Vísir - 27.03.1972, Blaðsíða 21

Vísir - 27.03.1972, Blaðsíða 21
Vfsir. Mánudagur 27. marz 1972. 21 n □AG | D KVÖLD | n DAG 1 Hluti úr frescomáiverki eftir Goya. Málverkiö heitir Kraftaverk San Antonio. Sjónvarp kl. 22.30: FRANCISKO GOYA Sjónvarpið sýnir i kvöld hol- lenzka mynd um spánska mál- arann Goya, en hann varö meðal annars frægur fyrir andiits- myndirsinar, myndir af nautaati og ýmiss konar hrollvekjandi at- burðum. Francisco José de Goya Y Luci- entes, eins og hann heitir fullu nafni, var einn sérkennilegasti listamaður Spánar og fremstur allra 19. aldar málara og mynd- grafara i Evrópu. Hann fæddist 30. marz 1746 i smábænum Fuendetodos nálægt Saragossa og hóf listnám sitt i Saragossa, en lærði siðar i Madrid. Þar kynntist hann systur kennara sins og giftist henni siðar. Hann hélt siðar til Italiu til þess að halda áfram námi sinu og dvaldi þá i Róm. Stuttu siðar hélt hann aftur til Saragossa, og þar fékk hann eitt fyrsta mikilvæga verkefni sitt, en það var að gera kalkmálverk i dómkirkjuna á staðnum. Hann fór þó fyrst að láta að sér kveða árið 1775, en þá var hann ráðinn til þess að mála mynda- seriur fyrir fyrirtæki nokkurt að nafni Santa Barbara. Haft er eftir Goya að hann hafi aðeins viðurkennt þrjá meistara, það voru þeir Velázques, Rem- brandt og svo umfram allt, sjálf náttúran. Á siðari árum var hann bersýnilega undir nokkrum áhrif- um frá Rembrandt, en málverk Velázquez komu honum til þess að veita náttúrunni meiri athygli og hann fór að mála hana meira. Hann var gerður að yfirmanni akademiunnar á Spáni árið 1775, en hætti tveim árum seinna vegna heilsu sinnar, en árið 1792 hafði hann lagzt i alvarlegum veikind- Jú, það er rétt, þetta er Eiður Guðnason að störfum i Dacca, höfuðborg hins nýja rikis Bangla Desh. Tveir sjónvarpsmenn, Eiður og örn Harðarson kvik- myndatökumaður, dvöldust þar nýlega i nekkra daga. Og i kvöld sýnir sjónvarpið mynd frá dvöl þeirra þar. um og varð algjörlega heyrnar- laus. Eftir þau veikindi fór list hans að taka á sig nýjan svip. tmyndunaraflið virtist frjórra, og i afturbata sinum málaði hann mjög mikið. Og Goya hélt áfram að mála, og hann náði stöðugt meiri frama. 1824 ákvað hann að fara til Frakklands sökum hriðversnandi heilsu sinnar. Eftir að hafa verið i Paris, bjó hann um sig i Bor- deaux, þar sem hann hélt kyrru fyrir til dauðadags, eða 16. april árið 1828. En verk hans lifa enn, og enn vekja þau aðdáun manna. —EA IÍTVARP • Mánudagur 27. mar7 7.00 Morgunútvarp. Morgunbæn kl. 7.45: Dr. Jakob Jónsson (virka daga vikunnar). Morgunstund barnanna kl. 9.15 Þáttur um uppeldismál ki. 10.25: Valborg Sigurðardóttir skólastjóri talar um sjálf- stæðisþörf barnsins og mót- þróaskeiðið. Gömul Passiu- sáimalög I útsetningu Sigurðar Þórðarsonar kl. 10.45: 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tii- kynningar. Tónleikar. 13.15 Búnaðarþáttur: Or heima- högum Jón Helgason bóndi i Segulbúðum i Landbroti segir frá. 13.30 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Síðdegissagan: „Draumurinn um ástina” eftir llugrúnu. Höfundur les (10). 15.00 Fréttir. Tilkynningar. 15.15 Miðdegistónleikar 16.15 Endurtekið cfni: Minningar frá Hólum i Hjaltadal Guðmundur Jósafatsson frá Brandsstöðum segir frá. 17.00 Fréttir. Tóníeikar. 17.10 Framburðarkennsla i tengslum við bréfaskóla SIS og ASiDanska, enska og franska. 17.40 Börnin skrifa Skeggi Ásb- jarnarson les bréf frá börnum. 18.00 Létt lög. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá- kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Daglegt málSverrir Tómas- son cand. mag. flytur þáttinn. 19.35 Um daginn og veginn Elin Pálmadóttir blaðamaður talar. 19.55 Mánudagslögin 20.30 iþróttalif örn Eiðsson talar við Ara Guðmundsson sund- kappa. 20.55 Frá hátið ungra norrænna tónskálda i Kaupmannahöfn i byrjun þessa mánaðar (Hljóð- ritun frá danska útv.). 