Vísir - 24.03.1972, Blaðsíða 13
Visir. Föstudagur 24. marz 1972.
13
Býflugna-
skegg
i
ÞEGAR Banary Bhatt uppgötvaði, að eiginkonu hans stóö stuggur af
býflugnabúi hans, stóð hann frammi fyrir miklu vandamáli. En loks
ákvað hann að fjarlægja það úr garöinum þeirra, en hvort frúnni hafi
geðjazt betur að nýja býflugnabúinu fylgir ekki sögunni. Bhatt hafði
nefnilega gripiö til þess ráðs að hreiðra um býdrottninguna i skeggi
sinu, og þá var auðvitað ekki að sökum að spyrja, herskari býflugna tók
sér þar bólfestu fika. Þaðan hreyfa þær sig ekki. Ekki einu sinni þegar
húsbóndi þeirra borðar, baðar sig, hjólar Ibæínnog verzlar, ellegar þá
er hann sefur. Það er með erfiðismunum, að hann fær þær tilaðvikja,
þegar hann snyrtir á sér skeggið.
Kvenáhöfn
íneðan-
sjávarstöð
— Fjórar ungar konur,
Tamara Babajeva verk-
fræðingur, Jelisaveta Kusnetsova
tæknifræðingur, Galina Sjisjkina
lyf jafræðingur og Svetlana
Tjaplygina liffræðingur, eru i
þann veginn að hefja störf i
rannsóknarstofu á hafsbotni, en
til þessa hafa þar einungis
starfað karlar Haffræði-
rannsóknarstofnunin sovézka
hefur samþykkt þetta, eftir að
stúlkurnar höfðu reynzt við
æfingar i réttþrýstiklefa a.m.k.
eins vel hæfar likamlega til
þessara starfa og karlmenn.
Neðansjávarrannsóknarstofur
eru meira og meira notaðar við
hafrannsóknir og eru Sovétrfkin
mjög framarlega á þessu sviði.
Tveir sovézkir könnuðir hafa
nýverið dvalizt 11 daga i rétt-
þrýstiklefa við skilyrði, sem
samsvara dvöl á 45 metra dýpi
undir haffleti. Notuð var and
rúmsloftsblanda af köfnunarefni
og súrefni og mönnunum leið
betur en af helium og súrefnis-
blöndunni, sem venjulega er
notuð, en er dýr i framleiðslu og
þarf stór og flókin tæki til að
framleiða. Köfnunarefnisblandan
gerir áhöfn neðansjávarkíefanna
mögulegt að vinna heila vakt i
einu undir fullum þrýstingi.
Mjólkur-
hrístingur
Ljósmyndafyrirsætur mega
heldur en ekki gæta að sér nú-
orðið. Tækninni fleygir svo hratt
fram. Þvi til sönnunar getum við
sagt ykkur sögu af ungri stúlku á
Nýja-Sjálandi, sem lét ljósmynda
sig i hvitu bikini fyrir
veggauglýsingaspjöld, sem áug-
lýsa skyldu Auckland-mjólkur-
hristing.
Blessuð stúlkan fékk tauga-
áfall, er hún nokkru eftir mynda-
tökuna sá auglýsingaspjaldið.
Það þakti báðar hliðar mjólkur-
bifreiðar, sem ók út ufti allar
trissur.
Ljósmyndin ai henm hafði verið
löguð þannig til, að hún sýndi
stúlkuna allsnakta.
Að sjálfsögðu fór stúlkan i mál
við mjólkursöluna. Og hún vann
málið. Henni voru greiddar
riflegar skaðabætur, og nýtt
andlitvarsettá nektarmyndirnar
á mjólkurbilunum.
Aldrei meira pantaö
í fluginu en nú
Þeir Flugfélagsmenn eru kátir
þessa dagana. Það hefur komið i
ljós að aldrei fyrr hefur annað
eins verið af farpöntunum, inn-
lendum sem erlendum, og einmitt
nú i ár. Eru pantanir þessar bæði
frá f'erðaskrifstofum og ein-
staklingum. Ekki standast þessar
pantanir nú alltaf, og að magni til
eru þær aðeins hluti væntanlegra
farþega sumarsins. Hinsvegar
gefur pantanafjöldinn hverju
sinni nokkuð öruggá visbendinu
um hverju við getum búizt við.
Aukningin er nokkuð misjöfn eftir
flugleiðum, en er að meðaltali
32.4% milli landa. Þá er greini-
legt að við erum að vinna Græn-
land upp sem ferðamannaland, —
farpantanir þangað hafa aukizt
um 107%, hvorki meira né minna!
Nýir staðlar í
byggingariðnaðinum
Smám saman eru menn að gera
sér ljósari grein fyrir hagnýti
staðlanna, sem Iðnþróunar-
stofnun Islands lætur gefa út.
Fyrir nokkru bættust við staðlar,
sem merktir eru IST 61, og IST 20,
21 og 22. Allir eru þessir staðlar
fyrir byggingariðnaðinn, sá fyrsti
um raflagnatákn, og mun Raf-
magnsveita Reykjavikur gera þá
kröfu til raflagnateikninga frá
siðustu áramótum að þær séu
unnar eftir staðli þessum. For-
maður staðalsnefndarinnar var
Guðmundur Steinbach, rafm.
verkfr. Hinir staölarnir eru um
mátkerfi fyrir byggingariðnað-
inn, hæðamál i byggingum og eld-
húsinnréttingar. Engar opinberar
kröfur munu enn um notkun
þessara staðla en vonzt eftir þeim
hér eins og annars staðar.
