Vísir - 27.03.1972, Side 24
- harðir og Ijótir árekstrar í helgarumferðinni
— þýðingarmikil umferðarljós eyðilögðust
28 árekstrar urðu í
Reykjavík á laugardag,
þegar allt í einu tók að
snjóa af krafti. Götur
urðu þegar i stað afskap-
lega viðsjárverðar að aka
um. Og ökutæki áttu það
til að snúast til óvæntar
áttar og kannski stanga
næsta bíl án nokkurs
fyrirvara.
Samt mun tjón ekki hafa
orðiö mjög mikið i neinu ein-
stöku tilviki. Þaö var ekki fyrr
en i sólskininu i gærdag, sem
árekstrar urðu næsta hrika-
legir. Samtals taldi lögreglan
átta árekstra i gær, og þar af
voru tveir næsta harkalegir:
A mótum Róttarholtsvegar og
Miklubrautar skuilu saman
tveir fólksbilar. Kom annar
suður Skeiðarvog, þar sem hann
nætir Miklubraut/Réttarholts-
vegi, en hinn ók austur Miklu-
braut.
livorugur biianna mun vera
til eins né neins brúks eftir meö-
ferðina. Sem betur fer uröu ekki
meiösli á fólki við samstuö
þetta, en a.m.k. annar öku-
mannanna, sem i hlut
áttu missir þarna flunkunýja
bifreið af dýrri gerð.
Ljósvitar
fyrir tugi þúsunda
Likast til hefur hann blindazt
af sól — eöa meö einhverju móti
ekki getað séö ljósavita á horni
Kringlumýrarbrautar og Miklu-
brautar, maðurinn sem á
sjöunda timanum i gær ók
vestur Miklubraut og vissi ekki
fyrri en hann skall á götu-
vitanum, ljósavita með einum
sjö götuljóskerum á. Vitinn fauk
i götuna og sömuleiöis stjórn-
tækjakassinn, „heilinn" i götu-
ljósasamstæöunum við þessi
gatnamót, og er hætt við að
■borgin eöa tryggingafélag
mannsins sem bilnum ók, verði
að punga út með fáeina tugi
þúsunda núna.
Billinn nýlegur og af dýrri
gerö, en ekki til stórræða úr
þessu.
Vont er aö áætla þaö tjón sem
varð á götuvitunum, þvi aö sér-
fræðingar borgarinnar og
tryggingafélagsins hefa enn
ekki metið það til fulls.
Hins vegar var okkur tjáð hjá
Reykjavikurborg, að götuviti
með sjö ljóskerum hefði árið
1969 kostað uppundir 25.000
krónur. Og ef við gerum ráö
fyrir verðbólgunni, þá ætti að
vera óhætt að verðleggja svona
staur á 30.000 núna.
Máliö verður svo allt alvar-
legra ef stjórntækjakassinn,
sem einnig var keyröur niður i
gærkvöldi, hefur skemmzt
alvarlega eða eyðilagzt. Svo-
leiðis ljósamiðstöð kostar vist
varla undir 100.000 — en vonir
standa til að hann hafi ekki
skemmzt mjög illa i gær.
Ljósin á Miklubraut/Kringlu-
mýrarbraut eru mjög þýöingar-
mikil , og kostar lögregluna
mikinn vinnukraft að hafa
stööugt lögreglumenn viö um-
ferðarstjórn á þessum fjölförnu
gatnamótum. Hugsanlega
komast þó ljósin aftur i lag með
morgundeginum, aö þvi við-
gerðarmenn borgarinnar töldu i
morgun.
Mikiö um tjón
Þaö tekur vist lengri tima en
eina helgi aö reikna út allt þaö
tjón sem orðið hefur um þessa
helgi á ökutækjum manna hér á
Reykjavikursvæðinu.
I Reykjavik urðu um helgina,
þ.e. laugardag og sunnudag, 36
árekstrar. í Hafnarfiröi urðu 11
árekstrar á laugardaginn, en
enginn á sunnudaginn, og i
Kópavogi uröu árekstrarnir 5
talsins, sem þeim i Kópavogi
finnst reyndar nokkuð há tala.
