Vísir - 29.03.1972, Qupperneq 4
4
Vísir. Miövikudagur 29. marz 1972.
á að gera?
— ýmislegt er hœgt að gamna sér við i
páskafríinu — listsýningar, tónleika,
ferðalög, eða bara steikarát....
Hvað
Nú standa eflaust margir
frammi fyrir miklum
vanda: Hvað á að gera sér
til dundurs yfir páskana?
Langflestir íslendingar
glíma nú við að eyða fimm
heilum frídögum með ein-
hverju skynsamlegu móti
— og líkast til gefast flestir
upp við að gera eitthvað
sérstakt við þetta frí —
leggjast heldur upp í dívan
og velta því fyrir sér, hvað
þeir ættu að gera. Gera það
hins vegar ekki.
Frá og meö morgundeginum
drögum við á okkur hátiðasvip og
höldum honum fram á næsta
þriðjudagsmorgun. Og þegar
maður eitt sinn gengur um i
sparifötunum og með viðhafnar
bros, þá verður maður eitthvað
að gera til að setja nú almenni-
lega hátiðabrag á dagana.
Allir staðir lokaðir?
Satt er það. Ýmis gleðskapar-
starfsemi þjóðfélagsins lamast
mikils til vegna krossfestingar-
og upprisuhátiðar kristinna. Það
er vist óhætt að afskrifa kvik-
myndahúsin fram til annars i
páskum. Og enginn fær að þjóra
við bar lengur en til klukkan
11:30, þ.e.a.s. á skirdagskvöld og
laugardagskvöldið. Ekkert vin-
veitingahús hefur opinn bar að
kvöldinu á föstudaginn langa eða
sjálfan páskadag.
öll almenn veitingastarfsemi
verður hins vegar leyfð. Kaffi
geta menn keypt sér og heitar
máltiðir á flestum stöðum i
Reykjavik a.m.k.
Reyndar ætla þeir i Naustinu
að loka algerlega sinum glaða
stað, opna ekki einu sinni á mánu-
daginn. Þeir ætla nefnilega að
nota tækifærið og mála allt hátt
og lágt.
Okkur heyrðist hins vegar á
þeim veitingamönnum, sem viö
ræddum við i gærdag, að menn
eætu verið nokkuð vissir um að fá
á öðrum stöðum að drekka
brennivin aðeins fram yfir mið-
nættið á öörum i páskum.
Nokkuð hefur það brunnið við i
Reykjavik undanfarin ár, að vont
hefur verið fyrir svanga menn að
fá keyptan matarbita á steikar-
stöðum um páskana. Margir hafa
algerlega lokað á föstudaginn
langa og páskadag, jafnvel lika á
laugardeginum þar á milli. Hins
vegar eru engar þær reglur til,
sem banna 'veitingamönnum að
selja mat þessa dag, enda munu
sumir ætla sér að hafa opið alla
bænadagana og páskadag, rétt
eins og venjulegur sunnudagur
væri. Til dæmis verður Sæikerinn
i Hafnarstræti opinn alla
hátiðina.
Söfn — tónleikar
En velliðan mannskepnunnar
byggist vist ekki eingöngu á þvi
að hafa færi á að borða feitan
hamborgara eða drekka
rauðvinsglas að kvöldinu. Jafnvel
ekki i Reykjavik. Svo löng frihelgi
sem bænadaearnir oe Dáskarnir
eru ætti að vera mönnum kær-
komið tilefni til að hressa upp á
samvizkuna. Heimsækja til
dæmis listasöfn, sem opin eru á
fridögum. Þjóðminjasafnið er
ævinlega vinsælt — og ekki má
gleyma listsýningum. Súmar-
arnir, sem hingað til hafa haldið
sig við galleri sitt i bakhúsi við
Vatnsstig, leggja land undir fót á
laugardaginn kemur og opna for-
vitnilega sýningu i Keflavik. Og
geri aðrir betur, sem alla tið
halda hrókaræður um nauðsyn
þess að fara með list um landið!
Úr þvi listsýningar eru á dag-
skrá má minna á Norræna húsið.
Þar er til húsa einhver skemmti-
legasta kaffistofa á landinu (ef
ekki sú bezta á Norðurlöndum),
og þar er tilvalið að vera i góðu
skapi. Og þar er núna málverka-
sýning. Sveinn Björnsson úr
Hafnarfirði sýnir vatnslita-
myndir.
Afram með listina: Pólýfón-
kórinn er bessa daeana að flvtia i
fyrsta sinn á tslandi Mattheusar-
passiuna undir stjórn Ingólfs
Guðbrandssonar. Passia þessi
var flutt i fyrsta sinn i Leipzig
árið 1729 og nú, árið 1972 i Reykv
vik. Við höfum fyrir satt að það
séu engir aukvisar, sem standa
að flutningi passiunnar hér. Auk
Pólýfónkórsins flytja hana hljóð-
færaleikarar úr Sinfóniuhljóm-
sveitinni og Tónlistarskólanum i
Reykjavik.
Og ef menn eru gersamlega vit-
lausir i list, þá væri ekki úr vegi
að athuga svolitið með leikhúsin.
Og visast þá hér með til aug-
lýsinga á öðrum stað i Visi.
ökuferðir
Veður hefur að undanförnu
verið gott viða um land, og við-
búið að stressaðir heimilisfeður
verði reknir undir stýri fjöl-
skyldubifreiða og þeim skipað að
fara að skoða landið. Og það er
svo sem margt verra hægt að
hugsa sér. Vegir munu i dágóðu
ástandi miðað við árstima, og
veðurfar hefur verið svo milt i
vetur, að gras hefur verið grænt
nú hérumbil i heilt ár, frost litið i
jörðu og þvi ekki önnur eins for á
vegum og oft um þetta leyti
ársins.