21.20 islenzkt mál Asgeir Blöndal Magnússon cand. mag. flytur þáttinn. «- X- «- X- «- X- «- X- «- X- 5- f 5- I- 1- X- «- X- «- X- «• X- «- X- «- X- s- X- «- X- «• X- «• X- «- X- «■ X- «- X- «• X- «- X- X- «- X- s- X- «• X- «. X- «- X- «- X- «- X- X- s- X- «- X- «- X- « X- «- X- «- X- «- X- «- X- «- X- «- X- «- X- «- X- 5- X- «- X- «- X- «• X- «■ X- «- X- «- X- «- X- «- X- «- X- «- X- «- X- «- X- «- X- «- X- «- X- «- r* Íþ w fií Spáin gildir fyrir þriðjudaginn 28. marz. Hrúturinn, 21. marz-20. april. Þðtt þú hlustir á ráð og leiðbeiningar annarra, skaltu ekki fara eftir þeim nema að svo miklu leyti sem þér finnst það sjálfum hyggilegt. Nautið, 21. april-21. mai. Það rætist betur úr ýmsu i dag en efni virðast standa til. Góður dagur, einkum er á liður, og ættirðu að notfæra þér það á sem flestan hátt. Tviburarnir, 22. mai-21. júni. Þú getur að öllum likindum komið ár þinni vel fyrir borð hvað ýmis áhugamál þin snertir. Sómasamlegur dagur i peningamálum einnig. Krabbinn, 22. júni-23. júli Fólk sem þú umgengst náið, verður ef til vill eitthvað önugt og erfitt við að fást. Heldur mun það þó lagast, þegar á daginn liður. Ljónið, 24. júli-23. ágúst. Þetta verður að ýmsu leyti góður dagur, nema hvað eitthvert ferðalag eða áætlanir i þvi sambandi geta brugðizt að einhverju leyti. Meyjan,24. ágúst-23. sept. Vertu við þvi búinn að þurfa að breyta fyrirætlunum þinum. Annars verður þetta að ýmsu leyti ágætur dagur, sem þú skalt notfæra þér vel. Vogin,24. sept. -23. okt. Það er ekki óliklegt að þú eigir i einhverju annriki, og verðir á báðum áttum i sambandi við einhverjar ákvarðanir, en sennilega greiðist úr þvi. Drekinn.24. okt.-22. nóv. Farðu gætilega i áætl- unum að svo miklu leyti sem þær snerta pen- ingamálin. Fréttir geta sett jákvæðan svip á daginn. Bogmaðurinn,23. nóv.-21. des. Einhver kunningi þinn kann að koma þér skemmtilega á óvart. Eða þá að þér berst bréf, sem færir þér óvæntar og góðar fréttir langt að. Stcingeitin22. des.-20. jan. Treystu varlega á öll loforð i sambandi við ferðalog, og gakktu sjálfur sem bezt frá öliu, eftir þvi sem þér er unnt, jafnvel i smæstu atriðum. Vatnsberinn, 21. jan.-19. febr. Annrikisdagur, vegna einhvers undirbúnings, og mun þó vafa- samt, að hann komi að öllu leyti að tilætluðum notum, óvæntra atburða vegna. Fiskarnir, 20. febr.-20. marz. Faröu þér hægt og rólega, og þótt þusað verði i kring um þig, skaltu láta sem þú verðir þess ekki var, en halda þinu ákveðna striki. ■ít -K •tt •tt •k •tt -k •» -k -tt -k -tt -k ■tt -k -tt * -tt * -tt ■+ •tt + •ti -k -ít + -tt + •tt * ■tt + -ti -ti + -tt + * -t! -t* + + *tt + •t + -t -t -t ★ •tt -S + ■tt + -tt ★ -tt ★ •tt -k ■ti + •tt * -tt ■tt + •tt * •tt -tt -tt -k •tt + -tt + -tt + -tt + ■tt ■tt * •tt * -tt 4M?*J?*lM‘-J7*J7-+J?-¥-J?-+J?+Jí*J?-+J?+J?4M?+V+V+V+ 21.40 Pianósónata i A-dúr op. 101 eftir Ludwig van Beethoven Svjatoslav Rikhter leikur á tón listarhátið i Dubrovnik i ágúst s.l. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiusálma (47) Óskar Halldórsson lektor les. 22.25 Kvöldsagan: Endur- minningar Bertrands Russells 22.45 Hljómplötusafnið 23.40 Fréttir i stuttu máli. Dag- skrárlok. SJÓNVARP • Mánudagur27. marz. 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og augiýsingar 20.30 Rósa, Leikrit frá danska sjónvarpinu eftir Jytte Hauch- Fausböll. Meðal leikenda eru Iben Wurbs, Kirsten Rolffes, Willy Rahnov, Mime Fönss og Suzanne Brögger. (Nordvision — Danska sjónvarpið) Þýðandi Ingibjörg Jónsdóttir. Saklaus og óspillt sveitastúlka kemur til Kaupmannahafnar og fær þar vinnu i stórverzlun. Þar er henni kennd sú framkoma sem talin er hentugust fyrirtækinu og brátt er hún gjörbreytt frá þvi, sem áður var. 21.45 Dacca, Bangla Desh. Tveir sjónvarpsmenn, Eiður Guðna- son fréttamaður og örn Haröarson kvikmyndatöku- maður, dvöldust nýlega nokkra daga i Dacca, höfuðborg hins nýja rikis Bangla Desh. Þar rikir nú viða neyðarástand eftir styrjöldina við Vestur- Pakistan. Milijónir manna eru heimilislausar, og skortur er á ýmsum lffsnauðsynjavörum. Alþjóðastofnanir vinna nú að hjálparstörfum og endurreisn i Bangla Desh. t kvikmyndinni, sem sjónvarpsmenn gerðu i Dacca, er brugðið upp myndum af ástandinu í borginni, rætt viö flóttafólk, og þá sem sinna hjálparstörfum. Umsjón og hljóðtaka Eiður Guðnason. Kvikmyndun örn Harðarson. Klipping Erlendur Sveinsson. Hljóðsetning Oddur Gústafs- son. 22.30 Francisko Goya. Hollenzk mynd um spánska málarann ■ Goya (1746-1828), sem meðal annars, varð frægur fyrir and- litsmyndir sinar, myndir af nautaati og ýmiss konar hroll- vekjandi atburðum. Sýndar eru myndir hans og æviferill hans jafnframt rakinn. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 22.55 Dagskrárlok.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.