52árekstrar á öllu Reykjavikur-
svæðinu á tveimur dögum. —GG
Páskaegg freistuðu þjófa
Þjófar voru talsvert að störf-
um um helgina, og virtust, sem
gefur aö skilja, hafa mestan
áhuga á páskaeggjum.
Þjófar voru talsvert aö störf-
um um helgina, og virtust, sem
gefur að skilja, hafa mestan
áhuga á páskaeggjum.
Brotizt var inn i verzlunina
Nóatún á mótum Nóatúns og Há-
túns, og stoliö þar fáeinum páska-
eggjum. Einnig var stolið páska-
eggjum i Eyjabúð við Háaleitis-
veginn i Múlahverfi — þannig að
nóg verður af súkkulaðieggjunum
á einhverju heimilinu um
páskana.
Og þjófar heimsóttu lika fata-
verksmiöju Gefjunar viö Snorra-
braut, og þar var stolið fáeinum
alfötnuðum á karlmenn.
Tónabær fékk lika heimsókn
aðfararnótt sunnudagsins. Þar
voru spjöll unnin á leiktækjum
unglinga, og peningum stolið úr
þeim, einhverri skiptimynt.
Blindraheimilið við Hamrahiið
fékk lika heimsókn. Fóru þjófar
inn i vinnustofu blindra þar, og
eýðilögðu talsvert af tækjum, en
tóku engin verðmæti burtu með
sér.
Hugsanlega ætla þjófarnir sér
að nota þessa stimpla á ávisanir j
— og ef einhver rekst á slika ávis-
un á næstunni, þá er bara að
hringja i lögregluna og þjófarnir
fundnir.
Oll þessi innbrot eru óupplýst,
en lögreglan reiknar með að ung-
lingar hafi veriö á ferðinni viða,
a.m.k. þar sem páskaeggjum var
stoliö. —GG
t blindraheimilinu var stolið
tveimur stimplum sem á stendur
„Körfugerð Hamrahlið 17 simi
82250", og hinum stendur „Jakob
E. Kristjánsson”.
Jónatan Hall lögreglumaður.
vism
Mánudagur 27. marz 1972.
ALLT I
Ljósker sem þetta kostar
nokkra tugi þúsunda, aö þvi er
sérfræðingarnir segja — og biil-
inn viröist farinn veg allrar ver-
aldar.
EINNI BENDU
Skíðalöndin iðandi
af lífi í gœr
— skíðafólk komið til Isafjarðar og Akureyrar
Geysilegur mannfjöldi var á
skiöum I nágrenni borgarinnar i
gær. Snjórinn og einstaklega gott
skifTaveöur lokkaöi marga i
Bláfjöllin og Artúnsbrekkuna. t
Bláfjöllunum mátti sjá bil viö bil,
en skiöafólkiö fór flestallt á skiða-
staöina á einkabilum þó aö góö
þátttaka væri I ferðum frá Um-
feröarmiöstööinni.
Undirbúningur skiðafólks fyrir
páskana er þegar hafinn. Kepp-
endur i Skiðamóti Islands eru
þegar margir komnir til Isa
fjarðar. Þar voru báöar skiðalyft
urnar i gangi i gær og mikið af
fóíki á skiðum, en skiðaveöur
virðist hafa verið gott bæði þar og
á Akureyri i gær.
Skiðamótið hefst á morgun
klukkan fjögur með 15 og 10 km.
göngu.
Oddur Pétursson mótsstjóri og
formaður Skiöaráðs tsafjarðar,
sem stendur fyrir mótinu, sagði i
morgun, að á skiðamótinu yrði
áreiöanlega margt fólk. Upp-
pantað sé með mörgum vélum til
isafjaröar i dag og á morgun og
sömuleiðis með Gullfossi, sem
komi á miðvikudagsmorgun.
Skiðafólkinu er komið fyrir i
flestum tiltækum byggingum á
tsafiröi, Mánakaffi, Skiðaskálan-
um, Iðnskólanum og Hjálpræðis
hernum.
