Vísir - 24.03.1972, Qupperneq 12
12
Vísir. Föstudagur 24. marz 1972.
Það leiða skass
n
— Mér liður rétt eins og inn-
yflin hafi veriö skorin úr mér. Ég
hafði ekki gert mér i hugarlund,
að þetta leiðaskass væri svo ill-
gjörn.
Þetta sagði leikarinn Laurence
Harvey, 44 ára er hin 57 ára
gamal eiginkona hans, haföi sent
skilnaðarbréf. Joan Cohn, ekkja
eftir Harry Cohn, föður
Columbia Pictures—kvikmynda-
samsteypunnar og eigandi að
minnsta kosti 350 milljóna króna
eftir fyrri mann sinn, hefur nú
krafizt skilnaðar frá leikaranum,
seinni manni sinum óg heimtaö
hvern hans eyri I þokkabót. Hún
gefur honum það að sök að hafa
vaðið full frekjulega ofan i sig
hvað eftir annað.
Harvey var að koma úr heim-
sókn til vina sinna i Mextkó,
þegar hlaðfreyja flugstöðvar-
innar i Los Angeles færði honum
bréfið frá konu hans.
Harvey ieit snöggt yfir stefn
una, kastaði bréfinu siðan frá
sér — og hélt áfram ferð sinni;
Parið hefur mest allt hjóna
bandið búið sitt i hvoru lagi, en
þau Harvey og Joan voru gefin
saman 1968. Hins vegar eru
Harvey og ljósmyndafyrirsæt
an Paulina Stone óaðskiljanleg.
„Rólegur Harry. Mamma
missir áreiðanlega ekki af lest-
inni.”
Gœtið að GÖMUL TRE
bíistjorar
NÆST þegar þú biður eftir réttu
Ijósi á gatnamótum skaltu gæta
aö þér. Það gæti einhver veriö að
mæla þig út. Læknarit eitt franskt
birti nýveriö grein eftir sálfræð-
ing, sem hafði gert sér það til
gamans að virða fyrir sér at-
hafnir bifreiöastjóra, sem biðu
eftir græna ljósinu:
Fimm bifreiðarstjórar af
hundrað slöppuðu af og viku
höndunum af stýrinu.
Sjö kroppuöu I nef sér tauga-
óstyrkir.
Niu könnuðu næstu bifreiöir og
ökumenn þeirra og gáfu I skyn
áhuga sinn á að komast fram
fyrir á einhvern hátt.
Tveir af hundrað kveiktu sér i
sigarettu og reyktu óskaplega og
aðrir tveir tuggðu tyggjó enn
óskapiegar.
Og ekki má gleyma þeim
tveim, sem undu sér þegar I það
að kyssa samferðamann sinn.
— Starfsmenn skógræktar
rikisins i Sovétlýðveldinu Lett-
landi hafa talið þau tré, sem náð
hafa 100 ára aldri innan marka
lýðveldisins. Alls voru talin 600
tré. Meðal þeirra er þúsund ára
gömul eik, og mældist stofn
hennar viö jörðu 33 metrar i
ummál. Einnig fannst við þessa
leit birkitré, sem vaxiö hefur út
úr holu i eikartré, og á ýmis önnur
sérkennileg náttúrufyrirbæri
rákust skógræktarmennirnir.
TAKMÖRKUÐ
EILÍFÐ
— Hinn eilifi snjór og klaki á
Elbrus, sem er hæsta fjall i
Evrópu, 5642 metra yfir sjávar-
máli, er eilifur aðeins að tak-
mörkuðu leyti. Úkrainskir
vísindamenn hafa gert kolefnis
rannsóknir á lofti, sem fundizt
hefur i bólum langt niðri i is-
hellunni, og niöurstöðurnar sýna,
að snjó- og klakalagið er aðeins
340 ára gamalt eða frá tlmum
eftir siðasta eldgos, sem varð i
fjallinu. Elbrus er taiið útbrunniö
eldfjall, en þar myndast þó enn
mikiö jarðgas, og gufu- og vatns-
hverir eru i fjallinu.
ÞESSA NÁGRANNA er að finna í Tanum í Svíþjóð. Loft-
netið er þeim eiginleika búið að geta tekið á móti sjón-
Umsjón: ra varpssendingum frá Ameríku og endurvarpað allt til
Þórarinn P Danmerkur. Verð loftnetsins er sagt hafa verið 480
Jón Magnússon §| milljónir ísl. . . — Nokkuð dýrara en mannvirkið við
j hliðina, skúrræfillinn gamli, sem á sér líklega lengri sögu
,..... : ■ ...... ■ [: > en sjónvarpi.
