld og dómaramál endurskoðuð
og betrum bætt. — hsim.
ISSSÍII
.. V •: .
", Y?
Frazier ver
titilinn
Joe Frazier, heims-
meistari i þungavigt i hnefa-
leiknum, undirritaði i gær
samniug um leik við Ron
Stander um titilinn. Hann
verður háður í Omaha i
Nebraska og er fyrsti heims-
meistaralcikurinn, sem þar
cr háöur.
Fra zier undirbýr sig nú
af kappi fyrir leikinn við
Cassius Clay i haust. í
janúar keppti hann við Terry
Daniels og sigraði á rothöggi
i 4. lotu. Þó Stander sé ekki
kunnur hnefaleikari er mikill
áhugi á þessum leik hans viö
Frazier og verður honum
sjónvarpað um öll Banda-
rikin. Frazier náði mjög
hagkvæmum samningum —
fær 40% af miðasölunni og 14
þúsund dollara frá sjón-
varpsstöðvum, sem keyptu
réttinn.
ósigrandi
Thomas Magnusson sigraði
einnig 50 km skiðagöngu á sænska
meistaramótinu i Sollefta i gær og
hefur þar með orðið sænskur
meistári i 15 km, 30 km og 50 km.
21 árs göngumaður var 1.41 min.
á undan næsta manni i mark,
Lars-Göran Aslund.
Yfir 100 leikir á 5
völlum í badminton
Unglingameistaramót
islands i badminton
verður haldið i iþrótta-
húsinu i Hafnarfirði
dagana 25. og 26. marz
n.k. Mótið hefst með
setningu á laugardag kl.
14.00 og strax á eftir
hefst keppni.
Keppt verður i 3 aldurs-
flokkum, þ.e. pilta og stúlkna,
drengja og telpna og sveina og
meyja flokkum. I hverjum flokki
er keppni i einliðaleik, tviliðaleik
og tvenndarkeppni.
Mót þetta er fjölmennasta ung-
lingameistaramót, sem haldið
hefur verið, keppendur eru alls 69
sem skiptast þannig:
Tennis-og badmintonfél. Rvik. 28
Valur 8
K.R. 4
Tennis-og badmintonfél.
Siglufj. 22
tþróttabandal. Akraness 7
Að venju eru margir Siglfirð-
ingar á þessu móti, en þeir hafa
verið sigursælir á unglinga-
mótum undanfarin ár. A ung-
lingameistaramóti íslands i
fyrra, sem haldið var á Akureyri
sigruðu Siglfirðingar i lOgreinum
af 14, sem þá var keppt i. Nú er
spennandi að vita, hvort þeim
tekst að endurtaka þann frábæra
árangur.
Eins og áður er sagt, hefst
mótið á laugardag kl. 2, en úr-
slitaleikir verða leiknir á sunnu-
dagskvöld kl. 19.30, einnig i
Iþróttahúsinu i Hafnarfirði.
Alls verða leiknir u.þ.b. 100
leikir á 5 völlum. Þetta er i fyrsta
sinn, sem badmintonmót er
haldiö i hinu nýja iþróttahúsi i
Hafnarfirði, en þar er vaxandi á-
hugi fyrir badminton og ætti þetta
mót þvi að verða til þess aö vekja
meiri áhuga Hafnfirðinga á þess-
ari iþrótt.
Magnússon
Gunnar Sólnes setti
badmintonmótið I fyrra sem
háð var á Akureyri, og var
myndin hér að neðan tekin
við það tækifæri. (Ljósmynd
Rafn Viggósson.)
c
-<m
r *
mw IJC' m
Við seljum eingöngu
vönauð góirteppi
fráviðurkenndum framleiðendum
Viö kaupum teppin, milliliða laust, beint frá verksmiöju, i
heilum rúllum og fáum þannig mun betra verö.
Eigum á lager 12 geröir, i yfir 50 litum, frá eftirtöldum
framleiðendum:
ALAFOSS, SHAW,. BRISTALL, LANCASTER, BAR-
WICK, WESTON, FEBOLIT.
Viö mælum gólfflötinn og þaulvanir fagmenn leggja
teppin, veggja á milli, meö stuttum fyrirvara.
innrén?
Grensásvegi 3 - Sfmi 83430
i
•J