— Þetta er oröiö árvisst, að
skíðafóik sæki hingaö i stórum
stil um páskana, sagði Oddur.
— Skiðafærið er alveg skin-
andi. Eins og er er útlitið gott,
norðanátt og frost og hefur bætt
mátulega mikið á snjóinn.
Skiðahótelið i Hliðarfjalli fyrir
ofan Akureyri verður fullsetiö um
páskana. Strax var byrjað að
panta páskadvöl þar eftir ára-
mót. Nú eru nemendur íþrótta-
kennaraskólans staddir þar fyrir
norðan, og hafa verið að æfa sig á
skiðum undanfarna viku.
Páskagestirnir -eru einmitt
byrjaðir að koma. í gær var
mikill mannfjöldi i fjallinu á skið-
um og gott veður til skiðaiðkana.
Ekki er hægt aö spá páskaveör-
inu enn sem komiö er. É1 var fyrir
norðan i morgun og hiti i kringum
frostmarkið allsstaðar á landinu.
Veðurstofan spáði áframhaldandi
norðaustlægri átt I morgun.
—SB—
ROTHÖGGIÐ
Á BAKKUS?
Fáir fullir eftir
brennivínshœkkun,
segir lögreglan
Litiö bar á brennivinsneyzlu
borgara i Reykjavik um þessa
helgi, aö þvi lögreglan teiur.
Hefur bakkus oft veriö myndar-
legar blótaöur en nú var, þótt
vitanlega hafi menn stundaö
skemmtistaöi um þessa helgi sem
aörar. Lögreglan þurfti samt
fáum aö hjálpa heim á sunnu-
dagsmorguninn, en enn færri
þurftu aöstoðar meö á mánudags-
morguninn, aö sögn lög-
reglunnar.
En það er ekki að spyrja að
svartsýninni hjá vörðum lag-
anna: Fólk bara aö safna þreki
fyrir páskana! Og svo eru nú
mánaðamót framundan og menn
orðnir blankir.
Visir hefur þriöju skýringuna á
rólegheitunum: Brenniviniö
hækkaði i siðustu viku. Hækkaði
svo hraustlega að það gleymist
likast til ekki i bráð og þvi missir
rikiskassinn af fáeinum þúsund-
köllum á næstunni, ef að likum
lætur. — GG.
Konu og tveim
ungbörnum bjargað
út um
//Sem betur fór var
þarna borð sem við gátum
staðið upp á og gekk því
greiðlega að bjarga kon-
unni og börnunum út um
glugga á rishæðinni",
sagði Jónatan Hall lög-
reglumaður, en hann var
einn af þeim fyrstu sem
komu á vettvang þegar
kviknaði i húsinu Lauga-
vegur158á laugardaginn.
Vegfarendur sem leið áttu
glugga á brennandi húsi
þarna hjá rétt fyrir kl. 4 sáu
skyndilega eldtungur standa út
um glugga neðri hæöar hússins
sem er einnar hæöar steinhús
með risi. Tvær konur komust út
af neðri hæðinni og var önnur
illa haldin vegna reyks. Sögöu
þær frá þvi að uppi i risinu væri
ein kona með tvö ungbörn. Þeir
sem komnir voru á vettvang
fóru að húsabaki þar sem konan
var komin út i glugga með
börnin tvö. Þrifu menn borð
sem þarna var og var börnunum
bjargað fyrst og siðan konunni.
Kom slökkviliðið á vettvang i
þann mund.
Börnin voru hin hressustu og
sama er að segja um konuna
sem með þeim var uppi i risinu.
Þær sem voru niðri voru hins
vegar fluttar á slysavarö-
stofuna og var önnur siðan lögð
inn á sjúkrahús. Ekki var það þó
vegna brunasára, heldur mun
hún hafa verið lasin og versnað
við atburðinn. Eldur var mikill i
húsinu en slökkviliöinu gekk
greiðlega að slökkva. Skemmd-
ir urðu mjög miklar. Rannsókn
á eldsupptökum hefur staðið
yfir og bendir aílt til þess að um
sé að kenna sigarettuglóð.
—SG