Það hefur ósjaldan átt sér stað
úti i honum heimi, að börnum sé
rænt úr vögnum sinum á meöan
mæðurnar verzla. Fjöldi slikra
barnarána hefur átt sér stað i
Englandi. Það kom þvi fáum á
óvart, er það frettist, að það væri
ensk kona, sem fyrst allra mæðra
hafði komið fyrir þjófabjöllu I
barnavagni. Carol Jackson heitir
frúin og á heima i Walthamstown,
sem er skammt frá Lundúnum.
Tæki frúarinnar er einfalt. í
barnavagninum kom hún fyrir
litlu tæki á fleti, sem gefur eftir.
Þegar barnið er tekið upp úr
vagninum sendir tækið boð til
bjöllu, sem þegar i staö hljóðar
óskapleea.
Útvarpsleikritiö, sem viö
heyrðum I gærkvöld fjallaði um
unga elskendur, »em voru að lesa
saman undir próf. Fáir ömuöust
við þeim. ööru máli gegnir um
hina öldnu elskendur, sem hér
skal sagt frá:
Hann heitir Robert Kloch og er
99 ára. Hún heitir Magdalena
Klein og er 76 ára. Þau dveljast
bæði á elliheimilinu Traunstein I
V-Þýzkalandi. Þar kynntust þau
fyrst — og uröu afskaplega ást-
fangin.
„Hættiði að leiöast hér um allt.
Þið eruð oröin of gömul til að
láta eins og kærustupar. Þið eruö
blátt áfram hlægileg þegar þiö
leiöist svona”, sagöi forstjóri elli-
heimilisins, og gerði allt, sem i
hans valdi stóð til að stia
elskendunum i sundur.
Þeim Robert og Magdalenu
þótti þetta súrt i bróti, og þau
gátu ekki með nokkru móti bælt
niður ást sina.
Einn daginn, þegar þau sátu
fyrir framan sjónvarpiö, eftir
kvöldmat náöi Robert að hvisla
að unnustu sinni: „Ég hef
skranað saman 500 nund —
stingum af. Viö erum enn ung i
anda og hvers vegna þá ekki aö
njóta allra þeirra llstisemda, sem
lifið býöur upp á?”
Gamla konan skrikti, þegar
hún kinkaði kolli til gamla
mannsins. Hervar samþykki var
fengið.
Nokkrum dögum sfðar — árla
morguns — tindu þau saman
pjönkur sinar og laumuðust i
burtu.
Þau stöðvuðu leigubil og létu
hann keyra sig þær 70 milur, sem
eru upp á Bæheim i ölpunum. Þar
leituöu þau uppi huggulegt hótel
og fengu þar herbergi saman I
eina viku.
Hinir hótelgestirnir hentu
gaman að „brúökaupsferðinni”
— en Robert gamli leiörétti þá:
„Við erum ekki á brúðkaups-
ferðalagi — við erum aðeins trú-
lofuð.”
Að viku liöinni fór Magdalena '
að óttast, að ættingjar þeirra og
vinir væru farnir aö hafa
áhyggjur af hvarfi þeirra. Það
hvarflaöi jafnvel að henni, að leit
væri hafin að þeim.
Þvi var þaö, að skötuhjúin
1 ■ ■
pökkuðu niður aftur og héldu
heim á elliheimilið. Og það stóð
heima, lögreglan var rétt i þann
mund að fara aö láta lýsa eftir
þeim.
Forstööumaður elliheimilisins,
sem nærri hafði fengið taugaáfall
vegna hvarfsins hrópaði upp yfir
sig: „Og þið eruö enn viö sama
heygarðshornið! ”
„Sama heygarðshornið?
Þvættingur!” leiðrétti Róbert.
„Siður en svo. Við vorum að
skemmta okkur á fjallahóteli
áttum þá skemmtilegustu viku,
ogsem við höfum á ævi okkar
lifaö.”
„Og þaö er ekki nóg meö það,”
bætti Magdalena við. „Þritugasta
og fyrsta janúar næsta ár ætlum
við Robert aö giftast. Þann dag
verður hann Robbi minn sko 100
ára gamall.”