Vísir - 27.03.1972, Qupperneq 13
visir. íVlanutlag-ur 27. marz 1972.
13
Knaffspyrnusambandið 25 ára:
KSI ÆTLAR AÐ BYGGJA
YFIR SIG í LAUGARDAL
Góðir gripir bárust i
hið mikla safn Knatt-
spyrnusambandsins á 25
ára afmælinu, — og
mörg falleg loforð voru
gefin i hófi, sem KSÍ
bauð til i gærdag i Sig-
túni. Verst að skrifstofa
sambandsins rúmar
ekki öllu fleiri gripi, og
starfsemin er búin að
sprengja af sér þann
ramma, sem henni er
settur i íþróttamiðstöð-
inni.
Albert Guðmundsson gat þess I
Bridgefélag
Reykjavíkur
30 úra
Bridgeóhugamenn
Komið og sjáið spennandi úrslitakeppni
milli brezku meistaranna og úrvalssveitar
Bridgefélags Reykjavikur, úrslitakeppnin
hefst i Súlnasal Hótel Sögu kl. 20.00 i
kvöld. Spilin eru öll sýnd á sýningartöflu
(ramma) og útskýrð um leið og þau eru
spiluð.
Munið afmælishátið i átthagasal Hótel
Sögu miðvikudagskvöldið 29. marz.
þvi tilefni i ræðu i gær, að nú stæði
til að KSÍ byggði i Laugardalnum
yfir starfsemi sina. Þá mun
rýmkast um starfsemina og hið
glæsilega bikara- og gjafasafn.
Það var fjölmennt til afmælis-
boðsins hjá KSt, eins og vænta
mátti, og afmælisbarninu haldnar
margar og fallegar ræður. M.a.
barst KSt fallegur silfurbakki frá
Knattspyrnuráði Reykjavikur,
sem á sinum tima stóð fyrir stofn-
un sambandsins og átti i vök-að
verjast við stofnunina vegna að-
kasts frá ymsum aðilum. Siðar
hafa KRR og KSl ekki ævinlega
átt mjög elskuleg viðskipti, og þvi
var það sögulegt augnablik,
þegar formaður KSt og formaður
KRR mættust á vinsamlegum
vettvangi.
Skemmtilega gjöf fengu þeir
KSI-menn úr Vestmannaeyjum.
„Venus úr Eyjum” kölluðu
margir konustyttu mikla, sem
vakti mikla kátinu hjá sam-
kvæminu, sem samanstóð svo til
eingöngu af karlmönnum, enda
þótt kvennaknattspyrna hafi nú
verið tekin upp og konur aufúsu-
gestir i afmælishófinu.
Knattspyrnudómarasambandið
gaf ekki dýrar gjafir, en þó dýr-
mætar. Bjarni Felixsson kvaðst
gefa KSl þá gjöf að lofa miklu og
góðu starfi þessa nýja sambands
næstu árin. Var góður rómúr
gerður að máli hans.
Fjölmargir menn voru heiðr-
aðir fyrir vel unnin störf fyrir
knattspyrnuiþróttina undanfarin
ár og áratugi. Verður nánar sagt
frá orðuveitingum þeim i blaðinu
siðar. —JBP
r
Islandsmet
Lilja Guðmundsdóttir, hin efni-
lega iþrótlakona i ÍR, stórbætti
isiandsmet sitt i «00 m. hlaupi á
móti i Laugardalshöllinni á
laugardag. Hún hljóp vega-
iengdina á 1:52.4 min., sem er sjö
sekúndum betri timi en eldra
metið innanhúss. Ásta Breiðfjörð
hljóp einnig innan við gamia
mettimann og setti telpnamet.
KSi bárust margar góðar gjafir á 25 ára afmælinu og hór sést for-
maðurinn, Albert Guðmundsson, með nokkrar þeirra.
Ljósmynd Astþór.
Afgreiðslustörf
Vantar pilt og stúlku til afgreiðslustarfa i
kjörbúð strax. Uppl. i sima 23457.
AUGLÝSINGASTOFA KRISTINAR 10.4
BYKO
(og aö sjálfsögðu í fjölbreyttu úrvali)
BYGGINGAVÖRUVERZLUN KÓPAV0GS
KÁRSNESBRAUT 2
SIMI 410 00