Selfyssingar gera nú mikið til
að laða að sér gesti. Og þvi ekki
að renna þangað austur? Þeir
kalla þessa páskaviku núna
Árvöku, hafa skemmtanir,
sýningar og fundahöld.
Að hótel Tryggvaskála við
ölfusárbrú var okkur sagt i gær-
dag, að veitingasala yrði þar alla
Árvökuna, og einnig veitingasala
i Gagnfræðaskólanum vöku-
dagana i sambandi við sýningu,
sem þar verður.
Kannski fulllangt austur að
Selfossi? Nei, nei — og ef menn
þreytast á akstri svo snemma
vors og úr allri þjálfun, þá er
hugsanlegt að stanza i Hvera-
dölum. Kannski fá sér gönguferð
þar um — eða prófa skiðafærið?
Skiðafærið er reyndar ekki stór-
brotið, en það er hægt að finna
þarna brekkur, eftir þvi sem
okkur var sagt i Hverdölum i gær.
Og kaffið rjúkandi á könnunni og
heitur matur á kvöldin.
En kannski finnst mörgum of
snemmtað facað æða langt út um
sveitir. Láta sér duga að skoða
nýju ibúðahverfin við og i Reykja
vik. Horfa á hestamenn teygja
gæðinga sina inn með Elliðaám
og eftir Flóttamannavegi. Og þá
er Sædýrasafnið ekki of langt i
burtu. Þangað er auðveldlega
hægt að komast með strætis-
vögnum, og Jón Gunnarsson,
forstöðumaður safnsins, sagði
okkur i gær, að hann vonaðist
eftir þvi að hjá honum fæddist
páskakiðlingur, ,,og ef hann ekki
fæðist um páskana, þá geta menn
alla vega komið og litið á ólétta
geit”, sagði Jón. Sædýrasafnið
verður opið bænadagana og
páskana en sælgætissölunni
verður lokað bæði á föstudaginn
langá og páskadag.
Steikarát eða bóklestur.
Hætt er nú við að margur kæri
sig kollóttan, þótt sólin skini og
hundrað kórar syngi af list um
þessa vorhátið. Páskafriið er
nefnilega fyrir stórum hópi fólks
orðið eins konar viðbót við upp-
lestrarfri i skólum, og flestum
mun vist duga bezt að kúra yfir
skólabókum þessa dagana.
Við hin, sem engar skólabækur
lesum framar, látum okkur
nægja að kýla vömbina með
steikum milli þess sem við dorm
um á legubekkjum og litum
kannski i þær jólabækur, sem við
ekki komumst yfir að lesa á hinni
höfuðhátið kirkjunnar. -GG.
VÍSIR
nýtt simanúmer
Rjómaís
milli steikar og
kaffis
isrétlur er frískandi ábætir, sem fljótlegt er að útbúa. Vinsæld-
ir hans við matborðið eru öruggar. Skemmtilegt er að fram-
reiða hann á mismunandi hátt og fylgja hér á eftir nokkrar
uppskriftir:
ÍSSÚKKULAÐI. Fyllið glas að Vb með kakó eða kakómalti.
Setjið nokkrar sneiðar af vanilluís i, skreytið með þeyttum
rjóma og sultuðum appelsínuberki eða möndlum.
JARÐARBERJAÍS MEÐ HNETUM. Ristið hasselhnetur þurrar
á pönnu. Fjarlægið hýðið og saxið hneturnar gróft. Stráið þeim
yfir isinn og hellið 1 msk. af víni yfir (t. d. likjör eða sherry).
BANANAÍS, 1 skammtur. 1 banani / 3 msk. súkkulaðiis / 1 msk.
sólberja- eða jarðarberjasulta / % dl þeyttur rjómi / 1 msk.
hnetukjarnar.
Kljúfið banana að endilöngu og leggið á disk. Setjið ísinn yfir,
skreytið með rjóma, sultu og söxuðum hnetum.
ÍS í PÖNNUKÖKUM er sérlega ódýr og Ijúffengur eftirréttur.
Skerið vanillu- eða súkkulaðiís í lengjur, vefjið pönnuköku
utanum, hellið súkkulaðisirópi, bræddu súkkulaði eða rifnu yfir.
NOUGATÍS MEÐ APRIKÓSUM. Setjið til skiptis í glas nougat-
is, niðursoðnar aprikósur og möndlur. Blandið dálitlum sítrónu-
safa saman við aprikósumauk og skreytið með því.
HEIT ÍSTERTA. 1 sykurbrauðsbotn / 3 msk. sherry / Va ds.
niðursoðnir ávextir / 2 msk. saxað súkkulaði / 2 msk. saxaðar
möndlur / 1 lítri vanilluís.
Marengs: 4 eggjahvítur / 3 dl (250 g) sykur.
Hellið sherryi yfir kökubotninn, setjið ávextina yfir og súkkulaði
og möndlur þar yfir. Spænið ísinn upp og setjið hann yfir
ávextina. Þeytið hvíturnar með 1 dl af sykri mjög vel, góða
stund eftir að þær eru stífar. Blandið því sem eftir er af sykr-
inum gætilega saman við. Smyrjið eggjahvítunum utan um ís-
inn og bakið við mikinn yfirhita (300° C) i örfáar mínútur, eða
þar til marengsinn er gulbrúnn. Berið ísréttinn fram strax.
ÍSKAFFI. Fyllið hátt glas til hálfs með sterku, köldu kaffi.
Leggið nokkrar skeiðar af vanilluís í kaffið, skreytið með þeytt-
um rjóma og rifnu súkkulaði.
SÍMI 86611