Sérstæð tízka, —
og auðseJd, ef....
íslenzk vara úr ull, sérstæð
tizka og falleg að mati ferðafólks,
sem hingað kemur, virðist auð-
seld, hvort heldur það er i minja-
gripabúðunum okkar, suður á
Keflavikurflugvelli, eða þá i
verzlunum erlendis, sem bjóða
þessa vöru. Kaupmaður einn i
Danmörku kvaðst hafa selt mikið
af lopapeysum héðan, en með
meiri sölu kvaðst hann hafa tekið
eftir að hroðvirknin fór vaxandi.
„peysur á fullvaxinn karlmann
voru kannski með ermum fyrir
börn”, sagði hann. Slikt kann vart
góðri lukku að stýra. Myndin
okkar sýnir hinsvegar að margt
fallegt má gera úr ullinni okkar,
— og útflutningsverðmætið vex
gifurlega við þessa meðhöndlin
frá þvi sem áður var. Þessi vara,
sem fyrirsæturnar sýna, er frá
Sambandinu og er seld undir
vörumerkinu Icelook úr
svonefndri Vikingaull.
Mokkapelsarnir fljúga út!
Finnar hafa fest kaup á 800
mokka-pelsum frá verksmiðju
Heklu á Akureyri,- verðmætið er
um 7 millj. króna. Þá er unnið að
sölu 500 pelsa til Þýzkalands.
Áreiðanlega hefur þessi glæsilega
framleiðsla fengið góða auglýs-
ingu á dögunum i Finnlandi, þvi
forsetafrúin okkar skartaði i
glæsilegum pelsi sem Steinar
Júliusson, feldskeri, mun hafa
gert. A þessu sviði virðist aug-
ljóslega mikill óplægður akur, en
útflutningsverðmætin aukast
margfalt við sútun og kápugerð
frá þvi sem var áöur, þegar gær-
urnar voru fluttar út saltaðar.
Gera fleira en
sparka bolta og
veiða þorsk
Þeir á Skaganum gera ýmislegt
fleira en veiða þorsk og sparka
bolta, endaþótt þeir hafi gert
hvort tveggja um áraraðir með
góðum árangri. Þeir hafa lika
gaman af góðum bókum, og þvi
reyndist nauðsynlegt að byggja
nýtt bókasafn, og hefur það verið
tekið i notkun og er gestakoma
þar tið jafnt af yngri sem eldri. I
nýja safninu við Heiðarbraut eru
15 þús.bindi, sem má kallast gott,
þvi við bruna safnsins 1946 eyði-
lögðust flestar bækur safnsins.
Kostnaður við nýja safnið var 9.5
millj. króna, en húsið er 356 fer-
metrar aö flatarmáli. Bóka-
vörður er Stefania Eiriksdóttir,
en form. bókasafnsstjórnar er
Bragi Þórðarson.
Brugga „íslenzkt"
öl í Danmörku
Liklega þykir þeim þunnur
mjöðurinn bruggurunum i Dan-
mörku, sem eru að laga ,,is-
lenzkt” öl til útflutnings. Og
varla gera forstjórarnir i
Albany—verksmiðjunni sér
miklar vonir um útflutning til
annarra landa en Islands með
þetta vatnslika öl, sem er þynnra
og veikara en veikasta danska
ölið, sem frétzt hefur af til þessa.
Leyfum til innflutnings á ölinu
hingað var úthlutað á 10—15 staði,
en aðeins hefur frétzt af
Albany—ölinu ennþá, sem stenzt
islenzka lágmarkið. Inn-
flutningur erlenda ölsins til
íslands verður alla vega ekki
mikill, — leyfin sem gefin voru út
samsvara vist hálfri bjórflösku á
mann á mánuði.
*■
Hringvegurinn
virðist vinsæll.
Það.leikur vart á tveim tungum,
að hringvegarhugmyn.din á al-
mennum vinsældum að fagna
meðal almennings, enda seldust
miðar i happdrættisláninu strax
vel. Þessi ungi maður, Snorri
Steinþórsson, var meðal þeirra,
sem Visir hitti að máli i gær-4
Landsbankanum. Hann kvaðst
ætla að styrkja má]efniö með þvi
að kaupa tvo miða, annan handa
sér, hinn handa kærustunni. Og
svo er náttúrlega alltaf lika von
um að vinna stóran vinning, þó
ekki sé nú annað.
Þau stórjuku söluna
Með offsettækni og nýjum Visi
jókst sala blaðsins að miklum
mun. „Sumarsala dag eftir dag”,
sögðu strákarnir i þessum fjöl-
menna og vinsæla flokki okkar.
Og hér eru þeir söluhæstu i febrú-
ar, Auðunn Gestsson, þriðji frá
vinstri varð söluhæstur, þá Ari
Gunnarsson, lengst til vinstri, og
þriðji Egill Magnússon, en hin
þrjú komu nærri og hyggja á enn
betri árangur, áður en langt um
liður.